Morgunblaðið - 05.11.1985, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
Sameining BÚR og ísbjarnarins:
Tilgangurinn sá einn að bjarga
ísbirninum frá gjaldþroti
— segir Sigurður E. Guðmundsson, fulltrúi
Alþýðuflokksins í borgarstjórn
„ÉG TEL aö þær ráðstafanir sem nú stendur til að gera hafi þann megintil-
gang að bjarga ísbirninum frá gjaldþroti. Því þótt þaö sé látið í veðri vaka
að það sé gert í þeim tilgangi að treysta stöðu beggja fyrirtækjanna þá er
ekki gengið lengra en svo aö það er reynt að ná aftur upp fyrirtæki af
svipaði stærð og BÚR var áður en niðurskurðurinn hófst á þessu kjörtíma-
bili,“ sagði Sigurður E. Guðmundsson, fulltrúi Alþýðuflokksins í borgar-
stjórn, spurður álits á sameiningu ísbjarnarins og Bæjarútgerðar Reykjavíkur
sem nú stendur fyrir dyrum.
„Og ég vil líka benda á að hefði
markmiðið virkilega verið það að
koma upp nýju öflugu fyrirtæki,
hefði væntanlega ekki verið leitað
til fyrirtækis sem stendur mjög
höllum fæti í útgerðinni, heldur
einhvers mun öflugra fyrirtækis,
eins og til dæmis Ögurvíkur hf.
En það var ekki gert,“ sagði Sig-
urður.
Sigurður sagðist vilja minna á
að á sinum tíma hefði Bæjarútgerð
Reykjavíkur verið stofnuð i tvenn-
um tilgangi, eins og aðrar bæjarút-
gerðir: „í fyrsta lagi i því skyni
að treysta með sem öflugustum
hætti atvinnuöryggi sjómanna,
verkakvenna, verkamanna og
fjölda fólks annars sem starfar að
sjávarútvegi. Ég tel að þetta mark-
mið hafi náðst í reynd hér í
Reykjavík eins og annars staðar
þar sem bæjarútgerðir hafa verið
starfræktar jafnvel þótt á þessu
kjörtímabili hafi það óvanalega
gerst að fólki hafi hvað eftir annað
verið sagt upp störfum.
Hinn megintilgangurinn með
stofnun BÚR var að tryggja fram-
þróun í sjávarútvegi í borginni
þegar fyrir lá að útgerðarfyrirtæki
einkaframtaksins hugsuðu sér
ekki að kaupa nýsköpunartogara
til borgarinnar að neinu marki.
Þá var það að dr. Bjarni heitinn
Benediktsson borgarstjóri tók ák-
vörðun um það að stofna BÚR, sem
Alþýðuflokkurinn hafði lengi bar-
ist fyrir. Þar með varð það mál
að veruleika og með þeim hætti
tókst að tryggja að nýsköpun sjáv-
arútvegsins yrði staðreynd hér.
Síðan hefur BÚR margoft tekið
af skarið og gerst brautryðjandi,
eins og þegar fyrirtækið endurnýj-
aði togaraútgerð sína á síðasta
kjörtímabili og með þeim miklu
endurbótum sem þá voru gerðar á
fiskvinnslunni.
