Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 Nikulás Sigfússon yfírlæknir í tilefni doktorsritgerðar um háþiýsting meðal miðaldra karla: Miklar framfarir í meðferð háþrýstings NIKULAS Sigfússon yfirlæknir Rannsóknarstöðvar Hjarta- verndar ver doktorsritgerð við Háskóla Islands nk. laugardag, 14. desember. Efni ritgerðarinn- ar er „háþrýstingur meðal mið- aldra karla“ og byggir hún á hóprannsóknum Hjartaverndar á körlum búsettum á Reykjavík- ursvæðinu á aldrinum 34-61 árs í upphafi rannsóknarinnar 1967. Niöurstöður hennar sýna, að verulegur árangur hefur náðst í meðferð háþrýstings með endur- teknum heilsufarsskoöunum. í tilefni af doktorsritgerð Niku- lásar ræddi blaðamaður við hann nýverið á skrifstofu hans í rannsóknastöð Hjartaverndar. H áþrýstingur - hækkaður blóðþrýst- ingur - er að sögn Niku- lásar alvar- legur sjúk- dómur, sem leiðir smám saman til skemmda í æðakerfi líkamans, fyrst og fremst í hjarta- og heila- æðum. Kransæðasjúkdómar eru um fjórðungi algengari meðal þeirra sem hafa háan blóðþrýst- ing en lágan og nærri alltaf er hann undanfari slags, heilablæð- ingar eða blóðtappa í heila. Auk þess tengist háþrýstingur ýms- um öðrum æðasjúkdómum, svo sem æðakölkun í fótum og skemmdum í nýrnaæðum. Há- þrýstingur er sennilega algeng- asti sjúkdómurinn í hjarta- og æðakerfi manna. Rannsóknir hvarvetna í heiminum hafa sýnt, að 10-20% fullorðins fólks geng- ur með þennan sjúkdóm. Háþrýstingur var skilgreindur þannig af Alþjóðaheilbrigðis- stofnuninni: efri mörk jöfn eða hærri en 160 mm Hg og/eða neðri mörk jöfn eða hærri en 95 mm Hg við tvær mælingar og/eða yfirstandandi meðferð vegna há- þrýstings. Auk háþrýstings er hækkuð blóðfita og sígarettu- reykingar helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma. Orsakir að mestu óþekktar Orsakir háþrýstings eru að mestu óþekktar en engu að síður hafa á síðustu áratugum orðið miklar framfarir i meðferð hans með tilkomu áhrifaríkra lyfja, sem nærri undantekningalaust gera kleift að lækka blóðþrýsting í eðlilegt horf. Nikulás segir, að þó lyf lækni ekki háþrýsting þá sé nú ljóst, að slík meðferð geti komið í veg fyrir eða dregið úr tíðni helstu fylgikvilla háþrýst- ings á sama hátt og lyfjameðferð getur dregið úr fylgikvillum sykursýki, þó svo ekki sé unnt að lækna hana. Lyf við háþrýst- ingi komu fyrst á markaðinn upp úr 1950, og hafa lyfin orðið betri með hverju árinu sem líður. Áður var eina meðferðin sú að gefa saltlaust fæði og gaf það nokkurn árangur. Háþrýstingur mun algengari hjá körlum Um algengi háþrýstings hér- lendis og um meðferð hans hefur til skamms tíma lítið verið vitað, en haustið 1967 hófst á vegum Hjartaverndar umfangsmikil hóprannsókn á höfuðborgar- svæðinu. Megintilgangur þeirrar rannsóknar, sem enn stendur yfir, er í fyrsta lagi að finna byrjunarstig hjarta- og æðasjúk- dóma og ýmissa annarra sjúk- Nikuiás Sigfússon yfirlæknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar. Morgunblaðid/Júlíus Ilok rannsóknar er þó enn meira en helmingur sjúklinga með dulinn háþrýsting eða ekkinægilega vel meðhöndlaðan dóma, algengi þeirra og tíðni svo og orsakir svo unnt verði að beita gagnráðstöfunum. í öðru lagi að meta fjárhagslegan og heilsu- farslegan árangur hóprann- sókna. Háþrýstingur var síðan eitt aðalviðfangsefni hóprann- sóknarinnar sem einn mikilvæg- asti áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma. Ritgerð Nikulásar fjallar um þann þátt niðurstaðn- anna sem varðar háþrýsting hjá miðaldra íslenskum körlum. Aðspurður af hverju hann hefði kosið þennan aldur og karla fremur en konur sagði hann, að háþrýstingur væri mun algeng- ari hjá körlum en konum á aldr- inum frá 30 ára til 50 ára, en aftur á móti algengari hjá konum á aldrinum 50-60 ára. Sú stað- reynd að körlum er hættara við hjartasjúkdómum hvers konar og fyrr á lífsleiðinni en konum væri ástæða þess að unnið hefði verið úr niðurstöðum karlarann- sókna fyrst. Tilgangur þess þáttar rann- sóknanna, sem ritgerð Nikulásar fjallar um er: að kanna algengi og nýgengi háþrýstings; að kanna hve stór hluti háþrýst- ingssjúklinga vissi um sjúk- dóminn; að kanna hvernig með- ferð væri háttað - og að kanna hvaða áhrif endurteknar heilsu- farsskoðanir ásamt vísun há- þrýstingssjúklinga til heimilis- eða heilsugæslulækna hefði á meðferð háþrýstings. Aðeins 24% vissu um sjúkdóm sinn í