Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1985
33
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
„Ber ekkert á milli
stjórnarflokkanna“
ÞORSTTEINN PÁLSSON formartur Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sóphusson
varaformaður Sjílfstæðisflokksins og þeir ráðherrar flokksins sem staddir
eru á landinu, áttu saman fund í hádeginu í gær, þar sem niðurstöður
þingflokks- og miðstjórnarfundar flokksins í Stykkishólmi um helgina voru
til umræðu.
„Við ræddum um niðurstöðu
fundarins í Stykkishólmi og hvern-
ig þeirri vinnu sem þar hófst skyldi
haldið áfram. Auk þess ræddum
við á hvaða hátt við gætum tekið
þessi mál upp við okkar samstarfs-
flokk," sagði Þorsteinn Pálsson, er
hann var spurður hvað honum og
ráðherrum flokksins hefði farið á
milli á fundinum í gær.
Þorsteinn sagði að hann, ásamt
þeim Friðrik Sóphussyni og
Matthíasi Bjarnasyni hefðu átt
fund með forystumönnum Fram-
sóknarflokksins að loknum fundin-
um með ráðherrunum ígær. Hefðu
þeir hitt þá Halldór Asgrímsson
og Jón Helgason að máli og skýrt
fyrir þeim málefnalega niðurstöðu
þess fundar. „Það ber ekkert á
milli stjórnarflokkanna í þeim
efnum. Það kom okkur ekkert á
óvart að framsóknarmenn hafa
jafnmikinn áhuga á að ná þessum
markmiðum og við,“ sagði Þor-
steinn.
Þorsteinn var spurður hvort
mannabreytingar í ríkisstjórn
hefði borið á góma á fundi hans
með ráðherrum flokksins í gær:
„Síðan ég var kjörinn formaður í
flokknum, hefur varla liðið sá
dagur að það hafi ekki annað hvort
verið fært í tal við mig á fundum
eða í símtölum, að það þyrfti að
breyta ríkisstjórninni. Satt best
að segja finnst mér ekki vera
meira tilefni til þess, að segja álit
mitt á öllum þeim símtölum og
þeim fundum í dag frekar en í
gær.“
Þorsteinn var spurður hvort
hann teldi að þeirri skoðun hefði
vaxið fiskur um hrygg í Sjálfstæð-
isflokknum, að rjúfa bæri þing og
efna til kosninga: „ Nei, það tel ég
ekki vera. Landsfundurinn í vor
markaði þá afstöðu sem við erum
auðvitað bundnir af, að stjórnar-
samstarf, bæði þetta og annað
ræðst af því hvaða árangur næst.
Við hijotum að leggja þann mæli-
kvarða á þetta stjórnarsamstarf,"
sagði Þorsteinn.
- -*<r-
MorKunblaðiö/Sv.P.
Ólafur H. Torfason með tvö verkanna á sýningunni á bak við sig.
Akureyri:
Ólafur H. Torfa-
son sýnir á Jaðri
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra um fund sjálfstæöismanna í Stykkishólmi:
„Breytir engu um
stj órnarsamstar f ið “
„ÉG SÉ ekki að þessi fundur þing- í stoðum stjórnarsamstarfsins eftir verið að bíða eftir að fá frekari
Akurevri, 28. september.
ÓLAFUR H. Torfason, sem hingað
til er einkum kunnur útvarps- og
blaðamaður, er einnig myndlistar-
maður og opnaði í dag áttundu einka-
sýningu sína á Jaðri við Akureyri.
Áður hefir hann haldið sýningar í
Reykjavík, Stykkishólmi, Þrastar-
lundi, New York og á Akureyri og
þar að auki hefur hann tekið þátt í
samsýningum.
Á þessari sýningu eru 26 mynd-
ir, 18 vatnslitamyndir og 7 olíu-
málverk. Sýningin ber heitið
„Óskalönd, landslag eins og ég vil
hafa það“, enda eingöngu sýndar
landslagsmyndir, sem flestar eru
til sölu.
