Morgunblaðið - 02.10.1985, Page 50

Morgunblaðið - 02.10.1985, Page 50
50 MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985 * mnmn <S> 1984 Universai Press Syndicate G'Z^" „ ... oq afpantabu farm't&ana tiL ndrídOL." Ást er... ... að aðstoða við uppskeruna. TM R#a. U.S. Pat. Otf.—all rlghts reserved «1985 Los Angeles Tlmes Syndicate Með morgunkaffinu flugan í súpunni hafí gefíst upp? Ef fram heldur sem horfír verður þú eftirlitsmaður með eftirlits- mönnunum... HÖGNI HREKKVÍSI aHVERNIG GANGA GAP.OYRKJUSTÖRFiM?" tíl Ekki virðist sem þetta eintak Morgunblaðsins sé með undin horn, en ef tekur að gefa á bátinn verður þess ekki langt að bíða. Andrés önd fyrir börnin Kæri velvakandi! Ástæða þess að ég skrifa þér er sú að ég get ekki lengur orða bundist yfir Tomma og Jenna. Ég er farinn að þekkja það á hljóðinu hvaða þáttur er í það og það skiptið, svo oft er búið að sýna somu þættina. Væri ekki hægt að sýna Ándrés önd og hans fylgdarl- ið fyrir fólkið? Fyrir nokkrum árum voru sýnd- ir í sjónvarpinu mjög góðir barna- þættir sem nutu mikilla vinsælda, nokkrir þeirra hétu t.d.: Börnin á eldfjallinu, Prúðuleikararnir, Em- il í Kattholti, og svo tékknesku þættirnir um geimstelpuna Majku. Væri ekki hægt að endur- sýna þá? Að öðru leyti vil ég þakka fyrir ágæta sjónvarpsdagskrá. Tommi Um bréfsefni Anna skrifar: Kæri Velvakandi. Mig langar til að biðja sjón- varpið að reyna að fá til sýningar tvær bíómyndir sem ættu erindi í ríkisfjölmiðlana. Það eru mynd- irnar „The Gentle Touch" og „Grange Hill“ en þær eru báðar breskar. Einnig langar mig að taka undir með þeim sem hafa skrifað í Vel- vakanda og mælt með að send yrði út poppdagskrá í sjónvarpinu með vinsældalista og ýmsu fleiru á fimmtudagskvöldum. Þetta er stórgóð hugmynd. En svo ég noti tækifærið þá langar mig að minnast á annað og ólíkt efni. Ég á fjölmarga penna- vini og nota þess vegna mikið af bréfsefni. Mér finnst undarlegt hve lítið virðist vera til af fallegu en ódýru bréfsefni á höfuðborgarsvæðinu. Ef einhver bókaverslun hefur gott úrval ætti hún að láta vita af sér því ég er ekki ein um þessa skoð- un. Undin Vestfírðingur skrifar: Einni spurningu langar mig að koma á framfæri við Morgunblað- ið og DV, er hún varðandi það hvers vegna hornin í blaðapapp- írnum vilja oft vinda upp á sig. Eg hef veitt þessu athygli í langan tíma og minnst þess að svona var þetta ekki fyrir nokkrum árum. Er horn farið að nota aðra tegund af papp- ír? Það hefur þurft að brjóta horn- in í hina áttina til að hægt sé að lesa blaðið. Með hin blöðin veit ég ekki hvernig þessu er varið því ég les þau ekki. Um hryllingssögur og Austur-Þýskaland Húsmóðir skrifar. Ég les aldrei hryllingssögur, en allt sem ég næ í af sönnum sögum, af marxismanum í framkvæmd, þar sem almenningur á þá ósk heitasta, að geta flúið þaðan. Ég er að lesa Rauðu bókina með SJS-skýrslunni frægu. Ritið er lærdómsríkt því þar les maður að þessir gáfuðu skýrslu- gerðarmenn lærðu ekkert af stað- reyndunum um þessi lönd, og lofa að koma heim til fósturjarðarinn- ar og vinna henni allt það gagn sem þeir geta. Þeir ætla að koma á marxískri stjórn og þá veit maður að þeir sjá allt með marxískum gleraugum. Þó vottar fyrir að þeir vilji einhverjar endurbætur á kerfinu. En hver getur boðið mannsæmandi líf þar sem marx- isminn ræður. Engum hefur tekist það hingað til og hver vill búa við skort á tjáningarfrelsi, ferðafrelsi eða án verkfallsréttar. f bókinni er undrast hvað seint gangi að endurreisa Austur- Þýskaland. Þá er talað um að rússneski herinn hafi „frelsað" Austur-Þýskaland en aðeins hálf sagan sögð. Stalín fékk banda- menn til þess að gera loftárás á Dresden, þegar flóttafólkið var orðið miklu fjölmennara en íbú- arnir. Loks þegar rússneski herinn kom, þá var ekki einn einasti þýskur hermaður þar. Þeir höfðu allir flúið vestur yfir og aðeins einn íslenskur læknir eftir í Brandenburgarhéraði. Rússneski herinn rændi allar iðnaðarstöðvar og hafði á brott með sér allt nýti- legt. Það stendur hvergi í bókinni að Rússarnir nauðguðu einnig öll- um konum frá 14 ára aldri, létu greipar sópa á einkaheimilum og neyddu síðan Austur-Þjóðverja til að afhenda sér alla framleiðsluna á því verði sem þeir settu. f Vestur-Þýskalandi gengu hlut- irnir öðruvísi fyrir sig og harma gerðarmennirnir að þar sé allt rekið eftir kapítalísku kerfi. Eins og það sé goðgá að bæta kjör al- mennings. Bandamenn rændu ekki Vestur-Þýskaland heldur fengu Vestur-Þjóðverjar Mars- hall-hjálpina eins og allar lýðræð- isþjóðir aðrar. Adenhauer og Er- hart, sem voru illa séðir af SJS-mönnum, kunnu að fara með það fé. Einungis dagvinna var skattlögð en launin fyrir eftir- og helgidagavinna rann ósnert í vasa fólksins. Þetta er ólíkt hinum skattglöðu Svíum og fleiri þjóðum. Rússar héldu áfram og nú varð að heilaþvo austur-þýsku þjóðina. Rússneskt hernámslið sá um bók- aútgáfuna. Nefnd skipuð skáldum sem hlotið höfðu Lenín-verðlaun- in, fór og bjó til uppskriftirnar fyrir skáldin, að fara eftir. Einn fékk árslaun til að skrifa skáld- sögu um kvikfjárrækt og síðan skyldi einnig fjalla nákvæmlega um verksmiðjurnar og hvað fólk væri sælt í vinnunni. Það áhugaverðasta í Rauðu bók- inni eru bréf sem þar birtast og fjalla um kominúnismann í Kína og ástandið í Ungverjalandi fyrir byltinguna. Allir unglingar í skólum ættu að lesa Rauðu bókina, þá verður erf- iðara fyrir þá að gleypa innræt- inguna, sem er alls staðar. Skrifið eða hringið til Velvakanda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.