Morgunblaðið - 14.11.1985, Page 27

Morgunblaðið - 14.11.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985 27 Kyrrð komin á í Líberíu Abidjan, Fflabein88tröndinni, 13. nóvember AP. Kyrrð virðist aö mestu komin á í Monróvíu, höfuöborg Líberíu, en útvarpiö þar segir, aö stjórnarherinn eigi þó enn í höggi við einangraða flokka uppreisnarmanna. Starfsmenn breska sendiráðsins í Monróvíu segja, að Samuel K. Doe, ráðamaður í Líberíu, virðist hafa töglin og hagldirnar og hafi honum því tekist að bæla niður uppreisn nokkurs hluta stjórnar- hersins, þess hluta hans, sem hlynntur er Thomas Quiwonkpa, hershöfðingja, sem er landflótta. Richard Gilbert, starfsmaður bandaríska sendiráðsins i Monr- óvíu, sagði í viðtali við fréttamann Samuel K. Doe, ráðamaður í Líberíu. AP, að óvanaleg kyrrð ríkti í borg- inni, engin umferð væri og verslan- ir lokaðar. Fátt fólk væri auk þess á ferli. Kynhneigðin gildir einu en fjöllyndi í ástum öllu — um það hvort menn fá alnæmi, segja afrískir læknar NIÐURSTAÐA rannsóknar, sem nýlega var gerö í Afríku, bendir til þess að kynvísir menn smitist í auknum mæli af alnæmi og kyn- hneigðin skipti ekki máli um það hvort einstaklingur greinist i áhættu- hóp, heldur fjöllyndi hans í ástamál- um. Þar keraur einnig fram að fóstur fá alnæmi í móðurkviði og börn sem eru á brjósti. Flest ríki Afríku veita sem fæst- ar upplýsingar um útbreiðslu al- næmis innan landamæra sinna. Menn óttast að það kynni að draga úr straumi ferðamanna. í lýðveld- inu Rwanda reyna yfirvöld ekki að leyna staðreyndum málsins. Læknar í Rwanda segja að alnæmi breiðist hratt út þar í landi. 1982 var aðeins vitað um eitt sjúk- dómstilfelli. Nú ganga 224 með alnæmi svo vitað sé. Þar af eru 22% börn. Til samanburðar má geta þess að í Bandaríkjunum eru börn 1,4% alnæmissjúklinga. Helstu smitberarnir í Rwanda Veöur víöa um heim Lmgtt H»«t Akureyri 4 alskýjaö Amsterdam +3 4 rigning Aþena 12 23 skýjaó Barcelona 12 léttskýjað Berlín +2 4 skýjað Brllesel +4 6 skýjað Chicago 5 9 rigning Dublín 3 8 skýjað Feneyjar 10 þokumóða Frankfurt •■4 5 skýjað Genf +2 6 heiðskírt Helsinki 1 3 skýjað Hong Kong 22 25 skýjað Jerúsalem 10 19 skýjað Kaupmannah. Las Palmas 2 6 heiðskírt vantar Lissabon 12 15 skýjað London 0 7 heiðskírt Los Angeles 6 14 heiðskírt Lúxemborg +1 snjókoma Malaga 18 hálfskýjað Mallorca 15 littakýjað Miami 22 27 skýjað Montreal +5 0 rigning Moskva 0 2 skýjað New York 6 11 skýjað Osló +1 6 skýjað Paris 2 7 skýjað Peking *2 12 heiðskirt Reykjavík 2 skýjað Ríóde Janeiro 18 35 skýjað Rómaborg 11 22 skýjað Stokkhólmur +3 1 skýjað Sydney 17 23 rigning Tókýó 8 18 skýjað Vínarborg 1 8 skýjaó Þórshöfn 7 súld eru vændiskonur. I bænum Butare voru 33 vændiskonur fengnar í læknisskoðun. Af þeim reyndust 29 vera með alnæmi: 88%. 25 karlmenn, sem venja komur sínar í vændishús, voru einnig rannsakaðir. 7 höfðu fengið sjúk- dóminn. Læknarnir kómust að þeirri niðurstöðu að meira máli gegni hversu oft skipt er um maka, heldur en til hvors kyns hver og einn hneigist. Heimild: Welí am Sonntag. V-þýska leyniþjónustan: Greiðslurn- ar eru ekki hneyksli Stuttgart, V-Þýskalandi, 13. nóvember, frá Ragnari L. Gunnaresyni, fréttaritara Morgun- blaðsins. MÁLIN eru nú tekin að skýrast í sambandi við peningagreiðslur v-þý- skra fyrirtækja til BND, vestur- þýsku leyniþjónustunnar. Allir flokk- ar nema græningjar hafa fallist á, að hér sé ekki um neitt hneyksli að ræða. Þegar upp komst, að ýmis fyrir- tæki höfðu veitt fé til BND, var leyniþjónustan óðara sökuð um að hafa selt sig ákveðnum hópi auð- ugra atvinnurekenda og einnig voru vangaveltur um, hvort brotið hefði verið gegn 110 gr. stjórnar- skrárinnar en þar segir, að gera verði fulla grein fyrir öllum greiðslum og fjármagnstilfærsl- um. Kinkel, sem var yfirmaður BND á þessum árum, segir, að nauðsyn- legt hafi verið að fara ieynt með hverjir gáfu féð, annars hefði athygli hryðjuverkamanna verið vakin á þeim. Af þessum sökum lét Kinkel stöðva rannsókn á út- gjöldum fyrrum bankastjóra Dres- dner-banka, Hans Friedrich, sem greiddi 50.000 mörk inn á reikning BND. Annað nafn, sem margir kannast við, er Friedrich Flick en hann lét 100.000 mörk af hendi rakna. Rannsóknarnefnd þingsins seg- ir, að það, sem virðist hneykslan- legt nú, hafi verið sjálfsagður hlutur á árunum 1978-80 en þá myrtu hryðjuverkamenn t.d. Mart- in Bubeck, alríkissaksóknara, Jörgen Ponto, bankastjóra, og Hans Marti Schleyer, formann vinnuveitendasambandsins. Hafa allir flokkar nema græningjar fallist á, að því sé hér ekki um neitt hneyksli að ræða. Aftöku Jóns Arasonar og sona hans hefði án efa eitthvað verið slegið á frest hefðu þeir feðgar lokað sig inní SELKO-fataskáp í Skál- holti um árið. Tæpast værum við íslendingar þó enn kaþólskir — siðbótin var söngur tímans á 16. öldinni, og fyrr eða síðar hefði Jón verið höggvinn. Ljóst er þó að aftökunni hefði seinkað. 1 fyrsta lagi hefðu ryðguð og bitlaus vopn siðbótarmanna seint unnið á traustbyggðum skápnum, og í öðru lagi hefðu þeir einfaldlega aldrei tímt að eyðileggja slíkt fyrirmyndar hús- gagn: Vopnabræður Lúthers kunnu gott að meta — þeir hefðu dásamað hand- bragðið, stílfegurðina, hagnýta inn- réttinguna, styrkleikann, viðaráferðina og fjölþætt notagildið — og neitað að höggva! Jón hefðu þeir dregið út og sent á vit feðra sinna, en skápurinn hefði staðið eftir óskemmdur — og stæði enn. Við framleiðum ekki aðeins frábœrar hurðir! SELKO Auðbrekku 1-3, Kópavogi, sími 41380

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.