upp- hafi rannsóknar Þátttakendur í rannsókninni voru 10.741 karlar búsettir á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 34-61 árs í upphafi rannsóknar- innar 1967. Þátttakendunum var skipt niður í rannsóknarhóp tæplega 3.000 karla sem skoðað- ur var fjórum sinnum, í fyrsta sinn 1967-68, í annað sinn 1970- 71, í þriðja sinn 1974-76 og í fjórða sinn 1979-81. Til saman- burðar við þennan hóp sem gekkst undir reglubundnar heilsufarsskoðanir var boðið í 2., 3. og 4. áfanga sambærilegum hópum karla sem ekki höfðu áður verið skoðaðir. Helstu niðurstöður urðu þess- ar, að sögn Nikulásar: 1. Algengi háþrýstings fer vaxandi með aldri, lægst meðal yngstu karl- anna um 5% en hæst meðal þeirra elstu um 35%. 2. Nýgengi, þ.e. hundraðshluti þeirra sem fá sjúkdóminn á ári hverju, var einnig háð aldri, 2% meðal þeirra yngstu en um 5% meðal þeirra elstu. 3. Við upphaf rannsóknarinnar 1967 voru aðeins 24% háþrýst- ingssjúklinga sem vissu um sjúk- dóminn en í lok rannsóknarinnar hafði þessi tala aukist í 68% í rannsóknarhópnum en í 63% í viðmiðunarhóp. 4. f upphafi rannsóknar voru aðeins 16% háþrýstingssjúklinga í rannsóknarhóp í meðferð vegna sjúkdómsins en 12 árum síðar í lok hennar 64%, eða 94% þeirra sem vissu að þeir höfðu háþrýst- ing. í viðmiðunarhóp var sam- svarandi tala í lok rannsóknar 55%. 5. Meðferð háþrýstings varð mun markvissari á tímabilinu. f upp- hafi rannsóknarinnar voru að- eins 6% háþrýstingssjúklinga á fullnægjandi meðferð, þ.e. með eðlilegan blóðþrýsting en í lok hennar 43%. í viðmiðunarhóp voru 30% á viðunandi meðferð í lok rannsóknar. 6. Meðalblóðþrýstingur lækkaði meðal allra þátttakenda í sam- bærilegum aldursflokkum um 5 mm Hg efri mörk og 3 mm Hg meðri mörk. Dulinn háþrýstingur getur gert mikinn óskunda Athygli vekur, hversu stór hluti þeirra sem kom inn til rannsóknar var ókunnugt um háþrýsting sinn. Aðspurður sagði Nikulás að háþrýstingur gæti verið svo til einkennalaus árum saman en á meðan gæti hann gert mikinn óskunda. Því væri mikilvægt að finna þá sem ganga með dulinn háþrýsting, m.a. hefði landlæknir farið fram á það við lækna, að blóðþrýsting- ur fólks væri ætíð mældur, er það kæmi til læknis. Með því móti telur Nikulás að auðvelt eigi að vera að finna háþrýst- ingssjúklinga, því talið sé að 70-80% fólks fari til læknis á ári hverju. Hann sagði ennfremur, að vel mætti hugsa sér, að blóð- þrýstingsmælar, sem nú fengjust tiltölulega handhægir og ódýrir, yrðu á hverju heimili í framtíð- inni eins og hitamælar eru nú. Sjúkdómseinkenna sem fyrst yrði vart, - og þá jafnvel eftir margra ára meðgöngu - sagði Nikulás helst vera drunga, höf- uðverk að morgni og almennan slappleika. Þess bæri að geta að einkenni þessi gætu einnig átt við margt annað. Nikulás var spurður, hvernig hann mæti niðurstöður rann- sóknarinnar hvað varðar þann þátt sem ritgerð hans fjallar um. Hann svaraði: „Þessar niðurstöð- ur sýna, að verulegur árangur hefur náðst í meðferð háþrýst- ings með endurteknum heilsu- farsskoðunum. Jafnframt hefur orðið veruleg framför á þessu sviði meðal karla almennt á Reykjavíkursvæðinu. Það er þó rétt að benda á, að í lok rann- sóknarinnar voru þó enn meira en helmingur háþrýstingssjúkl- inga annaðhvort með dulinn há- þrýsting eða ekki nægilega vel meðhöndlaðan. Það er því nauð- synlegt að halda áfram skipu- legri leit að fólki með leyndan háþrýsting og bæta enn frekar meðferð sumra þeirra sem þekkt- ireru." Notum hvert tækifæri til að fá blóðþrýsting mældan Nikulás sagði að lokum, að með tilliti til afleiðinga háþrýstings og þess, hversu stór hluti þeirra sem háþrýstingur fyndist hjá væri ókunnugt um hann, mætti hvetja fólki til að vera vakandi og nota þau tækifæri sem biðust til að fá blóðþrýsting mældan, sérstaklega eftir að 30 ára aldri væri náð. Nikulás ver doktorsrit- gerð sína n.k. laugardag, 14 des- ember, eins og fyrr segir. Dokt- orsvörnin fer fram í Háskóla ís- lands. Andmælendur verða Gör- an Berglund prófessor í Gauta- borg og dr. Þorkell Guðbrands- son yfirlæknir á Akureyri. Þetta línurit sýnir breytingar á blóðþrýstingsmeAferð meðal karla 47—61 árs, frá árinu 1968 til ársins 1980. Breyting á „systoIiskum“-blóðþrýstingi (neðri mörkum) meðal karla 47—61 árs. Efi hluti línuritsins sýnir efri mörk blóðþrýstings en neðri hlutinn neðri mörkin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.