Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
39
Að morgni dags 15. október sl.
var okkur tilkynnt að verkstjóri
okkar í Kornhlöðunni hf., Sig-
mundur Grétar, hefði fengið
slæmt hjartaáfall og verið fluttur
í Borgarspítalann. Þetta var okkur
mikið áfall, ekki aðeins vegna
starfa hans, heldur og að góður
vinur og samstarfsmaður, sem við
hittum og töluðum við kátan og
hressan daginn áður, var nú allt í
einu orðinn hættulega veikur og
tvísýnt um líf hans. Hann lá síðan
á Borgarspítlanum milli heims og
helju á fjórðu viku, en hann lést
að morgni 6. nóvember sl.
Grétar, en svo var hann kallaður
í daglegu tali, réðst til starfa hjá
Kornhlöðunni í desember 1980 og
starfaði þar sem verkstjóri meðan
heilsa entist. Okkur varð fljótt
ljóst að við höfðum verið mjög
heppnir með val þessa starfs-
manns. Hann hugsaði frábærlega
vel um störf sín, fylgdist með öllum
vélbúnaði og yfirfór vélar og tæki
af stakri natni, svo aldrei bilaði
nokkur vél í hans tíð. Þótt Grétar
heitinn hafi ekki gengið í vélskóla
hafði hann mjög mikinn áhuga á
vélum og tækni i sambandi við
þær, og aflaði sér upplýsinga í
fagblöðum og reif í sundur vélar
og setti saman aftur af slíkri natni
og nákvæmni að vélar þessar
gengu mjög vel eftir, og í frístund-
um sínum gerði hann upp bíla og
bifvélar og var það hans frístunda-
gaman. Grétar heitinn var mjög
snyrtilegur og dagfarsprúður
maður, ávallt glaður og reifur, en
hann var skapmaður og gat sat
meiningu sína, en var jafngóður
vinur eftir sem áður. Hann var
sérstaklega bóngóður og hjálpfús
og taldi ekki eftir sér þær stundir
sem fóru í að hjálpa öðrum ef með
þurfti. Hann var óvenjulega vinnu-
samur maður og vann oft langan
vinnudag, en að honum loknum fór
hann að sinna áhugamálum sínum
og vann að þeim fram á nótt oft
og tíðum.
Grétar fæddist í Reykjavík 31.
janúar 1942 og ólst upp lengst af
á Hofteignum, þar til hann fór til
sjós með föður sínum aðeins 13 ára
gamall, en faðir hans var bryti á
togaranum Jóni forseta og var
Grétar heitinn meira og minna á
sjó til 1963, lengst með Andrési
Finnbogasyni á Svaninum RE.
Síðan vann hann sem bifreiða-
stjóri, fyrst hjá Mjólkursamsöl-
unni og svo hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar. Þar eftir gerð-
ist hann tækjastjóri hjá Kol &
Salt og síðar Hegranum. Hjá
Sveinbirni Runólfssyni vann Grét-
ar einnig í nókkurn tíma, þar til
hann gerðist verkstjóri hjá Korn-
hlöðunni hf.
Grétar heitinn giftist eftirlif-
andi konu sinni, Valgerði Björg-
vinsdóttur, 8. júní 1963, ágætri og
duglegri konu sem stóð ávallt við
hlið manns síns í blíðu og stríðu,
og tók þátt í áhugamálum hans
og voru þau hjón samhent í öllu.
Þau eignuðust 2 mannvænleg börn,
Lilju, fædda 18. mars 1963 og
stundar nú nám í viðskiptafræði,
og Sigmund Grétar, fæddan 30.
september 1965 og stundar hann
nám í Fjölbrautaskóla.
Grétar heitinn teljum við hafa
verið gæfumann í fjölskyldulífi
sínu og hugsaði hann mjög vel um
heimili sitt, enda reglumaður
heima og heiman. Áhugamál átti
Grétar heitinn mörg, og má þar
nefna ferðalög, heima og eriendis,
matargerð, þar naut natni hans
og nákvæmni sín vel, sem og í öðru,
svo og hafði hann mikinn áhuga á
bílum, vélum og tækni og þar að
auki sagði hann ekki að fullu skilið
við sjómennskuna. Áttu þau hjón
lítinn bát og sigldu oft út á Sundin
blá, ekki aðeins til fiskjar, heldur
og til að hvílast frá borgarlífinu
og njóta kyrrðarinnar og voru þau
félagar í Snarfara, félagi smábáta-
eigenda.
Það er sárt að sjá nú á bak svo
ungum og glöðum félaga yfir móð-
una miklu og söknum við sam-
vistanna við hann og þökkum frá-
bær störf og vináttu. Við vottum
eiginkonu hans og börnum okkar
dýpstu samúð, því þeirra er harm-
urinn sárastur, og biðjum góðan
guð að styrkja þau og blessa minn-
inguna um góðan og göfugan
dreng.
„Farþúífriði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V.Br.)
Sig. Eyj. — H. Jónsson
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
ÁSTA BJARNADÓTTIR,
Grettiagötu 56,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. nóvember
kl. 15.00.
Valgeröur Ármannsdóttir, Kristbergur Guöjónsson,
Halldóra Ármannsdóttir, Benedikt Jónsson,
Anna Ármannsdóttir, Hermann Brippe,
Guðmundur Ármannsson, Viktoría Ólafsdóttir,
Ármann ö. Ármannsson, Freyja Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín og móöir okkar,
ANNA STEFÁNSDÓTTIR,
Reynimel 27,
veröur jarösungin frá Neskirkju á morgun, föstudaginn 15. nóvemb-
erkl. 15.00.
