Morgunblaðið - 05.11.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
Ungmenni í hrakn-
ingum við Sigöldu
FJÓGUR ungmcnni úr Kópavogi
lentu í hrakningum inn við Sigöldu,
er Broncojeppi, sem þau hugðust
fara á í Landmannalaugar, festist í
ís við Þóristind á laugardagskvöld.
Ungmennin létu fyrirberast í bílnum
um nóttina, en lögðu síðan af stað
fótgangandi til byggða á sunnudags-
morgun og fundust þau heil á húfi
á sunnudagskvöld.
Að sögn Guðjóns Einarssonar
lögreglumanns á Hvolsvelli lögðu
ungmennin upp frá Kópavogi á
laugardagsmorgun og var förinni
Opiö prófkjör
á Selfossi
Selfossi, 4. nóvember.
í GÆR var ákveðið á fundi í sjálf-
stæðisfélaginu Óðni á Selfossi að
prófkjör skuli fara fram við val fram-
bjóðenda á framboðslista til bæjar-
stjórnarkosninganna á komandi vori.
Á fundinum var fjallað um til-
högun prófkjörsins og samþykkt
að hafa það opið fyrir alla stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins á
Selfossi. Á fundinum var kosin 7
manna prófkjörsnefnd til að ann-
ast framkvæmd prófkjörsins.
Sig. Jóns.
heitið i Landmannaiaugar. Á
sunnudagskvöld barst lögreglunni
á Hvolsvelli tilkynning um að fólk-
ið væri ekki komið fram, en síðar
um kvöldið fundu starfsmenn frá
Hrauneyjarfossvirkjun pilt og
stúlku úr hópnum á gangi á vegin-
um fyrir ofan ísakot, austan Þjórs-
ár. Þau sögðu að á laugardags-
kvöldið hefði bíllinn farið niður
um is, inn við Þóristind. Létu þau
fyrirberast i bílnum um nóttina,
en lögðu síðan upp fótgangandi til
byggða á sunnudagsmorgun. Fyrir
ofan Sigöldu urðu þau viðskila, en
við nánari eftirgrennslan fundu
Landsvirkjunarmenn hin tvö við
Búrfellsinntakið vestan Þjórsár
skömmu síðar.
Guðjón Einarsson sagði að full
ástæða væri til að vara fólk við
að leggja upp í svona ferðir á
einum bil, á þessum árstíma, þegar
allra veðra er von. í þessu tilfelli
var búið að tilkynna Hjálparsveit
skáta í Kópavogi og Slysavarnafé-
lagi íslands um að fólksins væri
saknað, þótt ekki hefði þurft að
gripa til viðtækrar leitar i þetta
skipti. „Menn verða að átta sig á
aó það er kominn vetur og þegar
fólk flanar út í svona ferðir,
misjafnlega vel útbúið, getur
brugðið til beggja vona,“ sagði
Guðjón.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:
Kjörnefnd hefur lok-
ið gerð framboðslista
KJÖRNEFND Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík hefur
lokið gerð framboðslista í prófkjöri
því sem fram fer 24. og 25. nóvem-
ber. Auk þeirra 18 sem tiliögur bár-
ust um fyrir lok framboðsfrests hefur
kjörnefnd tilnefnt 16 til viðbótar sem
taka munu þátt í prófkjörinu. Þeir
eru:
Baldvin Einarsson, Bjarni Frið-
riksson, Einar Hákonarson, Guðný
Aðalsteinsdóttir, Guðrún Zoega,
Gunnar S. Björnsson, Gústaf B.
Einarsson, Guttormur P. Einars-
son, Haraldur Blöndal, Helga Jó-
hannsdóttir, Jóhanna Sveinsdótt-
ir, Katrín Gunnarsdóttir, Ragnar
Breiðfjörð, Sigurbjörn Þorkelsson,
Sólveig Pétursdóttir og Vilhjálmur
G. Vilhjálmsson.
Áður höfðu eftirtaldir skilað inn
framboðum til prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík vegna
borgarstjórnarkosninga vorið
1986: Anna K. Jónsdóttir, Árni
Sigfússon, Brynhildur K. Ander-
sen, Davíð Oddsson, Guðmundur
Hallvarðsson, Hilmar Guðlaugs-
son, Hulda Valtýsdóttir, Jóna
Gróa Sigurðardóttir, Júlíus Haf-
stein, Katrín Fjeldsted, Kristín
Sigtryggsdóttir, Magnús L. Sveins-
son, Málhildur Angantýsdóttir,
Páll Gíslason, Sigurjón Fjeldsted,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Þórir
Lárusson og Þórunn Gestsdóttir.
