Morgunblaðið - 06.12.1985, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER1985
Stórstjömur Vestur-Þjóðverja
mæta íslendingum í kvöld
— í liðinu eru margir af snjöllustu handknattleiksmönnum heims
ÍSLENDINGAR og Vostur-Þjóö-
vorjar leika fyrsta landsleikinn í
handknattleik, af þremur, { kvöld
í Laugardalshöll. Vestur-Þjóöverj-
arnir komu til landsins í gær-
> kvöldi. Viö náðum tali af Jóhanni
Inga Gunnarssyni, þjálfara Kiel, í
Vestur-Þýskalandi til að forvitn-
ast hjá honum um vestur-þýska
landsliðið. Jóhann Ingi þekkir
mjög vel til undirbúnings lands-
liðsins, þar sem hann hefur verið
þjálfari hjá Kiel í 4 ár og einnig
þjálfaði hann íslenska landsliöið
fyrir nokkrum árum.
Viö gefum Jóhanni Inga oröið:
„Vestur-Þjóöverjar eru komnir
lengra en Islendingar í undirbún-
ingi sínum fyrir heimsmeistara-
keppnina. Ég tel, aö „Super-Cup"
keppnin, sem fór fram í Þýskalandi
fyrir tveimur vikum, hafi komiö sór
. mjög vel fyrir þá. Þessir leikir viö
" fslendinga eru mjög mikilvægir
fyrir Vestur-Þjóðverja, sálfræöi-
lega og ef vel gengur þá er liðiö á
réttri leiö í undirbúningi sínum.
Góöir möguleikar
Möguleikar Islendinga gegn
Vestur-Þjóöverjum eru góöir, sér-
staklega þar sem ailir okkar bestu
leikmenn eru meö. íslensku strák-
arnir hafa leikiö meira og minna
saman í mörg ár og þekkja vel til
hvors annars, þó liöiö hafi ekki
fengiö nægilega góöan undirbún-
ing fyrir þessa leiki.
Þaö sem kemur til meö aö skipta
mestu máli er hvernig varnarleikur
og markvarsla íslenska liösins
gengur. Sóknarleikurinn á aö geta
veriö góöur. Raunhæft væri aö
ætla aö Vestur-Þjóöverjar ynnu tvo
leiki og Islendingar einn, allt um-
fram þaö væri frábær árangur hjá
íslenska liöinu.
Vestur-Þjóöverjar eru í hópi allra
sterkustu handknattleiksþjóöa
heims, liöiö varð númer þrjú í
„Super-Cup“ keppninni og þaö
segir sína sögu um styrkleika
þeirra. Þvi í þessari keppni tóku
þátt allar sterkustu þjóöir heims í
handknattleik, aö Pólverjum und-
anskildum. Liöiö vann þá Tókka,
20—14, Sovétmenn, sem eru
heimsmeistarar, 23—16 og er það
stærsta tap Sovétmanna í mörg
ár. Þeir unnu síöan Rúmena í úr-
slitaleik um þriöja sætiö, 21—19.
Markmiö Vestur-Þjóöverja í
heimsmeistarakeppninni er aö
veröa meöal sex bestu þjóöa
heims og ef vel gengur, komast á
veröiaunapall og tryggja öruggt
sæti á Ólympíuleikunum 1988 og
þar á liöiö síðan endalega aö
blómstra.
Thiel vítabani
Varnarleikur Vestur-Þjóöverja
og markvarslan er mjög góð og í
markinu stendur Andreas Thiel,
sem er talinn besti markvöröur
heims í dag. Hann ver um 20 skot
í leik og þá oft úr dauöafærum.
Leikir
í kvöld
Einn leikur verður í úrvalsdeild-
inni f körfuknattleik í kvöld ÍBK
og Valur leika í Keflavík og hefst
leikurinn klukkan 20. Á sama
tíma leika Breiðablik og Grinda-
vík í 1. deild karla í körfu og fer
sá leikur fram í Digranesi.
