Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1986
Nú þarf að fella
gengið um 50 %
— ef sama afkoma á að nást
út úr söltun nú og f fyrra
„MÉR reiknast til að fella þurfi
gengi íslenzku krónunnar um nálægt
50 % til þess að afkoman í sfldarsolt-
uninni verði sambærileg því, sem
hún var í fyrra. Það gengur engan
veginn að setja gengi fast meðan
innlend verðbólga æðir áfram og
hækka svo hráefnisverð þegar sölu-
verð afurðanna hefur lækkað,“ sagði
Eðvarð Júlíusson, framkvæmdastjóri
Hópsness í Grindavík, í samtali við
Morgunblaðið.
Eðvarð sagði ákvörðun yfir-
nefndar Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins um 24% hráefnisverðs-
hækkun fáranlega, sérstaklega þar
sem hún væri tekin með fulltingi
fulltrúa ríkisvaldsins. Þessi ríkis-
stjórn væri komin í sama farið og
síðasta stjórn; að festa gengi en
leyfa á sama tima bullandi inn-
lendar kostnaðarhækkanir. Það
hlyti hvert mannsbarn að sjá að
sjávarútvegurinn gæti engan veg-
inn gengið við þær forsendur að
tekjum hans væri haldið föstum
en útgjöld stöðugt aukin með full-
tingi stjórnvalda. Það hlyti því að
koma fyrir þessa stjórn að hún
missti tökin á öllu saman og sæti
uppi með óðaverðbólgu og nánast
óleysanlegan vanda.
„Það er þannig búið að þessu nú
að manni virðist að ríkið ætli bara
að taka þetta allt yfir. Það var nú
svo áður fyrr, að verðlagning á
fiski var ekki verri en svo, að hún
miðaðist við núllið. Nú er verð-
lagningin þannig að vinnslan verð-
ur rekin með bullandi tapi og þá
er stutt í þrotið," sagði Eðvarð
Júlíusson.
Mjög miklar skemmdir urðu á barnaheimilinu og er innbúið talið ónýtt að mestu.
Líkur á mannabreytingum
í ríkisstjórninni á næstunni
nVeröa vafalaust ræddar á þingflokksfundi á mánudaginn‘‘segir
Olafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins
TALSVERÐS óróa virðist nú gæta meðal sjáifstæðismanna, eftir að þing-
flokks- og miðstjórnarfundur Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi eins harkalega
og raun ber vitni, ríkisstjórnina, fjárlagagerðina og stefnumörkun í efnahags-
málum. Auk þess munu ráðherrar og flokksforysta gera sér grein fyrir því
að raddir þær í Sjálfstæðisflokknum sem krefjast þess að Þorsteinn Pálsson
taki sæti í ríkisstjórninni gerast stöðugt öflugri.
Það er því talið mjög líklegt að ingar í ríkisstjórninni ræddar á
INNLENT
ákvörðun um mannabreytingar í
ríkisstjórn verði tekin innan
skamms á þingflokksfundi Sjálf-
stæðisflokksins, hugsanlega strax
á mánudag. Telja viðmælendur
Morgunblaðsins að það sé mun
líklegra að þessi ákvörðun verði
tekin, en aö ákveðið verði að rjúfa
þing og efna til kosninga.
„Vafalaust verða mannabreyt-
þingflokksfundinum á mánudag,"
sagði ólafur G. Einarsson formað-
ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins
i samtali við Morgunblaðið í gær.
„Við verðum að taka þátt í þeim
umræðum sem eiga sér stað í fjöl-
miðlum."
ólafur sagði að fyrst og fremst
yrði rætt um stöðu Sjálfstæðis-
flokksins innan ríkisstjórnarinnar
og þau mál sem hæst hefði borið
á þingflokks- og miðstjórnarfundi
Sjálfstæðisflokksins í Stykkis-
hólmi um síðustu helgi. „Ég vona
að ríkisstjórnin verði tilbúin til
þess að taka sig á í þeim efnum
sem hún helst var gagnrýnd fyrir
á fundinum," sagði Olafur og sagð-
ist þar eiga við fjárlagadrögin,
þjóðhagsáætlun og efnahagsstefnu
næstu tveggja ára. „Það þarf að
skera útgjaldaliði ríkisins mun
meira niður, en fjárlagadrögin
gera ráð fyrir.
