Morgunblaðið - 23.11.1985, Side 50

Morgunblaðið - 23.11.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 íiCEAAIirt c& þrauka,, czf-i, jpíi mfSSi'r af Hallc^s-loalastjörnunAÍ." ásí er.... ... aö hjúkra hon- um vel. Síminn hennar er bilaður... Dýrtíðin, maður minn! Styrkjum meirihlut- ann — Styðjum Árna Velvakandi: Sunnudaginn 24. og mánudag- inn 25. nóvember fer fram próf- kjör sjálfstæðismanna í Reykja- vík vegna borgarstjórnarkosn- inganna í vor. Allir flokks- bundnir sjálfstæðismenn hafa rétt til að taka þátt í prófkjör- inu. Mikilvægt er að vel takist til um val framboðslista flokks- ins því nauðsynlegt er að sjálf- stæðismenn haldi meirihluta sínum í bortrarstjórn Reykjavík- Samband dýravernd- unarfélaga íslands Skúla Helgasyni prentara leikur hugur á að vita hvaða félög stóðu að stofnun Sambands dýra- verndunarfélaga íslands á sínum tíma? Einnigþætti honum fróðlegt að vita hvenær síðasti sambands- fundur var haldinn og hvernig flóamarkaður í Hafnarstræti teng- ist þessu? Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 11.30, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálk- unum. ur. Góð þátttaka í prófkjörinu er styrkur í þeirri baráttu sem framundan er. Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, hefur reynst mjög farsæll í störfum. Maður hittir varla þann Reykvíking, sem ekki vill sjá Davíð í stóli borgarstjóra í Reykjavík. Því er mikilvægt að sjálfstæðismenn veiti honum ótvíræðan stuðning í fyrsta sæti listans. En til þess að styrkja enn frekar framboðslistann vil ég vekja athygli á Árna Sigfússyni. Árni hefur gefið út blað sem kallast Höfuðborgin, þar sem hann setur ítarlega fram tillög- ur sínar í borgarmálum. Það er athyglisvert við málflutning Árna, að hann leggur höfuðá- herslu á að áfram verði haldið að draga úr álögum á borgarbúa og að ekki verði borgarbúum íþyngt með frekari skattheimtu. Og í blaði sínu segir hann: „Af þeim sökum þarf að koma til aukin rekstrarhagræðing og efld atvinnustarfsemi sem standi undir þjónustukostnaði." Þetta er meginatriði. Það er ekki hyggilegt fyrir frambjóð- endur að lofa stuðningi við hin og þessi málefni án þess að huga að því hvernig afla skuli tekn- anna. Sjálfstæðisflokknum er því mikill styrkur af Árna Sigfús- sjni í komandi kosningabaráttu. Árni hefur sýnt það og sannað með skeleggum málflutningi og kröftugu pólitísku starfi á meðal ungra sjálfstæðismanna. Það er með góðri samvinnu unnt að styðja Árna Sigfússon í öruggt sæti. Sigurbjörn Magnússon, varaformaður Sanibands ungra sjálfstæðismanna. Tíma- skekkja á Alþingi Fyrir nokkrum dögum sagði formaður Alþýðubandalags- ins, Svavar Gestsson, í ræðu á Alþingi: „Nú eru 14 ár til aldamóta." Um næstu áramót eru 15 ár til aldamóta 85+15=100. Öldinni lýkur ekki fyrr en 31. desember árið 2000. Svipuð villa kom fram í ræðu þáverandi formanns Alþýðuflokksins, Benedikts Gröndal, er hann sem forsæt- isráðherra flutti áramóta- ræðu sína 31. des. 1979 og sagði: „nú er áttunda ára- tugnum að ljúka.