Morgunblaðið - 05.11.1985, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stálgæði: WSt. 4301 AISI 304
Stálgæði: WSt. 4016 AISI 430
Plötuþykktir: 0.8 - 6.0 mm
Plötustærðir: 1250 x 2500 mm
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
ÚRVALS AMERÍSK HEIMILISTÆKI
GENERAL® ELECTRIC
■SJ;CNSK|öfÍN.FUR
Fullkomin varahluta-
og viðgerðaþjónusta
HEIMIUS- OG RAFTÆKIADEILD
HF
LAUGAVEGI 170 -172 SIMAR 11687 • 21240
<s>
cr
Morgunblaðið/Björn
Sigríður Garðarsdóttir og Ásrún Jörgensdóttir, þær fljótustu í sfldinni hjá
Tanga á Vopnafirði.
Vopnafjörður:
Sfldin söltuð og
flökuð af krafti
Sfldarvertíðin stendur nú sem hæst
og er söltun í fullum gangi hér á
Vopnafirði á söltunarstöð Tanga hf.
Fréttaritari fór á planið sl. sunnu-
dagskvöld og ræddi fyrst við Sigurð
Sveinsson aðstoðarverkstjóra.
Sigurður sagði að búið væri að
salta í 5.700 tunnur og búast mætti
við 7-750 tunnum úr yfirstandandi
törn, en verið var að landa úr
Sigþóri ÞH 100. Nú landar Sigþór
öllum sínum afla hér hjá Tanga
hf. og sagði Sigurður að mjög
brýnt væri að hafa báta í föstum
viðskiptum og tryggja þannig viss-
an afla til söltunar þótt alltaf
bærist eitthvað frá öðrum skipum.
Ég spurði Sigurð að lokum hverjar
væru fljótastar að salta af þeim
stúlkum sem væru fastráðnar hjá
þeim. Svarið kom um hæl. Þær
heita Sigríður Garðarsdóttir og
Ásrún Jörgensdóttir.
Aðspurðar sögðu þær stöllur að
þetta væri erfitt þegar væru lang-
ar tarnir, en á móti kæmi að þetta
gæfi þokkalegan pening ef þær
nenntu að halda vel áfram. Mest
hafa þær saltað 115 tunnur í einni
lotu.
Mikil vinna hefur á undanförn-
um árið verið lögð í söltunarstöð-
ina til lagfæringa og stækkunar á
húsnæði og er nú m.a. komin upp
mjög góð aðstaða til flökunar á
síld. Þar er yfirmaður Páll Aðal-
steinsson og sagði hann að búið
væri að flaka 150 tunnur á vertíð-
inni. Hann var spurður hvort það
væri ekki lítið miðað við þá góðu
aðstöðu, sem nú er fyrir hendi og
með það í huga hversu langt er
liðið á vertíðina.
„Jú, það er rétt. Við hefðum
viljað vera búnir að flaka miklu
meira, ekki síst vegna tryggrar
sölu á flökum, en okkur hefur til-
finnanlega vantað fólk og gátum
því ekki byrjað flökun fyrr en nú
fyrir skömmu. Nú hefur ræzt úr
með mannskap og við vonumst til
að geta flakað stöðugt það sem
eftir er vertíðar og vinna þannig
upp tapaðan tíma,“ sagði Páll.
—Björn
Frá vinstri Eyjólfur Haraldsson yfirlæknir, Gróa Sigfúsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri, Anna Tryggvadóttir formaóur Kvenféiags Kópavogs, Ingibjörg Júlíus-
dóttir varastjórn, Hildur Káradóttir ritari, Guórún Maríasdóttir gjaldkeri,
Svana Svanþórsdóttir varastjórn, Þorgerður Þorgeirsdóttir meðstjórnandi,
Ólafía Jensdóttir, Hrefna Gísiadóttir, Ásgeir Jóhannesson form. stjórnar
Heilsugæslustöóvar Kópavogs. Myndin var tekin við afhendingu heyrnarmæl-
ingatækisins.
Kvenfélag Kópavogs
gefur heyrnarmælingatæki
Á fúndi í Kvenfélagi Kópavogs, sem
haldinn var í aprfl sl. var samþykkt
að gefa Heilsugæslustöð Kópavogs
heyrnarmælingatæki í tilefni af 35
ára afmæli félagsins, en það var
stofnað 29. október 1950.
Þann 16. júlí sl. var heyrnmæl-
ingartækið afhent að viðstöddum
forráðamönnum Heilsugæslu-
stöðvarinnar, stjórn og varastjórn
Kvenfélags Kópavogs og fleiri fé-
lagskonum.
Heyrnarmælingatækið er keypt
frá MADSEN Electronics í Dan-
mörku, tegund MSA 84 og Rafís
hf. flutti það inn.
Tækið verður notað til að mæla
heyrn skólabarna í Kópavogi.
FrétUtilkynning