Morgunblaðið - 23.11.1985, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
t
Föstudaginn 22. og laugardaginn 23. verður
víkingaskipið okkar f Blómasal drekkhlaðið villibráð.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja
prófa eitthvað nýtt.
. Viö bjóðum upp á:
Hrelndýr - villlgæs - önd - rjúpu - sjófugla
- helðalamb - graflax - sllung o.fl.
Borðapantanir í síma 22322 - 22321.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA f"* HÓTEL
Árnaí
— eftirGunnar
Hauksson
Enn á ný göngum við sjálfstæð-
ismenn til prófkjörs til þess að
velja menn og konur á framboðs-
lista flokksins fyrir væntanlegar
borgarstjórnarkosningar. Valið er
erfitt fyrir marga, því ágætisfólk
hefur gefið kost á sér til starfa
fyrir flokkinn.
Einn þeirra sem hefur gefið kost
á sér í prófkjörið er Árni Sigfús-
son.
Árni hefur verið virkur í starfi
inne.n Sjálfstæðisflokksins í árar-
aðir, fyrst sem stjórnarmaður í
Heimdalli, og síðan sem formaður.
Hann var kosinn formaður á fjöl-
mennasta aðalfundi sem þar hefur
verið haldinn, og hlaut glæsilega
kosningu. Margar nýjungar í fé-
lagsstarfi Heimdallar litu dagsins
ljós, og dreif hann félagið upp úr
lægð áranna á undan. Ljóst er að
félagið nýtur enn góðs af for-
mannstíð hans. Störf hans í
Heimdalli vöktu athygli, ekki ein-
ungis fyrir hina félagslegu hlið
mála, heldur einnig fyrir hans
pólitíska innsæi, sem kom glöggt
í ljós.
Náin kynni tókust með okkur
Árna þegar hann tók við fram-
öruggt sæti
Árni Sigfússon
„Árni er nýkominn að
utan úr námi sem mjög
tengist borgarmálefnum
og á örugglega eftir aö
nýtast okkur borgar-
búum vel, ef við berum
gæfu til þess að kjósa
hann í öruggt sæti í próf-
kjörinu nú um helgina.“
kvæmdastjórastöðu Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
ásamt framkvæmdastjórastöðu
Landsmálafélagsins Varðar.
Störfuðum við Árni saman í rúm
tvö ár er ég gegndi formennsku í
Verði. Þeir fjölmörgu sjálfstæðis-
menn sem þekkja til Landsmálafé-
lagsins Varðar vita af þeirri nauð-
syn sem er á margbreytileika fé-
lags- og stjórnmálastarfs í slíku
félagi. Áhugi Árna og frumkvæði
til þess að gera hag félagsins sem
mestan var einstakur og mikill
styrkur fyrir mig sem formann.
Var allt starf hans unnið af þekk-
ingu að þar gat verið um mun eldri
og lífsreyndari mann að ræða.
Þegar ég frétti að Árni ætlaði
að gefa kost á sér í þessu próf-
kjöri, varð ég mjög ánægður, ekki
sist flokksins vegna, því að hæfari
ungan mann getur Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki fengið í þau störf
sem borgarstjórnar er að glíma
við.
Árni er nýkominn að utan úr
námi sem mjög tengist borgarmál-
efnum og á örugglega eftir að nýt-
ast okkur borgarbúum vel, ef við
berum gæfu til þess að kjósa hann
í öruggt sæti i prófkjörinu nú um
helgina.
Höíundurer rersluuarstjóri.
Hver á 2. sætið?
Stutt hugleiðing í tilefni prófkjör sjálfstæðismanna
Komið og skoðið
tilboð vikunnar
á brúsapallinum
v/Miklubraut
L sími 621055.
— eftirAstvald
Magnússon
Margir vel hæfir frambjóðendur
gefa kost á sér í 2. sæti framboðs-
listans í prófkjörinu og ekki nema
gott eitt um það að segja.
Stuðningsmenn þeirra fram-
bjóðenda, sem sérstaklega óska
eftir stuðningi í 2. sætið, benda á
ýmis rök máli sínu til stuðnings.
Rökin eru margskonar, m.a. þau
að einn frambjóðandi sé dugleg og
hæf kona, annar frambjóðandi
vegna dugnaðar og ósérhlífni og
árangurs af starfi sínu I borgar-
málum, sá þriðji vegna reynslu
sinnar og sá fjórði vegna þess að
hann sé forseti borgarstjórnar og
að forseti borgarstjórnar eigi 2.
sætið.
Ef rök stuðningsmanna Magn-
úsar L. Sveinssonar, núverandi
forseta borgarstjórnar, sem verið
hefur forseti borgarstjórnar í
u.þ.b. 5 mán. og tók við því emb-
ætti af Páli Gíslasyni, sem gegndi
því eftir brottför Alberts og Mark-
úsar Arnar, eru skoðuð, kemur í
ljós að þau fá ekki staðist.
í auglýsingu frá stuðnings-
mönnum Magnúsar segir m.a.:
„I þessu prófkjöri getur
enginn eignað sér neitt
sæti. Til hvers er fólk
þá að fara í prófkjör. Er
t.d. beiðni þeirra um
stuðning, sem ekki eru
borgarfulltrúar í dag,
árás á þá sem eru borg-
arfulltrúar fyrir, eða
ódrengileg beiðni um að
víkja einhverjum núver-
andi borgarfulltrúa úr
öruggu sæti?
„Við minnum á að 2. sætið er
sæti forseta borgarstjórnar.“
Þetta er rangt. Það er engin regla
um það að sá sem lendir í 2. sætinu
verði forseti borgarstjórnar. T.d.
má benda á það, að Álbert Guð-
mundsson varð 3. í síðasta próf-
kjöri og var hann valinn forseti
borgarstjórnar. Mörg önnur dæmi
eru til þar sem forseti borgar-
stjórnar og 2. sætið eiga enga
samleið.
í grein Björns Vernharðssonar,
stuðningsmanns Magnúsar, í
Morgunblaðinu sl. fimmtudag seg-
ir eftirfarandi: „Þeir sem eru að
biðja sjálfstæðismenn að kjósa
einhvern annan í 2. sætið eru í
raun að biðja sjálfstæðismenn um
að víkja Magnúsi L. Sveinssyni úr
forsetastól, slíkt er ekki drengi-
legt“ o.s.frv.
Hver var að tala um drengskap?
Svona málflutningur er engum til
sóma. Að væna mikinn fjölda sjálf-
stæðismanna um ódrengskap í
þessu sambandi er áróður af verstu
tegund og ekki til framdráttar
þeim sem til er ætlast.
I þessu prófkjöri getur enginn
eignað sér neitt sæti. Til hvers er
fólk þá að fara í prófkjör. Er t.d.
beiðni þeirra um stuðning, sem
ekki eru borgarfulltrúar í dag, árás
á þá sem eru borgarfulltrúar fyrir,
eða ódrengileg beiðni um að víkja
einhverjum núverandi borgarfull-
trúa úr öruggu sæti? Nei, titlar
skapa frambjóðendum engan guð-
legan rétt, a.m.k. ekki í Sjálfstæð-
isflokknum, og ekki drengilegt að
fara með ósannindi i þvi sambandi.
Höfuadur er skrifstofusijóri.
t