Morgunblaðið - 20.09.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER1985
43
(Jtvarpshlustandi er ekki ánægöur með öll þau tónlistarinnskot sem verið hafa í útvarpinu fram aö þessu.
Svar við fyrirspurn um
tónlistarinnskot í útvarpi
G.J.Á. skrifar:
Á skrifstofu Ríkisútvarpsins var
tjáð að greiðsla fyrir erindi miðað-
ist við lengd þeirra. Þessi innskot
— tíðum án neinna tengsla við
efni þeirra — auka því tekjur flytj-
enda og gjöld útvarps, sem nú
verður að greiða fleiri en einum
fyrir sömu mínútu, og verða til
verulegs ama hlustendum.
Þetta ætti að nægja sem full-
nægjandi svar við hinni tímabæru
fyrirspurn.
Síldin er sérstök
Skarphéöinn Agnars skrifar.
Síldin er sérstök var kjörorð
ráðstefnu sem Ríkismat sjávaraf-
urða stóð fyrir í Keflavík nýlega
og fyrirhugað er að halda víðar á
landinu.
þessu hlýja og góða viðmóti. Þarna
eru allir boðnir og búnir til að
hjálpa viðskiptavininum og greiða
götu hans á eins skjótan og góðan
hátt og framast er unnt.
Það er greinilegt að kaupmaður-
inn í Hagabúðinni leggur metnað
sinn í aðþjóna sínum viðskiptavin-
um eins og kostur er.
Þá langar mig einnig að nefna
að þarna er vöruúrval alveg með
ágætum þannig að það er sjaldan
að leita þarf í stórmarkað.
Mikið um
unglinga
með hnífa
Faöir hringdi og hafði eftirfar-
andiaðsegja:
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um það hversu óhugnanleg-
ur þessi atburður fyrir utan Villta
tryllta Villa um helgina er.
Mig langar hins vegar að vekja
athygli á því að talsvert hefur
borið á því að ungir drengir á
grunnskólaaldri eru að veifa hníf-
um í tíma og ótíma og jafnvel ota
þeim að fólki. Það er alveg greini-
legt að eitthvað verður að aðhafast
og koma í veg fyrir að frekari slys
af þessu tagi verði.
Þá er ég einnig mjög hissa á því
að löggæsla sé ekki meiri þarna í
kringum þennan unglingastað,
Villta tryllta Villa, því þar er ör-
tröðin slík um helgar að það fer
ekki hjá því að til einhverskonar
áfloga og ryskinga komi, ég tala
nú ekki um þegar unglingar eru
farnir að fara vopnaðir á þessa
„skemmtistaði".
Hinn nýi fiskmatsstjóri Halldór
Árnason á lof skilið fyrir áhuga
sinn á þessum þætti starfsemi
stofnunarinnar sem ekki hefur
mikið verið hampað til þessa.
í tilefni af þessu, og til gamans,
ætla ég í örstuttu máli að rifja upp
nokkur atriði sem snerta síld.
I gegnum aldirnar hefur síldin
verið afgerandi þáttur í fæðuöflun
ýmissa landa. Jafnvel steinaldar-
mennirnir kunnu að veiða síld og
munu hafa neitt hennar í ríkum
mæli. En það var ekki fyrr en seint
á síðustu öld að íslendingar fóru
að veiða síld að einhverju ráði. í
byrjun þessarar aldar fóru svo
veiðarnar að færast verulega í
aukana. Það má segja að síðan
hafi síldin haft gífurlega mikil
áhrif á afkomu fjölda fólks og
þjóðarbúið í heild. Þetta hefur þó
verið misjafnt eftir árum.
Síldin er sérstök að því leyti að
í kringum veiðarnar og vinnsluna
myndast alveg sérstakt andrúms-
loft sem erfitt er að skýra. Heilu
byggðarlögin eins og rakna úr roti.
Allir verða hressir ogkátir, jafnvel
þeir sem áður voru eitthvað miður
sín.
Síldin hefur réttilega verið talin
holl og Ijúffeng fæða. Um það
vitnar þýski málshátturinn „Þegar
síldin kemur getur læknirinn far-
ið“.
Margar bækur hafa verið ritað-
ar um síld. I bókinni Silfur hafsins
eftir Ástvald Eydal segir hann á
einum stað: „Fjöldinn allur af
þjóðsögum er sagður um síldina. í
mörgum þeirra er sagt frá því
hvernig síldin varð konungur fisk-
anna. Ein þjóðsagan er á þessa
leið: Fiskarnir höfðu lengi verið
óánægðir með skipulagsleysi í ríki
sínu. Hver og einn synti til hægri
eða vinstri eftir því sem honum
Sfld, silfur hafsins, komin í tunnur
og tilbúin til útflutnings.
sjálfum þóknaðist og kærði sig
kollóttan um, þótt hann væri í
vegi fyrir hinum. Sá sterkari ruddi
þeim minnimáttar úr vegi eða
jafnvel gleypti hann. „En hvað það
væri gott að hafa konung sem
gæti haldið uppi lögum og reglu,"
sögðu fiskarnir og ákváðu að sá
þeirra skyldi verða konungur sem
synt gæti hraðast og verndað þann
máttarminnsta. Síldin vann
keppnina og hefur upp frá þvf verið
konungur fiskanna.
Og blessuð síldin ætlar ekki að
gera það endasleppt. Nú hefur hún
blásið talsverðum lífsanda í þessa
stofnun sem, um þessar mundir,
heitir Ríkismat sjávarafurða.
Já, síldin er sérstök.
Velvakandi hvetur lesendur til aö skrifa þættinum um hvaöeina, sem
hugur þeirra stendur til — eöa hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til
fostudaga, ef þeir koma því ekki viö aö skrifa. MeÖal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og oröaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisfong veröa aö fylgja öllu efni til þáttarins, þó aö höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæöa til aö beina því til lesenda blaösins utan
höfuöborgarsvæðisins, aö þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Xerox 1025
Við erum stolt aó
kynnanýja
„Rolls Royce~inn’
f rá Rank Xerox
gæóannavegna
Xerox 1025 er Ijósritunarvél fyrir meðalstór og
stœrri fyrirtæki, sérlega hagstœð fyrir auglýsinga-
stofur og arkitektastofur vegna mikilla Ijósritun-
argœða.
Xerox 1025 er smávaxin en getur sinnt stórum
verkum. Hún er fjölhœf og gefur möguleika á
Ijósritun í lit, hálfsjálfvirkum matara og 10 hólfa
raðara.
Xerox 1025 Ijósritar 18 A4 á mínútu, tekur
pappírsstœrðir frá A6 - A3 og hefur 8 stœrðar-
stillingar.
Finnst þér ekki full ástœða til að heimsœkja
okkur, líta á gripinn og sjá hvort hann getur upp-
fyllt þínar þarfir?
Vertu ávallt velkominn.
NÓNHE
Hverfisgötu 105 S. 26235-26234