Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
47
X-9
speki
™ /iefo* /% AS"h(tr>Q/r a/9*/n* sttfr*
• ' /‘óma 7jr3e/r/f/*/s-stra’/yrror.
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Ég ætla í dag að svara bréfi
frá áskrifanda 7666-7039.
„Reykjavík, 27. nóvember /iUTvK/M /te69f:
1985. Mig langar að fá upplýs- fo'/wst*rK>/.*#Z>A.
ingar um tvö stjörnukort.
1. fæðingardagur 14.01.
1946 á Akureyri og 2. fæðing-
ardagur 3.09. 1945, kl. 09.30 í
Reykjavík. Með fyrirfram
þökk, kveðja..."
í korti 1 er Sól, Merkúr og
Venus í Steingeit, Tungl í
Tvíbura, Mars, Satúrnus í
Krabba og Júpíter í Vog.
Skipulagður
Þessi staða táknar að þú
ert í grunnatriðum jarðbund-
inn, alvörugefinn, varkár,
íhaldssamur og skipulagður
persónuleiki með sterka
ábyrgðarkennd. Þú ert raun-
sær og vilt sjá áþreifanlegan
árangur gerða þinna og þarft
því að fást við hagnýt við-
fangsefni, eða „raunverulega
verðmætasköpun". Ef þú ger-
ir það ekki tapar þú lífsorku
og lífsgleði, verður þunglynd-
ur og ófullnægður. Sem Stein-
geit hefur þú sterkan sjálf-
saga og ert fæddur fram-
kvæmdastjóri.
Áhyggjufullur
Þú getur hins vegar átt það
til að vanrækja sjálfan þig,
taka á þig of mikla ábyrgð
og hafa of miklar áhyggjur
af öðrum. Steingeitur verða
iðulaga að hafa heiminn á
herðunum. Þú þarft að losa
þig við sjálfsefasemdir og
óöryggi og trúa á sjálfan þig.
Félagslyndur
Tungl í Tvíbura táknar að
þú þarft hreyfanleika í dag-
legu lífi, ert félagslyndur og
vitsmunalega sinnaður, ert
forvitinn og hefur gaman af
margs konar pælingum.
Þessi tvö merki, Steingeitin
og Tvíburinn, eru ólík. Því
togast á í þér ólíkir þættir,
þörf til að taka á þig ábyrgð
og þörf til að vera frjáls og
óháður. í stuttu máli má
segja að í þér búi geysimikil
orka, stórhugur og agi, skipu-
lagsgáfa og sterk ábyrgðar-
kennd.
í korti 2 er Sól í Meyju,
Tungl, Merkúr og Venus í
Ljóni, Mars í Tvíbura, Júpíter
og rísandi í Vog og Satúrnus
og miðhiminn í Krabba. Þú
ert því samsettur úr Meyju,
Ljóni, Tvíbura, Vog og
Krabba.
Samviskusamur
Grunntónninn er Meyja og
ert þú því nákvæmur, sam-
viskusamur og töluverður
reglumaður. Þú ert þó ekki
dæmigerð Meyja, heldur lík-
ast til undir sterkari áhrifum
fráLjóniogVog.
Hlýr
Ljónið táknar að þú ert
stoltur og stjórnsamur en
tilfinningalega hlýr og in-
dæll. Þú vilt vera í miðju í
umhverfi þínu og láta tölu-
vert á þér bera.
Ljúfur
í framkomu ert þú ljúfur
og þægilegur, átt auðvelt með
að umgangast fólk og setja
þig í spor annarra.
I vinnu þarft þú fjölbreyti-
leika og hreyfingu, vilt vinna
með hugmyndir í samstarfi
við aðra.
Ég sé góða hæfileika á
tveim sviðum að minnsta
kosti í korti þínu. Annars
vegar hefur þú hæfileika á
kennslu-, uppeldis- og líknar-
sviðum, vegna Meyju, Krabba
og Neptúnusar og hins vegar
listræna og skapandi hæfi-
leika vegna Vogar- og Ljóns-
áhrifa.
