Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
39
Góð, en
ekki alveg
nógu sann-
færandi
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Dexy’s Midnight Runners
Don’t Stand Me Down
Phonogram/Fálkinn
Eftir þrjú löng ár hefur Kevin
Rowland loks tekið sig saman i
andiitinu og fylgt hinni frábæru
plötu, Too Rye Ay, eftir. Það, að
fylgja slíkri skífu eftir, er erfitt
en hin langa töf gerir það að
verkum að samanburðurinn við
Too Rye Ay verður óhagstæðari
en ella. Ekki svo að skilja að
Don’t Stand Me Down sé slök
plata — fjarri því — en hún á
talsvert langt í land til að geta
talist jafnoki Too Rye Ay.
Á ýmsu hefur gengið í sam-
starfinu hjá Rowland og félögum
hans í hljómsveitinni á liðnum
árum og sífelldar mannabreyt-
ingar m.a. verið ein orsök þess
hversu erfiðiega hefur gengið að
koma frá sér plötu. Af þeim
8—10 manna hópi, sem stóð að
upptökunum á Too Rye Ay
(Ymissa hluta vegna er ákaflega
erfitt að henda reiður á hver og
hver á ekki sæti í sveit Rowlands)
eru aðeins tveir eftir á þessari
plötu, þau Helen O’Hara (hún
var reyndar aðeins skráð sem
„back-up“ söngvari á Too Rye
Áy) og Billy Adams.
Þrátt fyrir hinar róttæku
mannabreytingar væri ljótt að
segja að tónlist Dexy’s hefði
tekið einhverjum umtalsverðum
breytingum. Fjandakornið, hún
er svo að segja nákvæmlega eins
og fyrir þremur árum nema hvað
yfirbragðið er e.t.v. ívið þyngra
og það má að mestu leyti rekja
til meðhöndlunar tónlistarinnar
í hljóðverinu.
Þessi nýja plata Dexy’s sver
sig mjög í ætt við Too Rye Ay
en hefur þó ekki til að bera þann
stöðugleika sem gerði það að
verkum að Too Rye Ay var valin
plata ársins 1982 af íslenskum
plötugagnrýnendum. Inn á milli
eru þrælskemmtileg lög, t.d.
Listen to This svo og One of
Those Things, sem reyndar hlýt-
ur að vera soðið upp úr Werewol-
ves in London eftir Warren Ze-
von. Lögin eru svo æpandi lík.
ÖIl fyrri hlið plötunnar er dálítið
seintekin en þar eru þó hörku-
góðir sprettir. Inn á milli dettur
platan nánast niður á samræðu-
plan og slíkt kann ég ekki alveg
að meta.
Prófkjör Sjálfstæöismanna
24. og 25. nóv. 1985
OSLM
KOMU12.S^ETI
.. m4
KatrínGunnarsdótur,
,11»^
iGuðtnun^L-—'
Katrín er jafn sjálfsögð í 2. sæti og Davíð í 1. sæti-
BORGARimAR VEGNA!
Kosningaskrifstofan í Lækjargötu 2 3. hæö (Nýja bíó)
er opin klukkan 16-22 og 10-22 um helgina.
Símar 11933 og 621808
Stuðningsmenn
Stuð'as(
Opiöídagkl. 10—4.
Húsgagnasýning sunnudag 1-4
hátíð
sófasett á frábæru verði
T.d.
Leðursófasettf. kr. 75.500stgr.
Bláskógap
Ármúla 8. S. 686080 — 686244,^“^<,l—^^™
Tausófasettf. kr. 42.750stgr.
Stakir leöurstólar f. kr. 29.800stgr.
Stakirtausófarf.kr. 18.900s\gr.
Raösófasett f. kr. 41.700stgr.