Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 Einar í Betel HÉR fer á eftir kafli úr bók Einars J. Gíslasonar forstöðumanns Hvítasunnu- safnaðarins. Bókin heitir „Einar íBetel“ og bókarkaflinn „íþróttir ogþjóðhátíð“. Sífelldur vatns- skortur var í Eyj- um og fólk þurfti að gæta sín með vatnsnotkun. Brunnarnir voru hreinsaðir reglu- lega og með ýmsu móti. Sá vísi maður, Matthias Finnbogason frá Litlu-Hólum, kenndi mönnum ein- földustu brunnhreinsun sem um gat. Það var einfaldlega að strá sementi yfir vatnsflötinn og láta það botnfalla. Þá dró sementið öll óhreinindi með sér. Þegar lítið var í brunninum var auðvelt að hreinsa upp botnfallið og skrúbba veggina. Brunnarnir voru misjafn- iega stórir, við sum hús rúmuðu þeir allt að fimmtíu tonnum af vatni. Ef vatn þraut, sá Bifreiða- stöðin um að aka vatni í húsin gegn vægu gjaldi. I Miðhúsatúni var byggð sund- laug og réði þar ríkjum Friðrik Jesson sund- og íþróttakennari. Sveinn Sigurhansson var kyndari og kynti með kolum. Man ég að svo stíft var sundlaugin sótt, að maður lét sér ekki nægja að fara sjaldnar en þrisvar á dag ef mögu- legt var. Það var einmitt í búningsklefa sundlaugarinnar að ég sá fyrst Albert Guðmundsson, síðar fót- boltastjörnu og ráðherra. Ég kom inn í klefa einn þungbúinn júní- morgun og sá þar þennan ókunna strák. Man ég að mér þótti hann magur og eins og varnarlaus. Spurði ég hann að heiti og kvaðst hann heita Albert, en kallaður Alli. Hann hafði þá nýlega misst föður sinn Guðmund gullsmið og fór til föðursystur sinnar, Gíslínu, og manns hennar, Magnúsar Þórð- arsonar. Þau áttu stóran hóp barna, en létu sig ekki muna um eitt í viðbót. Síðar var Albert hjá Hannesi Jónssyni lóðs og Margréti konu hans í Miðhúsum. Albert var fjögur sumur í Eyjum og lærði að meta kosti þeirra. Hann varð snemma mjög leikinn og fær í knattspyrnunni. Valsmönnum að koma til Eyja. Valsliðið var þá ósigrandi í Reykjavík, svo þetta mátti teljast bjartsýni af okkur. Við í Eyjum tókum á móti Valsmönnum og komum þeim fyrir á heimilum, sem tengdust íþróttahreyfingunni. Liðsmenn Vals voru: Ingólfur Steinsson, Jónas Sigurðsson, Hörður Þorgilsson, Sveinn Helga- son, Árni Kjartansson, Gunnar Ólafsson, Agnar Sturluson, Guð- brandur Jakobsson, Ólafur ólafs- son, Albert Guðmundsson, ólafur Jakobsson, Gísli Guðmundsson, Helgi Þorvaldsson, Erlendur Sig- urðsson. Þegar við vorum fimmtán ára varð hann íslandsmeistari með þriðja flokki Vals. Ég var þá stadd- ur í Reykjavík, sem varmaður með öðrum flokki KV (Knattspyrnufé- lags Vestmannaeyja). Við sáum úrsiitaleikinn í þriðja flokki og varð það til þess að við buðum Einar J. Gíslason Sumir þessara drengja eru horfnir úr tölu lifenda, aðrir hafa náð langt í lífinu. Má þar fremstan telja Albert Guðmundsson. Með í þessari ferð var bróðir hans Gísli. Einnig voru þeir bræður ólafur og Gunnar Ólafssynir, svo og Guðbrandur og ólafur Jakobssyn- ir. Þeir voru í náinni frændsemi við Ólaf ó. Lárusson héraðslækni í Eyjum og nutu gestrisni hans. Lið