Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 55
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Fáir kannast
við vísuna
Frí sýningu LR á „Land míns foður", sem Ragna segir hina bestu skemmtun.
Skemmtileg kvöld-
stund í Iönó
Ragna Gunnarsdóttir, Fífu-
hvammsvegi 11, Kópavogi skrifar:
Velvakandi góður.
Ég hef nú ekki lagt það í vana
minn að skrifa þér, þó að ég lesi
oftast það sem aðrir skrifa. Nú fæ
égþó ekki orða bundist.
I blaðinu 1. nóvember sl. birtist
bréf frá Jóhannesi Proppé, nokk-
urskonar stóridómur um leikritið
„Land míns föður", sem nú er sýnt
í Iðnó. Við hjónin sáum þetta leik-
rit okkur til mikillar ánægju og
held ég að flestir leikhúsgestirnir
þetta kvöld hafi verið á sama máli.
Ég held að þakið í gamla, góða
Iðnó hafi verið nær því að lyftast
af hlátri manna, heldur en að síga
af leiðindum eins og Jóhannes vill
meina. Hver hefur sinn smekk og
ég held að það hafi ákaflega mikið
að segja með hvaða hugarfari við
förum í leikhús. Förum við jákvæð
og ákveðin í að skemmta okkur,
eða förum við neikvæð og ákveðin
í að finna gallana á leikritinu, ef
einhverjir eru?
Sjálfsagt er „Land míns föður"
ekki gallalaust fremur en annað í
heimi hér, en ég segi bara fyrir
mig að ég fer ekki í leikhús til að
gagnrýna — látum gagnrýnend-
urna um það! Kærar þakkir Kjart-
an Ragnarsson, Atli Heimir
Sveinsson, leikarar og aðrir þeir
sem að sýningunni standa.
Ágæti Velvakandi.
Viltu vera svo góður að senda
honum Guðmundi Finnbogasyni
eftirfarandi hugleiðingu mína,
vegna fyrirspurnar hans í Velvak-
anda 21. september siðastliðinn.
Þar spurðist hann fyrir um konu
þá er vísan „Hundrað ára hreppti
kláragleði" fjallar um og einnig
um höfund hennar.
Ég býst við að það reynist erfitt
að finna svör við þessum spurning-
um. Þó gæti verið að þau leyndust
í gömlum ritum eða annálum, þar
sem svo sérstök vísa sem þessi
ætti svo sannarlega að vera skráð.
Ég, sem pára þessar línur, hefi
spurt margt eldra fólk hér í
Reykjavík um þessa vísu, án
árangurs. Síðastliðið sumar dvaldi
ég norður í Skagafirði í 10 daga
og hitti þar nokkra eldri menn og
spurði þá einnig um vísuna og
höfund hennar. Sumir þeirra höfðu
ekki heyrt eða séð vísuna, aðrir
hristu höfuðið. Ég lærði umrætt
kvæði í æsku, rétt um síðustu
aldamót og að mínu viti tel ég
hana betur kveðna og auðskiljan-
legri nútímafólki eins og ég lærði
hana. Hér er einungis átt við
miðlínuna.
Ég læt hér fljóta með báðar út-
gáfurnar og kemur vísa Guðmund-
ar fyrst.
Hundrað ára hreppti kláragleði
ellefu skorra árin tvenn
ein fyrir norðan kerlingin.
Mín vísa hljóðar svo:
Hundrað ára hreppti kláragleði
eikin skorða og ellefu tvenn
ein fyrir norðan kerlingin.
Fyrir þá sem ekki þekkja til er
rétt að geta þess að „eikin skorða"
er kvenkenning í gömlum skáld-
skap.
Með bestu kveðju til Guðmund-
ar. Kristjón Ólafsson
Verndum þá sem vinna
að fíkniefnamáluni
Velvakandi.
Ég hrökk illa í kút þegar ég sá
mynd á baksíðu Morgunblaðsins
1. nóvember síðastliðinn frá elt-
ingaleik lögreglu við grunaðan
fíkniefnasala og handtöku hans. Á
myndinni var andlit hins grunaða
kyrfilega falið en ekki hirt um að
torkenna andlit lögreglumann-
anna á neinn hátt.