Morgunbtaötö/B|aml
• Jochen Fraatz er einn besti hornamaöur heims í dag. Hér skorar hann í landsleik gegn Dönum. Hann
býr yfir mikilli trnkni og er skotfastur mjög.
Hann er einn besti vítamarkvöröur
heims, oft ver hann 4—5 vítaköst
ileik.algjörvítabani.
Þeir munu örugglega leika,
3—2—1 vörn gegn Islendingum,
því þeir vita af stórskyttum íslenska
liösins. Lommer, félagi Alfreðs
Gíslasonar hjá Essen, leikur senni-
lega fyrir framan í vörninni og
reynir aö trufla og koma vel út á
móti íslensku skyttunum. Hann
leikur síöan í hægra horninu í sókn-
inni.
Leikaöferö íslenska liösins, eins
og Bogdan leggur hana upp, ætti
aö heppnast vel gegn Vestur-
Þjóöverjunum. Mikil hlaup inn í
vörnina án bolta og svo komi annar
línumaöur og útispiiari sem hleypa
inn á línuna, þessi aöferö er erfið-
ust fyrir svona vörn.
Stórstjörnur
Þaö má segja aö þaö sé valinn
maöur í hverju rúmi hjá Vestur-
Þjóöverjunum og hvergi veikur
hlekkur í liöinu. Stjörnur liösins eru
tvímælalaust, markvöröurinn,
Andreas Thiel, eins og áöur er lýst,
hornamaðurinn, Jochen Fraatz frá
Essen, hann er án efa einn besti
hornamaöurinn í heiminum í dag.
Hann er 22 ára og er einn marka-
hæsti leikmaöur Bundesligunnar,
hann hefur alla eiginleika góös
handknattleiksmanns, getur brot-
ist í gegn maður á móti manni,
mjög skotharöur, ef hann kemst
inn í horninu er hann meö ýmsa
snúningsbolta, sem eru erfiöir fyrir
markveröi og í hraöaupphlaupum
er hann mjög góöur.
Risinn, Erhard Wunderlich, sem
er um 2 metrar á hæö er mjög
skotfastur og skorar mikiö af
mörkum, hann hefur mikla reynslu
og er útsjónarsamur, næmt auga
fyrir línusendingum.
Ruediger Neitzel, leikur fyrir
utan og er hann mjög sterkur og
stór leikmaöur. Hann skorar mikiö
og er ein hættulegasta skyttan i
Bundesligunni, hann er einnig
sterkur varnarmaöur.
Wolfgang Kubitzki, sem kemur
frá Essen, er á miðjunni fyrir utan,
hann er mikill skotmaöur, stekkur
upp af báöum fótum og þaö þarf
aö hafa góöar gætur á honum.
Michael Roth, sem leikur meö
Grosswallstadt, leikur einnig fyrir
utan og stjórnar leik liösins. Hann
er ekki mikill skotmaöur, en á
lúmsk lágskot í gegnum vörnina.
Hægra megin er Martin
Schwalb frá Grosswallstadt, hann
hefur leikiö mjög vel í ár, meö góöa
tækni og er mikill skotmaöur. Einn
jafnbesti leikmaöur landsliösins
upp á síökastiö.
I hægra horninu leikur svo
Joern-Uwe Lommel frá Essen.
Góöur og vaxandi leikmaöur.
Á Itnunni er Ule Roth, sem er
fyrirliði og er jafnframt tvíbura-
bróöir Michael Roth, og varla hægt
aö þekkja þá í sundur. Hávaxinn
og góöur línumaður og einnig er
hann góöur varnarmaöur.
Þetta veröa örugglega fjörugir
og skemmtilegir leikir og þarna fá
áhorfendur tækifæri á aö sjá
marga bestu handknattleiksmenn
heimsídag."
