Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 35
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985 35 Fiskveiðistefnan á Fiskiþingi: Flestir lands- hlutar fylgj- andi kvótakerfi ALLAR fjórðungsstjórnir Fiskifé- lags íslands utan ein leggja til að fiskveiðistjórnun næsta árs eða næstu ára verði með svipuðum eða sama hætti og verið hefur á þessu ári. Aðeins fjórðungsstjórnin á Vestfjörðum en andvíg kvótakerf- inu og leggur til að veiðum verði stjórnað eftir tegundamarki. Misjafnt er til hve langs tíma lagt er til að veiðum verði stjórnað með afla- og sóknarmarki. Eftir fram- sögu og umræður um fiskveiðistefn- una á þriðjudag var málinu vísað til nefndar og verður endanlega afgreitt síðar í vikunni. Skoðanir manna á stjórnun fisk- veiða skiptust nokkuð eftir lands- hlut'um og voru Vestfirðingar og Breiðfirðingar helztu andstæðingar kvótakerfisins. Ágúst Einarsson, Reykjavík, sagði í umræðunum, að sjálfsákvörðunarréttur samtaka sjávarútvegsins væri meira virði en veiðistjórnun af einhverju tagi, því væri ekki rétt að framselja þennan rétt til lengri tíma en nauð- synlegt gæti talizt. Því ættu menn aðeins að samþykkja núgildandi stjórnun til eins árs. Fjórðungsþing Austfjarða leggur til við Fiskiþing að fiskveiðistefnan fyrir árið 1986 verði með svipuðum hætti og árið 1985. Þá átelur þingið misnotkun og brask með úthlutað- an kvóta, sem það telur komið út í öfgar. Rétt væri að kaup og sala á kvóta yrði í höndum eins aðila, til dæmis LÍÚ. Stofnaður verði fisk- banki, þar sem hægt verði að leggja inn kvóta til geymslu eða sölu án þess að vita fyrirfram hver kaupi. Bankinn ákveði verð á kvóta, þann- ig að sama verð gildi fyrir alla aðila. Þá leggur þingið til að veiðar smábáta undir 10 brúttólestum verði eingöngu bundnar við sóknar- mark þannig að þorskveiðar verði bannaðar í 150 daga á árinu. Fjórðungsþingið á Vesturlandi bendir á mjög mikinn ágreining, sem víða sé vegna núverandi stjórn- unarkerfis fiskveiða. Vegna fram- kominna draga að frumvarpi til laga um stjórnun fiskveiða mót- mælir þingiö lögbindingu til þriggja ára, þar sem hinn litli sveigjanleiki kerfisins stefni þá að því, að útiloka einstakar verstöðvar, útgerð þaðan og vinnslu, frá öllum rekstri nema hlutur þeirra verði leiðréttur. Lögbinding verði því til eins árs og frumvarpið aðlagað því. Lagt er til að línu- og handfæra- veiðar verði að mestu utan kvóta. Fjórðungsþing Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og nágrennis leggur til að fiskveiðistefna næsta árs verði með svipuðum hætti og í ár. Fyrir sitt leyti geti þingið fallizt á framkomið uppkast að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, með þeirri breytingu þó, að gildistíminn verði aðeins eitt ár. Þá lagði þingið áherzlu á, að ákvæði frumvarpsins varðandi framsal á kvóta verði athuguð sérstaklega með það I huga, hvort ekki væri ástæða til að takmarka frekar framsal á kvóta en frumvarpið geri ráð fyrir, þannig að girða mætti fyrir hugsanlegt brask með kvóta eftir því, sem mögulegt er. Fiskideild Vestmannaeyja lýsir í meginatriðum stuðningi sinum við framkomin frumvarpsdrög að stjórnun fiskveiða. Deildin sér enga betri leið við stjórnun fiskveiða, en það kvótakerfi, sem notað hefur verið síðustu tvö ár með möguleika á sóknarmarki. Deildin telur enn- fremur æskilegt að hægt sé að ákveða fiskveiðistefnuna til lengri tíma, en gert hefur verið undan- farin