Hér þykir mér skjóta skökku
við. Blaðamenn og ljósmyndarar
mættu hafa það í huga að lögreglu-
mönnum er gert mun erfiðara fyrir
að rannsaka brot af þessu tagi ef
myndir af þeim birtast fyrir al-
þjóð. Að auki er mér kunnugt um
að þeir lögregluþjónar sem staðið
hafa í rannsóknum fíkniefnamála
og fjölskyldur þeirra hafa iðulega
orðið fyrir ónæði og ofsóknum og
jafnvel árásum af hálfu fíkniefna-
sala.
Eiginkona lögreglumanns.
Aths. ritstj.
Morgunblaðið telur það skyldu
sína við lesendur að birta myndir
sem tiltækar eru af alvarlegum
atburðum eins og þeim sem varð
fimmtudagskvöldið 31. október
þegar lögreglan stöðvaði þrjá fíkni-
mÆr spurt og svarad
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Um leik Fram og Rapid Wien
Gunnar spyr:
Mig langar að beina þeirri fyrir-
spurn til forráðamanna knatt-
spyrnudeildar Fram hvort að ekki
hafi verið hægt að láta leik Fram
og Rapid Wien fara fram á öðrum
tíma dagsins, svo að fleiri gætu
séð hann? Leikurinn hófst sem
kunnugt er kl. 14.30 og vinnandi
fólk komst af þeim sökum ekki á
hann. Hvernig hefði verið að hafa
leikinn í hádeginu, eða um kvöld-
matinn?
Svar Jóhanns Kristinssonar,
framkvæmdastjóra knattspyrnu-
deildar Fram:
Austurríska sjónvarpið hugðist
sýna leik Fram og Rapid Wien í
beinni útsendingu og hentaði best
að leikurinn hæfist kl. 14.30 að
íslenskum tíma. í skammdeginu
sem nú færist óðum yfir er enda
varla hægt að hefja leik á Laugar-
dalsvellinum mikið síðar, vegna
þess að völlurinn er ekki flóðlýst-
ur. Taka þurfti með í reikninginn
að leikinn hefði getað þurft að
framlengja, sem hefði þýtt það að
honum hefði lokið um kl. 17. Er
það í síðasta lagi því að um það
leyti fer að dimma.
Það segir sig því sjálft að ekki
var hægt að láta Ieikinn fara fram
um kvöldmatarleytið.
efnasmyglara. I því tilfelli varóhjá-
kvæmilegt að lögreglumenn sæjust,
bæði einkennisklæddir og óein-
kennisklæddir. Það hefur lengi
verið venja Morgunblaðsins að
hylja andlit sakborninga og er það
í samræmi við þá vinnureglu blaðs-
ins að birta ekki nöfn fyrr en sekt
er sönnuð.
Á hinn bóginn má vel vera að
aðstæður séu slíkar nú orðið að
nauðsynlegt sé að vernda þá, sem
vinna að fíkniefnamálum og fjöl-
skyldur þeirra með því að birta
ekki af þeim myndir. Morgunblaðið
mun taka það til athugunar.
Skrifiö eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
aö skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eöa hringja milli kl. 14 og 15,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki viö aö skrifa.
Meöal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og oröaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituö, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
veröa aö fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó aö höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæöa til að
beina því til lesenda blaösins
utan höfuöborgarsvæöisins, aö
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
Innilegt þakklæti flyt ég öllum þeim sem meÖ
heimsóknum, gjöfum og kveöjum glöddu mig
á áttræöisafmæli mínu, 23. október sl.
Auður Tryggvadóttir,
Gerðum.
Hleðslutœki
Póstsendum
12V - 6 AMP
Verö m/söluskatti
Kr. 1.896.-
12/24V - 12 AMP
Verö m/söluskatti
Kr. 3.963,-
HÁBERGH/F, Skeifunni 5A
Sími: 91-84788
Microline 182/192/193
Ný kynslóö
tölvuprentara!
Kostimir eru ótvíræöir:
• Þriöjungi minni og helmingi léttari en áöur.
• Miklu hljóðlátari en áður.
• Fullkomlega aðhæföir IBM PC og sambæri-
legum tölvum.
• Tbngjast öllum tölvum.
• Prenta 160 stafi á sekúndu, skáletur og
gæðaletur.
• Notandi getur sjálfur hannað eigin leturgerðir.
• Fullkomin varahluta- og viðhaldsþjónusta.
• Til á lager.
Nýjungarnar koma alltaf fyrst frá MICROLINE.
Það er því engin furða að
MICROLINE eru mest
seldu töivuprentarar á íslandi.
^mmmm m mm—mmm* m
IMÍKROI
Skeifunni11 Sími 685610