Sýningin verður opin kl. 14—22
daglega til 13. október.
flokks og miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins breyti neinu um stjórnar-
samstarf flokkanna," sagði Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra er
blaðamaður Morgunblaðsins spurði
hann hvort hann teldi að það hrikti
Tekin af
tvímæli
IÉRETT Morgunblaðsins í gær af stór-
felldum fjársvikum framkvæmda-
stjóra verktakafyrirtækis í Reykjavik,
er sagt að maðurinn hafi svikið fé út
úr Innkaupastofnun ríkisins með því
að falsa ávísanir sem hann fékk
greiddar fyrir vinnu sína við bygginu
sundlaugar við Grensásdeild Borg-
arspítalans.
Állt þetta er satt og rétt, en orða-
lagið gæti varpðað óréttmætum
grunsemdum að öðrum aðila, bygg-
ingarfyrirtækinu Sigurði og Júlíusi
hf., sem vann að byggingu sundlaug-
arinnar fyrir fimm árum. Það skal
tekið fram að það fyrirtæki og þá-
verandi byggingarmeistari þess eru
á engan hátt bendlaðir við þetta
mál.
fund sjálfstæðismanna í Stykkis-
hólmi um helgina og þá bókun sem
þar var gerð um fjárlagagerð og
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar.
„f fyrsta lagi vil ég segja það,
að það er alls ekki nógu vel frá
því gengið hvernig við skatt-
heimtu, á að tryggja hallalaus
fjárlög. Ofan í það mál þarf að
fara mun betur, og við höfum alltaf
talið koma til greina í því sam-
bandi, að reyna að draga úr ríkis-
útgjöldum ef menn sjá leiðir til
þess,“ sagði sjávarútvegsráðherra,
og bætti við að þarna væri fyrst
og fremst verið að tala um vinnu
sem væri nú í gangi. „Við höfum
tillögur frá fjármálaráðuneytinu.
Þarna er því fyrst og fremst verið
að ítreka nauðsynlegan hlut,“
sagði Halldór.
Sjávarútvegsráðherra sagði að
fullt samkomulag væri um það á
milli framsóknarmanna og sjálf-
stæðismanna að standa við þau
markmið sem fjárlögin gera ráð
fyrir, og ef menn sæju leiðir til
þess að ná lengra í þeim efnum,
þá væri ekkert nema gott eitt um
það að segja. Hann sagði að þessi
sjónarmið stjórnarflokkanna
hefðu komið fram á sameiginleg-
um fundi forystumanna flokkanna
upp úr hádeginu í gær.
30 tonn af hrútspung-
um til Bandaríkjanna
BÚVÖRUDEILD SÍS mun í haust
flytja út til Bandaríkjanna um 30
tonn af hrútspungum og er það svip-
að magn og undanfarin haust. Að
sögn Jóhanns Steinssonar deildar-
stjóra í búvörudeildinni fæst mjög
gott verð fyrir pungana, eða 1,40
dollarar fyrir pundið (115 krónur
fyrir hvert kfló). Skilaverð hér heima
sagði Jóhann að væri um 100 krónur
fyrir kflóið.
Jóhann sagði að þrjú fyrirtæki
í Bandaríkjunum keyptu hrúts-
pungana, tvö bandarísk heildsölu-
fyrirtæki og svo fisksölufyrirtæki
Sambandsins, Iceland Seafood Co.
Hann sagði að það væru einkum
Bandaríkjamenn af grísku bergi
brotnir sem ætu hrútspungana,
þeir borðuðu þá steikta, líkt og
kalkúnaeistun sem þættu herra-
mannsmatur þar vestra. Útflutn-
ingsverðmæti 30 tonna af hrúts-
pungum er um 3,5 milljónir kr.
Nýr bátur til
Húsavíkur
llúsavik, l.oklóber.
