Morgunblaðið - 02.10.1985, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
Opið bréf til
menntamálaráðherra
Menntamálaráðuneytið dragbítur á hagsæld þjóðarinnar
— eftir Gísla Jón
Kristjánsson, Jó-
hönnu Guðmunds-
dóttur og Magnús
Guðmundsson
Frú Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra!
Skilningsleysi menntamála-
ráðuneytisins á þörfum sjávarút-
vegsins og fiskvinnslunnar hefur
kallað mikla ógæfu yfir okkar
helsta útflutningsiðnað. Stað-
reyndirnar blasa við augum okkar
ef við aðeins þorum að opna þau.
Við sjáum:
— fjársvelti Fiskvinnslu- og
Stýrimannaskólans og lítils-
virðingu þeirra laga sem um
þessa sérskóla fjalla sbr. lög
nr. 55/1971 um fiskvinnslu-
skóla með breytingum frá 1981.
— skort á þjálfuðum sjómönnum
með full réttindi.
— skort á verkstjórum og öðrum
stjórnendum með sérmenntun
á sviði fiskiðnaðar eins og úr
Fiskvinnsluskólanum.
— skort á almennu starfsfólki
með sérþjálfun og sérmenntun
í fiskiðnaði.
— skort á tæknimenntuðum
mönnum (t.d. fisktæknum) sem
gætu útfært hugmyndir stjórn-
enda um bætt framleiðslu-
skipulag.
— undanþágur gefnar í stórum
stíl til ábyrgðarstarfa i sjávar-
útvegi og fiskvinnslu.
Algert áhugaleysi menntamála-
ráðuneytisins á málefnum þessara
skóla er þjóðarskömm. Ætla má
að þau séu ófá milljónahundruðin
eða milljarðarnir sem þetta ráðu-
neyti hefur haft af þjóðinni með
barnaskap sínum og vonandi
stafar það af þekkingarleysi á
högum þessara skóla frekar en
viljaleysi til úrbóta.
Það er ekki að ástæðulausu að
við flytjum inn fjölda útlendinga
sem vinnuafl í fiskiðnað okkar.
Framleiðum í ódýrustu pakkning-
ar eða seljum hráefnið úr landi
vegna skorts á fólki og vegna
skorts á þjálfuðu og hæfu fólki.
Fiskvinnsluskólinn
Fjármagn til sérskóla í sjávarút-
vegi og fiskvinnslu endurspeglar
ekki mikilvægi þessara atvinnu-
greina fyrir þjóðfélagið. Fisk-
vinnsluskólinn og Stýrimanna-
skólinn fá svo dæmi sé tekið innan
við helmingi minna rekstrarfé en
bændaskólarnir sem tilheyra land-
búnaðarráðuneyti. Hér er ekki
minnst á húsnæðismál Fisk-
vinnsluskólans sem orðin eru
landskunn.
Það virðist þvl ekki lengur vera
sæmd þessarar þjóðar að eiga
sægarpa eða fagmenn I fiskiðnaði
er skapi þjóðarauðinn. Heldur
þykir meira virði að þjóðin sé
söngelsk eins og sést er frumvörp
til fjárlaga líta dagsins ljós. Sem
dæmi má taka fjárlagafrumvarp
fyrir árið 1983 þá var Fiskvinnslu-
skólanum og Stýrimannaskólan-
um einungis ætluð 23% af þeirri
upphæð sem fara átti til tónlistar-
fræðslu.
Á sama ári sem þótti slæmt í
sjávarútvegi reyndust útflutnings-
verðmæti sjávarafurða 12.667
millj. kr. eða 68% alls verðmætis
útflutningsafurðanna. Enginn veit
hver þessi tala hefði getað orðið
ef fólk í þeim atvinnugreinum er
verðmætin skapa hefði fengið við-
eigandi fræðslu um verkun og
vinnslu sjávarafla.
Ef háttvirtur menntamálaráð-
herra og aðrir starfsmenn
menntamálaráðuneytisins vita
það ekki þá skulu þeir upplýstir
„Fjármagn til sérskóla í
sjávarútvegi og fisk-
vinnslu endurspeglar
ekki mikilvægi þessara
atvinnugreina fyrir þjóð-
félagið. Fiskvinnsluskól-
inn og Stýrimannaskól-
inn fá svo dæmi sé tekið
innan við helmingi
minna rekstrarfé en
bændaskólarnir ...“
um það að útflutningstekjurnar
eru hinar raunverulegu tekjur
þjóðarbúsins. Allur pappir í bréfs-
efni ráðuneytisins, Islendingasög-
unum og öðrum bókum lands-
manna er keyptur fyrir útflutn-
ingsverðmætin. Þá er þeim einnig
varið í jafn einskisverða hluti og
skip, flugvélar, bíla, tölvur, útvörp,
myndsegulbönd, barnavagna, leik-
föng, fatnað, þvottavélar, sykur,
lyf, lækningatæki svo og ýmsa
aðra hluti sem margir halda að
keyptir verði fyrir þá peninga er
vaxa á trjám þeim er prýða land
vort milli fjalls og fjöru.
