Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 hafi EIGNIR Sjóvátryggingafélags íslands í Ingólfs- stræti eru nú til söiu. Um er að ræða húseignirnar Ingólfsstræti 3, 5 og hálft húsið nr. 7. Eignamiðlun, fasteignasölu, hefur verið falið að selja eignirnar. Ingólfsstræti 5 er eitt af stærstu húsunum á þessu svæði. Það er 6 hæðir og kjallari, samtals um 1300 m2 að grunnfleti. Öllum húsunum fylgir eignarlóð og bílastæði. Sjóvá var með starfsemi sína í Ingólfsstræti um árabil þar til árið 1974 er félagið fluttist í núverandi húsnæði á Suðurlandsbraut 4. Síðan hafa verið í húsunum verslanir, skrifstofur og íbúðir. Skipuleg leit að krabbameini í ristli og endaþarmi að hefjast Eignir Sjóvá við Ingólfsstrœti til sölu SKIPULEG leit að krabbameini í ristli og endaþarmi er um það bil að hefjast hér á landi. Leitin fer fram á vegum Krabameinsfélagsins en hér er um að ræða þriðja algengasta krabbameinssjúkdóm hér á landi. Árlega greinast um sjötíu ný tilfelli og 35—40 manns deyja af völdum sjúkdómsins á ári hverju. Tilgangur leitarinnar er sá að uppgötva sjúk- dóminn á frumstigi, þ.e. áður en sjúklingur verður einkennanna var, en þetta getur aukið batahorfur um allt að 75% frá því sem nú er. Við þessa krabbameinsleit mun Krabbameinsfélagið nota leitar- kerfi sem gerir ráð fyrir því að þátttakendur annist sýnatöku sjálf- ir og komi sýnum síðan í hendur þeirra sem annast rannsóknina. Skjalatösku stolið úr bíl * I henni voru tvær ávísanir að andvirði 320 þúsund krónur LIÓSBRÚNNI skjalatösku úr leðri var stolið úr bifreið við Laugalæk 2 á tímabilinu frá 17.30 til 20 á föstudag. í töskunni voru tvær ávísanir samtais að upphæð 320 þúsund krónur; önnur 170 þúsund og hin 150 þúsund krón- ur. Þá voru ýmiss konar skjöl í tösk- unni merkt Finnsk-íslenska verslun- arfélaginu. Þeir sem kunna að búa yfir upp- lýsingum um afdrif töskunnar eða þjófnaðinn eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Rannsóknar- lögreglu ríkisins. Sjúkdómurinn greinist þannig að blóð kemur fram í hægðum. Fyrsti áfanginn í skipulegri leit Krabbameinsfélagsins að krabba- meini í ristli og endaþarmi er frum- könnun sem ætlað er að 'ljúki eftir um það bil hálft annað ár. Þátttak- endur í þessari frumkönnun verða sex þúsund einstaklingar, karlar og konur á aldrinum 45—69 ára. Þátt- takendur eru valdir af handahófi úr þjóðskránni. Mánafoss seldur til Nýju-Kaledóníu MÁNAFOSS, skip Eimskipafélags íslands, hefur verið selt til Nýju Kaledóníu. Hann sigldi í síðasta sinn frá íslandi um kl. 20.00 í gærkvöldi. Mánafoss var með fullfermi af áli sem skipað verður upp í Rotterdam. Þar tekur skipið annan farm til Astralíu. Mánafoss verður síðan afhentur í Singapore í mars 1986. Mánafoss er systurskip Dettifoss og Goðafoss. Hann var smíðaður í Álaborg 1970. Skipstjóri á Mána- fossi í þessari síðustu ferð frá ís- landi er Guðmundur Kristjánsson. Matthías Bjarnason samgönguráðherra: Hef ekki hugsað mér að svifta leiguskip leyfum í . JNNLENT — frumvarp á Alþingi um skráningu skipa SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur skorað á Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra að stöðva nú þeg- ar öll leyfi til leigutöku á erlendum kaupskipum sem mönnuð eru er- lendum sjómönnum. Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra var inntur álits á þessu. „Eg hef nú ekki hugsað mér að svipta leiguskip leyfi í hafi“ sagði Matthías. „Hins vegar liggur fyrir Alþingi frumvarp um skráningu Flugvél Air Ar^tic í fyrsta sinn til Islands — flutti 30 lestir af ferskum fiski vestur um haf 30 LESTIR af ferskum fiski frá út- flutningsfyrirtækinu Stefni hf. voni í lok vikunnar fluttar flugleiðis til Kanada með vöruflutningavél ís- lenzka leiguflugfélagsins Air Arctic. Fiskurinn var síðan fluttur landleið- ina til Boston í Bandaríkjunum, þar sem hann var seldur. Þetta var fyrsta ferðin af þremur, sem fyrir- hugaðar eru með þessura hætti. Eiríkur Hjartarson, annar eig- enda Stefnis, sagði í samtali við Morgunblaðið, að ákveðið hefði verið að fara þessa leið, þar sem erfitt væri að fá pláss fyrir fiskinn hjá Flugleiðum. Fyrirhugað væri að senda fisk tvívegis með þessum hætti fyrir jól, en að þessu sinni hefí' megnið af fiskinum verið ýsa, hitt karfi. Um afkomuna vildi Eiríkur ekki tjá sig, en fyrirtækið hefur flutt nokkur hundruð lestir af ferskum fiski vestur um haf með flugi síðan það hóf starfsemi sína á miðju ári. Hann sagði þó, að afkoman