Haukar lóku hlut
sinn ekki á þurru
HAUKAR tóku hlut sinn ekki á
þurru landi í viöureign við ÍR-inga
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
í Hafnarfirði í gær. ÍR-ingar höfðu
yfir í hálfleik, 28-25, og seinni
hálfleikur var jafn þar til undir
lokin að Haukar náöu forskoti,
sem dugði til sigurs, 75-67.
Varnarleikur var í fyrirrúmi í fyrri
hálfleik. Leikmenn beggja liöa voru
mjög hreyfanlegir í vörninni og
gáfu mótherjanum engin griö til
aö skapa sér skotfæri. Óhittni og
óheppni var einnig áberandi.
Haukarnir komust strax í 8-2,
en ÍR-ingar jöfnuöu og héldu í við
Hauka um stund. ÍR-ingar voru
síöan betri síöustu 10 mínúturnar,
komust þeir í 20-14 þegar 7 mínút-
ur voru eftir og héldu 4-6 stiga
forskoti, en þegar fjórar sekúndur
voru eftir skoraöi Pálmar þriggja
stiga körfu og minnkaöi muninn í
þrjú stig, 28-25.
Einar Bollason, þjálfari Hauk-
anna, var óánægöur meö sína
menn í fyrri hálfleik og hefur lesiö
yfir þeim í hléinu, því allt annar
bragur var á leik liösins í seinni
hálfleik og spil þeirra liöugra. Byrj-
uöu Haukar leikinn af krafti, skor-
uöu 8 stig á fyrstu mínútunni og
náöu 5 stiga forystu, 33-28. Þaö
var ekki fyrr en um miöjan seinni
hálfleik aö IR-ingar komust á skriö
aftur og er 11V4 mínúta var eftir
höföu þeir minnkaö muninn í eitt
stig, 48-47. Þegar 8 mínútur voru
eftir munaði enn einu stigi, 54-53,
en þá brast einbeitni ÍR-inga og
þeir fóru halioka fyrir Haukum, sem
komust á þremur mínútum í 62-53.
Losnaöi þá meira um Haukana og
áttu ÍR-ingar á brattann aö sækja.
Reyndu Haukarnir aö nota tímann
vel og halda fengnum hlut.
ÍR-ingarnir undu ekki sköröum
hlut, en tóku of seint viö sér. Þeim
dugöi lítt aö skora 8 stig á 20
sekúndum á lokamínútunni, því
fyrir þá leiftursókn höföu Haukar
náð 14 stiga mun, 73-59. Minnk-
uöu ÍR-ingar muninn í 73-67, en
Haukar áttu síöan síöasta oröiö.
Haukar gáfu Karli Guölaugs,
sem skaut KR-inga i kaf á dögun-
um, fá tækifæri, en ásamt honum
áttu Ragnar Torfa og Björn Stef-
fensen, sem var mjög góöur í
seinni hálfleik og skoraöi þá 16
stig, einna skástan leik ÍR-inga.
Hjá Haukum var Pálmar maöur
dagsins. Hélt hann liöi sínu gang-
andi í seinni hálfleik og átti lang-
stærstan þátt i því aö Haukar fóru
meö sigur af hólmi. Henning kom
einnig vel frá seinni hálfleiknum.
Stig Hauka: Pálmar Slgurösson 29. Henn-
ing Henningsson 18. Ivar Webster 13, Viöar
Vlgnlsson 7. Ivar Asgrímsson 4, Eyþór
Arnason 2 og Ólafur Rafnsson 2.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 20. B|örn Steff-
ensen 16, Karl Quólaugsson 15, Jóhannes
Sveinsson 7. Jón Örn Guómundsson 4,
Bragi Reynisson 2, Vignir Hilmarsson 2 og
Hjðrtur Oddsson 1. — ágás.
• Pálmar Sigurðsson var besti leikmaður Hauka í gærkvöldi og skor
aði 29 stig. Hann er einn stigahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar.