Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
59
Rúmenar unnu
RÚMENAR sigruöu Tyrki, 3:1, í
undankeppní heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu í Izmir
í Tyrklandi í gærkvöldi.
Yorgulescu skoraði fyrsta mark
Rúmena og Coras bætti öðru mark-
inu við á 27. mínútu og þannig var
staðan í hálfleik.
Rúmenar bættu svo sínu þriðja
marki viö er sjð mínútur voru liönar
af seinni hálfleik og var þar Boloni
að verki, . Miövallarleikmaöurinn,
Metin skoraöi fyrir Tyrki.
V-Þýska bikarkeppnin:
Stuttgart í
undanúrslit
— Lerby lék vel með Bayern
Fré Jóhanni I. Gunnarssyni og Ragnari Gunnarssyní, tréttariturum Morgunblaösins
í V-Þýskalandi.
STUTTGART tryggöi sér réttinn
til aö leika í undanúrslitum vest-
ur-þýsku bikarkeppninar í knatt-
spyrnu er þeir sigruöu Werder
Bremen, 2-0, á heimavelli sínum
í gærkvöldi. Karl Allgöwer skoraöi
bæöi mörk Stuttgart í fyrri hálf-
leík.
Stuttgart lék mjög sterkan varn-
arleik og var Karl Heinz Förster þar
aftasti maöur í vörninni og stjórnaöi
varnarleiknum að öryggi. Ásgeir
Sigurvinsson átti góöan leik og
stjórnaöi leik liösins á miöjunni
meö ágætum. Aligöwer skoraöi
fyrra markiö á 15. mínútu og þaö
seinna á 23. mínútu. Stuttgart var
mun betri aöilinn í þessum leik og
átti sigurinn svo sannarlega skilinn.
Byggt var upp á skyndisóknum, líkt
og í leiknum gegn Kaiserslautern á
laugardaginn.
Werder Bremen skoraöi mark
undir lok ieiksins sem var réttilega
dæmt af vegna rangstööu. 24.000
áhorfendur voru á leikvanginum í
Stuttgart sem fögnuöu innilega i
lokin.
Bayern og Bochum geröu jafn-
tefli, 1-1, eftir framlengdan leik.
Danski landsliösmaöurinn, Sören
Lerb, sem lék með Dönum gegn
írum í Dublin fyrr um daginn, náöi
í tæka tíö í leikinn með Bayern gegn
Bocum. Hann var þar einn besti
leikmaöur Bayern og var ekki aö
sjá aö hann heföi leikið tvo leiki í
tveimur löndum. Hann baröist eins
og Ijón.
Rumenigge skoraöi fyrsta mark-
iö fyrir Bayern á 38. minútu og
þannig var staöan í leikhléi. Leifeld
jafnaöi fyrir Bochum á 62. mínútu.
Leikurinn var síöan framlengdur,
en hvorugu liöinu tókst aö skora.
Þaö verður því aö fara fram ann-
ar leikur og verður hann á heima-
velli Bayern í Múnchen.
Schalke sigraöi síöan 2. deildar-
liðiö Aacken, 2-1, eftir framleng-
ingu. Staöan eftir venjulegan leik-
tíma var 1-1. Schalke kemst því í
4- liöa úrslit.
Mannheim sigraöi Hannover,
5- 1, á þriðjudagskvöld. Þaö veröa
því Stuttgart, Schalke, Mannheim
og Bayrn Múncen eöa Bochum sem
leika í undanúrslitum vestur-þýsku
bikarkeppninar.
Adeins þad besta f yrir barnið
Góður sigur
FH yfir Val
PAMPERS
Pampers bleyjur+buxur hlífa litlum bossum
VALUR tapaði öðrum leik sínum
í röö á Islandsmótinu í hand-
knattleik I gærkvöldi er þeir
mættu FH-ingum í Laugardals-
höll. Úrslit leiksins uröu 25:27 fyrir
FH-inga eftir aö Valsmenn höföu
haft eitt mark yfir í leikhléi, 14:13.
Leikurinn var bæöi jafn og
spennandi. Valsmenn höföu oftast
forystu en hún var þó aldrei mikil.
Bæöi liðin léku vel i gærkvöldi og
skemmt ilegt aö horfa á leikinn. Sér-
staklega léku þeir Ellert Vigfússon
markvöröur Vals og Haraldur
Ragnarsson markvöröur FH vel.
Valsmenn höföu yfirhöndina allt
þar til 10 mínútur voru til leiksloka
en þá tókst FH aö jafna, 22:22, en
nokkru fyrr haföi Valur haft yfir,
22:19. Síöan var jafnt á næstu
tölum þar til FH náöi aö skora tvö
mörk og komast í 24:26.
Valur minnkar muninn úr víta-
kasti og þá voru rétt tæpar tvær
mínútur til leiksloka. Þegar síöustu
sekúndurnar voru aö renna út voru
Valsmenn í sókn og flestir bjuggust
viö því aö þeir myndu jafna metin.
Þaö geröist hins vegar ekki því
FH-ingar komust inn í sendingu og
Jón Erling Ragnarsson skoraöi úr
hraöaupphlaupi og þar meö var
kærkominn sigur og tvö mikilvæg
stig komin i höfn í Hafnarfiröi.
