Morgunblaðið - 20.09.1985, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER1985
>
>
Ný stjórn Græn-
metisverslunarinnar
NÝ STJÓRN (irænmetisverslunar
landbúnaðarins var kosin á fundi
Framleiðsluráðs landbúnaðarins fyr-
ir skömmu, en það var fyrsti fundur
ráðsins sem skipuð var eftir nýju
búvörulögunum. Stjórnin er reyndar
kosin til bráðabirgða enda er Fram-
leiðsluráði gert að hætta rekstri
Grænmetisverslunarinnar fyrir 1.
júní á næsta ári.
Eftirtaldir voru kosnir í stjórn
Grænmetisverslunarinnar: Ingi
Tryggvason formaður Stéttarsam-
bands bænda, Magnús Sigurðsson
í Birtingaholti, Eiríkur Sigfússon
á Sílastöðum, Skarphéðinn Larsen
á Lindarbakka, Yngvi Markússon
í Oddsparti, Hrafnkell Karlsson á
Hrauni og Jóhannes Helgason I
Hvammi. Magnús, Eiríkur, Skarp-
héðinn og Yngvi eru kartöflubænd-
ur, Hrafnkell er gulrófnaframleið-
andi og Jóhannes garðyrkjubóndi.
Á þessum sama fundi kaus
Framleiðsluráðið sér fram-
kvæmdanefnd. í henni eiga sæti
Ingi Tryggvason, Magnús Sigurðs-
son á Gilsbakka, Þórarinn Þor-
valdsson á Þóroddsstöðum, Hall-
dór Kristinsson í Hraukbæ og Jón
Gíslason á Hálsi. Þá kaus ráðið
Kjartan Olafsson ráðunaut á Sel-
fossi í ráðgjafarnefnd vegna inn-
flutnings kartaflna og grænmetis,
og Gunnar Guðbjartsson í úr-
skurðarnefnd vegna hugsanlegra
deilna á milli framleiðenda og
afurðastöðva vegna móttöku
mjólkur og fleira.
Nýja bíó sýnir
„Trú eða ótrú?a
NÝJA BÍÓ hefur frumsýnt kvik-
myndina „Trú eða ótrú?“, með
Dudley Moore og Nastassja Kinski
Sólhf.:
27 milljónir
ferna hafa
verið seldar
I FYRIRSÖGN fréttar viðskipta-
blaðs Morgunblaðsins í gær var
meinleg prentvilla. Sagt var að Sól
hf. hefði selt 27 milljónir lítra af
Svala á 2'/2 ári, rétt er að salan
hefur verið 7 milljónir lítra, en
fyrirtækið hefur hins vegar selt 27
milljónir ferna.
,í sömu frétt féll niður orð þann-
ig að merking setningar komst
ekki til skila. Júlí-sala Sól hf. á
Svala var 30% meiri en á sama
tima á síðasta ári. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Howard Zieff.
Þetta er bandarísk grínmynd
sem fjallar um hjónaband víð-
frægs hljómsveitarstjóra og ít-
alskrar kvikmyndadísar, sem er
miklu yngri en eiginmaðurinn.
Hljómsveitarstjórinn fær grun um
að eiginkonan sé honum ekki trú
og fær hann einkaspæjara til að
rannsaka málið. Við það færist
heldur betur hraði í atburðarásina.
Stelpa
— strákur,
skiptir það máli?
Dagskrá um jafnréttismál í skólum
Már seldi
í Cuxhaven
MÁR SH frá ólafsvík seldi afla
sinn í Þýzkalandi á fimmtudag og
fékk þokkalegt verð fyrir hann.
Már seldi alls 150,5 lestir, mest
karfa, í Cuxhaven. heildarverð var
5.110.300 krónur, meðalverð 33,96.
Dagana 21.—27. september nk.
gangast Jafnréttisráð og Náms-
gagnastofnun í samvinnu við Banda-
lag kennarafélaga, Fræðsluskrif-
stofu Reykjavíkurumdæmis, Kenn-
araháskóla íslands, Kvenréttindafé-
lag íslands og Skólaþróunardeild
menntamálaráðuneytisins fyrir dag-
skrá um jafnréttismál í skólum undir
heitinu: Stelpa — Strákur, skiptir
það máli?
