Morgunblaðið - 14.11.1985, Síða 45
MQRGUNBLADID, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
45
vel færi um tengdaföður hans,
Odd, í skjóli þeirra hjóna, og
margar voru þær ferðir, sem hann
keyrði til Þingvalla, því hann vissi
að þeim stað unni Oddur mjög.
Þannig var allt líf Árna, upp-
byggt af tryggð, væntumþykju og
trausti.
Eins og áður sagði, stjórnaði
Árni fyrirtækinu Vélsmiðja
Kristjáns Gíslasonar hf. til dauða-
dags og gerði hann það af miklum
myndarbrag. Hann lagði sig ávallt
fram um það að fylgjast með og
kaupa ný tæki, sýna viðskiptavin-
unum þjónustu og hlúa að góðum
starfsmönnum, en umfram allt að
standa við öll sín heit og skulda
engum neitt. Og þannig skildi
hann við, þegar kallið kom 25.
október, þar sem hann sat iðnþing
og naut þess þar að ieggja góðum
málum lið og hitta gamla og nýja
félaga.
Árni rak vélsmiðju sína allan
tímann í Vesturbænum við Ný-
lendugötu, en nú í sumar hafði
hann löngun til þess að breyta um
og reisa nýtt hús fyrir vélsmiðj-
una, sem hæfði betur nýjum tíma.
Fékk hann í þeim tilgangi úthluta
lóð hjá Reykjavíkurhöfn í örfiris-
ey og voru frumteikningar komnar
á borðið. Árni var gæfumaður í
þessu sem öðru. Hann sagði mér,
að hann myndi aldrei hafa hugsað
um þessar breytingar, nema sonur
hans Páll, sem starfað hefur með
föður sínum í nokkur ár, vildi
styðja sig í þeim rekstri áfram.
Það var mikill kærleikur milli
þeirra feðga og reyndar er Páll
eftirmynd foður síns og öllum þeim
góðu kostum búinn, sem ég hef
áður lýst. Dóttir hans, Helga,
hefur nú hafið störf á skrifstofu
fyrirtækisins til þess að standa við
hlið bróður síns og reka fyrirtækið
í þeim anda, sem Árni byggði upp.
Árni sagði við mig nú í haust: „Ef
til vill verður þessi stóra breyting
mér ofvaxin, en ég hef engar
áhyggjur fyrst sonur minn vill
taka við.“
Árni var heilsuhraustur þar til
hann fyrir nokkrum árum kenndi
þess meins, sem að lokum hafði
yfirhöndina, en hann dró ekki af
sér og lét sem minnst á veikindum
sínum bera og féll frá í fullu starfi.
Ég kynntist Árna í stríðslok, er
ég vann í Stálsmiðjunni og hann
á skrifstofu Vélsmiðjunnar. Það
var stutt á milli okkar þá, Stál-
smiðjan við Brunnstíg og Vél-
smiðjan við Nýlendugötu, og ennþá
styttra varð á milli okkar, þegar
ég hætti í Stálsmiðjunni og hóf
sjálfstæðan rekstur á Ægisgötu
7, eða í nokkurra metra fjarlægð,
og þar áttum við samleið i 24 ár.
Þegar ég hóf rekstur fyrirtækisins
Innkaups 1%7, var Árni ávallt
minn stóri og sterki ráðgjafi. Árið
1974 hóf hann störf sem varamað-
ur í stjórn fyrirtækisins og við
fráfall konu minnar í vetur sem
leið gekk hann f aðalstjórn. Á öll-
um stjórnarfundum var þann
ráðagóður, en ávallt prúður og
hlustaði, og oftast var hans ráð-
leggingum fylgt. Hann var ritari
á stjórnarfundum og eru fundar-
gerðir hans með sérstökum sóma,
því rithönd hans og málfar var
mjög fágað. Þórunn kona min bar
mikið traust til hans og leitaði oft
ráða hjá honum, og þótti ávallt
gott að vita, ef við vorum einhvers
staðar saman. Það leið næstum
aldrei neinn vinnudagur að við
ekki töluðum saman, annaðhvort
i síma, eða hann skryppi upp á
skrifstofu. Hann var þvi mikill
aufúsugestur i Innkaup og gleði-
gjafi, og ég mæli fyrir hönd okkar
allra hér í Innkaup, að við söknum
hans mikið.
