Morgunblaðið - 05.11.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER1985
22 drepnir í
átökum við eitur-
lyfjasmyglara
AF/8imamyna
Á myndinni má sjá hvar háhýsi skal sprengt til grunna. Húsið riðar og hrynur, en nemur skyndilega staðar að
jöfnu báðu, grunni og þaki.
Hrundi aðeins til hálfs
London, 4. nóvember. AP.
ÖÐRUVÍSI fór en ætlað var þegar
sprengja átti 21 hæðar hriplekt
fjölbýlishús í loft upp í hverfinu
East End í London á sunnudag.
Byggingin reyndist rammgerari en
svo að nokkrar lengjur dýnamíts
yrðu henni að falli, þótt veðurguð-
irnir hefðu leikið húsið grátt.
Þrettán efstu hæðir hússins
stóðu eftir, skakkar að vísu, en
þess utan í góðu ásigkomulagi
eftir 200 punda sprengingu.
„Háhýsið hrundi niður, hægt
og tígulega eins og í kvikmynd,
sem sýnd er hægt. Skyndilega
var sem ósýnileg hönd gripi í
taumana: neðstu hæðirnar gáfu
sig, en þrettán efstu höfnuðu
heilar á jörðinni," sagði skömm-
ustulegu talsmaður fyrirtækis-
ins, sem tók að sér að rífa húsið
niður, eftir atburðinn: „Þetta
var ótrúlegt."
Efstu hæðirnar fá þó ekki að
standa lengi: ákveðið hefur verið
að bjóta leifarnar niður með
feiknlegum málmkúlum í krön-
um.
Húsið hafði verið lýst óíbúð-
arhæft á þeim forsendum að það
héldi ekki vatni, væri óhrjálegt
útlits og hefði slæm áhrif á
umhverfið. Of dýrt hefði verið
að gera húsið upp.
Minatitlan, Mexíkó, 4. nóvember. AP.
SKOTIÐ var á lögreglumenn í
Mexíkó á sunnudag og neyddust
þeir til að kveðja herinn sér tii hjálp-
ar. Lögreglumennirnir höföu farið til
að hafa uppi á líkum 22 starfsbræðra
sinna, sem lentu í skotbardaga við
eiturlyfjaframleiðendur í grennd við
bæinn Minatitlan, í suðurhluta
Mexíkó.
Mörg hundruð lögreglu- og her-
menn leituð að eiturlyfjasmyglur-
unum og umkringdu þorp þar sem
talið er að hampjurtir (marihu-
ana) séu ræktaðar.
Til mikils skotbardaga kom á
föstudag milli smyglara og lögr-
eglu. Bardaginn stóð í þrjá tíma,
en þá gengu skotfæri lögreglu-
mannanna til þurrðar og eftirleik-
urinn var auðveldur fyrir smyglar-
ana. Aðeins tveir lögreglumenn
lifðu átökin af, en 22 voru myrtir
og að sögn voru sumir pyntaðir
áður en þeir voru drepnir.
Til átakanna kom í héraðinu
Hidalgotitlan í suðurhluta Vera-
cruz-ríkis. Mexíkanska fíkniefna-
lögregan segir að helsta miðstöð
hassframmleiðslu í Mexíkó sé á
þessu svæði.
Tveir lögreglumenn komust
undan á flótta á föstudag og
greindu þeir yfirvöldum frá því að
lögreglusveitin hefði komið smygl-
urunum að óvörum er þeir voru
að hlaða sex tonnum af marihuana
um borð í fljótabáta á ánni Coa-
chapa. Smyglararnir fóru um þrjá-
tíu saman og þegar skotfæri lög-
gæslumannanna voru á þrotum
voru þeir drepnir einn af öðrum
með kraftmiklum byssum, utan
nokkrir, sem bundnir voru á hönd-
um og fótum, færðir í nærliggjandi
bóndabýli og pyntaðir áður en þeir
voru teknir af lífi. Lögreglumenn-
irnir tveir fylgdust með úr felum
þegar smyglararnir tóku lík félaga
sinna, settu þau um borð í bát og
sigldu með líkin til þorpsins Cahu-
apan. Talið er að smyglararnir
hafi snúið aftur til að þurrka út
verksummerki, þar sem lögreglan
kom að tómum kofunum á laugar-
dag.
Hergagnaflutningur Sovét- P6Uand:
mannai;1 Nicaragua eykst MÓtmæla hrotta-
skap lögreglunnar
Ljósrayndir sem teknar voru úr
bandarískum njósnaflugvélum yfír
Kúbu um síðustu helgi sýna að um
40 sovéskum T54—55-skriðdrekum
ásamt öðrum hergögnum hefur vcrið
skipað upp við böfnina í Mariel, og
er talið hugsanlegt að ætlunin sé að
fíytja þá sjóleiðis til Nicaragua, að
sögn bandarískra hernaðaryfírvaída.
Hergögn þessi voru flutt til
Kúbu með sovéskum flutninga-
skipum og hefur hluta hergagn-
anna verið skipað um borð í skip
frá Nicaragua. „Það er vert að
gefa því gaum hversu mikill kraft-
ur hefur verið settur í uppbygg-
ingu hers stjórnarinnar í Nic-
aragua einmitt í sama mund og
sandinistar hafa afnumið helstu
mannréttindi og komið á herlögum
gegn hvers konar andspyrnuhreyf-
ingum í landinu," sagði Larry
Speakes talsmaður Hvíta hússins.
Að sögn bandarískra hernaðar-
yfirvalda hefur her sandínista nú
yfir að ráða 110 sovéskum T54—
55-skriðdrekum.
ERLENT
Varsjá, 4. nóvember. AP.