Tilgangurinn er að vekja skóla-
fólk og almenning til umhugsunar
um jafnrétti kynjanna innan skól-
Sæmileg loðnuveiði
FJÖGUR loðnuskip höfðu tilkynnt
um afla síðdegis á fimmtudag, sam-
tals 2.460 lestir. Á miðvikudag voru
tvö skip með afla, samtals 1.180
lestir.
Á miðvikudag var Örn KE með
580 lestir og Rauðsey Ak með 600.
Á fimmtudag var Kap II VE með
600 lestir, Sighvatur Bjarnason
VE með 680, Svanur RE, 730 og
Bergur VE með 450 lestir. Þessi
skip lönduðu afla sínum ýmist á
Eskifirði, Seyðisfirði eða í Vest-
mannaeyjum.
ans, efla umræðu og fræðslu um
þessi mál.
Efnt verður til fjölbreyttrar
dagskrár: fyrirlestra, kynninga og
námsefnisgerðar. Dagskráin hefst
laugardaginn 21. september kl.
14.00 í Kennslumiöstöð Náms-
gagnastofnunnar, Laugavegi 166,
með ávarpi Guðríðar Þorsteins-
dóttur formanns Jafnréttisráðs.
Síðan mun Þorbjörn Broddason
dósent flytja erindi um Jafnréttis-
mál, menntun og skólastarf. Þenn-
an dag mun verða kynnt nýtt spil,
jafnréttisspil, sem fengið hefur
nafnið Framabrautin. Fengnir
hafa verið tveir þekktir íslending-
ar til að vígja spilið og verður
spilinu lýst af Helgu Thorberg.
Sunnudaginn 22. september kl.
15.00—17.00 verður fluttur fyrir-
lestur um konuna — söguna og
bókmenntirnar í skólanum en að
honum loknum mun Anna Sigurð-
ardóttir kynna Kvennasögusafnið.
Mánudaginn 23. september kl.
16.00—18.00 mun Kristín Jóns-
dóttir kennari flytja fyrirlestur
sem ber heitiö Strákarnir og stelp-
urnar í skólabókunum og að hon-
um loknum kynnir Sigríður
Jnsdóttir námstjóri nýtt námsefni
um jafnréttismál. Þriðjudaginn 24.
september kl. 16.00—18.00 verður
fjallað um konur og starfsval og
konur og tölvumál. Málshefjendur
eru Anna Kristjánsdóttir og Gerð-
ur G. Óskarsdóttir.
Yfirskrift þriðjudagsins 24. er
Hvað er til ráða? Sólrún Jensdóttir
skrifstofustjóri segir frá aðgerðum
á sviði jafnréttismála í nágranna-
löndunum en að því loknu munu
sex alþingismenn, Guðrún Helga-
dóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Jó-
hanna Sigurðardóttir, ólafur Þ.
Þórðarson, Salome Þorkelsdóttir
og Guðrún Agnarsdóttir sitja fyrir
svörum og greina frá stefnu flokka
sinna í jafnréttismálum.
Fimmtudaginn 26. september kl.
16.00—18.00 flytur Dóra S. Bjarna-
son fyrirlestur um hvort rann-
Birgir Úlfsson sölustjóri hjá Pélnnm sýnir notkun laxaflokkunarvélar-
innar. Vélin flokkar lifandi lax jafnt og slátraðan og stjórnar því að rétt
magn fari í kassana. Síðan kemur útkoman út úr tölvunni á pappír
ásamt merkimiða á kassann.
Póllinn hf. á Fiskeldissýningunni:
Framleiðir tækni-
búnað til fiskeldis
PÓLLINN hf. á ísafirði hefur hafið
framleiðslu á tæknibúnaði fyrir
fiskeldisfyrirtæki. Starfsmenn
Pólsins hafa unnið að þróun tækj-
anna á annað ár og kynna tölvuvog
(sem m.a. er hægt að nota til að
telja seiði), sjálfvirka fóðrara, stýri-
kerfi fyrir fiskeldisstöðvar og laxa-
flokkara, í fyrsta skipti á íslensku
fiskeldissýningunni í Laugardals-
hölL
í 3amtali sem blaðamaður átti
við Birgi Úlfsson, sölustjóra
Pólsins á Reykjavíkursvæðinu, á
sýningunni í Laugardalshöll kom
fram að fyrirtækið hefur upp á
eigin spýtur verið að þróa tæki
til fiskeldis, aðallega í sambandi
við viðvaranir, eftirlit og vigtun.
