Morgunblaðið - 02.10.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
ára
Sjónvarpið gaf sjálfu sér í 19
ára afmælisgjöf nú á mánu-
daginn stutta heimildarmynd er
nefndist Næst á dagskrá og fylgdi
gjöfinni eftirfarandi kynningar-
texti: Þessari kynningarmynd er
ætlað að gefa nokkra hugmynd um
þá fjölþættu starfsemi sem fram
fer á vegum Ríkisútvarpsins.
Framtak þetta er vissulega lofs-
vert því aðrir verða víst ekki til að
gefa blessuðum ríkisfjölmiðlunum
gjafir á þeirri Chicago-skólatíð er
nú ríður yfir þjóð vora í hagfræði-
legu tilliti, nema þar sé um að
kenna útvötnuðum embættis-
mönnum og þeirri óheilindastjórn
er hér ríkti í skjóli seðlaprentunar
og mjúkmælgi á árum áður. Hvað
um það þá fannst mér fyrrgreind
heimildarmynd alltof stuttaraleg
til þess að gefa ... nokkra hug-
mynd um þá fjölþættu starfsemi,
sem fram fer á vegum Ríkisút-
varpsins. Ríkisútvarpið er gam-
algróin menningarstofnun sem nýt-
ur mikillar virðingar og ástsældar
meðal þjóðarinnar, þótt vissulega
hafi menn útvatnast þar rétt eins
og annars staðar í kerfinu og borið
nokkuð á klíkumyndun. Má með
nokkrum rétti segja að einokunar-
aðstaða ríkisfjölmiðlanna hafi
virkað sem hemill á frumkvæði
ýmissa skapandi einstaklinga í
samfélagi voru, því það má ljóst
vera að ekki hafa allir lyst á að
troða hugverkum sínum innum
skráargöt dagskrárstjóranna. En
þar kemst máski úlfaldi hlaðinn
ættartengslum, vinahótum og
flokksskírteinum fremur inn um
gáttir en hinn, sem treysti alfarið
á vöðvana í eigin kroppi. Hvort
dæmið snýst nú við og úlfaldinn
hlaðinn gulli smýgur greiðlegast
um skrárgatið fræga skal ósagt
látið.
Framtíðarhorfur
Það fer ekki hjá því þegar horft
er á mynd er tekur fyrir rekstur
ríkisfjölmiðlanna og tæpir meðal
annars á stöðu þeirra í fjölmiðla-
samfélagi augnabliksins, að horft
sé til framtíðar og spurt hver
verður staða íslenska Ríkisút-
varpsins á öld hins frjálsa út-
varpsrekstar.
Ríkisútvarpið sem slíkt þarf svo
sem ekki að kvíða því að leggja
upp laupana vegna húsnæðiseklu,
en glæsilegri byggingu getur
naumast en nýja útvarpshúsið,
sem í fyrrgreindri heimildarmynd
líktist helst geimstöð, sannarlega
vel að verki staðið hjá Rúnari
Gunnarssyni, myndatökumanni.
Og ekki þarf Akureyrarútvarpið
heldur að kvarta um húsnæðis-
eklu. Þá er stöðugt unnið að upp-
byggingu dreifikerfisins. Frétta-
riturum fjölgar og ekki má gleyma
landshlutaútvarpi og hinni nýju
rás númer 2. Allt er þetta gott og
blessað en ekki dugar að fjölga
rásum, útibúum, útvarpssendum
og glæsilegum útvarpshöllum ef
hæfasta starfsfólkið hverfur frá
stofnuninni, því allt veltur nú á
mannskepnunni. Undirritaður
starfar við ríkisrekinn skóla og
hefir þar haft gott færi á að fylgj-
ast með hinum fræga flótta úr
kennarastéttinni. Það er kannski
rangnefni að ræða hér um flótta
fremur um skipulagslaust undan-
hald, en þó má segja að ákveðinn
hópur kennara hafi hreinlega flúið
ríkisskólana og ber þar hæst
tölvumenntaða menn, er hafa
horfið til betur launaðra starfa
hjá einkaaðilum. Þessi staðreynd
leiðir huganna að því að hjá ríkis-
fjölmiðlunum vinna margir hæfir,
tæknimenntaðir menn, er eiga oft
drjúgan þátt í því hversu vel tekst
til um dagskrárgerð. Það er líklegt
að flótti hlaupi í þá stétt verði
ekki rekstrarfyrirkomulagi ríkis-
fjölmiðlanna breytt og þeir jafn-
vel gerðir að almenningshlutafé-
lögum eða sjálfseignarstofnunum.