LECH WALESA og sex aðrir
frammámenn í Samstöðu hafa harm-
að mjög dauða ungs manns, sem lést
eftir að hafa lent í höndum lögregl-
unnar. Segja þeir, að þetta mál lýsi
vel hrottaskap lögreglunnar í Pól-
landi.
Marcin Antonowicz, 19 ára
gamall námsmaður, lést sl. laugar-
dag á sjúkrahúsi í borginni Olsztyn
en þar hafði hann legið meðvitund-
arlaus frá því að hann fannst liggj-
andi á götu 19. október sl. Vinir
hans bera, að þeir hafi séð lög-
Nýja-Sjáland:
Morðákæra dregin til baka
í Rainbow-W arrior-málinu
Auckland, Nýja-Njálandi, 4. nóvember. AP.
DAVID Lange, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, vísaði því á bug í
dag, að samið hefði verið við frönsk
stjórnvöld um að fella niður morð-
ákæru í máli tveggja franskra
leyniþjónustumanna, sem sakaðir
eru um að hafa sökkt Rainbow
Warríor, skipi Grænfríðunga.
Frönsku leyniþjónustumenn-
irnir, Alain Mafart og Dom-
inique Prieur, játuðu í dag á sig
manndráp af gáleysi og íkveikju
og hefur saksóknarinn á Nýja-
Sjálandi fallist á, að þeir hafi
ekki haft í huga að verða manni
að bana. Eiga þeir nú ekki lengur
yfir höfði sér lífstíðarfangelsis-
dóm, heldur í mesta lagi fjögurra
ára dóm, sem þýðir oftast í raun
aðeins tveggja ára fangelsi.
Sá kvittur komst á kreik eftir
að málin tóku þessa óvæntu
stefnu, að Frakkar hefðu boðist
til að verða við skaðabótakröfu
Nýsjálendinga gegn því, að
mennirnir fengju vægan dóm.
Þessu neitar David Lange, for-
sætisráðherra, og sagði hann á
blaðamannafundi að hér væri
aðeins um að ræða eðlilega máls-
meðferð, ekki fangasölu.
Paul Neazor, saksóknari,
sagði, að ekki væri vitað hverjir
AP/Símamynd
hefðu komið sprengjunum fyrir
undir Rainbow Warrior, frönsku
leyniþjónustumennirnir tveir
hefðu aðeins komið lítillega við
sögu. Lðgfræðingum ber hins
vegar saman um, að sjaldgæft
sé, að morðákæru sé breytt I
ákæru um manndráp af gáleysi.
Forystumenn Grænfriðunga
hafa tekið kúvendingu saksókn-
arans mjög illa og David
McTaggart, formaður samtak-
anna, segir, að nú sé helst að
skilja á saksóknaranum, að dauði
félaga þeirra, Fernando Pereira,
hafi verið slys. „í okkar augum
var aðeins um að ræða morð.
Sprengjunum var ekki komið
fyrir undir skipinu af slysni."
„Það er ekki hægt að sökkva
regnboganum," segir á mynd-
inni, sem David McTaggart, for-
maður í samtökum Grænfrið-
unga, heldur á. Myndin var tekin
fyrír framan hús hæstaréttar í
Auckland á Nýja-Sjálandi en þar
var fjallað um mál tveggja
franskra leyniþjónustumanna,
sem sakaðir voru um að hafa
sökkt Rainbow Warrior, skipi
Grænfriðunga.
reglumann flytja Antonowicz á
brott í lögreglubíl.
Lögreglan heldur því fram, að
Antonowicz hafi reynt að sleppa úr
bílnum og slasast þegar hann féll
í götuna en Samstöðumenn segja,
að hann hafi látist vegna höfuð-
högga, sem honum voru veitt með
kylfu. f yfirlýsingu frá þeim er
3korað á ríkisstjórnina að binda
enda á kúgunina I landinu og
hrottaskap lögreglunnar og sleppa
úr haldi pólitískum föngum. „Nú-
verandi stefna leiðir til æ meiri
klofnings milli yfirvaldanna og
fólksins í landinu og kann að lok-
um að enda með þjóðarharmleik,"
sagði í yfirlýsingu Samstöðu-
manna.
Svíþjóð:
Frjálslyndi
flokkurinn
sækir sig enn
Stokkbólmi, 4. nóvember. AP.
Frjálslyndi fíokkurinn sænski,
sem rúmlega tvöfaldaði þingmanna-
tölu sína í kosningunum í september,
er nú orðinn sá borgaraflokkanna,
sem mests fylgis nýtur meðal kjós-
enda. Kemur þetta fram í skoðana-
könnun, sem birt var í gær, sunnu-
dag.
I skoðanakönnuninni, sem
SIFO-stofnunin annaðist, kemur
fram, að i október hafi 23,5% kjós-
enda stutt Frjálslynda flokkinn og
hefur hann aldrei fyrr notið jafn-
mikils fylgis. Er hann þá einnig
kominn upp fyrir Hægriflokkinn,
sem í könnuninni fékk 19%, en sá
flokkur hefur hingað til verið
stærstur borgaraflokkanna. í
kosningunum I september fékk
Frjálslyndi flokkurinn 14,2% at-
kvæða en Hægriflokkurinn 21,3%.
Miðflokkurinn, þriðji borgara-
flokkurinn, er enn á niðurleið. Ef
kosið hefði verið nú hefði hann
aðeins fengið 8% atkvæða en fékk
12,4% 15. september.
Jafnaðarmenn fengu I septem-
ber 44,7% atkvæða en í könnuninni
nú 43%. Ef kosningar hefðu dreg-
ist um mánuð hefðu borgaraflokk-
arnir fengið meirihluta á þingi,
50,5% atkvæða, en vinstriflokk-
arnir 47,5%.