ár. Fjórðungsþingið á Suðurlandi vill breyta stjórnun fiskveiða á þann hátt, að einungis verði afla- mark á skip í þroski, en veiðar í aðrar tegundir verði frjálsar með heildaraflamarki fyrir allan flot- ann. Þorski verði skipt á skip með þeim hætti að helmingur komi í hlut báta og helmingur í hlut tog- ara, síðan verði þorskinum skipt niður á báta og togara miðað við ákveðna stærðarflokka skipa þann- ig, að sá mismunur, sem nú sé við lýði vegna viðmiðunar reynslu- áranna 1981 til 1983 falli niður, en sú reynsla verði stöðugt óréttlátari. Fjórðungsþing Norðlendinga leggur til að gildistími fiskveiði- reglna verði ekki skemmri en svo, að unnt verði að sjá tvö ár fram í tímann. Þingið varar við því, að binda viðamiklar veiðireglur í lög frá Alþingi. Einföld rammalög, sem gefi möguleika á raunhæfri stjórn með reglugerðum, sé form, sem þingið telji að tryggi öruggari og betri stjórn. Þingið fellst á að árið 1986 verði í gildi ákvæði um afla- mark eða sóknarmark að vali út- gerðar, enda fylgi 10% skiptaregla tegunda aflamarkinu. Tekin verði upp kvótaskipting á alla dekkbáta undir 10 brúttólestum. Opnir vél- bátar hafi leyfi til veiða með tíma- takmörkunum og nýir smábátar fái ekki veiðiheimildir árið 1986. Fjórðungsþingið á Vestfjörðum leggur til að fiskveiðistefna verði mótuð til þriggja ára og miðað við það, að fiskistofnar séu nýttir á æskilegan hátt frá líffræðilegu og efnahagslegu sjónarmiði, svo út- gerð og fiskvinnsla hafi eðlileg starfsskilyrði á komandi árum. Lögð verði áherzla á að koma í veg fyrir aflasveiflur milli ára og á næstu árum verði árlega veiddar 320.000 til 380.000 lestir af þorski, 300.000 lestir af öðrum botnlægum fiski og 500.000 til 800.000 lestir af loðnu. Lagt er til að á næsta ári verði leyft að veiða 360.000 lestir af þorski. Þá leggur þingið til, að horfið verði frá gildandi fyrirkomu- lagi við stjórnun veiða og tekið upp á ný tegundamark, þar sem aflan- um verði skipt milli báta og togara eftir veiðitímabilum hliðstætt því, sem gilti fyrir árið 1983. Jón Magnússon við húsið sem hann er að byggja yfir kartöfludreifingu í Garðabæ. MorjfunblaÖið/Bjarni „Seljum 80 % allra kart- aflna á Suðvesturlandi“ — segir Jón Magnússon sem dreifir kartöfium Þykkbæinga og er að byggja stór hús yfir starfsemina „VIÐ munum halda okkar striki áfram þó samkeppnin harðni enda höfum við unnið markaðinn og verður því ekki framhjá okkur gengið“, sagði Jón Magnússon framkvæmdastjóri Þykkvabæjar- kartafina hf. í Garðabæ, sem ann- ast dreifingu fyrir Kartöflupökkun- arstöð Þykkvabæjar, er hann var spurður hvaða áhrif stofnun nýrra sölusamtaka matjurtaframleið- enda hefði á starfsemina. Jón sagði að Grænmetisversl- unin hefði alltaf tekið síðast af Þykkbæingunum vegna þess að þeir ættu bestu geymslurnar. Þegar þeir hefðu sitt eigið sölu- kerfi breyttist þetta og þeir seldu mun örar en undanfarin ár. Hann sagði að með tilkomu Þykkvabæjarkartaflna og auk- innar samkeppni með tilkomu þess hefði margt breyst á kart- öflumarkaðnum. Þeir hefðu lagt aukna áherslu á gæðin, skipt um umbúðir, seldu kartöflurnar þvegnar, létu þær aldrei stoppa í dreifingarstöð eða verslunum og leggðu mikla áherslu á auglýs- ingar og sölumennsku. Þetta hefði orðið til þess að salan á kartöflum hefði aukist auk þess sem þeir hefðu náð yfirhöndinni á markaðnum, væru nú með nærri 80% af öllum þeim kartöfl- um sem dreift væri á Suðvestur- landi, það er á