Eyjamanna var þannig skip- að: Jón Scheving, Einar Torfason, Einar J. Gíslason, Valtýr Snæ- björnsson, Gunnar Stefánsson, Gísli Guðlaugsson, Gunnar Bjarnason, Halldór ólafsson, Ein- ar Halldórsson, Ingi Guðmunds- son, Ástþór Markússon, Árni Guðjónsson, Anton Grímsson. Bæði liðin voru góð og á lands- mælikvarða. Hófust nú leikar og var keppt tvisvar. Fóru báðir leik- irnir svo að við Eyjamenn sigruð- um með tveimur mörkum gegn engu. Þessi úrslit voru frábær fyrir okkur, að sigra það liðið sem bæði átti Reykjavíkur- og íslandsmeist- aratitilinn. Leikmönnum var leikurinn hug- sjón og ánægjuauki. Við skildum því í mestu vinsemd, eins og vera ber. Þegar þetta er skrifað eru allir leikmenn Eyjaliðsins enn á lífi, nema Ingi Guðmundsson frá Há- eyri. Nokkrir Eyjamanna áttu. eftir að ná langt á sviði íþrótta. Gunnar Stefánsson varð íslands- methafi í hlaupi og Einar Hall- dórsson skipaði landslið íslands í knattspyrnu. í Vestmannaeyjum var mjög mikill íþróttaáhugi. Tvö félög, Þór og Týr, skiptu bæjarbúum í and- stæðar fylkingar. Var mikill rígur og hörð keppni milli félaganna. Út á við voru liðin sameinuð undir merki KV og síðar ÍBV. Öll eldri systkini mín og yngsta systir skip- uðu sér undir merki Týs. Þór tap- aði oftast á þessum árum, nema í 1. flokki. Þar höfðu Georg Gíslason og liðsmenn hans yfirleitt betur. Ég snerist á sveif með þeim og gerðist virkur félagi í Þór. Iþróttirnar gáfu mér marga góða félaga. Ber þar fyrst að nefna Ingólf Arnarson, er bjó með móður sinni á Hvanneyri, og Ágúst Frið- þjófsson í Laufholti. Sólrún, móðir Ingólfs, tók okkur félögum hans afar vel og sýndi vinsemd og hjartahlýju. Ágúst ólst upp hjá ömmu sinni og móðurbróður, Helga Pálssyni í Laufholti. Þar var til billiardborð og var óspart spil- að, oft dag eftir dag. Við Ingólfur vorum í Þór, en Ágúst í Tý. Ágúst var einstaklega handsterkur og minnist ég þess ekki að nokkur hafi lagt hann í sjómanni. Reynsla mín var sú að á félags- lífi íþróttanna voru tvær hliðar. Einu sinni sem oftar vorum við á æfingu á íþróttavellinum inni í Botni. Þetta var fallegt mannvirki, sem ekki fékk að standa lengi legu sinnar vegna. Einar Sigurðsson var mikil driffjöður í að útbúa þennan völl og ruddi brott iðjuleysi unglinga, sem unnu við þetta. Nú var fótboltaæfingin búin. Fórum við nokkrir drengir saman upp í bæ og þar eð komið var að þjóðhátíð snerist tal okkar um hana. Einhver í hópnum sagðist vita um kró niðri á pöllum, þar sem öl væri að finna. (Gömlu fisk- krærnar stóðu á pöllum sem byggðir voru út fyrir fjöruborð). Við héldum að þessari umræddu kró. Einn okkar var slíkur snilling- ur að með einum öngli opnaði hann næstum hvaða lás sem var. Tvær krær voru opnaðar, en þar fannst ekkert öl. Þegar að þriðju krónni kom bar heldur vel í veiði. Situr þar ekki einn af kunnari borgurum Eyjanna við að eima landa! Kom mikið fát á okkur alla, við strák- arnir sekir um innbrot og hann um bruggun. Landasuðunni var lokið þetta kvöldið. Bruggaranum tókst að uppmála sekt okkar