•"/a, /W9V/TAP fuk\ l\
eóhsldaó
rrA séi/ST#oKv
'TAA/rA«-/Ám/
V//AAFf>£/M
rt/n/A /F/////VEKA
Afar/ v/r/fe/K ?
t»t </6F&E6-
’ASr/ /áóxsá/x/
'OA/VÓ//V/S /
DÝRAGLENS
E<S A4VMC>i
EKKl FIKTA
|?eTTA,
EP ás. ,
V/Z&I t?U.
1985 Tnbune Media
t r y S7— —7 T : 1 : : -r^
0URT'
PENM/NN BK
AHR/FA/ME’iW
EN
SUEfZÐ.
sn ' á r —
LJÓSKA
7~r~ ———r—ir T~ Tnv—.. v: . ... nnm . .... .
TA 15 SVOMA KOMFEKT
MOLA
55
/HEG(20NAI?FÆP«5,
X PAGUR?
n>7/T"rÁ
rcKDINAND
SMAFOLK
VES, SIR.. I UlANT MV
MONEV BACK..THI5 IS
THE UI0RST SUMMER CAMP
l'VE EVER BEENTOÍ
IF VOU PONT 6IVE ME
MV M0NEV BACK, l'M
60IN6 TO SUE!
ALLITPOES ISRAIN!
IT'S T00 U)ET TO ENJOV
ANVTHIN6ÍEVEN MVATT0RNEV
THINKS IT'S TOO U)ET...
Já, herra ... ég vil fá endur-
greitt — þetta eru verstu
sumarbúðir sem ég hefi
nokkru sinni verið f!
Ef þið borgið mér ekki
baka, lögsæki ég ykkur!
Maður fær ekki annað en
rigningu! Það er svo blautt,
að maður getur ekki notið
neins. Meira að segja lög-
fræðingnum mínum finnst
það of blautt...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll 4
Arnarson
Skipstjórinn í spili dagsins
var ekki í vandræðum með að
sigla sex hjarta samningi sín-
um í örugga höfn, þrátt fyrir
að harðlega gæfi á bátinn.
Norður
♦ ÁK63
VD52
♦ 8642
♦ D10
Vestur
♦ G74
▼ 98763
♦ DG10
♦ Á4
Austur
♦ D985
▼ -
♦ K9753
♦ 6532
Suður
♦ 102
▼ ÁKG104
♦ Á
♦ KG987
Vestur hitti á besta útspilið,
tíguldrottningu. Suður átti
slaginn á ás og lagði niður
trompásinn.
Óveðursaldan opinberaði sig
og nú var eins gott að halda
vel um stýrið. Fyrst var að
taka tvo efstu í spaða og spila
síðan laufi. Vestur drap á ás-4
inn og stytti sagnhafa í tromp-
inu með því að spila tígli.
Þrátt fyrir að vestur væri
nú orðinn lengri í trompi en
suður, var spilið nú komið í
höfn. Sagnhafi spilaði laufinu
í rólegheitum. Vestur mátti
stinga í það ef hann vildi, það
yrði yfirtrompað í blindum,
trompin tekin og lagt upp.
Vestur er ekkert betur settur
með því að trompa ekki. Þá er
siðasta laufið trompað með
hjartadrottningunni og há--“
hjörtun sjá um afganginn
heima.
Lykilspilamennskan var að
taka spaðaslagin strax, áður
en laufinu var spilað. Ef það
er ekki gert, getur vestur
hnekkt spilinu með því að
henda spöðum í laufin.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hollenska meistaramótinu
í sumar kom þessi staða upp í
skák þeirra Cuijpers, sem hafði
hvítt og átti leik, og Ligter-
ink. Svartur drap síðast hrók
á g5 en hvítur lét sig það engu
varða og lék ægisterkum milli-
leik:
28. — e5!!og Ligterink gafst
upp, því hann verður mát eða
tapar drottningunni. Þessi
ósigur kostaði Ligterink meist-
aratitilinn, í staðinn varð Paul
Van der Sterrem hlutskarpast:
ur, Van der Wiel annar, en
Ligterink þriðji.