Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 75
75
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
námi. Hún og systir hennar, Rann-
veig, voru saman í bekknum og
minnist ég þess, hve þessar tvær
stúlkur mótuðu andrúmsloftið í
bekknum. Námshæfileikarnir voru
með ólíkindum. Hún var jafnvíg á
allt og var ótrúlega fljót að átta
sig og leysa úr erfiðum verkefnum,
á hvaða sviði sem var. Hún var
hjálpfús og frábærlega velviljuð
og hafði nautn af að hjálpa öðrum.
Ég man hvað hún gat hlegið, þegar
hún var að útskýra eitthvað, sem
henni fannst auðvelt, en lá ekki
ljóst fyrir öllum. Hún var alltaf
efst í sínum bekk. Það var öllum
ljóst, að hér var á ferðinni óvenju-
leg kona að gáfum og glæsileik.
Eftir gagnfræðapróf á Akureyri
skildust leiðir. Hún fór í stærð-
fræðideild og þar stóð hún sig líka
best af öllum. Hún brautskráðist
13. júní 1938 og hlaut þá fjögurra
ára styrk til verkfræðináms í
Kaupmannahöfn, eins og áður
sagði, sem aðeins afburða náms-
menn hlutu. Hún mun hafa gengið
að sínu námi með krafti og dugnaði
þau erfiðu ár, sem hún átti í
Kaupmannahöfn til ársins 1945,
er hún útskrifaðist sem verkfræð-
ingur.
Þegar Rannveig systir hennar
dó fór hún til Svíþjóðar og annað-
ist börn hennar. Nokkrum árum
síðar giftist hún Peter Hallberg.
Kristín og Peter eignuðust engin
börn.
Mynd Kristínar geymist björt
og hlý. Hún var ávallt glöð og hress
og reiðubúin að miðla gleði og
bjartsýni. En eflaust hefur hún átt
sínar sorgir og sín vandamál. Ég
hafði það á tilfinningunni, að
nautn hennar í lífinu væri að
gleðja aðra, létta sorgir þeirra og
áhyggjur. Hún var eins og sólar-
geisli öllum, sem henni kynntust,
sannfærð um að aðeins það góða
myndi sigra.
Kristín átti tvær systur og tvo
bræður. Er nú aðeins elsti bróðir-
inn á lífi, Gunnar bóndi á Dagverð-
areyri. Hin létust öll langt um
aldur fram, en minningin um þessi
gáfuðu og glæsilegu systkini lifir
hjá þeim, sem þeim kynntust.
Með söknuði og þakklæti
minnist ég Kristínar og þakka
forsjóninni, að ég skyldi fá að
kynnast henni.
I huga mér kemur kafli úr sálu-
messu eftir Mozart (258) „Bene-
diktus qui venit in nomine dom-
ine“, blessaður sé sá, sem kemur í
Drottins nafni. Tónarnir eru svo
hreinir og fagrir og gefa innri frið.
Samúð til eftirlifandi ættingja.
Björn Guðbrandsson
Á hverjum degi, ár eftir ár,
sjáum við í tilkynningum blaða eða
heyrum í útvarpi nöfn þeirra, sem
kvatt hafa að eilífu, horfið af sviði
jarðlífsins. Við lesum tilkynning-
arnar eða hlustum á þær með
vissri næmi og tilfinningu þó nöfn-
in snerti ekki, að öðru leyti, strengi
í brjóstum okkar. Einstaklingur,
karl eða kona, sem við þekkjum
ekki, hefur kvatt. Skuggi saknaðar
hverfur jafnharðan og hann bar
fyrir. Hér fer þó oft á annan veg.
Við horfum sem vegvillt og ráð-
þrota á nafn sem við þekkjum og
í huganum birtist mynd, sem er
okkur kær. Við þekkjum þann, sem
horfinn er. Ekkert fær þessu
breytt, skilnaðurinn er staðreynd.