Olíuflutningabifreiðin marar í hálfu kafi í sjónum.
Morgunblaðið/Sigurður örn Leðsson
„Hugsaði um það eitt að
komast út úr bílnum“
— segir Trausti Aðalsteinsson frá Patreksfirði, en olíuflutningabifreið
sem hann ók rann út af veginum og hafnaði í sjó í Vatnsfirði
„HRÆÐSLAN náði aldrei tökum
á mér, ég hugsaði aðeins um það
eitt að komast út úr bflnum,“ sagði
Trausti Aðalsteinsson, umboðs-
maður OLÍS á Patreksfírði, í sam-
tali við Morgunblaðið, en sl. laugar-
dag var hann hætt kominn er olíu-
fíutningabifreið sem hann ók rann
út af veginum í Hörgsnesi í Vatns-
fírði, valt eina veltu og hafnaði úti
í sjó um 12 metra frá landi. Trausti
komst út úr bifreiðinni við illan
leik og upp á veginn sem er í um
fímm metra hæð frá fjöruborðinu.
Enginn var á ferli enda snemma
morguns, og þurfti Trausti að
ganga um fímm km leið að næsta
bæ, þar sem hann gat gert lögregl-
unni viðvart
Morgunblaðið hafði tal af
Trausta og innti hann eftir máls-
atvikum. Honum sagðist svo frá:
„Ég var á leið í Vattarfjörð með
gasolíu fyrir vegavinnuflokk frá
Norðurverki hf. þegar óhappið
varð. Ekki veit ég hvað gerðist
en allt í einu var ég kominn út
í vegarkant og það skipti engum
togum að bíllinn rann út af veg-
inum og valt eina veltu út í sjó.
Ég reyndi strax að opna hurðina
en gat ekki haggað henni og
ákvað að bíða rólegur eftir að
húsið fylltist af sjó. Þess var
ekki langt að bíða því að aftur-
rúðan og hliðarrúður gáfu sig og
•***%£•
Trmusti Aðalsteinsson á Patreks-
fírði.
þá fylltist húsið á augabragði.
Tókst mér þá að smokra mér út
um hliðargluggann í þann mund
sem bíllinn var að sökkva.
Fjörukamburinn var stór-
grýttur en þó gekk mér vel að
komast upp á veginn. Énginn var
á ferli og ég sá mér þann kost
vænstan að ganga af stað áleiðis
að bænum Fossá og vona að
einhver ætti leið um. Svo var þó
ekki og ég var orðin ansi kaldur
þegar ég loksins kom að Fossá
eftir tæpan klukkustundar gang,
auk þess sem blæddi mikið úr
enninu á mér. Heimafólk færði
mér strax þurr föt og síðan var
mér ekið til Patreksfjarðar þar
sem saumuð voru nokkur spor f
ennið á mér. Að öðru leyti varð
mér ekki meint af volkinu, fékk
ekki einu sinni kvef.“
Trausti sagði að þetta væri
ekki í fyrsta skipti sem hann
lenti í lífsháska. Hann hefði verið
um borð í togaranum Verði þegar
hann sökk árið 1950 á leið sinni
til Englands og fimm menn af
þrettán fórust. Kvaðst Trausti
hvorki hafa fundið til hræðslu
þá né þegar hann fór fram af
veginum í Vatnsfirði.
Lögreglan á Patreksfirði sagði
í samtali við Morgunblaðið að
olíuflutningabifreiðin væri talin
gjörónýt. Um sex þúsund lítrar
af gasolíu hefðu verið í tanki
bifreiðarinnar og hefði mikill
hluti olíunnar runnið út í sjó, þar
sem gat kom á tankinn. Tókst
að ná bifreiðinni upp á veginn
síðdegis á sunnudag og hjá Olíu-
verslun Islands fengust þær
upplýsingar að ætlunin væri að
flytja bifreiðina með skipi til
Reykjavíkur einhvern næstu
daga.
