Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985 5 Bæjarstjóm Selfoss: Samþykkti ályktun um úrbætur á gönguleið- inni yfir Ölfusárbrú Selfossi, 13. nóvember. Á bæjarstjórnarfundi í dag var samþykkt ályktun um úrbætur á gönguleiö- inni yfir Ölfusárbrú. í ályktuninni kemur meðal annars fram stuðningur við sjónarmið íbúa fyrir utan á, sem hinn 6. nóvember síðastliðinn sendu bæjar- stjórn ályktun þar sem skorað er á úrbætur í þessum efnum. Bæjarráð hefur sent Vegagerð- inni áskorun íbúa utan Ölfusár þar sem hvatt er til úrbóta á aðstöðu fyrir gangandi og hjólreiðafólk á Ölfusárbrú. Brúin er hluti af þjóð- vegakerfinu og undir umsjá Vega- gerðarinnar. Stefán Ó. Jónsson bæjarstjóri sagði að öryggi gangandi vegfar- enda á Ölfusárbrú hefði lengi verið áhyggjuefni og bollaleggingar um úrbætur komið upp öðru hverju. „Það er ljóst að gangbrautirnar á brúnni eru ófullnægjandi og gang- andi og hjólandi vegfarendur óvarðir og öryggi þeirra lítið," sagði Stefán. Hann sagði að Vega- gerðinni yrði bent á þetta mál og bæjarstjórnin vonaði að þetta mætti leysa í sameiningu. „Ég á von á því að bæjarstjórnin álykti um málefni á fundi sínum nk. miðvikudag. Þá munum við gera grein fyrir okkar sjónarmið- um í þeirri von að okkur verði vel tekið með þetta mál og Vegagerðin bregðist vel við,“ sagði bæjarstjóri. Að sögn Péturs Ingólfssonar hjá brúardeild Vegargerðar ríkisins hefur mál þetta ekki verið kannað itarlega. Hann sagði það liggja beinast við að byggja göngubrú utan á Ölfusárbrú eða að byggja nýja göngubrú við hlið gömlu brú- arinnar. Til eru staðlaðar göngubrýr, sem hentað geta í þessu tilfelli, og þannig brýr má fá með stuttum fyrirvara. Sænskt fyrirtæki, sem selur slíkar brýr, hefur verið beðið um að gera tilboð í brú sem hentar yfir ána. Það fyrirtæki hefur selt brýr sem notaðar eru í þéttbýlis- kjörnum í Svíþjóð. Pétur sagði að margs bæri að gæta í þessu efni. Hann sagði að styrkleiki Ölfusárbrúar væri tal- inn mjög góður, það hefði verið kannað kerfisbundið. Brúin þyldi því vel að sett yrði utan á hana göngubrú. Göngubrú sagði hann þurfa að vera traustvekjandi fyrir vegfarendur og öll aðkoma þannig að það lægi beinast við hjá gang- andi og hjólandi vegfarendum að velja þá leið. Auk þess yrði hún að falla vel að brúnni sem fyrir er. Sig. Jóns. 120 bflar fluttir inn á fólskum forsendum: Tveir ákærðir fyrir 5 miiljóna söluskattssvik TVEIR stjórnarmenn í fyrirtækinu Mótorskip hf. í Reykjavík, annar forstjóri þess, hafa verið ákærðir fyrir skjalafals, söluskattsvik og bók- haldsbrot. Er talið að þeir hafi komið fyrirtækinu undan að greiða rúmlega fimm milljónir króna í söluskatt á tímabilinu frá maí 1982 til desember 1984. Samkvæmt ákærunni, sem gefin var út fyrir réttum mánuði, tókst forráðamönnum fyrirtækisins að fá tollafgreidda 120 Toyota-bíla með greiðslu lægri aðflutnings- gjalda en réttmætt var. Er mis- munurinn rúmar fimm milljónir króna. Um var að ræða ársgamla en ónotaða bíla, sem keyptir voru frá Vestur-Þýskalandi. Svikin eru talin hafa farið fram með þeim hætti, að forstjóri fyrir- tækisins lét prenta vörureikninga eins og þá, sem fylgdu bílunum frá seijandanum í Þýskalandi. Inn á þá reikninga voru svo færðar lægri upphæðir en bílarnir voru keyptir til landsins fyrir og sölu- skattur greiddur samkvæmt hin- um fölsuðu tölum. Ekki er víst að allir bílarnir hafi verið seldir hér fyrir kostnaði eða með hagnaði. í tengslum við þetta brot eru forstjórinn og stjórnarmaðurinn ákærðir fyrir veruleg undanskot af söluskattsskyldri sölu með því að hafa vantalið veltu um átján milljónir króna. Eru þessi brot talin varða við lög um söluskatt, ákvæði hegningarlaga um skjala- fals og bókhaldslög, skv. upplýs- ingum Jónatans Sveinssonar sak- sóknara. Af hálfu ákæruvaldsins er gerð krafa um refsingu og áskil- inn er réttur til skaðabóta til ríkis- sjóðs. Mál þetta verður rekið fyrir sakadómi Reykjavíkur. Fyrirtækið Mótorskip hf. mun einnig skulda seljanda bílanna í V-Þýskalandi stórar fúlgur og eru í gangi málaferli vegna þess. Rétt er að taka fram, að Toyota-umboð- ið hér á landi, P. Samúelsson & Co. hf., á enga aðild að þessu máli. SALA NYJU I HAMPIÐJUNNI ERHAFIh ÖG STENDUR 77L15. NÓV. HAMPtÐJAN HF HERJR FAUÐ OKKUR SÖLU NÝRRA HUJTABRÉFA í FÉLAQNU. Þau bréfsem seld verða að þessu sinni eru að nafnverði kr. 5,5 milljónir. Bréfin verða seld á genginu 110. Lágmarkssala til hvers kaupanda er kr. 100.000 á nafnverði. Á þessu ári verður ekki um frekari útgáfu hlutabréfa að ræða, en skv. ákvörðun félagsins verða á árinu 1986 seld bréf að nafnverði kr. 6 milljónir. í dag er hlutaféð að nafnverði 78,5 milljónir króna. Hampiðjan er eitt fárra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði laga nr. 9 frá 1984 og vísast til ákvæða þeirra um skattfríðindi við kaup á hlutabréfum. Viðskipti með hlutabréf i Hampiðjunni eru frjáls á sama hátt og með almenn viðskiptabréf. UPPLÝSINGAR UM REKSTUR HAMPIÐJUNNAR LIGGJA FRAMMIÁ SKRIFSTOFU OKKAR. Hlutabréfamarkaóurinn hf. Skólavörðustíg 12, 3. h. Reykjavík. Sími 21677 fGamlí miðbærinn Við minnum á fundinn að Hótel Borg í kvöld kl. 20.00 Fundarstjóri: Davíð Oddsson, borgarstjóri. Ræöumenn: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, form. skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar, Gunnar Hauksson, verslunarmaður, Árni Sigfússon. Sýnum samstöðu - mætum öll Undirbúningsnefndin Gunnar Arni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.