væri sæmileg og út- flutningurinn gengi þokkalega með þeim annmörkum, sem væru á flutningsgetu Flugleiða. Hann teldi öruggt að meira hefði verið hægt að selja, hefði flutningsgeta verið fyrir hendi. Þetta var í fyrsta sinn, sem flugvél frá Air Arctic lendir hér á landi, en hún kom hingað með vörur fyrir Flugleiðir. „Það er auðvitað gaman að koma við á Air Arctic á Keflavíkurflugvelli. íslandi, en það er algjör undan- tekning. Ég býst við að það verði afskaplega sjaldgæft að við lend- um þar,“ sagði Arngrímur Jó- hannsson, flugstjóri og annar eigenda Air Arctic, í samtali við Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins í Zurich, fyrir komuna til íslands. Arngrímur sagði, að aðeins hefði verið samið um þessa einu ferð með fisk frá íslandi til Kan- ada, en önnur flugfélög hefðu áður farið einstakar ferðir með fisk þangað. Starfsmaður Flugleiða í Morgunblaóið/Einar Falur Lúxemborg sagði, að Flugleiðir hefðu ekki getað annað öllum vöruflutningum til íslands þessa dagana og þess vegna hefði verið gripið til þess ráðs að fá Air Arctic til að taka vörur til lands- ins. Vélin, sem hingað kom, er af gerðinni Boeing 707 og notaði Air Arctic hana í farþegaflutninga í sumar, en henni var breytt í vðru- flutningavél í byrjun síðustu viku. Það tók fslendinga tvo daga að breyta henni, en Belgar höfðu boðizt til að vinna verkið á 10 dögum. skipa sem gerir íslenskum kaup- skipafélögum kleift að taka erlend skip á svokallaða kaupleigu og þá með innlendri áhöfn. Eftir að það er orðið að lögum er frekar hægt að beina öllum leyfum þannig að þessi skip séu mönnuð íslenskum áhöfnum. Frumvarpið var flutt seint í fyrra og náði ekki fram að ganga. Ég vona að frumvarpið verði afgreitt nú á næstunni enda held ég að ekki sé ágreiningur um það,“ sagði Matthías Bjarnason að lokum. „Okkar markmið er að manna okkar skip með íslenskum sjó- mönnum," sagði Hörður Sigur- gestsson forstjóri Eimskips. „Hins vegar teljum við óhjákvæmilegt að við höfum frelsi til þess að taka leiguskip til þess að sinna tíma- bundnum verkefnum. Einnig þeg- ar um er að ræða að taka skip á leigu til þess að kynnast því og ganga úr skugga um hvort það muni hugsanlega henta okkur til lengri tíma og þá með íslenskri áhöfn. Varðandi skip Hafskips munum við leitast við að finna verkefni og nýta skipin eftir bestu getu. Við erum að kanna hug- myndir um að nýta 1—2 skipanna, en getum því miður ekki sagt ná- kvæmlega um það í bili, en þá ber að huga að því að þessi tími til febrúarloka er reyndar að mörgu leyti rýrasti flutningatíminn á ár- inu.“ Hörður Sigurgestsson sagði að félagið væri nú með 18—19 skip í föstum rekstri. Þar af eru fjögur erlend leiguskip. Aðeins eitt þeirra er í leigu til iengri tíma og er það í siglingum á milli meginlands Evrópu og Bandaríkjanna með viðkomu á Islandi á báðum leiðum. Eimskip leigir einnig þrjú erlend leiguskip til skamms tíma til þess að sinna tímabundnum verkefnum m.a. vegna þess að Urriðafoss strandaði og verður ekki aftur í siglingum fyrr en 20. desember. Auk þess er Eimskip með þrjú erlend skip á þurrleigusamningi til 1—2 ára og eru þau öll með íslenskum áhöfnum. Afnám lánskjaravísitölu á skammtímalánum: í gildi um leið og ný Seðlabankalög ÞORNTEINN Pálsson fjármálaráð- herra og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra áttu á föstudag fund með bankastjórum einkabank- anna, þar sem þeir kynntu þeim hugmyndir ríkisstjórnarinnar varð- andi afnám lánskjaravísitölu af skammtímalánum og skuldbreyt- ingu skammtímalána húsbyggjenda til lengri tíma. Fjármálaráðherra sagði í gær að ekkert hefði breytt þeim áformum rikisstjórnarinnar að þessar hugmyndir yrðu að veru- leika. Þessir fundir með bankastjór- unum hefðu fyrst og fremst verið til þess að kynna þeim tillögurnar og þeir ættu kost á því í framhaldi fundanna að koma á framfæri sín- um athugasemdum. „Bankastjórarnir tóku tillögum okkar vel og ég er sannfærður um að það samstarf sem verið hefur á milli ráðgjafarþjónustu Hús- næðisstofnunar og banka og spari- sjóða verður áfram gott,“ sagði forsætisráðherra að afloknum fundinum á föstudag. Forsætisráðherra sagði að í ljós hefði komið að hugmyndin um að leyfa ekki verðtryggingu nema á lánum sem væru til þriggja ára eða lengri tíma, þyrfti nánari skoðunar við. „Það er talað um að þetta form á lánskjörum taki gildi með nýjum Seðlabankalögum," sagði forsætisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.