Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985 Aðstoðin komi þiggjendum að gagni Athugasemdir við grein Þorbjörns Magnússonar BLAÐINU hefur borist eftirfar- andi frá I'róunarsamvinnustofn- un íslands: Ástæða þykir til að gera nokkrar athugasemdir við grein Þorbjörns Magnússonar um þróunaraðstoð á Græn- höfðaeyjum, en greinin birtist í Morgunblaðinu 28. september sl. Þorbjörn kom til Mindelo á Grænhöfðaeyjum á sl. vori og staldraði þar við og er nú orð- inn vel að sér um þróunarhjálp og stjórnarfar á Grænhöfðaeyj- um að eigin áliti, ef dæma má af skrifum hans, en um margt gætir þar misskilnings og í skrifunum er að finna leiðinleg- ar og órökstuddar dylgjur um stjórn íslenzka fiskveiðiverk- efnisins. í upphafi ritar Þorbjörn af talsverðum þótta um stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum og finnur þeim margt til foráttu. Stjórn- arfar í þróunarlöndum er um margt frábrugðið stjórnarfari í ríkjum, sem búið hafa um langan aldur við sjálfstæði, lýð- ræði og almenna menntun þegnanna. Þróunaraðstoð iðn- væddra ríkja verður að taka mið af þessu. Ekki er hægt að koma siglandi einn góðan veð- urdag og taka völdin í viðkom- andi ríki með það í huga að hinn aðvífandi viti hvað inn- fæddum sé fyrir beztu. Þróun- arsamvinna þýðir að sjálfsögðu samstarf milli þeirrar þjóðar, sem aðstoð veitir og þeirrar þjóðar, sem aðstoðina fær og í því sambandi er ekki hægt að ganga framhjá þeim sem með völdin fara á hverjum tíma. Þróunaraðstoð er þolinmæð- isverk og áhlaupamönnum lítt að skapi, sérstaklega ef þeir skilja ekki ýmis grundvallarat- riði. Sem dæmi um skort á þeim skilningi hjá Þorbirni má nefna skrif hans um sölu stjórnvalda á Grænhöfðaeyjum á gjafa- korni frá Belgíu. Kornið er selt á verði sem samsvarar verði innlendrar matvælafram- leiðslu. Ókeypis gjafakorn myndi við þær aðstæður, sem Til sölu Þetta er húsiö Njáisgata 6. Húsiö er steinkjallari, hæö og ris, sem er járnklætt timburhús. I ris- inu, sem er meö góöum kvisti á móti suðri, er þokkaleg 2ja herbergja ibúö meö sérinn- gangi. Geymsluris er fyrir ofan þessa íbúö. Á hæðinni er 3ja herbergja íbúð með sérinn- gangi. I kjallara eru 2 herbergi og snyrting, sem er aöskiliö frá sameign. j kjallara eru ennfrem- ur geymslur, þvottahús, kyndi- klefi og gangar. Rúmgott at- vinnuhúsnæöi er viö hliöina i húsinu. Húsiö er í góöu standi og hitakostnaöur lítill. Ágætur staður. Húsiö er laust. Eignar- lóð. Húsið selst í einu eöa tvennu lagi. Einkasala. Árni Stefánsson hrl. Málflutníngur. Fasteignasala. Suöurgötu 4. Sími: 14314. Kvöldsími: 34231. ríkja á Grænhöfðaeyjum, kippa fótunum undan landbúnaði og fiskveiðum innanlands. Þorbjörn skrifar af litlum skilningi um árangur af fisk- veiðitilraunum r/s FENGS og þegar hann viðurkennir, að einhver árangur hafi orðið, rennur út í fyrir honum. Skipið hefur gert tilraunir með ýmsar veiðiaðferðir jafnt að tillögum íslendinga og skv. beiðni innlendra samstarfsað- ilja. Togveiðitilraunir leiddu í ljós að talsvert magn má veiða í botnvörpu við eyjarnar af fisktegund, sem ekki er nýtt í dag. Ekki er þörf á stórum togurum við þessar veiðar, en hægt er að nota við þær minni togbáta. Veiðarnar hafa þó enn ekki hafizt af kappi, bæði af tæknilegum ástæðum og eins sökum þess að enn er ekki komið skipulag á vinnslu og sölu þessarar fisktegundar. Það atriði er utan verkefnis íslend- inga, en þó hefur verið reynt að vinna að því af hálfu Þróun- arsamvinnustofnunar með því að kynna samstarfsaðilunum ýmislegt er varðar fiskvinnslu og markaðsmál. Eitt af markmiðum fiskveiði- verkefnisins var að reyna að auka öflun beitufiskjar til tún- fiskveiða og túnfiskveiðar í því