Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
51
pfrn
av; n|[ml
2
■■"H M ^ Al
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Eiturlyfjasmyglara
í ævilangt fangelsi
Magnús Guðmundsson, Strand-
götu 3, Patreksfirði skrifar:
Kæri Velvakandi:
Við hin válegu tíðindi um eitur-
lyfjasmygl til fslands að undan-
förnu, hlýtur hver einasti íslend-
ingur, sem á annað borð hugsar
eitthvað, að fyllast skelfingu og
krefjast stóraðgerða.
Því ber að fagna að við höfum
eignast duglega og örugga lög-
gæslumenn, sem hafa náð mörgum
þessara glæpamanna, sem ég kalla
morðingja af versta tagi, vegna
þess að hverjum manni sem tekst
að tæla mann til þess að neyta
eiturs, kvelur fórnarlambið til
dauða, og samfélagið verður um
leið fyrir ómældum þjáningum og
skaða.
Nei, þeir menn sem stuðla að eða
Húsmóðir skrifar:
Ég gladdist þegar því var haldið
fram í útvarpinu, að almennings-
álitið gæti haft áhrif, og ætti að
fordæma hryðjuverk og misbeitingu
valds. Hans heilagleiki páfinn í Róm
segir, að fyrir góðum málstað eigi
ekki að berjast með hryðjuverkum.
Hann veit að hryðjuverkaskólar eru
bara reknir í alþýðulýðveldunum.
Marxisminn leyfir ekkert almenn-
ingsálit, og engan verkfallsrétt.
Lenín fyrirskipaði að öll mótspyma
skyldi miskunnarlaust barin niður.
Varla hefur hann gert þetta af ótta
við innrás Bandaríkjamanna, eins
og sandinistarnir segjast þurfa að
gera núna. Þess vegna sker það
mann í eyrun þegar marxistarnir
eru að hneykslast á mannréttinda-
brotum í öðrum löndum, en sjálfir
berjast þeir fyrir stefnu, sem leyfir
engin mannréttindi.
Fyrir nokkrum árum var frægt
leikritaskáld Tékka rétt einu sinni
dæmt í tveggja ára einangrun. Þá
stofnuðu frægir leikarar og leikrita-
skáld félag, og gerðu leikrit upp úr
réttarhöldunum, sem sýnt var víða
um lönd, þ.á.m. í vestur-þýska sjón-
varpinu. Fjölmiðlarnir okkar
eru uppvísir að því að smygla og
dreifa eitri í íslensku þjóðina skulu
DÆMAST ÞYNGSTU REFS-
INGU, sem er ÆVILANGT
FANGELSI. Hér þýða engin vettl-
ingatök við slíkan glæpalýð, það
er krafa þjóðarinnar. Núna fyrir
nokkrum dögum var eiturlyfja-
smyglari erlendis dæmdur í 30 ára
fangelsi og sérstaklega tekið fram
að maðurinn yrði ekki náðaður.
Þetta sýnir að eiturlvfjasmyglarar
eru settir á bekk með morðingjum
víðast hvar erlendis.
Ef stjórnvöld íslands taka ekki
innrás eiturlyfjasmyglara til ís-
lands föstum og alvarlegum tök-
um, eru þau ekki stöðu sinnar verð.
Margar spurningar vakna um
þessa voðalegu starfsemi, sem
menn eru farnir að stunda hér á
landi, en ég geymi þær að sinni.
nefndu þetta auðvitað ekki, enda
ekki sænskt, og ekki er enn farið
að þýða eina leikritið sem gerist í
rússneska Gúlaginu, þó það sé skrif-
að af Nóbelsskáldi. Ekki hefur held-
ur orð heyrst í útvarpinu eftir
nokkurt skáld úr austur-blokkinni,
sem lýst hefur ástandinu sem ríkir
i kommúnistaríkjunum. Almenn-
ingsálitið hér á ekki að vera upp á
marga fiska, því fæðið hefur verið
mjög einhæft í ríkisfjöimiðlunum.
Grátbroslegt var að heyra sam-
þykkt Alþýðubandalagsins um al-
heimsmálin. Lýst var stuðningi við
einhliða afvopnun, svo að auðveld-
ara væri fyrir Rússa að halda áfram
að leggja þjóðir í hlekki marxism-
ans. Því var og haldið fram að
innrás Rússa og stríð þeirra í Afg-
anistan væri eins og Bandaríkja-
menn haga sér í sambandi við Nic-
aragua. Skyldi þurfa lærðan sagn-
fræðing til að finna mismuninn?
