Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
*
Ferguson bjartsýnn
fyrir síðari leik
Skota gegn Ástralíu
— sjö leikmenn sem léku fyrri leikinn ekki med
ALAN Ferguson þjálfari Skoska
landsliösins í knattspyrnu til-
kynnti I gœr þá nítján leikmenn
sem koma til með aö leíka síöari
leikinn gegn Áströlum í Melbourn
miövikudaginn 4. desember
nnstkomandi. Mikiö er um forföll
í liöinu en engu aö síöur er Fergu-
son ekki í hinum minsta vafa um
aö líð hans muni tryggja sér snti
í lokakeppninni á nnsta ári.
„Viö erum sannfæröir um aö þaö
verður erfitt fyrir Ástrali aö vinna
upp tveggja marka sigur okkar á
miövikudaginn var. Þeir veröa þá
aö breyta leikaöferö slnni mikiö og
reyna aö sækja. Ég hef ekki trú á
því aö þeim takist aö skora tvö
mörk hjá okkur og ef þeir gera þaö
þá skorum viö bara eitt mark og
þaö dugar okkur áfram', sagöi
Ferguson í samtali viö AP frétta-
stofuna í gær þegar hann tilkynnti
hópinn sem leika mun í Ástralíu.
Eins og áöur sagöi er mikiö um
forföll í liöi Skota fyrir þennan leik.
Kenny Dalglish mun ekki leika meö
því hann vill frekar stjórna liöiö sínu,
Liverpool, en fara til Ástralíu.
Ferguson og hann ræddu málin
lengi áöur en Ferguson samþykkti
aö Dalglish yröi heima.
• Kenny Dalglich, Liverpool, gef-
ur ekki kost á sér í leikinn gegn
Áströlum 4. desember.
Aðdáandi Bremen
finnst myrtur
LÖGREGLAN í Bochum í Vestur-
Þýskalandi skýrði frá því á
fimmtudaginn aö þrítugur að-
dáandi og fylgismaöur knatt-
spyrnuliös Werder Bremen hefði
fundist látinn á járnbrautarteinum
í Bochum á fimmtudaginn.
Lögreglan sagöi aö hinn látni
heföi greinilega verið rændur, hon-
um misþyrmt og líklega hent fyrir
borö og slasast mikiö viö þaö. Síöar
um nóttina átti vöruflutningalest
leið þarna um og ók hún yfir mann-
jnn með fyrrgreindum afleiöingum.
Taliö er að maöurinn hafi veriö á
leiö til Múnchen eftir leik Bremen
viö Gladbach á mlövikudagskvöld-
iö. Bremen vann leikinn 1:2 og á aö
leika gegn Bayern í dag og veröur
leiknum sjónvarpaö beint hingaö til
islands.
Sigursælir
KNATTSPYRNULIO Áburðarverksmiöjunnar hefur átt góöu gengi
að fagna í firmakeppnum síöustu árin en þó aldrei sem á síðasta
sumrí. Af fimm keppnum, sem liöiö tók þátt í, sigraöi það í þrem-
ur, fékk silfriö í einni og skipaði fjóröa sæti í annarri. Auk þess
sigraöi liöið í árlegri keppni viö Sementsverksmiðjuna og hefur
því unniö til bikarsíns fjögur ár í röð. Jónas Jónsson hefur stjórnaó
líöinu undanfarin þrjú ár og agi og liðsandi góður eins og árangur-
inn ber meö sér. Meófylgjandi mynd er af hinu sigursæla líði Áburö-
arverksmiöjunnar.
Leikmaöurinn snjalli hjá Manch-
ester United, Gordon Strachan,
mun ekki heldur leika meö Skotum
þann 4. desember. United var til-
búið til aö kosta einkaþotu meö
hann til Ástralíu sunnudaginn 1.
desember en Ferguson vill fá hann
fyrr til sín og því varö úr aö hann
færi hvergi.
Fimm aörir leikmenn sem voru í
liöinu í síöasta leik Skota veröa ekki
meö í Ástralíu. Arthur Albiston,
Manchester United, Alan Hansen,
Liverpool og markvöröur Oldham
Andy Goram eru meöal þeirra sem
losna viö aö fara þessa erfiöu ferö.
Steve Archibald mun ekki leika
þennan leik og Jim Bett ekki heldur.
Bett meiddist í síðasta leik Aber-
deen en þá kom hann inná sem
varamaöur undir lok leiksins. Hann
fékk slæmt spark í hnéö og var
skorinn upp. Hann veröur frá æf-
ingum í nokkrar vikur.
Ferguson er samt hvergi smeikur
eins og sést af ummælum hans hér
aö framan Hann hefur valiö Neale
Cooper í landsliöiö í fyrsta sinn og
einnig Stuart McKimmie en þeir
leika báölr meö Aberdeen, liöinu
sem Ferguson stjórnar.