Blóm og kransar eru afþakkaöir, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Styrktarfélag lamaöra og f atlaöra.
Friörik Sigurbjörnsson,
Anna Lára Friöriksdóttir, Friörik G. Friðriksson,
Hanna Friöriksdóttir, Sigurbjörn Á. Friöriksson.
Birting afmœlis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minning-
argreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir-
vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður.
Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að
frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning-
arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að
vera vélrituð og með góðu línubili.
Brugðið hefur dimmum skugga
yfir okkur starfsmenn fóðurvöru-
fyrirtækjanna í Sundahöfn þessa
haustdaga. Vinur okkar Grétar
Sigmundsson kornhlöðustjóri er
horfinn frá okkur. Ekki án að-
draganda að vísu, erfiðir dagar eru
á undan gengnir, en nú er hann
horfinn okkur sjónum og aðeins
minningarnar eftir.
Grétar hóf störf hjá Kornhlöð-
unni hf. í Sundahöfn fyrir 5 árum,
tók hann þar að sér erfitt starf
því nógu erfitt er tveim að þjóna
hvað þá þremur eins og Grétar
þurfti að gera þ.e. fóðurblöndun
Mjólkurfélags Reykjavíkur, Sam-
bandsins og Fóðurblöndunni hf.
Við sem erum fulltrúar þessara
fyrirtækja erum frekir til þjón-
ustunnar, oftast með langan
vinnudag, hver með sínum hætti.
Auk þess að sjá okkur fyrir hráefni
þurfti Grétar einnig að stjórna
löndun úr skipum fyrir þessi sömu
fyrirtæki, löndun sem stendur oft
samfleytt heilan sólarhring eða
meira.
Það er því ljóst að þarna þurfti
meira en venjulegan starfsmann,
en Grétari virtist aldrei bregða,
þó vitum við að hann var oft
þrevttur og svefnlaus þó aldrei
heyrðum við kvörtunarorð.
Ekki lét Grétar sér nægja að
skipuleggja vinnudag og starf
Kornhlöðunnar, hann var liðtækur
vélvirki og hélt búnaði fyrirtækis-
ins í góðu lagi enda mikið í húfi.
Afkoma eigendanna þriggja er
mjög háð Kornhlöðunni og þjón-
ustu hennar, auk þess sem hann
fór létt með að gera upp bílmótor
stöku sinnum, ryðbæta og sprauta
bíla bæði fyrir sjálfan sig og vini,
auk annars. Það er ljóst að Grétar
var fjölhæfur með eindæmum,
þrautseigur og úrræðagóður.
í skugga haustdaganna er okkur
ekki aðeins söknuður í hvarfi
starfsfélaga hér á garðinum í
Sundahöfn, okkar ágæti Grétar er
hættur að kíkja við í kaffi með
bros og gamanyrði á vör.
Við félagar Grétars úr sam-
starfsfyrirtækjunum sendum eig-
inkonu hans, Valgerði Björgvins-
dóttur, og börnum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
þau huggunarorð ein að minning
um góðan dreng og félaga lifir
lengi.
F.h. starfsmanna SÍS og MR
Sveinn Geir Sigurjónsson.
t
Móðirokkar,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Irá Hvammstanga,
Kleppsvegi 20,
lést i hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 12. nóvember.
Ragnheiöur Ingvarsdóttir,
Arnheiöur Þórhallsdóttir,
Hólmfríöur Þórhallsdóttir,
Hreiöar Þórhallsson,
Þórhallur H. Þórhallsson.
t Bróðirokkar,
STEINDÓR GÍSLASON,
Flókagötu 6,
lést i Borgarspítalanum 12. nóvember. Halldór Gíslason, Einar Gíslason.
t
Móðirokkar,
LÁRA ELÍN SCHEVING GÍSLADÓTTIR,
Efri-Brunastöóum,
Vatnsleysuströnd,
verður jarösungin frá Þjóökirkjunni i Hafnarfirði föstudaginn 15.
nóvembernk.
Börnin.
t
Fóstursystir mín,
RÓSA JÓNASDÓTTIR
frá Þverdal í Aðalvík,
til heimilis á Rauöalœk 22,
veröur jarösungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 15. nóvember
kl. 13.30.
Fyrir hönd okkar systkinanna og annarra vandamanna.
Ingimar Guðmundsson.
t
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR JÓNSSON
frá Haukagili,
Víöimel 35,
verður jarösunginn frá Neskirkju föstudaginn 15. nóv. kl. 10.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstof nanir.
Fyrir hönd aöstandenda,
Sigríður Steingrímsdóttir.
<
Nýjung í hártoppagerð!
•------------------A--------------------•
Nú bjóðum við nýja gerð hártoppa sem slá öll met hvað
varðar þægindi, léttleika og raunverulegt útlit.
Þéttleiki hársins er jafnt um allan hártoppinn og brúnin að framan
er algjörlega ósýnileg.
Þessi hártoppagerð er bandarísk uppfinning, sem hlotið hefur
nafnið „Miracle“, Kraftaverkið - enda ekki að ástæðulausu.
Kynning á Krafíaverkinu verður
haldin n.k. laugardag 16. nóv. á
hársnyrtistofu okkar að
Garðastræti 6, Reykjavík.
Komið - sjáið og sannfærist!
HÁRSNYRTISTOFA
Garðastræti 6, Sími: 22077.