Kirkjan hér hefur ekki verið okkur,
sem hræðumst marxismann og alla
þá kúgun og sult sem hann færir
hvar sem hann kemst til valda,
mikill styrkur. Hún virðist vilja
fyrirgefa illvirki kommúnismans 77
sinnum 7 sinnum.
Síma-
mál
í dreif-
býlinu
Velvakandi góður.
Þegar sjálfvirkur sími var
lagður hér í Staðarsveit á
Snæfellsnesi var ég ekki sátt
við að þurfa að bíða á þriðja
mánuð eftir fjölsímatæki.
Allt annað var tilbúið og
símtækin sjálf komin inn á
borð hjá fólki. Einnig var
gamli sveitasíminn óstarf-
hæfur.
Fyrir skömmu hitti ég konu
úr Borgarfirðinum og spurði
ég hana m.a. um sjálfvirka
símann sem ég vissi að verið
var að leggja þar um slóðir.
„Jú, það er búið að leggja
hann fyrir nokkru," sagði hún
mjög ánægð, „nú bíðum við
bara eftir fjölsímatækinu.
Það er ekki til eins og er.“
í framhaldi af þessu sam-
tali spyr ég póst og símamála-
stjóra: Þurfa framkvæmdirn-
ar að ganga svona fyrir sig?
Þessi tæki munu vera mjög
dýr en er þá ekki hagstæðara
að eiga þau tilbúin og geta
tengt þau strax og undir-
búningsvinnu er lokið?
En því miður er ekki allt
fengið þótt kominn sé sjálf-
virkur sími á heimilið. Þetta
á við þar sem síminn er
næstum jafn óvirkur og hann
er sjálfvirkur. Það er nefni-
lega oft ekkert betra að ná
sambandi nú en áður fyrr og
á mestu annatímum er það
vonlaust. Oft er rætt um hve
mikið öryggisleysi þetta er,
ef eitthvað kæmi fyrir á
heimilinu meðan síminn væri
bilaður.
Fólk kvartar einnig undan
því að jafnvel þótt hringt sé
í rétt númer næst samband
við allt annað og oftast í
öðrum landshluta. Vitaskuld
græðir Póstur og sími vel á
þessu því kröfunum fjölgar
ótæpilega hjá þeim sem lenda
í þessu.
Eitt vildi ég minnast á enn,
en það eru símareikningarnir.
Það er mjög bagalegt að
símum skuli vera lokað 10.
þess mánaðar sem reikningar
eru sendir út. Hér sunnan
fjalls á Snæfellsnesi fáum við
póstinn aðeins 2-3 í viku. Þótt
við sendum greiðslu strax um
hæl tekur það reikninginn og
greiðsluna oft viku til 10 daga
að komast leiðar sinnar. Póst-
þjónustan er því miður ekki
betri en þetta.
Svava S. Guðmundsdóttir,
Görðum.
COUMA/IMCTI'I IECK0M H0/10aEKM O.A P
M BCEC0K)3HH*1 teHMHCKMM KÖMMYHMCTMMECKHM
Veggspjald í borginni Luxor í Egyptalandi. Á því eru lofuð friður og eining
araba og Sovétmanna.
Sker í eyrun þegar
marxistar hneykslast
á mannréttindabrotum
Málverkasýníngu
SÓLVEIGAR
EGGERZ PÉTURSDÓTTUR
að Austurströnd 6 Seltjamamesí,
lýkur annaö kvöld,
Sunnudagínn 24. Nóvember.
Range Rover árgerö 1980 ekinn 85 þús. km. Allir
hugsanlegir aukahlutir. Bíll í sérflokki.
Upplýsingar í síma 92-3894
..... «
HENSON ÚTSALA
Skipholti 37 (gengió inn frá baklóó).
Opiöallavirkadagafrákl. 10.00—17.00,
einnig laugardaga.
HENSON
Reiöubúinn
til starfa
Ég skipaði sæti á lista Sjálfstæðisflokksins við síðustu
borgarstjórnarkosningar.
Sem varaborgarfulltrúi hef ég unnið að málefnum
borgarinnar, m.a. með setu í Umhverfismátaráði og
Umferðamefnd, auk þess sem málefni heyrnarlausra
og fatlaðra eiga hug minn.
Ég er reiðubúinn til slíkra starfa áfram, óski Sjálf-
stæðismenn þess.
Þessvegna tek ég þátt í prófkjöri flokksins nú.
Með kveðju
r
c