Svona heldur lífið áfram, ég fæ
ekki að njóta vináttu hans lengur,
en í þess stað mun ég reyna að
ylja mér við minningu þessa góða
drengs og ráðholla vinar.
Þó söknuður minn sé mikill, þá
er söknuður fjölskyldu hans, hans
góðu konu Iðunnar, aldraðrar móð-
ur og tengdaföður, barna, tengda-
barna, barnabarna og systkina
mestur, þvi þeim var hann ölluum
svo ástkær.
Ég veit, að minning hans er svo
sterk og tær, að það mun hjálpa
þeim öllum að ganga veginn áfram.
Ég sendi öllum aðstandendum
hans mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
„En — á bjartan orðstír aldrei fellur,
umgjörðin er góðra drengja hjðrtu.“
Gr.Th.
Ég kveð svo kæran vin minn að
sinni og bið honum blessunar hjá
þeim Álvaldi, sem skóp hjarta
hans.
Friðrik Jörgensen
í dag, fimmtudag, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellunni i
Reykjavík Árni Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Rauðalæk 12,
Reykjavík. Ég ætla ekki að rekja
hér ættir Árna eða uppruna, ég
veit að það munu aðrir gera sem
betur þekkja til, ég veit hinsvegar
að hann var af afbragðs góðu fólki
kominn, og þannig voru kynni
okkar einnig sérlega góð.
Þau hófust fyrir rúmum þrettán
árum þegar börnin okkar beggja
tengdu okkur vinar- og fjölskyldu-
bðndum.
Árni var prúður og höfðinglegur
í fasi og viðmóti öllu, og bar af
hvar sem hann fór fyrir reisn og
drenglund.
Hann var og þjálfaður fimleika-
maður á yngri árum og bar ætíð
síðan með sér djarfhuga einbeit-
ingu keppnismannsins.
I hugsun var hann athugull og
frábærlega skýr og hafði ávallt
eitthvað til málanna að leggja
þegar þjóðmál bar á góma en það
var að sjálfsögðu afar oft. Víðsýni
hans og einurð var viðbrugðið og
hann var í mínum augum sannur
aristokrat.
Hann var farsæll í lífi sínu og
starfi og í atvinnurekstri sínum
var liann þrautseigur og frábær-
lega iðinn. Þeir voru ekki margir
helgidagarnir að hann beindi ekki
vökulum augum framkvæmda-
stjórans til eftirlits eða útsjónar.
Hann var einnig verðugur full-
trúi þeirrar kynslóðar þar sem
orðheldni var slík að handsal var
jafngott og skrifaður samningur.
Hann var gæfumaður f einkalífi
sínu, hann og hans ágæta kona
Iðunn, eignuðust þrjú mannvænleg
börn sem hvarvetna eru þeim til
sóma.
Mér er ljúft á þessari skilnaðar-
stundu að flytja sérstakar kveðjur
frá dóttursyni okkar hjónanna,
Hreini Pálssyni, en hann sá í Árna
afa, það sem í barnshuganum
kemst næst almættinu. Enda var
það svo að drengurinn átti jafnan
víst skjól og notalegar samræður
hjá Árna afa, svo var einnig kvöld-
ið góða fyrir áfallið og mun það
geymast meðal dýrmætra minn-
inga.
Fjölskyldur okkar biðja góðan
guð að blessa minningu hins mæta
manns. Við sendum frú Iðunni,
börnum hennar og öðrum nánum
skyldmennum, okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Nú þegar hin langa óræða ferð
er hafin, biðjum við þess að hið
skærasta Ijós megi lýsa veginn
framundan.