Lög nr. 55/1971
og nr. 18/1981
Samkvæmt lögum um Fisk-
vinnsluskóla á útskrifaður nem-
andi af lokastigi skólans að geta
tekið að sér eftirtalin verk:
— geta annast almenna verk-
stjórn
— geta annast gæðaflokkun
— geta annast stjóm fiskvinnslu-
véla
— geta annast eftirlitsstörf
— geta annast verkþjálfun
— geta annast einfalda vinnuhag-
ræðingu
— geta annast stjórnun
— geta annast tiltekin rann-
sókna- og skipulagsstörf
— geta sýnt alhliða þekkingu á
meðferð og mati afurðanna.
Helstu bóklegar greinar skv.
lögunum skulu vera:
— fiskvinnslufræði
— vél-og teiknifræði
— vinnuhagræðing
— framleiðslufræði
— verkstjórn
— gæðaeftirlit
— tölfræði
— markaðsfræði
— rekstrarbókhald
— lög og reglur um fiskvinnslu
og fiskmat
— haflíffræði
— efnafræði
— lífefnafræði
— gerlafræði
— hreinlæti
— eðlisfræði
— stærðfræði
— íslenska
— rannsóknarstofustörf
Skólanefnd getur bætt við náms-
greinum ef hún telur ástæðu til.
Helstu verklegar greinar skulu
vera:
— meðferðánýjumfiski
— ísun
— flökun
— frysting
— söltun
— síldarsöltun
— hersla
— reyking
— niðursuða
— framleiðsla fiskrétta
— lifrarbræðsla
— fiskimjölsframleiðsla
— hvalvinnsla
— fiskmat
— vinnuhagræðing
— meðferð og notkun fiskvinnslu-
véla
Skólanefnd getur bætt við náms-
greinum.
Athugasemdir við
framkvæmd laganna
Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins
telur lögin um Fiskvinnsluskólann
í meginatriðum góða smíð. Félagið
telur einnig að lög þessi séu þver-
brotin og að ástæðan sé algert
skilningsleysi menntamálaráðu-
neytisins á þörfum fiskiðnaðarins
fyrir sérmenntun þess fólks er þar
starfar. Sést þetta best á fjár-
magnsstreymi til skólans og áhuga
ráðamanna á því að skólinn komist
í eigið húsnæði.
Það er lýsandi dæmi um þetta
skilningsleysi að ríkið kostar
menntun þeirra er hafa þann
starfa að snyrta kjöt þ.e. kjötiðn-
aðarmenn, þeirra sem snyrta hár
þ.e. hárskera, þeirra sem snyrta
fólk þ.e. snyrtisérfræðinga og
varla verður langt að bíða sér-
kennslu í snyrtingu hunda og
katta.
Þá kostar ríkið menntun þeirra
er baka brauð, mála hús o.s.frv.
en ekki þeirra er snyrta matvælin
fisk ásamt flokkun og frágangi á
þessu fjöreggi þjóðarinnar. Haldir
þú lesandi góður að hið síðast talda
starf krefjist minni þekkingar og
sérfærni en hin störfin skalt þú
fá þér vinnu í frystihúsi.
Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins,
telur að 2. gr., 13. gr. og 14. gr.
laganna um fiskvinnsluskóla sé
brotin því nemendur Fiskvinnslu-
skólans fái óviðunandi eða enga
kennslu í eftirtöldum námsgrein-
um:
Bóklegar greinar:
— vélfræði
— vinnuhagræðingu
— framleiðslufræði
— verkstjórn
— markaðsfræði
— rekstrarbókhaldi
Verklegar greinar:
— reyking
— niðursuða
— framleiðsla fiskrétta
— lifrarbræðsla
— fiskimjölsframleiðsla
— vinnuhagræðing
— meðferð og notkun fiskvinnslu-
véla
Þá sé 3. gr. laganna vanrækt svo
vítavert sé að mati Fiskiðnar en
hún hljóðar svo:
„Skólinn skai halda námskeið
fyrir starfsfólk í hinum ýmsu
greinum fiskiðnaðarins, sem
miði að því að veita þeim starfs-
mönnum fiskiðnaðar, er vinna
að móttöku og verkun sjávar-
afla, hagnýta fræðslu um með-
ferð og vinnslu aflans. Námskeið
þessi skulu haldin í verstöðvum
landsins eftir því sem við verður
komið."
Vanræksla þessa þáttar hefur
valdið því að mati Fiskiðnar, að
fiskvinnslunni hefur ekki tekist að
laða til sín nægt fólk. Hún hefur
ekki getað gefið starfsmönnum
tækifæri til sérmenntunar sem
hefði í för með sér aukna starfs-
ánægju og færni sem skilaði sér
svo I framleiðni fyrirtækjanna.