Bestu menn Vals í leiknum voru
Júlíus Jónasson og Jakob Sigurös-
son en auk þeirra iéku Geir Sveins-
son og Ellert markvöröur vel. Hjá
FH var Þorgils Óttar Mathiesen
bestur en einnig átti Óskar Ár-
mannsson góöan leik. Jón Erling
og Valgarö voru einnig ágætir svo
og Haraldur i markinu.
Mörk Valt: Júlíus Jónasson 9/4, Jakob
Slgurösson 6, Gelr Sveinsson 5, Valdimar
Grímsson 3, Þóröur Sigurösson 1. Jón Pétur
Jónsson 1.
Mörk FH: Þorgils Óttar Mathiesen 7/2,
Óskar Armannsson 7/2, Guöjón Arnason 4, Jón
Erling Ragnarsson 4, Valgaró Valgarósson 4,
Hóöinn Gilsson 1. __ áaát
Þurrbleyjan næst baminu heldur raka frá húðinni og tryggir
hámarks vellíðan. Innri lögin í bleyjunni taka á móti miklum raka.
Hliðarlásar, sem hægt er að loka og opna, auðvelda bleyjuskipti.
Rykking á hliðum kemur í veg fyrir leka.
PAMPERS fást íverslunumum land allt
Pampers bleyjur eru ofnæmisprófadar
mmnz/ , ,
<zMn\eriMci r
PAMPERS, EKKI BARA BESTAR.
Þær em líka hagkvæmar, því þú notar færri Pampers bleyjur.
4 stærðir.
Pampers á mun lægra verði en þig grunar
Morgunblaöið/JúlHJS
• Páll Björgvinsson skorar hór eitt af mörkum sínum fyrir Víking í gær. Eins og sjá má eru fáir
Þróttarar til varnar en þannig var ástandiö oft viö vítateig þeirra.
Víkingar léku Þrótt
illa í Höllinni í gær
ÞRÓTTARAR reyndust auðveld
bráö Víkingum er liðin mættust í
fyrstu deildinni í handknattleikn-
um í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Víkingur vann leikinn meö sautj-
án marka mun, 37:20, eftir aö
staöan í leikhléi haföi verið 16:9.
Eins og tölurnar bera meö sér var
leikurinn lengst af ójafn og yfir-
buröir Víkinga miklir.
Þaö má segja aö Víkingar hafi
tekiö Þróttara í kennslustund í
handknattleik, einkum þó í hraö-
upphlaupum, því Víklngar skoruöu
mikiö af mörkum úr hraöupphlaup-
um.
Þróttarar stóöu aöeins í Víking-
um fyrstu mínúturnar og þegar leik-
urinn haföi staöiö í 15 mínútur var
staöan 7:5 fyrir Víkinga. Þeir skor-
uöu síöan næstu fimm mörk og
breyttu stööunni í 12:5 og eftir þaö
var aldrei spurning um hvort liöiö
sigraöi.
Víkingar léku þennan leik nokk-
uð vel enda mótstaöan lítil. Vörn
liösins var góö og markveröirnir
léku vel, þeir Kristján Sigmundsson
Landsliðshópurinn
BOGDAN Kowalzcyk landsliös-
þjálfari i handknattleik hefur
valið 24 handknattleiksmenn til
þess aö taka þátt í lokaundir-
búningi landsliösins fyrir
A-heimsmeistarakeppnina sem
fram fer í Sviss í febrúar á næsta
ári.
Markveröir eru þeir Einar Þor-
varöarson, Kristján Sigmunds-
son, Brynjar Kvaran og Ellert
Vigfússon.
AÖrir leikmenn eru: Þorbjörn
Jensson, Þorgils Óttar Mathie-
sen, Guömundur Guömundsson,
Bjarni Guömundsson, Steinar
Birgisson, Jón Árni Rúnarsson,
Guömundur Albertsson, Sigurö-
ur Gunnarsson, Atli Hilmarsson,
Páll Ólafsson, Kristján Arason,
Alfreö Gíslason, Hans Guö-
mundsson, Július Jónasson,
Valdimar Grimsson, Jakob Sig-
urösson og Karl Þráinsson.
og Finnur Thorlacius. Finnur varöi
meðal annars tvö vítaköst í síöari
hálfleiknum. Sóknarleikur liösins
var einnig nokkuö góöur og sér-
stakleg hraöupphlaupin eins og
áöur segir.
Um leik Þróttar er lítið aö segja.
Þeir mættu algjörum ofjörlum sín-
um í gærkvöldi. Vörnin var slök og
sóknarleikurinn sklpulagslaus. Þaö
var helst Birgir Sigurösson sem
reyndi aó berjast allan tímann og
Konráö Jónsson var þokkalegur í
fyrri hálfleik en sást lítiö í þeim síö-
ari.
Hjá Víkingum var Guömundur
Guðmundsson bestur. Bjarki Sig-
urösson, hinn ungi og efnilegi
hornamaöur Víkinga, átti einnig
mjög góöan leik og þeir Páll, Stein-
ar og Karl stóöu sig allir vel.
Mðrk Víking*:Guömundur Guðmunds-
son 10, Steinar Birgisson 7, Páll Bjðrgvins-
Sön 6/1, Ðjarki Sigurösson 6, Karl Þráins-
son 4, Guðmundur Albertsson 2, Siguröur
Ragnarsson 2.
Mörk ÞróttarBirgir Sigurösson 6, Kon-
ráö Jónsson 5, Guömundur Oskarsson 3
Haukur Hafsteinsson 3, Birgir Einarsson 3.
- ágás.