sambandi. Tilraunir FENGS hafa leitt í ljós að lítt verður aukið við öflun beitufiskjarins úti á hafi. Hann er helst að fá á grunnu vatni upp við strönd- ina, þar sem innlendir fiski- menn eru slyngir við að veiða hann í nót. Skortur á beitufiski takmarkar stangaveiðar Græn- höfðamanna á túnfiski og þótt árangur af tilraunum FENGS sé neikvæður, þá er vitneskja um hina litlu möguleika á beitu engu að síður mikilvæg. Aðrar fiskveiðitilraunir FENGS skulu ekki raktar hér, en með skipinu hefur verið gerð tilraun til þess að hleypa nýju lífi í humarveiðar landsmanna, gerðar hafa verið tilraunir með veiðar í flotvörpu, með hand- færum og nót. Skipið hefur reynst mjög vel og úthaldstimi þess hefur verið lengri en al- mennt er um útgerð slíkra skipa í hitabeltishöfum. At- hugasemdir Þorbjörns þar að lútandi eru ekki svaraverðar. Frá upphafi hefur verið lögð mikil áherzla á hina fiskifræði- legu hlið, það er rannsóknir á undirstöðu fiskveiða á Græn- höfðaeyjum, greiningu fiskteg- unda, rannsóknir á magni fisk- tegunda o.s.frv. og einnig hefur verið unnið að gerð fiskikorta og almennum sjómælingum við eyjarnar. Skipið er búið stað- setningartæki, sem notar gervi- hnetti við staðarákvarðanir og einnig eru í skipinu tvær rat- sjár. Tveir islenzkir fiskifræðing- ar hafa starfað á vegum verk- efnisins, bæði á Grænhöfðaeyj- um og hér heima, og komið hefur verið á fót fastri aðstöðu til fiskirannsókna með föstum starfsmanni í Mindelo. Gerðar hafa verið skýrslur um niður- stöður fiskirannsóknanna og þær kynntar vísindamönnum og yfirvöldum á Grænhöfðaeyj- um og einnig hafa hinir is- lenzku vísindamenn kynnt sér það sem fyrri rannsóknir við eyjarnar höfðu leitt í ljós í því skyni að forðast tvítekningu rannsókna og fylla upp í þau göt, sem eru á vitneskju manna um hafsvæðið umhverfis eyj- arnar. Þorbjörn ritar mjög niðrandi um yfirstjórn verkefnisins og verða hér eigi eltar ólar við einstök atriði í þeim skrifum. Þorbjörn bauð fram starfs- krafta sína í þágu verkefnisins, þegar hann kom til Grænhöfða- eyja, en eigi reyndist unnt að taka því boði nema að litlu leyti eins og þá stóð á. Varð Þorbjörn mjög ósáttur við forstöðumann verkefnisins á Grænhöfðaeyj- um af þeim sökum. Verkefnis- stjórinn hefur langa reynslu af þróunaraðstoð og eru skrif Þorbjarnar um hann bæði ósanngjörn og meiðandi. Verð- ur að harma þann tón, sem fram kemur í grein Þorbjarnar og áður hafði komið fram í bréfi hans til stjórnar Þróunarsam- vinnustofnunar, en orsakir beiskju greinarhöfundarins eru af persónulegum toga og óvið- komandi árangri af þróunarað- stoð íslendinga á Grænhöfða- eyjum. Þróunarsamvinnustofnun telur ávinning að öllum umræð- um um þróunaraðstoð íslend- inga, en opinber skoðanaskipti um ástand í þróunarlöndum og aðstoð við þau eru lítil hér á landi. Það er risavaxið verkefni að bæta lífskjör þeirra þjóða, sem líða skort á plánetunni, en það er verkefni, sem ekkert af hinum þróaðri ríkjum fær skor- ast undan. í grein sinni um „þróunarbríarí" nefnir Þor- björn Magnússon hugtakið „friðþægingarhjálp". Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar íslands hefur haft það að leið- arljósi, að aðstoð hennar komi þiggjendunum að gagni, en sé ekki gerð til þess að friða samvizku íslendinga með inn- antómum talnaleik. (Þróunarsamvinnustofnun íslands) ® KjöreignVf Ármúla 21. Dan. V.S. Wiium lögfr. Ólafur Guðmundsson sölustjóri. Kristján V. Kristjánsson vióskiptafr. wmmmmmmmmmmmmmmmÉ Lítíl Bókmenntir Jenna Jensdóttir Böðvar Guðlaugsson. Doddi fer í siglingu. Haukur Viggósson teiknaði myndir. Námsgagnastofnun, Reykjavík. Sagan er ætluð yngstu lesend- unum. Hún fjallar aðallega um tíu ára