Við jafnaðarmenn teljum að i
stað þess að sameinast ísbirninum
hefði verið nær að fara út í endur-
skipulagningu og hagræðingu
BÚR, því við lítum svo á að Bæjar-
Sameining BÚR og ísbjarnarins:
útgerðin hafi tilgangi að þjóna hér
eftir sem hingað til. Og það var
þess vegna sem við fluttum tillögur
um það á þessu kjörtímabili að
einum eða fleiri af eldri togurum
BÚR yrði breytt í frystitogara. Því
var ekki sinnt, en togararnir seldir
á spottprís einstaklingum sem
hafa breytt þeim i frystitogara,
eins og til dæmis Frera. Hefðu
menn viljað, hefði líka mátt fara
út í það að aðskilja fjárhag BÚR
og borgarsjóðs á grundvelli lag-
anna um takmarkaða ábyrgð at-
vinnufyrirtækja í eigu sveitarfé-
laga. Þá hefði sá yfirlýsti tilgangur
náðst að BÚR gengi ekki í borgar-
sjóð umfram það sem eðlilegt hefði
talist. Mér finnst að með þessu sem
nú er verið að gera sé verið að
þjóðnýta tapið - það er verið að
láta borgina taka á sig fyrirtæki
sem stóð afar höllum fæti og
almannarómur segir að hefði
annaðhvort orðið gjaldþrota eða
orðið að selja sig SÍS að öðrum
kosti. Og til þess síðastnefnda hafi
Sjálfstæðisflokkurinn ekki mátt
hugsa og því hefði það verið
þrautalendingin að láta Reykvik-
inga taka þetta fyrirtæki á sig
með þessum sérstaka hætti," sagði
Sigurður E. Guðmundsson.
»m io»ii!|i|jli!íiiiii
Fasteignasalan Hátún
Nóatúni 17, s: 21870,20998
Ábyrgd - reynsla - öryggi
Brekkugeröi
2ja herb. ca. 55 fm íb. á jarð-
hæó í tvíb.húsi. Sérinng., sér-
hiti.
Kóngsbakki
2ja herb. ca. 70 fm íb. á 1.
hæö. Þv.hús í íb. Verð 1600
þús.
Maríubakki
2ja herb. ca. 60 fm glæsil. íb.
á l.hæð. Lausstrax.
Kleppsvegur
2ja-3ja herb. ca. 75 fm góð íb.
á 1. hæö. Verð 1750-1800 þús.
Hrafnhólar
4ra-5 herb. ca. 127 fm íb. á
7. hæö. Góö íb. Gott útsýni.
Ljósheimar
4ra herb. ca. 104 fm íb. á 7.
hæð. Verð 2,2 millj.
Stóragerði
Ca. 100 fm 3ja-4ra herb. íb.
meö tveimur bílsk. Mögul. að
taka minni eign uppí.
Furugrund Kóp.
5 herb. ca. 120 fm góö endaíb.
m. íb.herb. í kj. Góö sameign.
Goöheimar
150 fm efri hæð. 6 herb. o.fl.
Geta veriö tvær íb. 28 fm bílsk.
Grænatún Kóp.
Ca. 147 fm nýleg sérhæö í
tvíb.húsi. Bílskúr.
Skólabraut Seltj.
Ca. 150 fm glæsileg efri sér-
hæö. 35 fm bílskúr. Fallegt út-
sýni.
Dalsel
Raöhús ca. 190 fm á tveimur
hæðum + gott herb. og geymsl-
ur í kj. Bílskýli. Skipti é minni
eign möguleg.
Baröavogur
Einlyfteinb.húsca. 140fm. Bílsk.
Hnjúkasel
Einstakl. fallegt einb.hús ca.
235 fm ásamt bílskúr. Allar
innr. og frég. af vönduöustu
gerö.
Norðurbraut Hf.
íbúö og verkst.húsn.
Ca. 200 fm verkstæðispláss á
jaröhæö ásamt 110 fm 5 herb.
íb. á 2. hæð. Lóð 1350 fm. Gott
athafnasvæöi.
Okkur vantar allar atærdir
og geröir af eignum
Skoöum og verdmetum
aamdægura
Hilmar Valdimaraaon a. 687225,
Kolbrún Hílmarsdóttir $. 76024,
Sigmundur Böóvartaon hdl.
26277
Allir þurfa híbýli
2ja og 3ja herb.
Engihlíð. 2ja herb. 60 fm íb. í kj.
Hamraborg. 2ja herb. 65 fm íb.
á 1. hæð. Bílskýli. Góö íb.
Keilugrandi. Falleg nýleg 2ja
herb. íb. á 1. hæð. Suöursvalir.
Brtskýli.
Smyrlahraun. 3ja herb. 90 fm
íb. á 1. hæö í fjórb.húsi. 28 fm
bílsk. Lausstrax.
