Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 32
liott tólk
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
32
Skógar í Þorskafirði:
Afhjúpaður minnisvarði
um Matthías Jochumson
Midhúsum, Reykhólasveit, 11. nóvember.
Um tvöleytið á laugardag var saman komið margt manna að Skógum
í Þorskafirði í tilefni þess að afhjúpa átti minnisvarða um Matthías Joc-
humsson þjóðskáld, en hann var fæddur þar á Marteinsmessu 11. nóvem-
ber 1835. Fæðingu Matthíasar bar brátt að, ljósmóðir ekki komin og gömul
kona, sem tók á móti honum, fann ekki reifana og vafði hún Matthías í
gráan ullarklút.
Skagaleikflokkurinn
Skagaleikflokkurinn:
Frumsýnir „Margt
býr f þokunni“
Valdimar Hreiðarsson, sóknar-
prestur og formaður þeirrar
nefndar er stóð fyrir framkvæmd-
um um að reisa Matthíasi minnis-
varðann, ávarpaði viðstadda. Þá
tók biskupinn yfir íslandi, Pétur
Sigurgeirsson, til máls og lýsti
blessun kirkjunnar yfir þessum
minnisvarða. Hann sagði að
Matthías væri mesta sálmaskáld
kirkjunnar síðan á dögum Hall-
gríms Péturssonar enda á hann
50 sálma í nýju sálmabókinni.
Afkomandi Matthíasar, Sólveig
Ásgeirsdóttir biskupsfrú, afhjúp-
aði minnisvarðann. Að lokum var
sunginn ættjarðarsálmurinn
„Beyg kné þín fólk vors föður-
lands." Minnisvarðinn er stuðla-
bergsdrangur, sóttur upp í Vaðal-
fjöll, og er hann 180 sm hár og
50 sm í þvermál. Helgi Gíslason
Sýnd klukkan
17,19:30 og 22
f FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um
kvikmyndina „Vígamanninn" í Bíó-
höllinni misritaðist sýningartíminn,
en myndin er sýnd kl. 17,19.30 og 22.
Einnig misrituðust nöfn mynda-
tökumanns og höfundar tónlistar-
innar, en þeir eru Bruce Surtees og
Lennie Niehaus.
myndlistarmaður hannaði
minnisvarðann og er efst mynd
af Matthíasi, síðan fæðingardag-
ur og ár, þá er þetta erindi úr
kvæði Matthíasar, Móðir mín:
Ég man það betur en margt í gær,
þá morgunsólin mig vakti skær,
og tvö við stóðum í túni.
Þú bentir mér yfir byggðarhring,
þar brosti við dýrðin allt í kring
og fjörðurinn bláöldum búni.
Minnisvarðinn stendur niður
undir þjóðvegi, á Stekkjarklettum
skammt frá Jocumslundi. Guð-
mundur Ólafsson, verksmiðjustjóri
á Grund, sá um uppsetningu
minnisvarðans. Frá Skógum var
haldið að Reykhólaskóla en þar
bauð hreppsnefnd Reykhólahrepps
til veislufagnaðar. Veislustjóri var
Stefán Skarphéðinsson sýslumað-
ur. Margar ræður voru fluttar og
rakti Valdimar Hreiðarsson sókn-
arprestur aðdraganda þess er farið
var af stað með hugmynd Lárusar
Ágústs Gíslasonar í Miðhúsum í
Hvolhreppi að reisa þennan minnis-
varða. Jens Guðmundsson, fyrrver-
andi skólastjóri, flutti erindi eftir
Játvarð Jökul Júlíusson rithöfund
og rak hann þar síðustu heimsókn
skáldsins í þessa sveit, í júlí 1913,
en þá var Matthías á 78. aldursári.
í veislu, sem haldin var á prests-
setrinu á Stað á Reykjanesi, Matt-
híasi til heiðurs, var stödd Ingi-
björg Árnadóttir, Miðhúsum, og var
hún einnig á þessari hátíð. Ingi-
björg ritaði um þessa heimsókn í
bókina Því gleymi ég aldrei. Ræður
fluttu Hjörtur Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri, Selfossi, ólafur A.
