Morgunblaðið - 23.11.1985, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.11.1985, Qupperneq 4
MORG UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 4 INNLENT Verzlanir í gamla miðbænum Flestar opnar í dag til kl. 16.00 VEL FLESTAR verslanir í gamla miðbænum hyggjast hafa opið til kl. 16.00 í dag, laugardag, en í Morgun- blaðinu í gær mátti sjá áskorun þar sem nýstofnuð samtök um Gamla miðbæinn skoruðu á atvinnurekend- ur í gamla miðbænum að hafa opið. Guðlaugur Bergmann, formaður félagsins, sagði í samtali við blaða- mann að þar sem félagið hefði ekki formlega tekið til starfa enn, hefði sú leið verið farin að skora á verslunareigendur í blaðaauglýs- ingu að hafa opið og vonaðist hann til þess að allir sem vettlingi geta valdið geri það. EIGENDUR smábáta frá Akranesi, Reykjavík og Hafnarfirði lokuðu Reykjavíkurhöfn í gærmorgun í mót- mælaskyni við stjórnun veiða smá- bátanna. Segja þeir, að með núver- andi fyrirkomulagi sé verulega vegið að afkomu þeirra með því að banna þeim allar veiðar í tæpa þrjá mánuði samfleytt. Aðgerðir smábátaeigenda töfðu meðal annars brottför Akra- borgar frá Reykjavík í rúman klukk- utíma, en höfninni lokuðu þeir í um eina og hálfa klukkustund. Lögreglan hafði lítilsháttar af- skipti af eigendum bátanna, ræddi við þá og losaði ennfremur kaðal, sem bátarnir höfðu verið festir við í landi. Var það gert í sama mund og trillukarlarnir höfðu ákveðið að létta umsátri sínu. Samkvæmt núgildandi reglugerð um veiðar er eigendum smábáta bönnuð veiði frá og með miðjum nóvember til 9. febrúar, en í fyrirliggjandi frumvarpi um stjórnun veiðanna er ákvæði þess efnis, að þeim verði heimilar veiðar á línu á þessu tímabili. Það ákvæði, verði það JC-hreyfingin: Barouni sigraði Cartagena, 22. nóvember. Frá Ingimari Sig- urðnjnL KOSNINGAR til heirasstjórnar JC-hreyfingarinnar fóru fram í dag hér í Cartagena í Colombíu. Moncef Barouni frá Túnis var kosinn heimsforseti eftir mjög harða baráttu við frambjóðanda JC-ís- lands, Andrés B. Sigurðsson. Þrátt fyrir þessi úrslit sem valda okkur að sjálfsögðu miklum vonbrigðum, þá er það Ijóst að framboð Andrésar og störf hans innan alþjóðahreyfing- arinnar hafa vakið mikla athygli á fslandi og íslendingum. Andrés B. Sigurðsson var vara- forseti í alþjóðastjórn 1982 og framkvæmdavaraforseti 1983. Áð- ur hafði Ólafur Stephensen starfað sem alþjóðlegur varaforseti árið 1971. Næsta heimsþing hreyfingar- innar verður Nagoya í Japan og hér var einnig kosið um heimsþing 1987 sem verður í Amsterdam í Hollandi. Heimsþinginu lýkur á laugar- dagskvöldið. 20 % verðlækkun á kjúklingaútsölu Svar við kindakjötsútsölunni, segja kjúklingabændur KJÚKLINGABÆNDUR hafa lækk- að verð framleiðslu sinnar um 20%. Stendur kjúklingaútsalan til mán- aðamóta, eða í vikutíma. Algengt smásöluverð á heilum kjúklingum lækkaði við þetta um 60 krónur kíló- ið, úr 300 í 240 krónur, en kjúklingar eru þó auglýstir alit niður í 210-215 krónur kílóið. Félag kjúklingabænda sam- þykkti nýlega að hækka kjúklinga um 8,5% og átti verðhækkunin að taka gildi næstu daga. Salan hjá stærstu framleiðendunum hefur hinsvegar dregist saman og birgðir safnast, vegna kindakjötsútsöl- unnar að því er þeir telja, og ák- váðu þeir að svara kindakjötsút- sölunni með svipaðri verðlækkun. Ýmsir smærri framleiðendur voru á móti verðlækkun en treystu sér ekki til annars en að fara að dæmi þeirra stærri þannig að verðlækk- unin nær til allra framleiðenda. Um næstu mánaðarmót hækkar kjúklingaverðið aftur um þessi 20% sem það lækkaði nú og má búast við að þar ofan á verði bætt 8,5% hækkun sem framleiðendur telja nauðsynlega til að vega upp kostnaðarhækkanir undanfarna mánuði. Alfreð Jóhannsson fram- kvæmdastjóri fsfugls í Mosfells- sveit sagði að sala kjúklinga hefði dregist saman vegna lambakjöts- útsölunnar og framleiðendur ákveðið að svara því með tíma- bundinni útsölu. Jónas Halldórs- son í Sveinbjarnargerði, formaður Félags kjúklingabænda, sagði ákveðið að hækka kjúklingaverð um 8,5% um næstu mánaðamót. Hins vegar væri birgðasöfnun hjá stærstu