Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 08.12.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUD AGUR 8. DESEMBER1985 Afmæliskveðja: Helga Jónsdóttir frá Blönduósi Kvenskörungar heitir kafli í kennslubók eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. Þar er lýsing á fornum kvenhetjum. Á öllum tímum ís- landssögunnar hafa verið uppi konur, sem með réttu má nefna því nafni. Ein slík á níutíu ára afmæli í dag, það er Helga Jónsdóttir frá Gunnfríðarstöðum í Húnaþingi. Móðir hennar var Anna Einars- dóttir Andréssonar er kenndur var við Bólu svo sem Hjálmar forðum. Hann var skáldmæltur vel og tal- inn göldróttur en svo var oft um þá, sem voru öðrum fremri að andlegu atgervi. Út af honum hefur komið margt af skáldmæltu fólki. Faðir Helgu var Jón Hró- bjartsson bóndi og smiður. Þau Anna og Jón bjuggu á Gunnfríðar- stöðum beggja megin aldamóta. Ung að árum fór Helga til Sauð- árkróks í hjúkrunarnáms og var um skeið hjúkrunarkona hjá Jón- asi Kristjánssyni héraðslækni er síðar varð brautryðjandi Náttúru- lækningahælisins í Hveragerði. Stundum getur hið broslega skeð jafnvel á sjúkrahúsum. Eftirfar- andi atvik sagði Helga mér úr sínu hjúkrunarstarfi á Króknum. Karl einn úr Húnaþingi var kominn upp á skurðarborðið, Jónas læknir búinn að margþvo sér um hendur og svæfingu lokið. Hann hinkraði við um stund og raulaði lagstúf fyrir munni sér — Upp á himins bláum boga — gengur síð- an að borðinu og hyggst hefja aðgerðina. En þá rís kall úr rotinu og skyrpir á hendur læknisins svo hreinlætisaðgerðin og svæfingin mátti hefjast að nýju. Á Sauðárkróki kynntust þau Helga og Steingrímur Davíðsson er síðar varð þekktur maður. Þeirra kunningsskapur leiddi til þess, að þau gengu í hjónaband árið 1919 og stóð það í sextíu og tvö ár eða þar til Steingrímur andaðist 9. október árið 1981. Búskap sinn hófu þau á Gunn- fríðarstöðum og stundaði Stein- grímur þar kennslu að vetrinum. Eftir skamman búskap fluttu þau hjón til Blönduóss, þar sem Stein- grímur gerðist skólastjóri um ára- tugaskeið. Einnig varð hann fljót- lega verkstjóri hjá Vegagerð ríkis- ins og síðar oddviti Blönduóss- hrepps ásamt mörgum fleiri trún- aðarstörfum, sem honum voru falin. Börn þeirra urðu 14 talsins, 12 þeirrá eru á lífi en tvö dóu ung. Öll eru þau systkin myndarfólk, sem gegna margvíslegum störfum í þjóðfélaginu. Oft hefur vinnudagurinn verið langur hjá Helgu, því margs hefur búið þurft við. Því hefur reynt mjög á dugnað og útsjónarsemi hennar en hvort tveggja átti hún í ríkum mæli. Steingrímur var tíðum fjarverandi vegna vinnu sinnar og hvíldi þá umsjón heimil- isins mikið á herðum Helgu. Einn- ig þurftu margir að finna hús- bóndann út af ýmsum trúnaðar- störfum, sem hann hafði á hendi. Auk þess áttu þau hjón marga vini og kunningja og var því oft margt um manninn í þeirra húsi enda bæði gestrisin svo af bar. Ég kom oft á heimili þeirra hjóna, bæði á Blönduósi og í Reykjavík, mér til mikillar ánægju. Þar skorti aldrei umræðu- efni, bæði var þar rætt í léttum tón svo og um landsins gagn og nauðsynjar. Stjórnmál bar þar æði oft á góma. Helga tók drjúgan þátt í þeim umræðum og þar hafði hún sínar ákveðnu skoðanir á hlutun- um eins og hennar er vandi. Frambjóðendur til Alþingis, sem voru í hennar stjórnmála- flokki, lögðu mikið upp úr stuðn- ingi hennar um kosningar, en þetta var í þann tíma, sem A-Húna- vatnssýsla var einmenningskjör- dæmi. Frambjóðendur voru þá persónur út af fyrir sig, en ekki eins og nú, að hópur manna öðlast þingsæti löngu fyrir kosningar, gegnum prófkjör, sem framkvæmd eru með allskonar hundakúnstum. Eins og fram hefur komið átti Helga ekki langt að sækja skáld- skapargáfu sína. Mun ég nú láta fljóta með í greinarkorni þessu sýnishorn af kveðskap hennar. Sýnir binda sigurhrós silfurlindir streyma fjallatindarárogós Esjumyndirgeyma. Tilefni vísu þessarar var, að þau hjónin tóku sér far með Esju hringferð um landið og kölluðu brúðkaupsferð þótt síðbúin væri. Einhvern tíma, þegar landsýn var sérlega fögur, bað skipstjórinn, Tryggvi Blöndal, þau um að kveða sína vísuna