Engjasel. 3ja herb. íb. á 2.
hæð. Bilskýli. Góð sameign.
4ra herb. og stærri
Krummahólar. 4ra herb. á 3.
hæö. Þvottah. á hæöinni.
Suðursv. Bílsk.
Kaplaskjólsvegur. 4ra herb.
110 fm endaíb. á 3. hæð.
Seljabraut. Mjög skemmtileg
4ra herb. íb. á 2 hæöum. Bíl-
skýli.
Hraunbær. 4ra herb. 117 fm íb.
á3. hæö.
Breiðvangur Hf. Glæsileg 4ra-5
herb. 120 fm íb. á 2. hæð.
Gott aukaherb. í kj. Bilsk. meö
hitaografmagni.
Granaskjól. Neöri sérhæð í
þríb.húsi um 117 fm. 4 svefn-
herb. Bílsk.réttur.
Rauóalækur. 4ra-5 herb. 130 fm
efri hæð í f jórb.húsi með bílsk.
Kársnesbraut. Ca. 130 fm sérh.
með bílsk. Þvottah. á hæðinni.
Sk. mögul. á3ja herb.
Nýbýlavegur. Sérhæö í fjórb -
húsi. 150 fm, 4 svefnherb.
Góöur bílskúr.
Logafold. Sérhæö um 140 fm
auk bílsk. Að auki er 60 fm
pláss í kjallara. Tæpl. tilb. undir
trév. ______
Raðhús og Einbýlishús
Rjúpufell. Einlyft raöhús um 140
fm auk bílskúrs. Góö eign.
Fífumýri. Einbýlishús. Kjallari,
hæð og ris m. tvöföldum innb.
bilskúr. Samtals um 300 fm.
Laugarásvegur. Glæsil. einb-
hús, kj. og tvær hæöir. Samtals
um 250 fm. 35 fm bílskúr.
Furugerði. Gullfallegt einb.hús
ca.300fm.
Verslunarhúsnæói. Heimar 70
fm verslunarhúsn.
HÍBÝLI & SKIP
Garóastræti 38. Sími 26277.
Brynjar Fransson, sími: 39558.
Gylfi Þ. Gislason, sími: 20178.
Gisli Óiafsson. simi: 20178.
Jón Ólafsson hrl.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Ábyrgð borgarsjóðs breytist ekki
ef um taprekstur verður að ræða
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarfulltrúi Kvennaframboðs
„ÉG GET í fljótu bragði ekki séð hvaða hag borgin hefur af þessum samn-
ingi, vegna þess að borgin er eftir sem áður meirihlutaaðili að þessu fyrir-
tæki, á 75% í þessu hlutafélagi og ber þá væntalega fjárhagslega ábyrgð
gagnvart því,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi Kvennafram-
boðs í Reykjavík, er hún var innt álits á sameiningu Bæjarútgerðar Reykja-
víkur og Ísbjarnarins hf.
Ingibjörg Sólrún kvaðst ekki
hafa haft tækifæri til að fara ná-
kvæmlega ofan í saumana á þess-
um samningi þar sem henni barst
hann ekki í hendur fyrr en sl.
þriðjudag. En við fyrstu athugun
gæti hún ekki séð ávinning fyrir
borgina á sameiningu þessara
fyrirtækja. Um þær fullyrðingar
borgarstjóra,, að ábyrgð borgar-
sjóðs myndi hverfa sagði Ingibjörg
Sólrún: „Hér er auðvitað um að
ræða sjálfstætt fyrirtæki og að því
leyti hverfur ábyrgð borgarsjóðs.
En segjum sem svo að fyrirtækið
gangi ekki, þá þarf væntanlega að
auka hlutafé og hver kaupir hluta-
bréf í fyrirtæki sem gengur ekki?
