Morgunblaðið - 14.11.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÖVEMBER1985
ÞIÐ FAIÐ
BLOM...
á 50 ára afmæli Mjólkursamsölunnar
Mjólkursamsalan varð 50 ára á þessu ári.
Við þessi tímamót þótti Mjólkursamsölunni tilvalið að gera
allsherjar andlitslyftingu á umbúðum mjólkurlínunnar og fól
okkur verkið.
Þessar breytingar, sem voru mótaðar og teiknaðar af starfs-
mönnum AUK hf, þeim Tryggva T. Tryggvasyni, Stephen
Fairbairn og Kristínu Þorkelsdóttur, hafa verið að sjá dagsins
ljós hver af annarri síðasta misserið.
Okkur er ljúft að geta þess að við hönnunina var gengið í
smiðju hjá Eggerti Péturssyni myndlistarmanni og myndir hans
í bókinni íslensk Flóra notaðar sem grunnheimild við útfærslu
blómamyndanna á nokkrum fernanna.
Það er von okkar að neytendur láti sér vel líka og prýði borð
sín sem oftast með þessum blómum skrýddu umbúðum, og
njóti innihaldsins hér eftir sem hingað til.
Þið fáið sem sagt blómin á afmælisári Mjólkursamsölunnar,
en Mjólkursamsalan fær okkar bestu afmæliskveðjur og þakkir
fyrir 18 ára ánægjulegt samstarf.
AITKhf
AUGLÝSINGASTOFA
KRISTlNAR