Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
5
AB dreifir
Uitima Thule
Pólýfónkórinn flytur H-moll messu Bachs á tónlistarhátíðinni í Assisi.
Áskirkja:
Flutningur Pólýfónkórs-
ins á H-moll messu Bachs
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Pólýfónkórnum: „Nýlega hefur
borizt til landsins hljóðritun af
flutningi Pólýfónkórsins, hljóm-
sveitar og einsöngvara á Messu í
h-moll eftir Bach frá opnun alþjóð-
legu tónlistarhátíðarinnar á sl.
sumri.
Þeir sem til þekkja telja þennan
flutning hápunktinn í starfi Pólý-
fónkórsins, sem nú á 28 ára starf-
semi að baki. Flutningurinn var
bæði hljóðritaður og kvikmyndað-
ur fyrir ungverska og suður-þýzka
sjónvarpið í Munchen og mun þátt-
ur úr flutningi kórsins verða meðal
atriða í kynningarkvikmynd frá
Assisi, sem dreift verður á al-
þjóðlegum vettvangi. Hljóðritun
verksins þykir hafa tekizt vel og
er verið að kanna möguleika á út-
gáfu hennar á alþjóðamerki á
hljómplötum. Stjórnandi flutn-
ingsins, Ingólfur Guðbrandsson
hefur í hyggju að fá verkið gefið
út til styrktar hinu langþráða tón-
leikahúsi í Reykjavík, ef samþykki
allra flytjenda fæst. Einsöngvar-
arnir hafa þegar gefið leyfi sitt til
útgáfu í þessu skyni, en þeir eru
Jacquelyn Fugelle, sópran, Hilke
Helling og Bernadette Manca di
Nissa, mezzó sópran, Jón Þor-
steinsson, tenór og bassinn Peter-
Christoph Runge.
Almenningi er gefinn kostur á
að hlýða á þennan flutning verks-
ins í hljóðritun frá Basiliku Heil-
ags Franz frá Assisi í Áskirkju
sunnudagskvöldið 8. desember kl.
20.00. Jafnframt mun sóknarprest-
urinn sr. Árni Bergur Sigurbjörns-
son flytja aðventuhugleiðingu og
að lokum verða sungnir jólasálmar
með þátttöku allra viðstaddra.
Flugturni
tilkynnt um
bilun í Arn-
arflugsvél
FLUGTURNINUM á Reykjavíkur-
flugvelli barst tilkynning um kl.
21.00 á fóstudagskvöldið að Ijós í
mælaborði Arnarflugsvélar, sem var
að koma inn til lendingar, sýndi að
annað aðalhjól vélarinnar virkaði
ekki.
Vélin, sem er af Cessna gerð, var
að koma frá Blönduósi með tvo
farþega innanborðs auk flug-
manns.
Ýmsar ráðstafanir voru gerðar
ef vélin þyrfti að nauðlenda og var
m.a. kallað á slökkviliðið. Síðar
kom í ljós að hjólið var í lagi en
um bilun hafði verið að ræða í
mælaborðinu og gat vélin lent með
eðlilegum hætti.
Aðgangur að samkomunni er
ókeypis, en tekið verður við fram-
lögum til styrktar útgáfunni og
gestum gefst kostur á að skrifa sig
fyrir fyrstu árituðum og númeruð-
um eintökum útgáfunnar."
ALMENNA bókafélagið hefur
tekið að sér að dreifa hér á landi
bókinni Ultima Thule eftir Helfri-
ed Weyer og Matthías Johann-
essen.
Það var Eulen Verlag í Freiburg
sem gaf út þessa bók um ísland
með 40 ljóðmyndum eftir þýska
ljósmyndarnn Helfried Weyer og
ljóðum eftir Matthías Johannessen
í þýskri þýðingu Jóns Laxdals leik-
ara.
Rolf Hádrich ritar formálsorð
fyrir bókinni og síðan koma ljóð
Matthíasar og myndir Weyers
hvort á móti öðru í opnuna. Ljóðin
eru birt bæði á þýsku og frummál-
inu og þannig valin að þau falla
að efni mynda.
Aftast er skrá yfir myndirnar
merktir eru inn þeir staðir sem
myndir eru af í bókinni.
ra yt
og uppdráttur af Islandi þar sem
Áskriftarsímirm er 83011
L O T U S
10 0 0
Fjölhœf og lipur
saumavél frá Elna
fyrir aðeins kr.l3-500. -
Lotus 1000 er saumavél sem kemur þér á óvart.
Hún er lítil og meðfœrileg, aðeins átta kíló á þyngd.
Samt sem áður hefur hún flesta kosti margra
stœrri saumavéla, svo sem tvöfaldan lokusaum (overlock),
sjálvirka gerð hnappagata og margan annan
fjölbreytilegan saum.
Lotus 1000 er sérstaklega framleidd
fyrir svissneska fyrirtœkið Elna, sem er heimsþekkt
fyrir frábcerar saumavélar.
Þú œttir að líta við og kynna þér kosti Elna.
0
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8, SÍMI 27500 — HAFNARSTRÆTI 3 SÍMI 20455