Morgunblaðið - 05.11.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
25
Enn
ein og
ekki sú
versta
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Kiss
Asylum
Phonogram/Fálkinn
Hvað þessir Kiss-kappar
endast til þess að gefa út plötur
er hreint með ólíkindum. Asyl-
um (geðveikrahælið á íslensku)
er sennilega 15. plata þessa
kvartetts eða þar um bil og enn
virðist ekkert lát á.
Undanfarin ár hafa margar
af plötum Kiss verið ákaflega
lítið spennandi, oft ekkert
annað en umbúðirnar einar,
tóm mjólkurferna. Á þessu
hafa vissulega verið undan-
tekningar, t.d. Lick it up með
samnefndu lagi, sem kom út
síðla árs 1983 og gerði það harla
gott og átti það skilið. Þessi
nýjasta afurð Kiss, Asylum,
stendur Lick it up lítið að baki.
Það væri ósanngjarnt að Kiss
hefði ekki farið fram þann ára-
tug, sem ég hef fylgst með
sveitinni. Fyrstu plötur sveit-
arinnar voru reyndar eyðilagð-
ar gersamlega i upptökustjórn
en margar af þeim sem á eftir
fylgdu voru ósköp máttlitlar og
húmorinn, sem fyrirfannst í
ríkum mæli framan af, virtist
hafa yfirgefið þá Paul Stanley,
Gene Simmons og Co. Húmor-
inn er hins vegar í góðu lagi á
Asylum og það sama er að segja
um mörg laganna þótt sum séu
reyndar „á nippinu" eins og
maður segir stundum.
Ekki veit ég hvor á meiri
heiður af gítarleik plötunnar
Gene Simmons eða. Bruce
Kulick, en víst er að báðir skila
sínu laglega. Mörg sóló plöt-
unnar eru skrambi vel gerð en
flest alveg laus við allan frum-
leika. Trommuleikur Eric Carr
er oft sterkur en á það til að
verða einhæfur í sjálfum lögun-
um, þ.e. megintakturinn oft
staðnaður. Hvað sem þessu
líður er söngurinnn þó alltof
oft kauðalegur og engu líkara
en verið sé að þvinga hljóðin úr
barkanum. Stundum sleppur
þetta þó fyrir horn en verður
að mínu mati alltaf ljóður á.
ÞÚ ERT VERÐUGT VIÐFANGSEFNIOG ÞÍN SÉRKENNIEIGA AÐ NJÓTA
SÍN. OKKUR ER í MUN AÐ UMGJÖRÐIN FALLIAÐ ANDLITIÞÍNU.
HÁRGREIÐSLA OG HÁRSKURÐUR ERU OKKAR LISTGREINAR.
VIÐ KÖSTUM EKKI TIL ÞEIRRA HÖNDUNUM.
Cs&
UJ 21 uj SJ u SU fJ Al AJ
BERGSTAÐASmÆn 28A. SÍMI621920
KUNNÁTTA OG PERSÖNULEG ÞJÖNUSTA
SÍMI
FRUMSÝNIR:
HM
Sýnd í A-sal
kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Al (Nicholas Cage) og Birdy
leika aðalhlutverkin í „Birdy“, mynd um vinittu
tveggja unglingspilta, sem eru heftir af um-
hverfi og aöstæðum.
Ný, bandarísk stórmynd, gerö eftir samnefndri metsölubók
Williams Wharton. Mynd þessi hefur hlotiö mjög góöa dóma
og var m.a. útnefnd til verölauna á kvikmyndahátíöinni í Fen-
eyjum (Gullpálminn). Leikstjóri er hinn margfaldi verölaunahafi
Alan Parker (Midnight Express, Fame, Bugsy Malone). Aöal-
hlutverk lelka Matthew Modine (Hotel New Hampshire, Mrs.
Soffel) og Nicholas Cage (Cotton Club, Racing The Moon).
Handrit samiö af Sandy Kroopf og Jack Behr, eftir samnefndri
metsölubók Williams Wharton. Kvikmyndun: Michael Seresin.
Klipping: Gerry Hambling, ACE. Tónlist: Peter Gabriel. Bún-
ingahönnuöur: Kristi Zea. Framleiöandi: Alan Marshall. Leik-
stjóri: Alan Parker.
Birdy þráir aö fljúga.
Hann vakir yfir fugl-
um og fylgist með
vængjatökum
þeirra. Með aðstoð
Als, vinar síns, smíð-
ar hann flugdreka.
i köldum klefa á geðsjúkrahúsi hittast
vinirnir Al og Birdy eftir langan aðskilnað.
Báðir hafa upplifað hörmungar styrjaldar.