Morgunblaðið - 02.10.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
7
Yfirlitssýning á verkum Kjarvals:
Elsta myndin máluð er
Kjarval var sextán ára
REYKJAVÍKURBORG efnir til yfir-
litssýningar á verkum Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals í tilefni af því
að 15. október nk. eru liðin hundrað
ár frá fæðingu hans. Sýningin verður
opnuð á Kjarvalsstöðum á afmæiis-
daginn.
Að sögn Þóru Kristjánsdóttur
listráðunautar á Kjarvalsstöðum
hafa verið valin 200 verk á sýning-
una af þeim tæplega 3000 málverk-
um og teikningum eftir Kjarval
sem skráð eru á Kjarvalsstöðum.
Stór hluti þeirra verka sem sýnd
verða eru í einkaeign og hafa ekki
fyrr verið sýnd opinberlega.
Elsta myndin á sýningunni, Illa
Rauðka, er máluð 1901, er Kjarval
var sextán ára gamall, en sú
yngsta er frá 1968.
Ljósmyndir af Kjarval frá ýms-
um tímum verða á sýningunni, svo
og munir úr fórum hans. Þá verða
til sýnis ljóðabækur eftir Kjarval
og safn ritgerða eftir hann. í
tengslum við sýninguna verða
fluttir fyrirlestrar um Kjarval og
sýndur verður þáttur um hann af
myndbandi. í sýningarskrá verða
birtar greinar um Kjarval, mynd-
list hans og ritverk.
Morgunblaðið/RAX
Þóra Kristjánsdóttir heldur hér á
elstu myndinni á sýningunni, Illu
Rauðku, sem máluð var árið 1901,
er Kjarval var 16 ára.
Sýningin stendur yfir frá 15.
október, eins og áður sagði, til 15.
desember.
„Fráleitt að segja að
við látum sem Pólýfón-
kórinn sé ekki til“
segir Hákon Sigurgrímsson
Svo virðist sem tónlistarunnendur
geti átt von á því að hlusta á verkið
Carmina Burana eftir Carl Orrf tví-
vegis í vetur, annars vegar flutt af
Sinfóníuhljómsveitinni og kór ís-
lensku hljómsveitarinnnar og hins-
vegar af Pólýfónkórnum.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hefur einhver ágreiningur komið
upp milli stjórnenda Pólýfónkórs-
ins og stjórnenda Sinfóníunnar
varðandi flutning verksins á kom-
andi vetri.
Ingólfur Guðbrandsson segir í
blaðinu í gær að stjórn Sinfóní-
unnar hafi ekki svarað margítrek-
uðu erindi kórsins um flutning
verksins og segir að kór Islensku
óperunnar hafi verið úthlutaður
flutningur Carmina Burana löngu
eftir að Pólýfónkórinn hafi sett
það á efnisskrá sína fyrir næsta
starfsár. Hann heldur því einnig
fram að hér sé um að ræða við-
skiptasamning framkvæmda-
stjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar
við íslensku óperuna og Söngskól-
ann í Reykjavík.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Hákon Sigurgrímsson
stjórnarformann Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands vegna ummæla
Ingólfs Guðbrandssonar.
Hákon sagði að það væri fráleitt
að halda því fram að Sinfóníu-
hljómsveitin léti sem Pólýfónkór-
inn væri ekki til. Kórnum hefði
verið boðin samvinna um að flytja
Messías, eða eitthvert stórverka
Bachs, í desember ’86, þá væntan-
lega í Hallgrímskirkju.
„Varðandi það að við höfum ekki
svarað erindi kórsins, þá var bréfið
sem kórinn sendi tekið fyrir á
næsta stjórnarfundi eftir að það
barst, og ákvörðun tekin og því
svarað.
Við erum alltaf að velja flytj-
endur fyrir hin ýmsu viðfangsefni
og reynum að velja þá eftir því sem
best hentar hverju viðfangsefni.
Pólýfónkórinn hefur margsýnt, að
það fer enginn annar í fötin þeirra
hvað varðar flutning á kirkjuleg-
um verkum Bachs og Hendels, þess
vegna veljum við Pólýfónkórinn til
að flytja þau verk. En á undan-
förnum árum höfum við stefnt að
því að hafa samvinnu við fleiri
kóra, Fílharmóníukórinn og það
er okkar mat að kór íslensku óper-
unnar sé kór sem sé mun forvitni-
legt að hlusta á þegar um ræðir
viðfangsefni eins og Carmína
Burana.
Það er enginn dulinn samningur
í þessu fólginn, við höfum eingöngu
samið um flutning á þessu eina
verki, við höfum einnig samið um
flutning við báða karlakórana á
milli, Þjóðleikhúskórinn og árum
saman við Fílharmóníu, og kór
Menntaskólans við Hamrahlíð og
þessi samningur er gerður á sama
grundvelli og aðrir slíkir samning-
ar.
Það er fráleitt að tala um að
leggja Pólýfónkórinn niður til að
aðrir fái að njóta sín, eins og
Ingólfur segir í lokin. Mér finnst,
að það boð sem stjórnin gerði kórn-
um um að flytja Messías sé einmitt
til þess fallið að gera kórnum
kleift að lifa og starfa áfram.
AFMÆLI í
ENGIN SMA
Sumargleði
Matseöill
Rj&malöffud humarsúpa
Grísahnetusteik
Mokkaís m/konfekti og
rjóma
Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti
Nú er um aö gera aö tryggja
sér miöa tímanlega á gleðileik
Sumargleöinnar sem aldrei hef-
ur veriö betri en nú. Miðasala
og boröapantanir í síma 77500
var mál manna
sem sáu þá félaga á afmælishátíðinni
um helgina í Broadway
Sumargleðin er frábær skemmtun sem fólk ætti
ekki að láta fram hjá sér fara.
17 úrvals skemmtikraftar með þá Ragga Bjarna,
Ómar Ragnarsson, Bessa Bjarna, Magga Óla og
Hemma Gunn í fararbroddi sem fara á kostum í
stórglæsilegri sýningu sem býður upp á söng, dans,
grín og gleði eins og best veröur á kosið.
Nú greíöum víó gíróseóílínn
viö arögum 12. okt.
Verum öll meó byööingu tónlistarhúss
Samtcfc um
byggingu tónlistarhúss