svo að við Ingi á Háeyri báðum hann inni- legrar fyrirgefningar. Bruggarinn var auðvitað dauðskelkaður við að upp kæmist um lögbrotið. Ekki var þó liðugt fyrir hann að hreyfa þessu máli á opinberum vettvangi. Eins og nærri má geta varð ekki neitt úr fyrirhugaðri öldrykkju okkar félaganna. En þetta litla dæmi sýndi mér neikvæða hlið á félagsskap iþróttanna. Þar smeygðist inn ægivald Bakkusar og lagði margan hraustan og efni- legan dreng í valinn. Þjóðhátíðarbrennan Auk íþróttaiðkana gekk félags- starfið út á að sjá um þjóðhátíð annað hvert ár. Ég var kosinn í brennunefnd þjóðhátíðar 1938. Það var árinu áður en Sigurður Reim- arsson, „Siggi Reim“, tók við embætti brennukóngs. Mikil hreinsun fór fram á Heimaey þegar allt óþarfa dót var flutt á Fjósaklett. Þar var bálkösturinn reistur. Þegar aflóga dót þraut og ekki gafst meira til brennunnar, þá var tekið til við að útvega tunn- ur og kassa þar sem til náðist. Þær gátu verið býsna óþægilegar heim- sóknir mannanna, sem söknuðu alls konar dóts úr fiskhúsum eða kjöllurum. Við urðum að láta feng- inn af hendi þegar eigendur þekktu merkta hluti. En þetta gat auðvit- að ekki gengið til lengdar að safna í brennu og láta hirða jafnóðum af sér aftur. Ég talaði við aðal- nefnd þjóðhátíðarinnar og var Stefán Arnason yfirlögregluþjónn formaður hennar. Stefán bað okk- ur að fara að öllu með gát, en hét því að kærur gegn okkur yrðu svæfðar. Bað ég Stefán að útvega geymslu þar sem við gætum geymt það sem kalla mætti ófrjálst. Svo höfðum við aðra „opinbera" geymslu, þar sem við geymdum það sem fengið var frjálsri hendi. Þórarinn Guðmundsson á Jaðri var glöggur formaður. Við tókum síldartunnu úr kró hans. Hann saknaði tunnunnar og sótti hana til okkar. Næsta kvöld var tunnan hans Tóta aftur tekin og nú sett í leynigeymsluna ásamt öðru álíka illa fengnu dóti. Daginn eftir kemur Þórarinn eins og eldibrand- ur og krefst þess að fá tunnuna öðru sinni. Við vorum sakleysið uppmálað og leiddum hann um geymsluna og buðum honum að finna tunnuna, sem ekki fannst. Eins fór með fimmtíu tunnur sem tilheyrðu grafskipinu. Böðvar Ingvarsson hafnarvörður kom og heimtaði þær, en það fór fyrir honum eins og Þórarni. Engar tunnur fundust. Þegar brennan var hlaðin, slóg- um við botninn úr tunnunum og fylltum þær með hefilspæni og hálmi. Tómas Guðjónsson og Sig- fús Scheving gáfu ávallt nokkrar tunnur af olíu og var bleytt í brennunni með henni. Einnig gaf Gunnar Ólafsson á Tanganum vanalega fullan tjörukagga. Við allan þennan eldivið varð þjóð- hátíðarbrennan að hinu mesta báli. Nú var loks komið að því að kveikt yrði í brennunni okkar. Þjóðhátíðarnefnd lagði til þaul- vanan brennumann, Pálma Ingi- mundarson frá Götu, og átti hann að kveikja bálið. Ég þekkti Pálma vel og aðeins að góðu. Blysin voru tendruð á miðnætti, veðrið eins og best verður á kosið. Bálkösturinn gnæfði upp af Fjósakletti hár og tignarlegur. öllum tunnunum hafði verið staflað í tígullegan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.