svæðinu frá Kefla- vík vestur í Stykkishólm. Jón sagði að þeir væru nú með aðstöðu að Iðnbúð 8 í Garðabæ, en væru að byggja nýtt hús að Gilsbúð 5 fyrir dreifingarstöð. Þetta er 580 m2 hús, sem orðið er fokhelt og verður tekið í notk- un um áramót. Hann sagði að þeir fengju meira húsrými með nýja húsinu sem gerði þeim dreifinguna auðveldari. Auk þess að dreifa nýjum kartöflum sér fyrirtækið um að dreifa frönsk- um kartöflum og öðrum fram- leiðsluvörum Kartöfluverksmiðj- unnar í Þykkvabæ. B0 □ □ B □ □ H i l;;JHU inlni T 1 | O □ D □ > n. uu m* ux tzi ' - * m jjy, u I Hús nýja bíós á miðri teikningu. Efri teikningin er eins og húsasamstæðan er nú, en sú neðri samkvæmt skipulagstillögu. Nýja bíó í fullri stærð f grein um skipulagstillögur Kvosarinnar, sem birt var í Morgunblaðinu í gær, urðu þau tæknilegu mistök við úrvinnslu teikninga, að húsið, þar sem Nýja bíó er nú, var mjókkað um tvær gluggaraðir. Skipulagshöfundar, arkitektarnir Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson, vilja af því tilefni koma því á framfæri að hugmyndin er ekki að minnka húsið, heldur muni það standa eins og það er nú. Eru hlutað- eigendur beðnir velvirðingar og meðfylgjandi er rétt teikning af þessum hluta götunnar. Fræðslufundur Landfræðifélagsins FYRSTI frsðslufundur Landfræðifé- lagsins í vetur verður fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.30 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla íslands. Þar mun Þorvaldur Bragason landfræðingur halda fyrirlestur sem nefnist: Loftmyndafiug og loft- myndir þýska flughersins af íslandi í maí til október 1942. Myndirnar, sem eru um 2.000 að tölu, voru í bresku skjalasafni, en Landmælingar íslands fengu þær til skráningar og eftirtöku. f tengslum við skráningu og söfnun upplýsinga var þekkingu safnað um eldri loftmyndir af fslandi. í maí sl. kom út skýrsla hjá Land- mælingum fslands, fjarkönnunar- deild, eftir Þorvald Bragason um þetta efni. Fræðslukvöld í Laugarneskirkju Föstudaginn 15. nóvember kl. 20.30 verður fræðslukvöld í safnaðarheimili Laugarneskirkju. — Grétar Sigur- bergsson geðlæknir ræðir um orsakir kvíða. Allir kannast við vandamál kvíð- ans í einhverjum mæli, enda er það nokkuð sem við þurfum að berjast við og lifa með. Stundum verður kvíðinn aftur á móti sjúklegur og veldur ómældri þjáningu og vanlíð- an. f nútíma þjóðfélagi er kvíðinn vaxandi vandamál og oft þess eðlis að fólk á erfitt með að átta sig á orsökum og afleiðingum hans. Þetta fræðslukvöld gefur því gott tækifæri til að fræðast um þetta vandamál. Grétar Sigurbergsson mun svara fyrirspurnum að loknum fyrirlestri. Kaffiveitingar verða fram bornar og organistar kirkjunnar flytja skemmtilega tónlist. Fræðslukvöld- inu lýkur með stuttri helgistund í kirkjunni. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Jón D. Hróbjartsson sóknarprestur 7 % bæði í uppbygg- ingu og rekstur í frétt f Morgunblaðinu í gær um dagvistarheimili í Reykjavík var haft eftir Ingibjörgu Kafnar, formanni félagsmálaráðs, að rúmlega 7% af heildartekjum Reykjavíkurborgar 1985 hefði verið verið til uppbygging- ar dagvistarmála á árinu. Hið rétta er, að 7% er varið til uppbyggingar og reksturs dag- heimila. Þá skal einnig tekið fram, að árið 1985 er mesta framkvæmdaár á sviði dagvistunarmála í Reykja- vík frá upphafi og aðeins árið 1980 er sambærilegt á þessu sviði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.