Jónsson tollþjónn, en hann flutti
kveðjur frá Barðstrendingafélaginu
í Reykjavík, og Þórarinn Þór, pró-
fastur á Patreksfirði, sem minntist
skáldsins. Kveðjur bárust frá Ólafi
Ólafssyni, fyrrverandi kaupfélags-
stjóra, en vegna lasleika gat hann
ekki komið.
Lárus Ágúst Gíslason sagði m.a.
í sinni ræðu að það væri fernt, sem
hefði ollið sér heilabrotum hér við
Breiðafjörð, en hann er fæddur og
uppalinn í Rauðseyjum. í fyrsta
lagi skarðið í Klofningsfjalli í
Klofningshreppi; í öðru lagi stuðl-
arnir í Klakkseyjum, hvernig þeir
lægju; í þriðja lagi höfnin í Flatey
og í fjórða lagi Vaðalfjöllin og í því
sambandi minntist hann á Hall-
grímskirkju í Reykjavík.
Að lokum flutti biskupinn ávarp
og kom þá inn á Hallgrímskirkju
og Akureyrarkirkju, en Guðjón
Samúelsson teiknaði báðar þessar
kirkjur og minntu þær á Vaðalfjöll-
in. Biskupinn sagði að Matthíasar
yrði minnst í kirkjum landsins 17.
þessa mánaðar. Á milli ræðuhalda
lék Þorvaldur Steingrímsson fiðlu-
leikari með undirleik Ólínu Jóns-
dóttur á pfanó. öll lögin voru við
ljóð eftir Matthías, en Matthías er
afi Þorvaldar og kom hann ásamt
Jóni bróður sínum til þess að heiðra
minningu hans. Athöfninni lauk
með því að Þorvaldur og Ólína léku
þjóðsönginn. Sveinn.
Skagaleikflokkurinn frumsýnir
breskan sakamálagamanleik ann-
að kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30.
Leikurinn nefnist „Margt býr í
þokunni“ og er eftir William
Morum og William Dinner.
Verkið er 23. verkefni félags-
ins. Leikstjóri er Sigurgeir
Scheving. Önnur sýning verður
sunnudaginn 17. nóvember kl.
15.30.
góðar ástœðnr fyrir |iig
að kaupa AP bilasíma strax í dag.
1Á bílasímum er nú enginn tollur,
enginn söluskattur og ekkert
■ vörugjald. Auk þess fást AP bila-
símarnir núna á sérstöku afsláttar-
veröi, kr. 59.950,-.
ZPóstur og sími hefur upplýst aö
verðið á nýju sjálfvirku bíla-
■ símunum verður nálægt
100.000,- krónur miöað við núverandi
gengi og tollalög. Ef þar við bætist toll-
ur, söluskattur og vörugjald, eins og nú
er lagt á annan fjarskipta- og síma-
búnað, væri verðið yfir 200.000,- krón-
ur — miðað við óbreytt gengi.
Með núverandi kerfi AP símanna
næst ágætt samband í flestum
byggðarlögum. Viðbúið er að
nýja kerfiö nái ekki sömu útbreiðslu fyrr
en 1987.
5.
Stúlkurnar í 002 eru eldklárar,
og annálaðar fyrir hjálpsemi
og dugnað. Með sjálfvirka kerf-
inu verður ekki boðið uppá slíka
þjónustu.
Verðmunurinn á tilboöi okkar á AP
símanum og nýju sjálfvirku tækjunum
getur orðið yfir 150.000,- krónur.
Er sjálfvirknin þess virði? Þitt er að
meta, og það þolir litla bið því þér
býðst ekki aftur bílasími á kr. 59.950,-.
Við eigum takmarkað magn af þessum
ódýru bílasimum og erum sveigjanlegir
í samningum.
4Póstur og sími ábyrgjast að
núverandi kerfi verður
■ starfrækt meðan notendur eru
fyrir hendi.
(fý
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - S: 204 55 - SÆTÚNI 8 - S: 1 5655