Anna og Hreinn Sumarliðason
Eftir því sem árin líða verða æ
fleiri þeir vinir er hverfa sjónum
og skilja eftir söknuð hjá þeim er
eftir sitja. Söknuðurinn er ávallt
sár og tómarúmið yfirþyrmandi.
Sem betur fer er þó fleira sem
kemur til. Bjartar imnningar um
gott fólk á maður alla tíð. Árni
Kristjánsson skilur eftir sig marg-
ar slíkar. Hann var einn þeirra
manna er vildi hvers manns vanda
leysa og var öllum mönnum greið-
viknari. Ég minnist Árna fyrst
barn að aldri sem fjölskylduvinar
og sérlega barngóðs manns. Hann
hafði mikla kimnigáfu og var allt-
af reiðubúinn að bregða á leik með
glensi og gamni með okkur krökk-
unum. Nú í seinni tíð hefi ég oft
leitað til Árna og fengið föðurlega
ráðgjöf í ýmsum vanda. Það held
ég að hafi gilt um marga fleiri.
Ég votta ástvinum Árna mína
dýpstu samúð og minni á hve ríkir
þeir eru að minningunni um svo
góðan mann.
Sigrún Gunnarsdóttir
,,Pegar veturinn gengur
í garo langar mig aftur til
Mayrhofen“
-segir Jóhann Vilbergsson
skíðagarpur
ilur sjúkdómur
« Það væri óskandi að allir kæmust
í skíðaferð í Alpana. Hollara ráð
gegn skammdegisdrunga þekki ég
ekki. Ef þú ert ekki með skíða-
bakteríuna fyrir er engu að kvíða.
Það smitast allir á viku í Mayrhofen.
Þeir sem ekki kunna á skíðum innrita
sig bara í skíðaskóla. Eftir nokkra
daga bruna þeir niður brekkurnar -
án þess að detta!
Svona eiga skíðabæir
að vera___________é A
■ Mayrhofen, áfangastaður Flug-
leiða í skíðalöndum Austurríkis er
Paradís skíðamannsins. Þar snýst allt
um vetraríþróttir. Bærinn er innar-
lega í Zillertal, stutt er á Penken og
Ahorn. Ef maður kaupir svokallaðan
„Super Ski-Pass“ er frjáls aðgangur
að öllum skíðasvæðunum í dalnum.
Þar nýtur maðut Kfsins
■ Mayrhofen er ekki bara skíða-
bær. Þegar brekkunum sleppir er úr
mörgu að velja. Ég svamla gjarnan
í sundlaug eða hvíli lúin bein f
heitum potti. Hótelin í Mayrhofen
eru hræðilega þægileg - erfiðast er
að fara úr húsi!
Svo er bærinn fullur af ölstofum,
veitingahúsum og diskótekum. Það
finna allir aldurshópar eitthvað við
sitt hæfi.
Við sjáumst í Mayrhofen!
« Flugleiðir fljúga beint til Salzburg
- borgar Mozarts - þaðan er aðeins
klukkutíma akstur til Mayrhofen.
Þú getur valið um 5 hótel í mismun-
andi verðflokkum. Sum eru falleg
fjallahótel, önnur bjóða hreinasta
munað. En eitt er víst, ferðin léttir
pyngjuna minna en við mætti búast.
Kynntu þér verðið til að sannfærast!
Brottfarir:
■ Vikuferðir: 15/2, 22/2, 1/3, 8/3,
15/3. 22/3 og 29/3.
■ Tvær vikur: 21/12, 4/1, 18/1, 1/2,
15/2,22/2,1/3, 8/3,15/3,22/3 og 29/3
Tvær vikur frá kr. 21.758;
Fararstjóri Flugleiða í Mayrhofen
er hinn góðkunni Rudi Knapp.
FLUGLEIDIR
Verð miðað við janúar og mars, tveir ( herbergi á Hótel Rauchenwald. Flug, ferðir og morgunmatur innifalið.