Bros, hlýtt handtak, þakkir, góðar
óskir, allt er þetta að ósi stemmt.
Eða er þetta rétt? Minningarnar
lifa, löngu liðnir tímar og atvik
tengjast í hugskoti okkar einstakl-
ingnum, vininum, sem horfinn er.
Frétt um lát Kristínar Krist-
jánsdóttur, efnaverkfræðings,
vakti í mínum huga tilfinningar
Sjá bls. 77
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
DÓRA
SÉROGSIGRAR
Sjöunda bókin í sagnaflokknum um Dóru og vini hennar.
Dóra fæst við danskennslu í Reykjavík en auðugir vinir
Kára hafa boðið honum i ævintýralega ferð til Afríku og
Austurlanda. Dóra fréttir litið af honum og veit ekki hvert
samband þeirra raunverulega er. Hún tekur þátt í lífi unga
fólksins og margir óvæntir atburðir gerast. Eins og fyrri
bækur þessa höfundar er Dóra sér og sigrar grípandi frá-
sögn af lífi ungs fólks og þjóðfélagi á umrótatímum.
HMÍft
Ný bók um félagana fimm, systkynin þrjú, frænku þeirra og
hundinn góða, Tomma. Spennandi og ævintýraleg saga
með sömu söguhetjum og í fyrri bókum þessa vinsæla
bókaflokks. Höfundurinn, Enid Blyton, hefur meðÆvintýra-
bókunum, Dularfullubókunum og sögunum um félagana
fimm sannað að hún kann flestum betur að skrifa bækur
sem börn og unglingar kunna að meta.
ANKE PE VRIES
LEYNDARDÓMAR
FORTÍÐARINNAR
Áður hefur komið út á islensku eftir sama höfund Leyndar-
dómar gistihússins sem seldist upp á örskömmum tíma.
Leyndardómar fortíðarinnar fjallar um 18 ára gamlan pilt
sem tekur að sér að gera upp gamalt hús er staðið hefur
autt árum saman. En hann verður þess brátt áskynja að í
húsinu hafa gerst dularfullir atburðir og þegar hann reynir
að grafast fyrir um þá verður fátt um svör. íbúar þorpsins
vita meira en þeir vilja láta uppi og þeir bregðast illa við
spurningum Marks.
Uóla-
kjötiö
*
&
Lambaskrokkar
niöursagaö
70
kr./kg
Ný lambalæri
70
kr./kg
Nýr lambalæri
ivyi lamuciic
1205
70
kr./kg
Nýr lambabógur
70
kr./kg
m
Lambaframhryggur
9
00
kr./kg
Lambakótilettur
■ kr./kg
Lambalærisneiðar
50
A
kr./kg
Lambagrillsneiöar
-°° kr./kg
** Lambagrillkótilettur
60
kr./kg
4
Lambaslög.
-°° kr./kg
Úrb. ný lambalæri
fik 340.“
kr./kg
Úrb. ný fyllt lambalæri
kr./kg
i 345.“
Úrb. nýr lambahryggur
^00 kr./kg
BEp, Úrb. nýrfyllturl.hryggur
00
r ._
Urb. nyr frampartur
áíái oo
0U kr./kg
kr./kg
*Úrb. fylltur frampartur
290.00
kr./kg
Sambands-hangilæri stór
m20 kr./kg
f ex Hangilæri frá okkur
-°° kr./kg
*
W Urb. Sambands-hangilæri
®. 490.00 kr./kg
A
Úrb. hangilæri frá okkur
440-00 kr./kg
Sambands-hangiframp.
.°° kr./kg
Hangiframp. frá okkur
"199 - °° kr./kg
Úrb. Sambands-
gW hangiframp.
X. 300.” kr./kg
Úrb. hangiframp
^ fráokkur
A 355.“
kr./kg
London-lamb
00
kr./kg
4
Laugalæk 2. s. 686511