hvort, er síðan yrði skráð í skipsbókina. Helst áttu þær að vera hringhendar en það var nú einmitt uppáhaldsbragarháttur Helgu. Steingrímur og Helga gerðu sér stundum til gamans að ræða saman í bundnu máli og þannig urðu til skemmtilegir vísnaþættir. Sameiginleg áhugamál áttu þau fleiri en skáldskapinn. Gróður og gróðurvernd var þeim hugleikin, þó einkum trjárækt. Skógræktar- félagi A-Húnavatnssýslu gáfu þau eignarjörð sína, Gunnfríðarstaði. Þar má nú sjá uppvaxandi tré. Dýravinir voru þau bæði. Nátt- úrufegurð fór eigi fram hjá þeim og húnvetnskri byggð unnu þau af alhug. Eftir að Steingrímur varð van- heill hjúkraði Helga honum í heimahúsum af mikili umhyggju þar til eigi var umflúið að hann færi til vistar á sjúkrahús. Helga mín! Það er mikið gleðiefni fyrir alla þína vini og kunningja, að þú á þessum merkisdegi þínum skulir halda jafnvel og raun ber vitni þínum líkams- og sálarkröftum. Þá ósk vil ég bera fram þér til handa, að ævikvöldið megi verða bjart og hlýtt, eins og þegar mið- nætursólin stafar geislum sínum á Húnaflóa. Við hjónin sendum þér og öllum þínum afkomendum innilegar hamingjuóskir. Jón Benediktsson, Höfnum. Helga Dýrleif Jónsdóttir, skóla- stjórafrú á Blönduósi til margra ára, er níræð í dag, 8. desember. Hún fæddist þennan dag á Gunn- fríðarstöðum á Bakásum í Húna- vatnssýslu, dóttir hjónanna Jóns Hróbjartssonar smiðs og bónda og konu hans Önnu Einarsdóttur, er þar bjuggu. Helga giftist Stein- grími Davíðssyni, sem þá var far- kennari í Vindhælishreppi. Stein- grímur varð skólastjóri barnaskól- ans á Blönduósi 1920 og var það til 1958. Þá fluttu þau hjón suður og áttu heimili á Hófteigi 18, þar sem Helga býr ennþá, en Stein- grimur andaðist 9. október 1981 og hafði þá verið um 3 ár á Sól- vangi í Hafnarfirði. Helga og Steingrímur eignuðust 14 börn. Áf þeim komust 12 til fullorðins ára. Fimm dætur og sjö drengir. Jafnaldrar minir og yngri. Kraftmiklir strákar, sem vafalítið hefir stundum verið erfitt að ráða við. Enda sagði Helga einu sinni, er hún kom í heimsókn, við konu mína, Ja hérna, Þórhildur, þú átt fimm stráka og allir stólar heilir. Heimili þeirra Helgu og Stein- gríms var í Pálmalundi, gömlu og ailtof þröngu húsnæði fyrir svona stóra fjölskyldu. Nokkru fyrir stríð byggðu þau nýtt hús norðan Blöndu, Svalbarð. Þá stóð það eitt sér og hátt í kílómeter í næsta hús þeim megin Blöndu. Nú er svo komið að húsið er næstum í miðju bæjarins. Suður af því í hvammi milli vegar og Blöndu er vísir að skrúðgarði. Fyrstu trjáplönturnar voru gróðursettar fyrir nær hálfri öld og þá í smágirðingu fyrir fram- an núverandi skólabyggingu. Þeg- ar skólinn kom voru þær fluttar niður fyrir veg í þennan hvamm sem þau helga gáfu nafnið Fagri- hvammur. Þau hjón báru þennan garð mjög fyrir brjósti og gáfu fé til að græða þar upp. En það var sama reynslan hér eins og á svo mörgum stöðum að „svarta bylt- ingin“ var undanfari „grænu bylt- ingarinnar". Garðar og gróður tóku ekki vel við sér fyrr en bundið slitlag kom á göturnar og ryk- Bókmenntaþættir eftir Matthías Johannessen Var Sturla Þórðarson höfundur Njálu? Matthías Johannessen leiðir hér rök að því. Fjölmargar aðrar nýstárlegar og snjallar hugmyndir koma hér í fyrsta skipti fyrir sjónir lesenda. Þær eiga án efa eftir að ýta við mörgum og leiða til fjörugra umræðna og heilsusamlegra deilna. Bókmenntaþættir eru víðtækt úrval úr bókmenntaskrifum höfundar. Auk kaflans um íslenskar fornbókmenntir fjallar Matthías um skáldverk 10 kunnra höfunda. Ultima Thule eftir Helfried Weyer og Matthías Johannessen Gullfalleg íslandsbók í máli og myndum. Tveir listamenn snúa bökum saman: Þýski Ijósmyndarinn Weyer og Matthías Johann- essen, skáld. Litmyndir Wéyers og Ijóð Matthíasar á íslensku og í þýskri túlkun Jóns Laxdals með formála eftir Rolf Hádrich mynda eftirminni- lega heild, þar sem sérkennum íslands er lýst á listrænan hátt. MatthU* luhannttMti BÓKMENStA ÞÆTTIR Hdfrfed Weyer • Matlhias Johanrtessen BOK AUÐVTI4Ð Al.MF.NNA BÓKAFÉLAGIÐ, AUSTURSTRÆTI 18, SlMI 25544.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.