Ólafur M.
Jóhannesson
íslenska fegurðardísin, Sif Sigfúsdóttir, hreppti titilinn
„Ungfrú Skandinavía** í keppni sem haldin var í Finnlandi
15. september sl.
Fegurðardrottning
Norðurlanda
„Fegurðar-
OA 40 drottning Norð-
urlanda" nefn-
ist dagskrárliður er hefst
kl. 20.40 í kvöld í sjón-
varpi og er það mynd frá
fegurðarsamkeppni um
titilinn „Ungfrú Skand-
inavía".
Keppnin var haldin í
Helsinki í Finnlandi þann
15. september si. og voru
þátttakendur tveir frá ís-
landi. Sigurvegari varð
Sif Sigfúsdóttir og þriðja
sæti hlaut Halla Bryndís
Jónsdóttir.
Aftanstund
— barnaþáttur með innlendu og erlendu efni
Aftanstund er
1 Q 25 að venju á
dagskrá í sjón-
varpi í dag kl. 19.25 og er
það barnaþáttur með
bæði innlendu og erlendu
efni.
í Söguhorni segir Anna
Sigríður Árnadóttir
norskt ævintýri um
Drenginn og norðanvind-
inn. Myndskreyting er
eftir Svend Otto S. Því
næst kemur Maður er
manns gaman og Forðum
okkur háska frá, sem er
teiknimyndaflokkur frá
Tékkóslóvakíu um það
sem ekki má í umferðinni.
Þýðandi er Baldur Sig-
urðsson og sögumaður er
Sigrún Edda Björnsdóttir.
w
Operettutónleikar
IHIHi Óperettutón-
H30 leikar eru á
dagskrá rásar 1
kl. 14.30 í dag og er þrennt
á efnisskránni.
Fyrst er „Skáld og
bóndi“, forleikur eftir
Franz von Suppé. Sinfón-
íuhljómsveitin í Fíladelfíu
leikur. Eugene Ormandy
stjórnar.
Næst kemur dúett úr
„Die Czardasfúrstein" eft-
ir Emmerich Kálman.
Fritz Wunderlich og Ren-
ate Holm syngja með
hljómsveit undir stjórn
Franz Marzaleks.
Síðast á tónleikunum
verða þættir úr óperett-
unni „Kátu konurnar frá
Windsor" eftir Otto Nic-
olai. Edith Mathis, Kurt
Moll og fleiri syngja með
hljómsveit Ríkisóperunn-
ar í Berlín. Bernard Klee
stjórnar.
Rás 2:
Evrópumótið
í knattspyrnu
— aukaútsending
■■■■I í dag verður
-l Q 00 aukaútsending
lö— frá rás 2 vegna
leikja fslenskra liða á
Evrópumótum í knatt-
spyrnu og hefst hún kl.
18.00. Ingólfur Hannes-
son, íþróttafréttamaður,
lýsir leik Fram og Glent-
oran í Evrópukeppni bik-
arhafa í Belfast á Norð-
ur-lrlandi.
Hilmir Elísson segir
tíðindi af viðureign Nant-
es og Vals í Evrópukeppni
félagsliða í Frakklandi og
Jón Gunnlaugsson verður
á leik Aberdeen og ÍA í
Evrópukeppni meistara-
liða í Skotlandi og segir
fréttir af þeim leik.
Þá fara fram sama
kvöld á milli 70 og 80 leik-
ir á Evrópumótum og mun
Samúel Örn Erlingsson,
íþróttafréttamaður, tí-
unda úrslit um leið og þau
berast til fréttastofunnar.
Þorgeir Ástvaldsson verður
stjórnandi í hljóðstofu rásar
2 í kvöld vegna leikja ís-
lenskra liða í Evrópumótun-
um í knattspyrnu.
Stjórnandi i hljóðstofu
rásar 2 verður Þorgeir
Ástvaldsson. Útsending-
unni lýkur kl. 21.30.
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
2. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Leikfimi. Tilkynningar.
