Morgunblaðið - 05.11.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
5
Lögreglufélag Reykjavíkur:
Átta lögreglukonur af
tólf hafa misst fóstur
— þar af ein tvisvar
KÖNNUN, sem tekin var saman af
Lögreglufélagi Reykjavíkur fyrir
stuttu, leiddi í Ijós að af 12 lögreglu-
konum sem starfað hafa á höfuö-
borgarsvæóinu sl. fjögur ár hafa 8
þeirra misst fóstur og ein þeirra
tvisvar.
Tómas Jónsson, formaður
Landssambands lögreglumanna,
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins að þetta væri
mjög alvarlegt ástand og vildi
hann meina að vaktavinna gerði
þetta að verkum jafnframt því sem
mikil streita fylgdi starfiru. T.d.
vissu lögreglumenn aldrei hvað
biði þeirra er þeir mæta á vakt.
„Aukavinna er mikil þó aðallega
um helgar og nætur. Engin form-
leg könnun hefur farið fram á
þessu en vandamálið hefur verið-
rætt við dómsmálaráðuneytið og
er því vel kunnugt um vandann.“
Tómas sagði að samanburður við
meðallífaldur íslendinga sýndi að
karlmenn sem stundað hafa vakta-
vinnu um langa hríð innan lögregl-
unnar hefðu hærri dánartíðni
miðað við aldur. „Ástæður þessa
eru trúlega hinar sömu og ástæður
fósturláta meðal lögreglukvenna."
I Blásarakvintett Reykjavflnir eni: Bernharð Wilkinson flauta, Daði Kol-
beinsson óbó, Einar Jóhannesson klarínett, Joseph Ognibene horn og
Hafsteinn Guðmundsson fagott.
Norræna húsið:
„Um sálina“ eftir
Aristóteles komin út
HIÐ íslenzka bókmenntafélag hefur
sent frá sér rit gríska heimspekings-
ins ristótelesar „Um sálina“ sem
er fyrsta sálfræðilega ritverkið með
vísindalegu yfírbragði, sem vitað er
til að samið hafí verið (335—330 f.
Krist). Það er því vissulega tíma-
mótaverk í sögu vesturlenzkrar sál-
arfræðL
Fyrir löngu hefur það verið þýtt
á þjóðtungur flestra menningar-
þjóða — stundum oftar en einu
sinni. Og enn er til þess vitnað,
þó að það sé orðið meira en tvö
þúsund ára gamalt. Vissulega
kemur það nútímamönnum um
margt framandlega fyrir sjónir,
en að öðrum þræði er það þó ein-
kennilega nálægt nútímanum.
Sigurjón Björnsson prófessor
þýddi ritið úr frummálinu og ritar
skýringar og ýtarlegan inngang
þar sem hann rekur æviferil og
sálfræðikenningar Aristótelesar.
— Bókin sem er 195 bls. er prentuð
í Prentsmiðjunni Odda.
Þetta er önnur bókin í ritröðinni
Sigurjón Björnsson, þýðandi ritsins.
Sálfræðirit, hin fyrsta er Sállækn-
ingar og sálkönnun eftir Sigurjón
Björnsson.
(Fréttatilkynnini!)
Yfirlýsing frá Leik-
listarskóla fslands
MORGUNBLAÐINU hefur bofist
eftirfarandi yfírlýsing frá Leiklistar-
skóla íslands:
„Hluti af fjögurra ára námi við
Leiklistarskóla íslands er fimm
vikna námskeið til þjálfunar í út-
varpsleik í samvinnu við Ríkisút-
varpið. Á þessum námskeiðum er
að jafnaði æft eitt leikrit og tekið
upp, og hefur þessum verkum hin
Tvö fiskiskip
seldu erlendis
TVÖ íslensk fiskiskip seldu afla
sinn erlendis á mánudag og fengu
þokkalegt verð fyrir hann. Svein-
borg GK seldi 120,6 lestir af blönd-
uðum afla í Grimsby. Heildarverð
var 5.541.500 krónur, meðalverð
45,95. Þórhallur Daníelsson SH
seídi 108 lestir, mest þorsk, í Hull.
