Morgunblaðið - 23.11.1985, Side 6

Morgunblaðið - 23.11.1985, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 Rattigan Höfundur fimmtudagsleikrits- ins er breskur leikritahöf- undur Terence Rattigan að nafni. Rattigan fæddist 1911 en ekki hef ég minnstu hugmynd um hagi hans í dag. Ég á líka erfitt með að meta stöðu Rattigans í leikhússheimin- um þótt ýmiss verka hans hafi notið töluverðra vinsælda og jafn- vel hlotið verðlaun til dæmis: The Winslow Boy er lýsir á nærfærinn hátt baráttu föður ungs drengs fyrir því að hreinsa soninn af þjófsákæru. The Winslow Boy hlaut Ellen Terry-verðlaunin ’46 og árið eftir gagnrýnendaverðlaun New York-borgar sem veitt eru besta erlenda leikverkinu. En þótt Rattigan hafi ritað vinsæl verk í senn af léttara og þyngra taginu þá hefir hann stundum orðið að hlýta dómi „Aunt Edna“ en svo nefnir Rattigan hinn ofur venju- lega leikhúsgest er fer ekki í leik- húsið með hausinn fullan af fræði- kenningum. Þannig varð karllnn að sætta sig við að hinn óhemju vinsæli gamanleikur hans French Without Tears er hann ritaði ’36 náði aðeins fjögur kveld á sviðið sem söngleikur á því herrans ári 1960. Hvort nokkur kjaftur man eftir Terence Rattigan árið 2060 er ekki gott að spá til um enda hverfa flest mannanna verk í þagnarinnar djúp og máski er engin kenning háskalegri en sú að orðstírr deyr aldrigi,/ hveims sér góðan getr. Nær væri manneskj- unni að líta til dægurflugunnar er vaknar að morgni og flýgur út í ljósið til þess eins að deyja að kveldi inn í myrkrið. Við megum þakka fyrir ljósdropann er okkur gefst færi á að svamla í örskots- stundina. Þjóðargjöf Sú afurð leikritaskáldsins Ter- ence Rattigan er hljómaði af sviði útvarpsleikhússins síðastliðið fimmtudagskveld nefndist í ágætri þýðingu Sverris Hólmarssonar Þjóðargjöf. Sagði þar frá einu af þessum stórmennskum sögunnar sem búið er að steypa í brons, dúfum og öðrum sísvöngum fugl- um til skemmtunar. Maður þessi nefnist Nelson og er hausinn á honum hafður til sýnis túrhestum í miðri Lundúnaborg efst á súlu nokkurri. Nelson þessi hefir öðlast orðstírr/er deyr aldrigi í krafti nokkurra kröftugra sjórrusta þar sem ungum mönnum var slátrað í nafni heimsveldisdrauma. Þessi mikilvirki sláturhússtjóri breska flotans er sýndur í leikriti Rattig- ans sem óstýrilátur nautnabelgur er kýs helst að eyða frístundum uppí rúmi hjá miðaldra hóru og klámkjafti er nefnist Lafði Emma Hamilton. Snjall sálfræðingur af freudíska skólanum myndi vafa- laust skýra þessa áráttu Nelsons þannig að hann væri fæddur sjó- maður er kynni hvergi við sig nema í ölduróti fretandi kanónum. Margrét og Gísli Þau Margrét Helga Jóhanns- dóttir og Gísli Alfreðsson léku Lafði Hamilton og Lord Nelson. Hæfði þar skel kjafti því Margrét Helga var eins og fædd í hlutverk þessarar groddakerlingar og Gísli stóð sig ágætlega í hlutverki flota- foringjans enda búinn að öðlast nokkra þjálfun í æðri manna sið- um niðri í Þjóðleikhúsi. En þegar þeirra skötuhjúa naut ekki við var eins og púðrið blotnaði og kanónan gapti þögul mót áheyrandanum. Leikrit Rattigans er sum sé ágætis einþáttungur þar sem samleikur tveggja vel skrifaðra persóna nýt- ur sín prýðilega en þvl miður þurfti Rattigan endilega að prjóna við einþáttunginn og því fór sem fór. