Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
43
Unnur S. Arna-
dóttir - Minning
Haustið 1979 kynntist ég Unni
S. Árnadóttur svo að kynni okkar
urðu ekki löng. Samt er ég knúin
til að kveðja ljúfa tengdamóður
og ömmu drengjanna minna með
örfáum orðum.
Unnur átti við Parkinsonveiki
að stríða i yfir 20 ár. Hún giftist
Hirti Halldórssyni 3. júlí 1943 og
eignuðust þau þrjá syni, Halldór,
Magnús og Benedikt. Áður en
Unnur fór á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð í Kópavogi bjó ég hjá
henni í nokkrar vikur og verður
sá tími mér alltaf kær. Þá fann ég
bezt að Unnur tilheyrði þeirri
kynslóð sem sýnt gat bæði festu
og umburðarlyndi. Hún var gædd
einstakri mannelsku ásarnt já-
kvæðu lífsviðhorfi og sá það góða
í öllu fólki. Unnur var sannarlega
trúuð kona en trúin gaf henni
styrk um ævina án þess að hún
talaði um það.
Skömmu eftir 1930 lærði Unnur
röntgenmyndatöku á Landspítal-
anum og starfaði við slíkt i um 30
ár, þó lengst af á Landakotsspítala
(ca. 20 ár). Hún var ágæt tungu-
málamanneskja og fær á ritvél og
gat hún þess vegna aðstoðað Hjört
eiginmann sinn dyggilega en
Hjörtur þýddi og skrifaði margar
bækur um ævina. Hjörtur Hall-
dórsson lést í ágústmánuði 1977.
Síðustu æviárin dvaldi Unnur í
góðu yfirlæti á hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð og vil ég leyfa mér
fyrir hönd ættingja að þakka öllu
starfsfólki þar fyrir frábæra
umönnun og ástúð til Unnar.
Þ6 missi ég heym og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinzt við dauðadóm,
ó, Drottinn, gef sálu minni
að vakna við söngsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
ólína Andrésdóttir
Megi ljúf minning lifa.
Guðlaug Guðmundsdóttir
í dag kveðjum við fjölskyldan
og vinir elskulega mágkonu mína,
Unni Sylviu Árnadóttur.
Hún fæddist í Reykjavík 12. nóv-
ember 1912. Foreldrar hennar voru
hjónin Kristrún Tómasdóttir
(Hallgrímssonar læknis frá Hólum
i Reyðarfirði) píanóleikari og
kennari og Árni Benediktsson,
stórkaupmaður (Kristjánssonar
bónda og hreppstjóra i Selárdal i
Arnarfirði).
Unnur var elst 5 alsystkina.
Næst elstur var Benedikt Egill er
lést 2. ágúst 1984, ekkja hans er
Sigríður Pálsdóttir, þriðja er Ásta
Júlía, ekkja Jóhannesar Björns-
sonar læknis, þá var eiginmaður
minn Ragnar Tómas er lést 3.
mars 1984 og yngst er Katrín,
ekkja John L. Stephenson, búsett
í Bandaríkjunum. Hálfsystkinin
eru Kurt Benediktson i New York,
ekkill, kona hans var vesturis-
lensk, Helen Valgerður, og Elin
Ragnhildur, eiginmaður hennar er
Lennart Johansson og eru þau
búsett í Svíþjóð.
Unnur Sylvía giftist Hirti
Halldórssyni, menntaskólakenn-
ara, 3. júlí 1943. Hann lést árið
1977, en þau hjónin eignuðust 3
myndarsyni, þá Halldór Kristján
flugvirkja, kvæntan Guðlaugu
Guðmundsdóttur, Magnús lærður
rennismiður, en starfar nú sem
meðferðarfulltrúi SÁÁ, sambýlis-
kona hans er Hildur Skarphéðins-
dóttir og Benedikt nemandi í
Mynlistar- og handíðaskólanum.
Barnabörnin eru fjögur.
Unnur ólst upp hjá móðurömmu
sinni frú Ástú Hallgrímsson fædd
Thorgrímsson frá Eyrarbakka. 1
bernsku dvaldist hún oft að sumar-
lagi í „Húsinu" hjá ömmusystur
sinni frú Eugineu Nielsen og henn-
ar fjölskyldu. Hafði hún jafnan
gaman af að rifja upp veru sína á
þessum sögufræga stað.
Unnur útskrifaðist úr Kvenna-
skólanum í Reykjavík árið 1929.
Hún dvaldist síðar 1 ár í Englandi
svo og i Danmörku. Unnur þótti
góður nemandi og auk ensku og
dönsku nam hún þýsku og frönsku.
Unnur starfaði lengst af við fag
það sem nú heitir röntgentæknir,
fyrst á Landspítalanum. Hóf hún
störf þar árið 1934 undir hand-
leiðslu dr. Gunnlaugs Claessen.
Lengst af vann hún á Landa-
kotsspítala eða fram til ársins
1968, en síðast í Domus Medica
hjá Ólafi Jóhannssyni. 1 þessu
starfi kom tungumálakunnátta
hennar sér vel því á spítalann
komu oft sjúklingar af ýmsu þjóð-
erni og þótti þá gott að leita til
hennar. I hléi frá röntgenmynda-
tökum vann hún sem þingskrifari
á Alþingi í 3 ár. Þegar horft er til
þessara ára er eftirtektarvert að
Unnur var útvinnandi móðir og
gegndi því tvöföidu hlutverki, tölu-
vert áður en slíkt varð algengt
meðal kvenna.
Hjörtur var afkastamikill þýð-
andi, þýddi mikið af vísindaritum
og leikrit fyrir útvarpið árum
saman. Naut hann ávallt dyggilegs
stuðnings Unnar hvort heldur var
til að ræða þýðingar sínar ellegar
vélritunar á þeim.
Unnur hafði í mörg ár þjáðst
af sjúkdómi þeim er Parkinson
nefnist. Hafði hún leitað sér lækn-
inga innanlands og utan en án
verulegs árangurs. Hún dvaldist
seinni árin langdvölum á sjúkra-
húsum og síðastliðin 3 ár í Sunnu-
hlíð í Kópavogi. Hún var ákaflega
þakklát öllu því starfsfólki þessara
stofnanna sem sýndi henni svo
góða umönnun.
Unnur var lítillát heiðursmann-
eskja sem lynti vel við alla og er
skemmst að minnast þess mikla
kærleika sem var á milli hennar
og sona hennar. Ég vil kveðja með
vísunni og laginu sem móðir henn-
ar samdi til hennar um leið og ég
þakka henni samfylgdina.
Guð verndi öllu illu frá
elsku litlu baldursbrá
hún er ósköp sæt og smá
sinni mömmu Dúnu hjá.
Jónína Vigdfs Schram
Byggðamerki
Hafnahrepps
Vojfum, 11. nóvember.
HAFNAHREPPUR hefur tekið í
notkun byggðamerki. Merkið er
hannað af listamanninum Áka
Grönz forseta bæjarstjórnar í
Njarðvík sem gert hefur fjölda
merkja fyrir sveitarfélög og fleiri
aðila.
Merkið sýnir bát þeirrar gerð-
ar er saga Hafna stóð hæst, þá
hafölduna og loks Eldey.
Á meðfylgjandi mynd eru Áki
Grönz og Þórarinn Sigurðsson
sveitarstjóri í Hafnahreppi með
byggðamerkið. E.G.
Torky: Til þjónustu reiðubúinn
100 metrar - samsvara 4-6 eldhúsrúllum
Fæst í flestum matvörubúðum