“ Gamall fjósamaður Leiðrétting Þau leiðu mistök urðu í pistli er birtist í Velvakanda 21. nóvember sl. að bréfritari er rangfeðraður. Matthías sem ritar um afkomend- ur Matthíasar Jochumssonar er Frímannsson en ekki Finnsson. Velvakandi biðst velvirðingar á þessu. Víkverji skrifar Umferðarráð upplýsti fyrir skemmstu að 26.700 ökumenn hefðu verið kærðir fyrir ölvun við akstur á áratugnum 1974 til 1984 og þar af á tólfta þúsund í Reykja- vík einni saman. Það fylgdi ekki fréttinni hvort hér væri rétt eitt heimsmetið okkar íslendinga mið- að við höfðatölu, en ekki er það ólíklegt. Það vill til að landið er stórt og olnbogarýmið mikið, þó að það sé raunar í þéttbýlinu, eins og sjá má af fyrrnefndum tölum, sem þetta ófyrirleitna fólk teflir helst við dauðann. Spurningin er hvort við séum nógu árvökul og þó kannski ekki síður hvort við séum nógu ströng og ákveðin. Hvernig fylgjumst við til dæmis með því að lögbrjótarnir virði ökubannið? í lesendabréfi nú nýverið upplýsti sárgramur bréf- ritari að réttindalaus nágranni hans, sem hafði raunar sitthvað fleira á samviskunni en ölvunar- aksturinn, væri eftir sem áður á ferð og flugi á bíldruslunni. Ruku menn upp til handa og fóta og tóku í lurginn á kauða? Sjálfur hafði Víkverji eitt sinn fregnir af at- hafnamanni svokölluðum sem víl- aði ekki fyrir sér að aka bíl sínum þótt hann hefði engin réttindin það árið. Hann mátti oft suður á Kefla- víkurvöll og hafði þá þann háttinn á, til þess að forðast lögregluna í hliðinu, að leggja bílnum utan vallar og skríða bara undir girð- inguna! —. .. Menn verða ekki athafnamenn rétt svona út á andlitið á sér. XXX bílbeltamálinu og upphefja þenn- an venjulega barlóm um persónu- frelsið og hvað það nú heitir. Víkjum nú snöggvast sögunni til Bretlandseyja þar sem þeir eru víst ekki barnanna bestir held- ur ökuþrjótarnir; að minnsta kosti hafa menn á þeim slóðum vaxandi áhyggjur af ölvunarakstrinum. En þeir sýnast að auki ekki ætla að láta sitja við masið tómt. Nú er opinber stofnun sem hefur farið ofan í þessi mál búin að leggja til að lögreglunni verði heimilað að stöðva hvern þann ökumann sem henni sýnist og hvenær og hvar sem henni sýnist til þess að ganga úr skugga um að hann sé allsgáður. Ætlunin er að taka menn af handahófi ef af verður og kanna með þessum venjulegu mælingum hvort áfengi sé í blóði þeirra og þá hve mikið. Talsmaður annarrar stofnunar breskrar, sem líka sinnir öryggis- málum, lét nýverið hafa eftir sér í blaðaviðtali: „Ef hryðjuverka- menn dræpu jafn marga hér á Bretlandseyjum og falla fyrir ölv- uðum ökumönnum, þá ætti al- menningur naumast nógu stór orð til þess að lýsa hneykslun sinni." En ef því yrði hreyft hér heima að við tækjum upp áþekk vinnu- brögð og hér hefur verið lýst, þá mundu eflaust einhverjir rjúka upp til handa og fóta ‘*\aiiPg|jÍr XXX r Oneitanlega hefur verið spaugi- legt að fylgjast með því hvern- ig þeir hafa verið að kljást um það upp á síðkastið, forsætisráðherra og formaður þingflokks framsókn- armanna, hvor þeirra hafi dvalist lengur erlendis það sem af er ár- inu. Við síðustu könnun hafði Steingrímur forustuna og hafði lagt útland undir fót fjórum sinn- um og í samtals 48 daga en Páll fylgdi fast á eftir og nálgaðist fimmta dagatuginn óðfluga. Kannski er það ein leiðin út úr efnahagsvanda okkar að velja einungis heimakæra stjórnmála- menn til forystu hjá okkur. Með því sem þá mundi sparast gætum við síðan stofnað nýjan bjargráða- sjóð og kallað hann Heimasetu- sjóðinn. Við gætum meira að segja skrifað hann með zetu til þess að gleðja menntamálaráðherra sem er alveg trítilóður zetumaður. Yrðum að hafa þennan uppáhalds- staf hans í eignarfalli að vísu, en Heima-z-sjóður íslands lítur svo skrambi vel út á pappírnum. Og ef við fengjum svo einhvern þjóðkunnan okrara til þess að ávaxta sjóðinn þá yrðum við komin á grænu greinina áður en árið væri á enda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.