Morgunblaðið - 23.11.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
21
í tilefni af prófkjöri
— eftir Auöi
Auðuns
Tilefni þess að ég nú, þegar próf-
kjör er framundan, sting niður
penna er annars vegar það að leið-
rétta misskilning og hins vegar að
vara flokkssystkini min við and-
varaleysi.
Varðandi hið fyrra vona ég að
enginn fari að telja mér það til
yfirlætis þegar ég rifja það upp,
að á borgarstjórnarferli mínum í
6 kjörtímabil var ég í 2. sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í 5 borgarstjórnarkosningum.
Jafnframt var ég forseti borgar-
stjórnar síðustu 4 kjörtímabil mín.
Nú er mér sagt að ýmsir telji að
forseti borgarstjórnar sé sjálf-
sagður i 2. sætið á framboðslistan-
um, má mikið vera ef ég hefi ekki
rekist á það einhvers staðar á
prenti að sú hefð hafi skapast.
Detti einhverjum í hug að vísa um
það til þeirra ára sem ég gegndi
forsetastarfi vil ég leiðrétta þann
misskilning. Það sem réði því að ég
var í 2. sæti framboðslistans mun
einfaldlega hafa verið það póli-
tíska mat, að listinn höfðaði frekar
til kjósenda með konu ofarlega í
sæti. Þess má geta að prófkjör var
aðeins einu sinni í minni borgar-
fulltrúatíð. Sé hægt að tala um
einhverja hefð eða fordæmi á
þessum árum var það einfaldlega
þetta, að kona skipaði 2. sætið á
framboðslista flokksins og þá skip-
an teldi ég æskilegt að endurvekja.
Nú hafa ýmsir frambjóðendur
lýst því yfir að þeir stefni að því
að hljóta 2. sætið í prófkjörinu og
þar á meðal okkar ágæti flokks-
bróðir, sem gegnt hefur embætti
forseta borgarstjórnar nú um
nokkurra mánaða skeið. Ég tel
reyndar hvorki hann né aðra á
prófkjörslistanum sjálfsagða í 2.
sætið. Hinsvegar fellur mér það
vel að menn keppi að því að ná
hátt í prófkjörinu og það gladdi
mig að sjá, að meðal þeirra, sem
stefna á 2. sætið, er ein kona,
Katrín Fjeldsteð læknir. Ég ætla
ekki að fara að skrifa einhverja
lofgerð um Katrínu, hún hefur
kynnt sig best sjálf með störfum
sínum í borgarstjórn á kjörtíma-
bilinu. Hún er traustur fulltrúi og
„hefur bein í nefinu".
Ég sný mér þá að því sem er
aðaltilefni þessa greinarstúfs.
Vitna ég þá fyrst í leiðara Morgun-
blaðsins fimmtudaginn 21. nóv-
ember, en í hugleiðingum um próf-
„Sé hægt aö tala um
einhverja hefð eða for-
dæmi á þessum árum
var það einfaldlega
þetta, að kona skipaði
2. sætið á framboðslista
flokksins og þá skipan
teldi ég rétt að endur-
vekja.“
kjör segir þar m.a. að ef litið sé
til úrslita borgarstjórnarkosninga
í Reykjavík síðan 1970 „er ekki
unnt að segja annað en prófkjörin
hafi leitt til viðunandi niðurstöðu
fyrir sjálfstæðismenn". Þessu
mótmæli ég og tek sem dæmi
niðurstöðu í prófkjörinu fyrir síð-
ustu borgarstjórnarkosningar,
sem ég tel að hafi orðið Sjálfstæð-
isflokknum til lítils sóma, þá náði
kona að komast í 5. sæti og síðan
loks önnur i 10. sæti. Kjörnefnd
og fulltrúaráðsfundur bættu þó
nokkuð hlut kvenna, því að sýnt
var að ekki var gerlegt að bjóða
fram listann eins og hann kom úr
prófkjörinu. Það yrði þokkalegt ef
reykvískir sjálfstæðismenn lykju
kvennaáratugnum með ámóta
prófkjörsniðurstöðu og þá varð.
Ég undrast það ef menn gera sér
ekki grein fyrir afleiðingum þess
að sniðganga konur þegar valdir
eru fulltrúar flokksins í kosning-
um. Halda menn til dæmis að ungu
konurnar, áhugasamar um þjóð-
mál, vel menntaðar og hæfar, fylli-
lega á borð við karlmenn, laðist
að flokki, sem ekki gefur konum
meiri möguleika? Eg skora á
flokkssystkini mín, konur og karla,
að íhuga hvað andvaraleysi í þess-
um efnum getur kostað okkur.
Veitum konum öflugan stuðning í
prófkjörinu.
Höfundur er fyrrrerandi ráðherra,
þingmaður og borgarfulltrúi.
Fyrirlestur
um vatnafræði
á íslandi
KRISTINN Einarsson, vatnafræð-
ingur, flytur erindi um vatnafræði á
íslandi og hagnýtingu hennar, á
vegum Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags í stofu 201 í Árnagarði, mánu-
daginn 25. nóvember næstkomandi
klukkan 20.30.
Vatnafræði er ung grein á meiði -
náttúrufræða og þeir eru ekki
margir, sem hafa unnið að henni
hér á landi. Engu að síður er hún
mjög mikilvæg, t.d. þegar vatns-
orkuver eru byggð og leitað að
neyzluvatni. Á vettvangi alþjóð-
samstarfs er nú unnið að því að
auka og breiða út þekkingu í vatna-
fræði og miðla henni á milli þjóða.
Sérstök áherzla er lögð á að hvetja
menn til þess að nýta vatnsforða
jarðar á skynsaman hátt. Fyrr en
seinna mun óvarkárni og sóun á
vatni koma mönnum í koll. íslend-
ingar telja sig hólpnari í vatnsmál-
um en margur annar og hafa oft
hælzt um af því að eiga tærasta
vatn í heimi. Samt sem áður vita
flestir fátt annað en það, að „við
fáum vatn úr vatnskrananum"
eins og stendur í þýddri bók hand
börnum. í erindu nk. mánudag
verður hins vegar fjallað um sitt-
hvað úr sögu vatnsins í veröldinni,
sem forvitni vekur.
Höfuðstaður
tækifæranna...
„Reykjavík er staður tækifæranna. Menn sækja á „mölina“ vegna þess að þar
eru fjölbreyttir möguleikar í starfi og leik. En það er ekki nóg að vita af tæki-
færunum; menn verða að grípa þau — og nýta þau. Við þurfum að tryggja að
Reykjavík verði áfram höfuðstaður tækifæranna. Það gerum við m.a. með þvi að
skapa kynslóðinni, sem nú vex úr grasi, skilyrði til að þroskast með þeim hætti
að þegar tímar líða grípi hún ekki aðeins tækifærin, heldur nýti þau og skyn-
samlegaí*
r
Arni Sigfússon
frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík.