Morgunblaðið - 02.10.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
Vestur-Þýskaland:
Mótmælendur hvattír
til að beita vopnum
Frankfurt, Vestur-ÞýskaUndi, 1. október. AP.
Fyrirhuguð ganga, sem fara átti um götur í Frankfurt til að mótmæla
flokksfundi nýnasista, var í dag bönnuó eftir að hvatt haföi verið til þess
í útsendingum leynilegrar útvarpsstöðvar, að gripið yrði til vopna gegn lög-
reglunni.
Borgarstjórnin í Frankfurt,
Walter Wallmann, leyfði fólki að
safnast saman til mótmælafundar
í miðborginni en skipaði hins vegar
óeirðarlögreglunni að koma í veg
fyrir að fundarmenn gengju um
götur borgarinnar. Gerði hann það
eftir að skorað hafði verið á mót-
mælendur í útsendingum leyni-
legrar útvarpsstöðvar og í dreifi-
miðum að grípa til vopna gegn
lögreglunni.
Upphaflega efndu jafnaðar-
menn og græningjar til mótmæla
gegn flokksfundi nýnasista en þeir
drógu sig í hlé þegar að dreif fólk,
sem skýldi sér á bak við grímur,
sem er bannað í Vestur-Þýska-
landi. Síðan hafa verið óeirðir í
mörgum borgum, t.d. Frankfurt,
Hamborg, Berlín, Hannover, Gött-
ingen, Braunschweig og Ulzen, 60
verið handteknir og einn maður
lést þegar hann varð fyrir lög-
reglubíl.
I blaðinu, sem gefið er út í
Frankfurt, „Abendpost" segir, að
lögreglan hafi komist yfir flugrit
í mörgum vestur-þýskum borgum
þar sem hvatt er til ofbeldisverka
og er það haft eftir lögregluyfir-
völdum, að ofbeldishneigðir vinstri
öfgamenn hafi nú séð sér leik á
borði. Drífa þessir menn jafnan
að af öllu landinu þegar einhvers
staðar kemur til ókyrrðar, margir
svartklæddir með hettu á höfði.
Flutningaverkamenn með
bótakröfum námumanna
Kinnock bíður stórhnekki á flokksþinginu:
Bournemouth, 1. október. AP.
ÞRÁTT FYRIR harða andstöðu Neil Kinnock, leiðtoga brezka Verkamanna-
flokksins, hafa samtök flutningaverkamanna, sem er eitt stærsta launaþega-
félag á Bretlandseyjum, lýst fylgi við kröfur námamanna um að þegar
Verkamannaflokkurinn komist í stjórn bæti hún námamönnum tjón, sem
þeir urðu fyrir í misheppnuðu verkfalli, er stóð í ár og lauk í vor. Er þetta
meiriháttar áfall fyrir Kinnock.
Kinnock segir að kröfur af þessu
tagi geti skipt flokksmönnum í
tvær fylkingar og dregið úr sigur-
líkum flokksins í næstu kosning-
um. Krafa námamanna er um-
deildasta málið á flokksþinginu,
sem nú stendur yfir. Krefjast þeir
að flokkurinn skuldbindi sig til að
greiða námamönnum eina milljón
sterlingspunda í bætur, um 60
milljónir íslenzkra króna, vegna
sekta, sem samtök þeirra urðu að
greiða í verkfallinu og vegna þess.
Kinnock segir nær útilokað að
forsætisráðherra gæti tekið upp á
sllkum bótagreiðslum.
Kinnock reynir nú sem mest
hann má að vinna stefnu hófsemd-
ar og skynsemi innan flokksins í
þeirri von að geta keppt um fylgi
kjósenda við bandalag Frjáls-
lyndaflokksins og Jaf naðarmanna-
flokksins. Gera leiðtogar Verka-
mannaflokksins sér vonir um að
með gagnrýni á stefnu og aðgerðir
stjórnar íhaldsflokksins í efna-
hagsmálum megi flokknum takast
að velta stjórn Margaret Thatcher
úr sessi í næstu kosningum.
í gærkvöldi tilkynntu samtök
flutningaverkamanna hinsvegar
að þau styddu kröfur námamanna
og varð það til þess að beina at-
hyglinni frá Thatcher að átökum
og deilum í Verkamannaflokknum.