Ég tel það vera mál númer tvö
að skipta um menn í ríkisstjórn-
inni, því það er tilgangslaust með
öllu, ef menn eru ekki sammála
um markmiðin. Reyndar hef ég
ekki nokkra trú á að okkur hafi
áhuga á að fara inn í þessa ríkis-
stjórn, eða að halda þessu stjórn-
arsamstarfi áfram, náist, ekki
samstaða stjórnarflokkanna um
þau markmið sem sett voru fram
í bókun formanns flokksins Þor-
steins Pálssonar."
„Ég tel að það væri mjög æski-
legt að formaður flokksins tæki
sæti í ríkisstjórninni núna þennan
síðari hluta kjörtímabilsins, ef
þessi stjórn heldur áfram,“ sagði
Birgir Isleifur Gunnarsson er
hann var spurður hvort hann teldi
að formaður Sjálfstæðisflokksins,
Þorsteinn Pálsson tæki sæti i rík-
Flugleiðabréfín formlega
boðin starfsmönnum og hluthöfum til sölu:
Raunverulegt kaup-
verð gæti farið niður
í 1,22-falt nafnverð
STJÓRN Flugleiða hefur sent starfsmönnum sínum og hluthöfum bréf þar
sem hlutabréfin sem stjórnin keypti af ríkinu síðsumars eru boðin þeim
formlega til sölu. Eru bréfin boðin á sömu kjörum og stjórnin keypti þau
af ríkinu, þ.e.a.s. 22,5% ber að staðgreiða, en eftirstöðvarnar má greiða með
jöfnum ársgreiðslum á átta árum, verðbóta- og vaxtalausar. Svo sem áður
hafði verið talað um verður helmingur bréfanna boðinn hluthöfum til kaups,
og hinn helmingurinn starfmönnum. Sölunni verður dreift á þetta ár og það
næsta.
Eins og menn ugglaust muna
keypti stjórn Flugleiða bréf ríkis-
ins gagngert í þeim tilgangi að
endurselja þau hluthöfum og
starfsmönnum félagsins. Ríkið átti
fimmtung bréfa félagsins, að nafn-
verði um 7 milljónir króna, sem
fjármálaráðherra, Albert Guð-
mundsson, vildi selja á níföldu
nafnverði, eða á 63 milljónir.
Stjórn Flugleiða keypti bréfin hins
vegar á 66 milljónir með þeim
skilmálum að 22,5% kaupverðsins
yrði innt af hendi strax, en eftir-
stöðvarnar greiddar með jöfnum
árlegum greiðslum á átta árum, án
vaxta og verðbóta. Mátu stjórnar-
menn Flugleiða kaupverð sitt sem
4,5-falt nafnverð.
Nú vekur það athygli, að vegna
nýlegra skattalaga (nr. 75/1981),
sem veita mönnum heimild til frá-
dráttar af tekjuskatti vegna fjár-
festingar í atvinnurekstri, má
setja dæmið þannig upp að starfs-
menn og hluthafar sem kunna að
kaupa bréfin nú geti fengið þau
við mun vægara verði, allt niður í
1,22-falt nafnverð. f bréfi stjórnar
Flugleiða til starfmanna er tekið
dæmi af hjónum, þar sem annar
aðilinn hefur yfir 500 þúsund kr.