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S J ÓN VARP Ungfrú ■I Dagskrá frá 30 fegurðarsam- — keppni Ungfrú heims— “Miss World" — verður sýnd í fullri lengd í dag kl. 17.30. Hluti dag- skrárinnar var sýndur í sjónvarpi sl. föstudags- kvöld en við slæm skilyrði heimur vegna veðurs. Keppnin fór fram í London 14. nóvember sl. og var það fulltrúi íslands, Hólmfríður Karlsdóttir, sem sigraði eins og kunn- ugt er. Fulltrúi Englands var í öðru sæti og sú | bandarískaíþriðjasæti. „Á eyðiey“ nýtt framhalds- leikrit „Á eyðiey" - leikrit barna og unglinga — verður flutt á rás 1 í dag kl. 17.00. Leikritið er eftir Reidar Anthonsen og er það byggt á unglinga- sögu eftir Kristian Elster. Alls eru þættirnir fjórir. Þýðandi er Andrés Kristjánsson en leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir. Leikritið var áður flutt í útvarpi árið 1974. f því segir frá þremur drengjum sem eru í fjalla- ferð í sumarleyfi sínu. Þeir villast í þoku og koma að vatni nokkru þar sem þeir finna bát. Þeir ákveða að róa yfir vatnið og reyna að komast til byggða. En þokan villir þeim sýn og þeir lenda á eyðieyju úti í vatninu þar sem þeir verða fyrir því óhappi að missa bátinn frá sér. Sagan af Adele H — frönsk bíómynd ■■■■ Franska bíó- 00 40 niyndin „Sagan ZZ — af Adele H“ er á dagskrá sjónvarps kl. 22.40 í kvöld en myndin er frá árinu 1975. Leikstjóri er Francois Truffaut og í aðalhlut- verkum eru Isabelle Adj- ani og Bruce Robinson. Myndin er byggð á dag- bókum og bréfum dóttur franska skáldsins Victors Hugos. Hún fær ofurást á Isabelle Adjani og Bruce Robinson í hlutverkum sín- um. breskum liðsforingja og I Þýðandi er ólöf Péturs- eltir hann til Nova Scotia. I dóttir. Dick og Jane með barn sitt og heimilishund. Glatt á hjalla bandarísk bíómynd ■■■■ Bandaríska bíó- 01 10 myndin „Glatt LtY— á hjalla" (Fun with Dick and Jane) er fyrri bíómynd kvöldsins. Hún er frá árinu 1977 og er leikstjóri Ted Kotcheff. f aðalhlutverkum eru George Seagal og Jane Fonda. Kvikmyndahand- bókin gefur myndinni þrjár stjörnur í einkunn af fjórum mögulegum. Þegar Dick Harper missir vinnuna kemst fjöl- skyldan í kröggur. Þau Jane, kona hans, sjá ekki annað ráð vænna en að gerast ræningjar til að sjásérfarborða. Þýðandi er Kristmann Eiðsson. ÚTVARP LAUGARDAGUR 23. nóvember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn 7.15 Tónleikar, pulur velur og kynnir. 7.20 Morguntrimm. 7.30 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesiö úr forystugreinum dagblaðanna. Tönleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón- leikar. 9.30 Oskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegtmál. Endurtekinn þáttur frá kvðld- inu áður I umsjá Margrétar Jónsdóttur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, framh. 11.00 Bókaþing. Gunnar Stefánsson dag- skrárstjóri stjórnar kynning- arþætti um nýjar bækur. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur ( vikulokin. 15.00 Elly Ameling syngur lög eftir Franz Schubert. Rudolf Jansen leikur á planó. (Hljóðritun frá Schubert- hátlð I Hohenemshöll I Aust- urrlki Ijúnlsl.). 15.40 Fjölmiðlun vikunnar Margrét S. Björnsdóttir endur- menntunarstjóri talar. 15.50 Islensk mál. Asgeir Blöndal Magnússon flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Listagrip. Þáttur um listir og menningarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. 