Hann sagði að þessi framleiðsla
væri miðuð við útflutning og
hefðu þau fengið mjög góðar
viðtökur. Til dæmis kæmu
nokkrir erlendir fiskeldismenn
gagngert á sýninguna til að
skoða þessi tæki og ræða við þá
hjá Pólnum.
íslenska fiskeldissýningin er
opin fram á sunnudag og er hún
opin frá kl. 11 til 19 daglega.
Skúli Pálsson á Laxalóni skoðar fiotkví I smækkaóri mynd hjá sölu-
manni norska fyrirtækisins UFN a/s: UFN er samsteypa 18 norskra
framleiöslufyrirtækja sem eru sérhæfð í framleiðslu og þjónustu fyrir
fiskeldi.
Akureyri:
Hrímbakur
kominn til
heimahafnar
Akureyri, 19. september.
HRÍMBAKUR EA 306, sem áður hét
Bjarni Herjólfsson og Útgerðarfélag
Akureyringa hf keypti snemma á
þessu ári, kom til heimahafnar
sinnar, Akureyrar klukkan 19 í
kvöld. Skipstjóri er Stefán Aspar og
fyrsti vélstjóri Friðrik Friðriksson.
Stjórn og framkvæmdastjóri Útgerð-
arfélags Akureyringa tóku á móti
skipinu og auk þess margir bæjarfull-
trúar og fjöldi bæjarbúa, þrátt fyrir
kalsarigningu og norðan sveljanda.
Upphaflega sótti ÚA um sókn-
arkvóta handa skipinu, en þá var
gert ráð fyrir því, að það yrði til-
búið til veiða snemma sumars.
Endurbætur og viðgerðir hafa hins
vegar tekið lengri tíma en búizt
var við svo skakkar þremur mán-
uðum og þess vegna breytti út-
gerðarfélagið umsókn sinni í afla-
kvóta. Yfirvöld hafa orðið við því
og þar af leiðir að hluti af kvóta
Hrímbaks nýtist öðrum togurum
félagsins.
Gert er ráð fyrir að Hrímbakur
haldi til veiða annað kvöld. Sv.P.
Fyrirlestrar
um jarðhita
GESTAFYRIRLESARI Jarðhita-
skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna
1985 er Bernardo S. Tolentino, fram-
kvæmdastjóri jarðhitadeildar Olíu-
félags Filippseyja. Hann mun flytja
fimm fyrirlestra um jarðhita á Fil-
ippseyjum á Sal Orkustofnunar,
Grensásvegi 9, Reykjavík. Dagskrá
fyrirlestranna er sem hér segir:
Föstudaginn 20. sept. kl. 14.00,
mánudaginn 23. sept. kl. 09.00,
þriðjudaginn 24. sept. kl. 09.00,
miðvikudaginn 25. sept. kl. 09.00
og fimmtudaginn 26. sept. kl.
09.00.
Fyrirlestrarnir eru fluttir á
ensku og eru öllum opnir.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í FRÉTTAKLAUSU um Sihanouk
prins hér i blaðinu í gær var rang-
hermt að konungur Thailands
sæti ekki lengur á valdastól.
Bhumibol Adulyadej konungur
(sem einnig er þekktur sem Rama
IX) hefur ríkt í Thailandi frá 1946
og er enn þjóðhöfðingi Thailend-
inga.
sóknir í félagsvísindum villi okkur
sýn á þroska og nám kvenna og
karla.
Fimmtudaginn 26. september kl.
13.00—16.00 og föstudaginn 27.
september kl. 13.00—17.00 gefst
fólki kostur á að taka þátt í náms-
efnisgerð. Unnið verður að náms-
efnisgerð um jafnréttismál á
grunnskóla- og framhaldsskóla-
stigi. Leiðbeinendur eru Sigríður
Jónsdóttir, Elín G. Ólafsdóttir,
Gerður G. Óskarsdóttir og Guðrún
Hannesdóttir. Fjöldi þátttakenda
er takmarkaður og verður að til-
kynna þátttöku til Kennslumið-
stöðvar Námsgagnastofnunar.