8.00 Fróttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sætukoppur" eftir Judy
Blume. Bryndis Víglunds-
dóttir les þýðingu sina (5).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar, þulur velur og
kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áöur.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Lesið úr forustugreinum
dagbl.
10.40 Land og saga. Umsjón:
Ftagnar Ágústsson.
11.10 Or atvinnullfinu — Sjáv-
arútvegur og fiskvinnsla.
Umsjón: Glsli Jón Kristjáns-
son.
11.30 Morguntónleikar.
a. Konsert I C-dúr op. 7 nr.
3 fyrir óbó og strengjasveit
eftir Jean Marie Leclair.
Heinz Holliger leikur með
Rlkishljómsveitinni I Dres-
den. Vittorio Negri stjórnar.
b. Brandenborgarkonsert nr.
3 I G-dúr eftir J.S. Bach.
Hljómsveitin „The English
Consert“ leikur. Trevor
Pinnock stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Inn og út um gluggann.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
14.00 „A ströndinni" eftir Nevil
Shuge. Njörður P. Njarðvlk
les þýðingu slna (9).
14.30 Operettutónleikar
a. „Skáld og bóndi", forleik-
ur eftir Franz von Suppé.
Sinfónluhljómsveitin i Flla-
delflu leikur. Eugene Or-
mandy stjórnar.
b. Dúett úr „Die Czardas-
fúrstin" eftir Emmerich Kál-
man. Fritz Wunderlich og
Renate Holm syngja með
hljómsveit undir stjórn Franz
Marszaleks.
c. Þættir úr óperunni „Kátu
konunnar frá Windsor" eftir
Otto Nicolai. Edith Mathis,
Kurt Moll o.fl. syngja með
hljómsveit Rlkisóperunnar I
Berlln. Bernard Klee stjórnar.
15.15 Sveitin mln. Umsjón:
Hilda Torfadóttir. RÚVAK.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Sfðdegistónleikar.
Fiðlukonsert I D-dúr op. 77
eftir Johannes Brahms. Zino
Francescatti leikur með Fll-
harmonlusveitinni I New
York. Leonard Bernstein
stjórnar.
17.05 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
17.40 Slðdegisútvarp. Sverrir
Gauti Diego.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Sigrún
Helgadóttir flytur.
19.50 Tónleikar.
20.00 Popphólfið.
20.30 Iþróttir. Umsjón: Ingólfur
Hannesson.
20.50 Hljómplöturabb.
21.30 Flakkað um ítallu. Thor
Vilhjálmsson flytur frum-
samda ferðaþætti (5).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
I
SJÓNVARP
19.25 Aftanstund.
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. I Söguhorni
segir Anna Sigriður Arna-
dóttir norskt ævintýri um
Drenginn og noröanvindinn.
Myndskreyting er eftir Svend
Otto S.. Maður er manns
gaman og Forðum okkur
háska frá — teiknimynda-
flokkur frá Tékkóslóvaklu um
það sem ekki má i umferð-
inni. Þýðandi Baldur Sig-
urðsson, sögumaður Sigrún
Edda Björnsdóttir.
MIÐVIKUDAGUR
2. október
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Fegurðardrottning Norð-
urlanda.
Mynd frá fegurðarsam-
keppni um titilinn Ungfrú
Skandinavla. Keppnin var
haldin I Helsinki I Finnlandi
þann 15. september slðast-
liðinn.
21.30 Dallas.
Elsku mamma. Bandarlskur
framhaldsmyndaflokkur.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.20 Þjóðverjar og heimsstyrj-
öldin siðari.
(Die Deutschen im Zweiten
Weltkrieg). 4. Undanhald á
öllum vlgstöðvum. Nýr þýsk-
ur heimildamyndaflokkur I
sex þáttum sem lýsir gangi
heimsstyrjaldarinnar 1939—
1945 af sjónarhóli Þjóðverja.
Þýðandi Veturliði Guönason.
Þuli: Guðmundur Ingi Krist-
jánsson og María Marlus-
dóttir.
23.50 Fréttir I dagskrárlok.
22.25 Bókaþáttur. Umsjón:
Njörður P. Njarðvlk.
23.05 A óperusviðinu. Umsjón:
Leifur Þórarinsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Chicago, Chic-
ago!
Stjórnandi: Asgeir Tómas-
son.
17.00—18.00 Ur kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.