NÝR bátur, Skálaberg ÞH 244, bættist
í hátaflota Húsavíkur í dag. Hann er
keyptur frá fsafirði og hét áður Sigurð-
ur Þorkelsson ÍS 200. Þetta er 60
tonna bátur sem kemur í stað eldra
Skálabergs sem er 37 tonn. Báturinn
var endurbyggður á síðastliðnu ári og
er sérstaklega vel útbúinn til rækju-
veiða.
Á heimleiðinni frá ísafirði kom
hann við á rækjumiðunum og reynd-
ist útbúnaður allur mjög vel. Eig-
endur eru bræðurnir Aðalgeir og
Egill Olgeirssynir og er Aðalgeir
skipstjóri á bánum. Fyrst um sinn
mun báturinn stunda rækjuveiðar.
-Fréttaritari.
0
INNLENT
Endurbætur
á Sparisjóði
Vestmannaeyja
Voutmonnoovmm 70 vuvnfom k/tr
V estmannacyjum, 30. Heptember.
SÍÐASTLIÐINN föstudag opnaði
Sparisjóður Vestmannaeyja aftur
afgreiðslusal sinn eftir gagngerar
endurbætur sem hafa verið gerðar
á neðri hæð Sparisjóðshússins við
Bárugötu á undanförnura vikum.
Núverandi húsnæði Sparisjóðsins
var tekið í notkun á árinu 1962 og
þótti forráðamönnum sjóðsins nú
tímabært að ráðast í það að færa
starfsaðstöðuna og alla starfshætti
og þjónustu við viðskiptavini sína
í nútímalegt horf. Og jafnframt að
taka upp nútíma starfshætti í
skráningu gagna.
Sérlega vel hefur til tekist með
þessar endurbætur í afgreiðslu-
sal Sparisjóðsins, bjart er yfir
öllu og innréttingum smekklega
fyrir komið svo vel hentar fyrir
starfsfólk og viðskiptavini.
Gunnar Magnússon, innanhúss-
arkitekt og Páll Zophoníasson,
tæknifræðingur, voru ráðnir til
að skipuleggja og hanna húsnæði
Sparisjóðsins. Framkvæmdir
hófust þann 11. ágúst sl. og eins
og fyrr er getið var opnað aftur
fyrir viðskiptavini í hinum end-
urbætta afgreiðslusal sl. föstu-
dagsmorgun. Meðan á fram-
kvæmdum stóð var afgreiðslan á
efri hæð sparisjóðshússins.
Sparisjóður Vestmannaeyja er
nú vel í stakk búinn til þess að
veita hinum fjölmörgu viðskipta-
vinum sínum nútímalega og
skjóta þjónustu á flestum sviðum
bankaþjónustunnar. Teknar hafa
verið í notkun tölvuvæddar
gjaldkeravélar og næsta skref í
tölvuvæðingu er bein tenging við
Reiknistofu bankanna. Einnig
var tekið tillit til þess við hönnun
húsnæðis að í framtíðinni yrði
komið upp tölvuvæddri sjálfsaf-
greiðslu, þ.e. tölvubanka. Ýmsar
aðrar nýjungar eru fyrirhugaðar
að því er fram kom í máli Bene-
dikts Ragnarssonar, sparisjóðs-
stjóra, þegar hann kynnti endur-
bæturnar fyrir gestum á föstu-
daginn. Samhliða þessum endur-
bótum á starfsaðstöðu hefur
Sparisjóðurinn aukið þjónustu
sína við bæjarbúa með þvi að
hafa framvegis opið í hádeginu
og er því samfelldur opnunartími
frá kl. 9.15 til kl. 16 auk þess sem
opið er milli kl. 17 og 18.30 á
föstudögum. Starfsfólk Spari-
sjóðsins telur nú 12 manns og
sparisjóðsstóri er Benedikt
Ragnarsson.
— hkj.
Morgunblaftið/Sigurgeir
Starfsfólk Sparisjóds Vestmannaeyja, Benedikt Ragnarsson lengst til
vinstri.
Beðið í góðu yfirlæti meðan mamma eða pabbi reka viðskipti við spari-
sjóðinn.