Sjávarútvegsráðuneytið gat
greinilega ekki horft upp á sinnu-
leysi Menntamálaráðuneytisins er
haft hefur nú þegar mjög neikvæð-
ar afleiðingar. Sem nauðvörn
komu þeir af stað námskeiðum
fyrir almennt starfsfólk í fiskiðn-
aðinum. Það framtak ber að lofa.
Þáttur hagsmunaaðila
í sjávarútvegi
Menntamálaráðuneytið á hér
ekki eina sök því mikil er sam-
keppnin um krónur þær er það fær
til skiptanna. Segja verður eins og
er að hagsmunaaðilar hafa ekki
séð ástæðu til að hafa hátt um þá
meðhöndlun sem okkar sérskólar
í sjávarútvegi og fiskvinnslu hafa
fengið. Þeir þegja nú sem fyrr
þunnu hljóði um menntunarmál
enda sjónsvið þeirra þröngt og
helst bundið skammtímaráðstöf-
unum eins og fiskverðsákvörðun,
kjarasamningum og kvótaskipt-
ingu ársins en gleyma sameigin-
legum hagsmunum útgerðar og
fiskvinnslu sem er færni og þar
með menntun þess fólks sem í
þessum greinum vinnur. Því rækta
þeir ekki sinn eigin garð en eru
duglegir við að kvarta undan
skorti á hæfu starfsfólki þegar
landburður er af fiski.
Þessir sömu hagsmunaaðilar
vita að menntunarþörfinni er sinnt
að mestu með bráðaþjónustu þ.e.
vikunámskeiðum svo að útflutn-
ingsaðilar fái menn til að skrifa
undir mats- og útflutningsvottorð-
in.
Háttvirtur mennta-
málaráöherra
Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins
vill undirstrika að gagnrýni fé-
lagsins er ekki beint að mennta-
málaráðherra persónulega, heldur
beinist hún að menntamálaráðu-
neyti sem slíku. Þá er það trú
okkar að ill meðferð á málefnum
Fiskvinnsluskólans eigi rætur að
rekja til þekkingarskorts á mikil-
vægi slíks sérskóla fyrir þjóðfélag-
ið.
Það eru því tilmæli okkar að
Fiskvinnsluskólinn verði ekki
heftur lengur með fjársvelti og að
öflug kennsla í framleiðslugrein-
um, markáðsgreinum, stjórnunar-
greinum, rekstrargreinum, vinnu-
hagræðingargreinum, meðferð og
notkun fiskvinnsluvéla og nám-
skeiðahald skv. 3. gr. laganna verði
tekin upp strax og nýjustu tækni
eins og tölvum beitt við kennsluna
og sérfræðingar á hverju sviði séu
látnir um hana. Þá verði þessar
og núverandi kennslugreinar efld-
ar með tilkomu hjálpartækja eins
og viðunandi húsnæðis, gerðar
námsgagna og vélakosts en eins
og alkunna er þá á skólinn ekki
einu sinni flökunarvél.
Við lifum ekki á fiski einum
saman en án hans deyjum við
örugglega.
Höfuadar skipa stjórn FiskiAnar,
fagfélags fiskiðnaðarins.
fíSK
FAGFÉLAG FISKIÐNAÐAFtlNS
Fjárlagafrumvarp 1983
Stýrimanna- og
Bændaskólar Fiskvinnsluskólinn
Laun 10.478 þús. kr. 5.301 þús.kr.
Önnurrek.gjöld 5.895 þús. kr. 1.165þús.kr.
Viöhald 2.287 þús.kr. 121 þús. kr.
Samtals 18.660 þús kr. 6.587 þús kr.
100% 35%
Garöyrkju- Fiskvinnslu- Vélskóli Hótel- og
skóli
ríkisins skólinn Fóstruskólinn íslands veitinqask.
Laun 3.343 þ.kr. 1.697 þ.kr. 4.287 þ.kr. 8.543 þ.kr. 1.459 þ.kr.
Önnurrek.gjöld 1.391 þ.kr. 935þ.kr. 350þ.kr. 650þ.kr. 720 þ.kr.
Viöhald 350þ.kr. 36þ.kr. 300þ.kr. 40þ.kr.
Samtals 5.084 þ.kr. 2.668 þ.kr. 4.937 þ.kr. 9.193 þ.kr. 2.219 þ.kr.
191% 100% 185% 345% 83%
Útflutningsverðmæti 1983(raunv.)
Sjávarafuröir 12.667 millj.kr. 68%
Landbúnaðarafurðir 227 millj. kr. 1%
lönaðarafurðir 5.458 millj.kr. 29%
Annað 271 millj. kr. 2%
Samtals 18.623 millj. kr. 100%