Með þessu er nær öruggt talið að
krafa námamanna verður sam-
þykkt á flokksþinginu er hún
kemur til afgreiðslu á morgun,
miðvikudag. Afstaða flutninga-
verkamanna er meiriháttar áfall
fyrir Kinnock og tilraunir hans til
að breyta ímynd flokksins, sem
róttæklingaflokki. Kinnock, sem
er sonur velsks námumanns, telur
það muni skaða flokkinn að tengja
hann námuverkfallinu með þess-
um hætti. Mál, sem samþykkt eru
með a.m.k. 2/3 atkvæða á flokks-
þinginu, verður að taka upp í
stefnuskrá flokksins við kosning-
ar.
Heimsókn Gorbachevs
til Frakklands hefst í dag
París, 1. október. AP.
Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, kemur í opinbera heimsókn
til Frakklands á morgun, miðvikudag. Gorbachev mun dveljast fjóra daga
í Frakklandi og halda þrjá fundi með Francois Mitterrand forseta.
Talið er, að Gorbachev muni
leggja á það höfuðáherzlu að fá
Mitterrand til liðs við sig í baráttu
Sovétmanna gegn geimvarnaáætl-
un Bandaríkjamanna og sýna
Reagan forseta, að bandalagsríki
Bandaríkjanna í Vestur-Evrópu
standi ekki einhuga að baki Banda-
rikjamönnum í þessu efni. Gorbac-
hev mun eiga fund með Reagan í
Genf í næsta mánuði og þar verður
geimvarnaáætlunin eitt helzta
rhálið á dagskrá.
Þrátt fyrir það að Mitterand
forseti telji sig vera vinstri sinna,
er hann meðal þeirra vestrænu
leiðtoga, sem hvað harðast hafa
gagnrýnt Sovétríkin á undanförn-
um árum, ekki sízt fyrir brot á
mannréttindum.
Telja má víst, að Frökkum sé
mjög umhugað um að fá nánari
vitneskju um tillögur Sovétmanna
í afvopnunarviðræðunum í Genf.
Allt sem vitað er um þessar tillög-
ur til þessa er, að Sovétstjórnin
hefur sagt, að hún muni fallast á
gagnkvæma 50% minnkun á
kjarnorkuvopnabirgðum ef Banda-
ríkjamenn geri einhverjar tilslak-
anir varðandi geimvarnaáætlun
sfna.
Yasser Arafat í viðtali:
Spáir „Yalta-samkomu-
lagi" um Miðausturlönd
Kabat, Marokkó, 1. október. AP.
f VIÐTALI, sem birt var í dag við Yasser Arafat, leiðtoga PLO, spáir
hann því að Reagan, Bandaríkjaforseti, og Gorbachev, Sovétleiðtogi,
muni komast að samkomulagi um skipan mála í Miðausturlöndum á
fundi þeirra í Genf á næstunni. Það muni hins vegar verða á kostnað
palestínsku þjóðarinnar.
Viðtalið við Arafat var haft í
gær, eftir fund hans með Hassan,
Marokkókonungi, og í því segir
hann að líkja megi fundi þeirra
Reagans og Gorbachevs við „aðra
Yalta-ráðstefnu“. Átti hann þá
við fund þeirra Stalíns, Roose-
velts og Churchills á Yalta á
Krím í striðslok þar sem samið
var um Evrópu eftirstríðs-
áranna. Að viðtalinu loknu fór
Arafat til höfuðstöðva PLO í
Túnis en á þær gerðu ísraelar
loftárás í dag. Talið er þó, að
Arafat hafi sloppið lífs.
f viðtalinu, sem birtist í dag-
blaði í Rabat, segir Arafat að
arabaþjóðirnar séu svo sundrað-
ar, að þær fái ekki lengur reist
rönd við bandalagi fsraela og
Bandaríkjamanna. „Við araba-
þjóðunum blasir skelfilegur óf-
arnaður og að sjálfsögðu munu
Palestínumenn verða fyrstir til
að finna fyrir því,“ sagði Arafat
og spáði því, að samkomulag
Reagans og Gorbachevs ylli því,
að spilin yrðu ekki aðeins stokk-
uð upp í Miðausturlöndum, held-
ur um allan heim.
25
--- 1
^ HHIfll/IHHM
■ ir»r>r>
9U LU UUtJ
cV*A
MintLeaves
200 gr
SíaGull
Kakó
1 Ibs
Appelsínu-
marmelaði
400 grðwr
lO^
4?
&
Lísukex
Matarkex
Holtabót
LENI
Eldhúsrúllur
Jnrúllurí pk.
Jarðaber
850 gr
Ctjohnson
uiax
híbylailmur
Rauðkál
720 gr
..vöruverö í lágmarki
itSOtoeOÐÍW »5