í árstekur, sem kaupa hlutabréf
fyrir 66.010 krónur, sem eru 7.000
krónur að nafnvirði. Framreiknað-
ur hámarksfrádráttur fyrir hjón
samkvæmt áðurnefndum skatta-
lögum er 62.500 krónur, og af árs-
tekjum yfir 400 þúsundum greiða
menn 44% tekjuskatt. Þessi hluta-
bréfakaup þýddu því skattfrádrátt
á næsta ári sem næmi 27.500 krón-
um, þ.e.a.s. 44% af 62.500. Á sama
tíma greiðir kaupandinn aðeins
22,5% út, eða 14.852 krónur. í
reiknisdæmi stjórnar Flugleiða
eru eftirstöðvarnar (51.158 krón-
ur) metnar á 15.718 krónur á nú-
virði, vegna væntanlegrar rýrnun-
ar þeirra. Sé skattfrádrátturinn
ennfremur reiknaður til núvirðis,
lækkar hann i 22.000 krónur, og út
úr þessu reiknisdæmi fær stjórnin
að kostnaðarverð bréfanna á nú-
virði sé aðeins 8.570 krónur, eða
1,22-falt nafnverð.
Á fundi með fréttamönnum í
gær, þar sem þessi sala var kynnt,
sagði Helgi Thorvaldsson formað-
ur Starfsmannafélags Flugleiða,
að hann teldi að flestir stafsmenn
félagsins ættu að hafa tök á því
að kaupa bréf á þessum kjörum.
Hann sagði þó að skoðanir væru
nokkuð skiptar meðal starfsmanna
um ágæti þess að kaupa hlutabréf-
in. Starfmenn Flugleiða hér innan-
lands eru rúmlega 1.400, og af þeim
eru þegar um 500 hluthafar og eiga
samtals 36% í félaginu. Hluthafar
í Flugleiðum eru alls um 3.500
talsins.
Eðvarð Júlíusson sfldarsaltandi í Grindavík:
Morgunhlaðid/Júlíus
Það tók slökkviliósmenn um klukkustund að ráða niðurlögum yflrborðseldsins. Myndin er tekin skömrau eftir
að þeir komu á vettvang.
Bruninn í Sólbrekku f fyrrinótt:
Líklega um íkveikju að ræða
Tjónið ekki undir 6 milljónum króna,
segir Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
MIKILL eldur kom upp í barnaheimilinu Sólbrekku við Suðurströnd á
Seltjarnarnesi í fyrrinótt. Húsið skemmdist mjög mikið og innbúið eyði-
lagðist algerlega. Telur Sígurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi
að tjónið sé ekki undir 6 milljónum króna, og gæti reynst mun meira
þegar öll kurl væru komin til grafar.
Állar líkur benda til þess að
brotist hafi verið inn í barna-
heimilið fyrr um nóttina, og telur
rannsóknarlögreglan sennilegt
að sá eða þeir sem þar voru að
verki hafi kveikt í Sólbrekku.
Brotist var inn í húsið fyrir viku
og peningum stolið.
Það var kl. 5.10 í gærmorgun
sem slökkviliðinu barst tilkynn-
ing um brunann, en þá er talið
að eldurinn hafi logað nokkra
hríð. Sólbrekka er timburhús á
einni hæð, og þegar slökkviliðs-
menn komu á staðinn stóðu eld-
tungur upp úr húsinu miðju og
út um glugga. Um klukkustund
tók að ráða niðurlögum yfir-
borðseldsins, en mikil glóð var í
timbrinu og var húsið vaktað
fram yfir hádegi í gær. Eldurinn
kom upp í almenningi í austur-
enda hússins, að því er talið er
í dýnu sem þar lá á gólfi. Þurfti
að rjúfa þakið að hluta til að
komast að eldinum.
Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri sagði að þegar hefðu verið
gerðar ráðstafanir til að koma
þeim 60 börnum sem á barna-
heimilinu voru fyrir á öðrum
stöðum. Félagsheimili Seltirn-
inga og önnur barnaheimili verða
nýtt í því skyni til bráðabirgða.
Sigurgeir sagði að strax yrði
hafist handa við að endurbyggja
barnaheimilið og sagðist vonast
til að hægt yrði að taka hluta
þess aftur í notkun eftir 3-4
vikur.