Það gerir auðvitað enginn annar
en borgarsjóður, ef borgin vill þá
reka fyrirtækið áfram. Ég fæ því
ekki séð að ábyrgð borgarsjóðs
breytist verði um taprekstur að
ræða. Þar að auki er gert ráð fyrir
að þetta fyrirtæki yfirtaki 560
milljón króna skuldir frá ísbirnin-
um, sem mér finnst talsvert stór
biti, auk þess sem borgarsjóður
tekur á sig 200 milljón króna skuld
frá Bæjarútgerðinni. Það er því
vandséð hver hagur borgarsjóðs
er af þessum tilfæringum," sagði
Ingibjörg Sólrún.
Út í hött að orrustuþotur
fljúgi nær eldsneytislausar
— segir Friðþór Eydal blaðafulltrúi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
„FYRIR hverja flugferð orrustuþota
er gerð áætlun um hvert er flogið
og flugtíma og er eldsneytismagnið
áætlað nákvæmlega samkvæmt
henni. Eftir æflngaflug æfa flug-
mennirnir oft aðflug þegar gott er
veður og ef þeir hafa nægilegt elds-
neyti til þess. Það gerðu þeir einmitt
á miðvikudaginn," sagði Friðþór
Eydal blaðafulltrúi varnarliðsins í
samtali við Morgunblaðið, er hann
var spurður hvort það kæmi oft fyrir
að orustuþoturnar væru a flugi með
knappar eldsneytisbirgðir. En eins
og fram hefur komið í fréttum tafðist
þota Eduard Shevardnadze utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna í nokkr-
ar mínútur eftir að hún var tilbúin
til flugtaks á Keflavíkurflugvelli í
miðvikudaginn vegna þess að orr-
ustuþotur frá varnarliðinu komu inn
til lendingar á sama tíma. Þeim var
veitt leyfi til lendingar á þeim for-
sendum að eldsneytisbirgðir þeirra
væru litlar.
„Orrustuþoturnar komu að vell-
inum þegar sovéska vélin átti að
vera farin. Síðan seinkaði brottför
hennar og er hún var tilbúin til
þess að fara út á braut voru orr-
ustuvélarnar komnar í aðflug.
Sovéska flugvélin stóð utan braut-
ar á meðan orustuþoturnar flugu
yfir flugbrautinni endilangri og er
allt tal um að þær hafi verið yfir
sovésku flugvélinni ekki á rökum
reist,“ sagði Friðþór.
„Eins og skýrt hefur verið frá
áður er ekkert óeðlilegt við það
sem þarna gerðist, þetta var bara
tilviljun vegna þessarar seinkunar
á brottför sovésku vélarinnar. Allt
tal um að þessar vélar séu að fljúga
hér yfir nær eldsneytislausar er
alveg út I hött því allt var þetta
innan venjulegra öryggismarka.
Þegar flugmaður tilkynnir að hann
þurfi að lenda vegna þess að hann
eigi lítið eftir af eldsneyti, þá er
alltaf gert ráð fyrir ákveðnum
öryggisþætti, t.d. að vélin hafi nóg
eldsneyti, ef hætta verður við lend-
ingu og flugmaðurinn þarf að fara
annan hring. Þetta fer allt eftir
settum reglum og því var þetta
alls ekki óeðlilegt," sagði Friðþór
að lokum.
Einbýli — Þinghólsbraut
Vorum að fá í beina sölu mjög gott 214 fm einbýli
meö innbyggöum bílskúr. Ýmsir greiðslumöguleikar í
boði. Verð4,9millj.
4ra herb. — Hraunbær. 110 tm á 2. hæö.
3ja herb. — Rauðarárstígur. Mjög snyrtii. íb.
á2.hæö. Lausstrax. Verð 1750 þús.
3ja herb. — Krummahólar. Mjög góð 90 tm
íb. á 6. hæð. Bílskýli. Skipti möguleg. Verö 1850 þús.
2ja herb. — Efstasund. stórgóð íb. meö sér-
inng. og allt sér. Verð 1400 þús.
2ja herb. — Nökkvavog. Mjög góö íbúö á 1.
hæö ásamt stóru herb. í kjallara. Sérhiti. verö 1,7 millj.
í Seljahverfi — mjög góðar 4ra og 5
herb. íbúðir og einnig raöhús.
EIGNAÞ JÖNUSTAN S. 26650/27380