Liöiö er þannig ekipaö:
Markveröir eru þeir Jim Leighton
(Aberdeen), Alan Rough (Hibernian) og
Campell Money(St. Mirren)
Varnarmenn: Richard Gough (Dundee),
Maurice Malpas (Dundee), Neale Cooper
(Aberdeen), Stuart McKimmie (Aberdeen),
Steve Nicol (Liverpool), Alex McLeish
(Aberdeen) og Willie Miller (Aberdeen).
Framveröir veröa Frank McAvennie
(West Ham), Graeme Sharp (Everton),
David Speedie (Chelsea. Maurice Johnston
(Celtic) og Davie Cooper (Rangers).
Punktar
Tennlsstjarnan Boris Becker er
nú staddur í Ástralíu þar sem
hann undirbýr sig fyrir tennis-
mót sem þar fer fram í næstu
viku. Becker kom þangað í
gær en þá átti piltur afmæli
og var þetta í átjánda sinn á
ævi hans sem þaö gerist.
McEnroe hefur ákveölö aö
keppa á þessu móti og þar meö
eru þeir bestu allir komnir.
Lendl, McEnroe, Wilander og
Neckere.
ÞjálfariHanover í V-Þýska-
landi hefur veriö rekinn. Viö
skýröum frá því í gær aö þaö
stæöi til aö reka Biskup en nú
hefur orðið af því. Varamark-
vöröur liösins, Juergen Rynid
mun sjá um þjáfun liösins næstu
daga þar til þeir finna nýjan
þjálfara.
Fleiri þjálfarar voru látnir
fjúka í gær. Hiö fræga liö Inter
Milan rak þjálfar sinn, llario
Castagner í gær. Ákvöröun um
þetta þykir tekin á dálítiö furöu-
legum tíma því liðiö á aö leika
gegn Juventus á sunnudaginn
og gæti sá leikur ráöiö miklu um
hvort þessara félaga veröa
meistarar í ár.
Á Sport-Aid hátíöinni sem
fyrirhuguö er á næsta ári stend-
ur til aö keppt veröi í handknatt-
leik. Veriö er aö vinna aö því aö
þaö veröi úrvalslið frá Noröur-
löndum sem leika mun viö
Heimsliöiö. Þaö er aö sjálf-
sögöu Bob Geldof sem stendur
fyrir þessari uppákomu en
hann sá um hljómeikana Live—
Aid sem haldnir voru á þessu
ári.
• Maradona verður að láta skera sig upp viö hnémeiöslum á næstunni.
Maradona
í uppskurð
ARGENTÍNSKI knattspyrnusnill-
ingurinn Diego Armando Mara-
dona, sem leikur meö Napoli á
Ítalíu, hefur í hyggju aó láta skera
sig upp við hnémeiðslum í næsta
mánuöi.
„Þaö er læknisins aö taka loka-
ákvöröun um þaö hvenær skuli
skera mig,“ sagöi Maradona í sam-
tali viö ítalskt blaö í gær. „Ég gæti
trúaö aö þaö væri best aö gera
þetta í jólafríinu, þegar hlé veröur
gert á ítölsku knattspyrnunni. Ég
get ekki hugsaö mér aö eiga í ein-
hverjum hnémeiöslum í úrslita-
keppni heimsmeistaramótsins í
Mexíkó á næsta ári,“ bætti hann
viö.
Maradona hefur átt í þessum
hnémeiðslum sínum síöan í maí í
vor. Ef hann fer í uppskurð, mun
hann vera frá knattspyrnu í nokkrar
vikur. Þaö er ekki gott fyrir liö hans
Napoli, sem nú er í þriöja sæti deild-
arinnar. Forráöamenn Napoli eru
ekki ánægöir meö þetta.
• Dýri Guömundsson, FH, var kjörinn knattspyrnumaður ársins af
félögum sínum í FH. Hann er hér í leik gegn Keflavík sl. sumar.
Dýri bestur
hjá FH-ingum
Á uppskeruhátíó knattspyrnu- inn besti leikmaöur liösins áriö
deildar FH sem haldin var fyrir
skömmu var Dýri Guömundsson
kjörinn leikmaöur ársins hjá fé-
laginu. Góöur endir hjá Dýra sem
nú hyggst leggja skóna á hilluna
þó svo hann haldi áfram afskipt-
um af knattspyrnu.
Dýri Guömundsson lék áöur fyrr
meö Val og var meöal annars kjör-
1979 þegar Valsmenn voru uppá
sitt besta. Hann á aö baki fimm
landsleiki í knattspyrnu. Næsta
sumar mun hann starfa í meistara-
flokksráöi FH ásamt Þóri Jónssyni,
sem dvaliö hefur í Svíþjóö tvö síö-
astliöin ár, en hann lék áöur meö
FH og Val í knattspyrnu.