drenginn Dodda, sem á heima í kaupstað úti á landi. Móðir hans vinnur í frystihúsinu, en faðir hans er vélstjóri á togara. Orri er besti vinur og jafnaldri Dodda. Fimm ára systir Orra heitir Anna og þurfa þeir vinir oft að passa hana. I litla kaupstaðnum gengur lífð líkt og i öðrum kaupstöðum við sjávarsíðuna. Drengirnir hafa gaman af síla- veiðum og þeir stunda íþróttir. Þeir kvíða fyrir prófum í skólan- um þegar þeir kunna fögin ekki nógu vel. Ævintýrið þeirra er, að þeir fá að sigla til Englands með togaran- um sem faðir Dodda er vélstjóri á. Ferðin er skemmtileg og frá saga mörgu að segja þegar heim er komið. Bókin er 39 bls. í kápu og prýdd mörgum myndum. Hún er ætluð yngstu lesendunum og efni hennar sett upp með það fyrir augum að langar línur og erfið orð íþyngi ekki byrjendum um of. Efnið er raunsætt en átakalítið og engin spenna eða sérstakar uppákomur. Ég held að sagan sé góð og litlir lesendur muni hafa gaman af henni. Hún birtir þeim látlausa mynd úr lífi Dodda. Ef- laust verður hún bæði til gagns og gleði í yngstu deildum skólanna. Þetta er saga um drengi en ekki telpur. Vonandi mætir hún ekki þeim örlögum að lenda í „ritskoðun" þeirra kvenna er telja sig- hafa fundið rétta leið til framdráttar jafnréttis kynjanna. Og vitna harmi slegnar til bóka sem geta oftar um karlkynið en kvenkynið. Annars ástæðulaust að hafa slíka ástundun í flimtingum, því síður að brosa að henni. í allri baráttu eru ólíkustu aðferðir reyndar til sigurs og það flýgur enginn hærra en hann er fiðraður. Hús í Hólahverfi óskast Höfum fjársterkan kaupanda aö húseign meö tveimur íbúöum eöa húsi sem mætti breyta í tveggja íb. hús. Aöeins vönduö og góö eign kemur til greina. Húsiö þyrfti ekki aö vera fullfrág. Skipti möguleg á nýlegri vandaöri hæö meö bílsk. í austurborginni. 685009 685988 Siglt í byr vinsælda og virðingar Hljómplötur Sigurður Sverrisson Sting The Dreams of the Blue Turtles AM/Steinar Ég uppgötvaði Police ekki fyrr en þremur árum of seint en allt frá þeim tíma hef ég virt þá sveit og dáð (mest í laumi J)ó) rétt eins og milljónir annarra jarðarbúa. Eftir að hafa séð myndbands- upptöku frá hljómleikum tríós- ins varð mér fyrst almennilega ljóst hvílík yfirburðasveit Police er eða öllu heldur var því hún mun nú leyst upp í frumeindir sínar. Fréttin um að Police væri hætt störfum kom eins og köld vatnsgusa framan í aðdáendur hljómsveitarinnar en af þessari fyrstu sólóplötu Sting (sem hann segir aftan á plötuumslaginu ekki vera neina sólóplötu þar sem hann hafi ekki gert þetta allt saman einn!) má glött ráða að hann kemur til með að taka upp þráðinn þar sem Police varð frá að hverfa. The Dreams of the Blue Turtles er að talsverðu leyti rétt eins og plata með Police og er kannski ekki að undra jafn áhrifaríkur og Sting nú var inn- an þeirrar sveitar. Það lag þessarar plötu, sem mestum vinsældum hefur náð, If You Love Somebody Set Them Free, er alls ekki talandi dæmi um innihald plötunnar. Éngu að síður snoturt lag, þar sem hin sérstæða rödd Sting fær til fulls að njóta sín. Hið sama má reynd- ar segja um önnur lög plötunnar, þau eru eins og umgjörð utan um söng Sting. öll vinnubrögð á þessari plötu eru í hæsta gæðaflokki og var ekki að búast við öðru. Það sama rná segja um plötuna sjálfa, hún er í hæsta gæðaflokki. Kannski hefði maður kosið að Sting gerði eitthvað eilítið frumlegra en við þvi var kannski ekki að búast á fyrstu sólóplötunni. Lái honum hver sem vill, það er ekki nema sjálfsagt að ýta úr vör og fá byr í seglin með þeim vindi, sem fleytti Police yfir allar hindranir. Vindi virðingar og vinsælda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.