Heildarverð var 5.239.600 krónur,
meðalverð 48,38.
síðari ár verið útvarpað. Verkefni
eru valin þannig að nemendur fái
sem jöfnust hlutverk að glíma við
og er oft æði erfitt að finna verk
er uppfylli það skilyrði. Og endan-
legt val verkefna er að sjálfsögðu
háð samþykki leiklistarstjóra rík-
isútvarpsins hverju sinni.
Að þessu sinni varð fyrir valinu
leikritið Galeiðan eftir ólaf Hauk
Símonarson, sem gert er eftir
samnefndri skáldsögu og leikritinu
Blómarósum, sem sýnt var yfir 3Q
sinnum á sviði í Reykjavík leikárin
1978—79 og 1979—80 auk sýninga
út um land, án þess að nokkur
athugasemd væri gerð við flutning
þess.
Leiklistarskólinn harmar að
hafa átt þátt í að valda sárindum
og vill taka fram að leikritinu var
útvarpað án þess að forráðamenn
skólans fengju áður að hlusta á
upptökuna.
Reykjavík, 1. nóvember 1985,
f.h. Leiklistarskóla íslands,
Helga Hjörvar skólastjóri."
Þing FFSÍ:
Kjaramál og fiskveiði-
stefna helztu málin
ÞING Farmanna- og fískimannasam-
bands íslands veróur sett í dag í
samkomusal sjómannasamtakanna í
Borgartúni. Þetta þing er hið 32. í
röðinni.
Þingið setur Guðjón A. Kristj-
ánsson, forseti FFSÍ, og að því
loknu munu gestir ávarpa sam-
komu, þar á meðal sjávarútvegs-
ráðherra Halldór Ásgrímsson.
Þingstörf munu einnig verða mið-
vikudag og fimmtudag, en gert er
ráð fyrir að þinginu ljúki á föstu-
dag. Helztu mál þingsins verða
kjaramál farmanna og fiskimanna
og fiskveiðistefnan á næsta ári.
Háskólatónleikar á morgun
Einar Bjarnason, formaður
Lögreglufélags Reykjavíkur, sagði
við blaðamann að svo hátt hlutfall
fósturláta innan einnar stéttar
gæti varla verið tilviljun. „Þó tel
ég ástæðurnar — vaktavinnu og
streitu — heldur fjarstæðukennd-
ar, en ég get ekki með nokkru móti
fundið aðrar. Okkur helst mjög
illa á kvenlögreglum, eflaust vegna
álags. Aðeins ein lögreglukona
hefur verið starfandi lengi en
aðrar hafa haft tiltölulega stutta
viðdvöl," sagði Einar.
Háskólatónlcikar, hinir þriðju á
haustmisseri, verða haldnir í Nor-
ræna húsinu á morgun, miðvikudag,
kl. 12.30. Tónleikarnir standa í u.þ.b.
hálfa klukkustund. Blásarakvintett
Reykjavíkur leikur.
Á efnisskránni eru tvö verk:
Fjögur íslensk þjóðlög í útsetningu
Þorkels Sigurbjörnssonar og er
það frumflutningur þeirra og
Capriccio. Sopra la contananza del
suo fratello dilettissimo eftir J.S.
Bach í útsetningu Róberts A. Ott-
óssonar. Þetta verk hefur ekki
verið flutt áður hér á landi í þess-
ari útsetningu.
í Blásarakvintett Reykjavíkur
eru þeir Bernharð Wilkinson
flauta, Daði Kolbeinsson óbó,
Einar Jóhannesson klarinett, Jos-
eph Ognibene horn og Hafsteinn
Guðmundsson fagott. Aðgangur
að tónleikunum er öllum heimill.
HEFUR SVO SANNARLEGA SLEGIÐ í GEGN í
BPDADW/
15 ára afmælishátíð heldur áfram um næstu helgi. 17 landsþekktir
skemmtikraftar fara á kostum. Karnival — Söngur — Dans — Grín
og gleöi. Næsta sýning laugardagskvöld og athugið:
Aukasýning
sunnudagskvöld 10. nóv.
vegna gífurlegrar aðsóknar og f jölda áskorana.
Sumargleöin hefur aldrei veriö fjörugri, frískari, fjölbreytt-
ari né betri og er þá bara heilmikiö sagt.
Geggjaö stuö og stemmningin er engu lík.
Pantið miöa í tíma í síma 77500, þar sem uppselt hefur
verið undanfarnar helgar.