17.00 Framhaldsleikrit barna og unglinga: .A eyðiey" eftir Reidar Anthonsen. Leik- stjóri: Brlet Héðinsdóttir. Aðurútvarpað 1974. 17.30 Samleikur I útvarpssal. Kjartan Oskarsson og Krist- inn Gestsson leika pólska tónlist fyrir klarinett og planó. 14.20 Bayern Munchen — Werder Bremen. Bein útsending frá leik þess- ara liða á Ólympiuleikvang- inum I Múnchen. 16.15 Enska knattspyrnan. Umsjónarmaður Bjarni Felix- son. 17.00 Móöurmáliö. Framburður. Endursýndur sjötti þáttur. 17.10 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felix- son. 17.30 Ungfrú heimur. Dagskrá frá fegurðarsamkeppni „Miss World" sem tram fór ILondon 14. nóvembersl. 19.20 Steinn Marcó Pólós. (La Pietra di Marco Polo). a. Tvær kaprlsur eftir Tad- eusz Baird. b. Intermezzo eftir Stefan Kisielewski. c. Þrlr mlnlatúrar ettir Krzysztof Penderecki. d. Fjórar kaprls- ur ettir Tadeusz Paciorki- ewicz. Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 Elsku pabbi. Þáttur I umsjá Guðrúnar Þóröardótt- ur og Sögu Jónsdóttur. 19.55 Leikrit: „Þjóðargjöf" eftir Terence Rattigan. Endurtek- Nlundi þáttur. Italskur fram- haldsmyndaflokkur um æv- intýri nokkurra krakka I Feneyjum. Þýðandi Þurlður Magnúsdóttir. 19.50 Fréttaágripátáknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Staupasteinn. (Cheers). Bandarlskur gam- anmyndaflokkur. Þýðandi Guöni Kolbeinsson. 21.10 Glatt á hjalla. (Fun with Dick and Jane). Bandarlsk blómynd frá 1977. Leikstjóri Ted Kotch- eff. Aðalhlutverk George Segal og Jane Fonda. Þegar Dick Harper missir vinnuna kemst fjölskyldan I kröggur. ið frá fimmtudagskvöldi. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. 22.15 Veöurfregnir. Orö kvölds- ins. 22.25 A ferð með Sveini Einars- syni. 23.00 Harmonfkuþáttur. Umsjón Högni Jónsson. 23.30 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Um- sjón: Jón örn Marinósson. 01.00 Dagakrárlok. Næturút- varp á rá» 2 til kl. 03.00. Þau Jane, kona hans, sjá ekki annað ráð vænna en aö gerast ræningjar til að sjá sér farborða. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.40 Sagan af Adele H. (L'historie d'Adéle H). Frönsk blómynd frá 1975. Leikstjóri Francois Truffaut. Aðalhlutverk Isabelle Adjani og Bruce Robinson. Myndin er byggð á dagbókum og bréfum dóttur franska skáldsins Victors Hugo. Hún fær ofurást á breskum liðs- foringja og eltir hann til Nova Scotia. Þýðandi ólöf Péturs- dóttir. 00.20 Dagskrárlok. Laugardagur 23. nóvember 10.00—12.00 Morgunþáttur. Stjórnandi. Sigurður Blðndal. Hlé. 14.00—16.00 Laugardagur til lukku. Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00—17.00 Listapopp. Stjórnandi. Gunnar Salvars- son. 17.00—18.00 Hringborðiö. Stjórnandi. Sigurður Einars- son. Hlé. 204)0—214)0 A svörtu nótunum. Diana Ross og The Supre- mes, þriöji og slöasti þáttur. Stjórnandi: Pétur Steinn Guðmundsson. 21.00—22.00 Dansrásin. Stjórnandi. Hermann Ragnar Stefánsson. 22.00—23.00 Bárujárn. Stjórnandi. Siguröur Sverris- son. 23.00—24.00 Svifflugur. Stjórnandi: Hákon Sigurjóns- son. 24.00—03.00 Næturvaktin. Stjórnandi. Jón Axel Ólafs- son. Rásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1. SJÓNVARP LAUGARDAGUR 23. nóvember

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.