framleiðendunum, ísfugli og Holtabúinu, og þeir hefðu beitt sér fyrir útsölu og aðrir fylgt með. Sjálfur sagðist Jónas ekki eiga í neinum erfiðleikum með söluna og svo væri með fleiri framleiðendur og væru þeir því ekkert allt of ánægðir með að þurfa að lækka verðið. Kjúklingabændur hefðu enga opinbera sjóði til að fjár- magna svona útsölu eins og kinda- kjötsframleiðendur og því kæmi þetta sem bein kauplækkun hjá þeim. Útsala hefur einnig komið til tals hjá svínabændum, en Halldór H. Kristinsson á Hraukhóli, for- maður Svínaræktarfélags íslands, sagðist ekki hafa trú á að af því yrði. Hann sagðist ekki hafa orðið var við sölusamdrátt þrátt fyrir kindakjötsútsöluna og engin birgðasöfnun virtist vera af svína- kjöti. Sagði hann að svínabændur hefðu ákveðið að sjá til með áhrif kindakjötsútsölunnar en sér virt- ist allt benda til að þeir stæðu hana af sér. Morgunblaðið/Friðþjófur Eigendur smábáta lokuðu hafnarmynninu með því að binda báta sína milli hafnargarðanna. Nokkur mannfjöldi fylgdist með og eru hafnarverðir meðal annars að ræða við karlana. Smábátaeigendur lokuðu Reykjavíkurhöfn: Skarphéðinn Árnason frá Akranesi. til þess tekið. Það er heldur ekkert tillit tekið til mikillar fjölgunar smábáta og aukinnar sóknar þeirra og veiðigetu. Það er ekkert tillit tekið til afkomu okkar og fjölskyldna okkar. Stjórn misvitra manna á sjávarútveginum er að eyðileggja hann,“ sagði Skarp- héðinn. „Það er betra að segja satt Éryndís og ekki vera reið“ Athugasemd frá Gísla Gestssyni í Morgunblaðinu 22. nóvember veitist Bryndís Víglundsdóttir ómaklega að Albert Guðmunds- syni vegna endurskoðunar á húsaleigusamningi vegna hús- næðis Þroskaþjálfaskóla íslands. I nær heilt ár hafa staðið við- ræður við heilbrigðisráðuneytið og síðan Fjárlaga- og hagsýslu- stofnun um endurskoðun húsa- leigusamnings Þroskaþjálfa- skóla Islands og leigusala, sem er Víðsjá. Þar sem opinber gjöld hafa hækkað meira en helmingi meira en leiguafgjald, þótti sanngjarnt að endurskoða samninginn. Sú endurskoðun var alfarið unnin af embættismönnum hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Albert Guðmundsson kom ekki nálægt þeirri umfjöllun og hefur undirritaður ekki rætt fyrr né síðar við Albert Guðmundsson um þessa endurskoðun né út- komu hennar. Enda var ekki gengið frá samningi endanlega fyrr en 3 vikum eftir að Albert Guð- mundsson hætti störfum sem fjármálaráðherra, og því með öllu óréttlátt að draga Albert Guðmundsson inn í ósmekklega og óskiljanlega ritsmíð Bryndís- ar Viglundsdóttur. Það virðist vera í tísku nú hjá ýmsu skapmiklu fólki, að ráðast á stjórnmálamenn og ýmsa aðra, til að skapa sundrung og óánægju. Albert Guðmundsson hefur enn orðið fyrir aðkasti frá þessu Kði. Mér þykir það mjög miður, þar sem aðdróttanir Bryndísar Víg- lundsdóttur hafa ekki við rök að styðjast. FJi. Víðsjá, Gísli Gestsson Mótmæla þriggja mánaða veiðibanni samþykkt af Alþingi, tekur ekki gildi fyrr en eftir áramót. Smábát- arnir höfðu um síðustu mánaða- mót aflað rúmlega 22.000 lesta á þessu ári og er það nálægt 3% af áætluðum botnfiskafla lands- manna á þessu ári. Smábátum hefur á síðustu árum fjölgað um rúmlega helming og telja eigendur þeirra, að ekki hafi verið tekið tillit til þess við úthlutun heildar- kvóta þeirra. Skarphéðinn Árnason var einn þeirra, sem að þessum mótmælum stóðu, en hann á bátinn Rún AK 27. Hann sagði í samtali við Morg- unblaðið, að þeir væru fyrst og fremst að mótmæla því, að þeir væru sendir í land í þrjá mánuði samfleytt svo og eilífum dagskip- unum sjávarútvegsráðherra um stopp á stopp ofan. Hann vissi ekki til þess, að stjórnvöld bönn- uðu nokkrum öðrum þjóðfélags- hópi að afla sér lífsviðurværis og sendi menn þannig á vonarvöl. „Við erum ekki meðhöndlaðir eins og aðrir rnenn," sagði hann. „Þrátt fyrir yfirlýsingu eigenda smábáta um að skilið verði á milli þeirra, sem hafa af þessu aðalatvinnu og hinna, sem veiðarnar stunda í hjá- verkum, og viljayfirlýsingu Al- þingis um hið sama, er ekkert tillit

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.