Miðstjórnarfundur
Sambands ungra framsóknarmanna:
Mikil óánægja
með störf dóms-
málaráðherra
Vantrauststillögu var vísað frá
TALSVERÐ átök urdu á mióstjórnarfundi Sambands ungra framsóknar-
manna á Blönduósi um helgina, og stóð styrrinn um vantrauststillögu
Valdimars Guðmannssonar bónda á Jón Helgason landbúnaðarráðherra.
Lyktir urðu þær, eftir miklar umræður, að samþykkt var frávísunartillaga
Magnúsar Olafssonar með 10 atkvæðum gegn 4, en liðlega helmingur
fundarmanna sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var Valdimar búinn að
kanna fyrir fundinn hver hljóm-
grunnur væri meðal SUF-félaga
fyrir vantrauststillögunni. Munu
fáir hafa lýst sig reiðubúna til
þess að styðja vantrauststillög-
una, því ekki gætir mikillar
óánægju með störf landbúnaðar-
ráðherra innan SUF. Hins vegar
munu mjög margir vora óánægðir
með störf og-stefnu Jóns Helga-
sonar I dómsmálum. Valdimar
breytti þvl vantrauststillögu sinni,
þannig að hún var jafnframt
vantrauststillaga á Jón sem dóms-
málaráðherra. Eftir miklar um-
ræður flutti Magnús ólafsson frá-
vísunartillöguna sem samþykkt
var, eins og segir hér að ofan.
Ungir framsóknarmenn benda
á, aðþótt ekkl hafi verið samþykkt
vantraust á dúmsmálaráðherra,
þá hafi nngir framsóknarmenn
Frá miðstjórnarfundinum á BlönduósL
sýnt hver afstaða þeirra er til
starfa og stefnu ráðherrans í
áfengismálum, með þeirri ályktun
sem samþykkt var á laugardegin-
um, um að leyfa beri bruggun og
sölu áfengs öls hér á landi, auk
þess sem þeir leggja til að ákvörð-
unarvald varðandi vínveitinga-
leyfi verði alfarið í höndum sveit-
arstjórna í stað dómsmálaráðu-
neytisins. Með þessum samþykkt-
um hafi ungir framsóknarmenn
sýnt I verki óánægju sína með
störf ráðherrans.
Finnur Ingólfsson formaður
SUF sagði í samtáli við blaða-
mann Morgunblaðsins: „Ég vonast
til þess að ráðþerrann taki þær
tillögur sem við samþykktum
þarna til greina, þó að ég geri mér
fulla grein fyrir afstöðu ráðherr-
ans til þessa máls.“ Finnur sagði
að vantrauststillagan á Jón
Helgason sem landbúnaðarráð-
herra hefði verið ómakleg, þvf
nýju framleiðsluráðslögin væru
vissulega nýsköpun landbúnaðar-
ins, en ungir framsóknarmenn
hefðu lengi krafist slíkrar nýsköp-
unar. „Ég er sannfærður um að
þessi lög verða til þess að gefa
bændum meira en þeir hafa nokk-
urn tima haft, þegar fram líða
stundir," sagði Finnur, „en auðvit-
að tekur tima að vinna sig út úr
þessum hlutum, og því væri ómak-
legt að ásaka Jón Helgason um
þann vanda sem fyrrverandi 1ánd-
búnaðarráðherra skapaði."
Jóhann
tapaði
fyrir
Agdestein
JÓHANN Hjartarson tapaði fyrir
Norðmanninum Simen Agdestein f
þriðju umferð úrslitakeppninnar um
Norðurlandameistaratitilinn f Gjövik
í Noregi. Agdestein tefldi Caro
Kann-vörn með svörtu og virtist það
koma Jóhanni á óvart, því hann fékk
snemma slæma stöðu og gafst upp
eftir 26 leiki.
Úrslitakeppnin er nú hálfnuð og
hafa þeir Helgi ólafsson og Agde-
stein báðir hlotið einn og hálfan
vinning, en Jóhann Hjartarson
hefur engan vinning hlotið. I
seinni hluta keppninnar hefur Jó-
hann hvítt gegn Helga í dag, Helgi
hefur hvítt gegn Agdestein á
morgun og hefur þá lokið skákum
sínum. í síðustu umferðinni á
fimmtudag hefur Agdestein síðan
hvítt gegn Jóhanni Hjartarsyni.
Verði þeir Helgi Og Ágdeetein
jafnir og efstir hreppir Norðmað-
urinn titilinn vegna hærri stiga á
Norðurlandamótinu sjálfu.