Morgunblaðið - 08.12.1985, Síða 53

Morgunblaðið - 08.12.1985, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985 53 mökkurinn hættur að liggja yfir bænum. Helga átti garð fyrir sunnan Pálmalund og hún var ekki fyrr komin norður fyrir ána en farið var að koma þar upp vísi að gerði í skjóli íbúðarhúss og útihúsa. Hér höfðu menn yfirleitt kýr og kindur. Bæði var það til að létta lífsbarátt- una og af illri nauðsyn þar sem litla sem enga mjólk var að fá úr sveitum þar til mjólkurbúið var sett á stofn eftir stríð. Þessum peningi varð að afla heyja. Það kom mikið í hlut Helgu að stjórna því verki því Steingrímur var langtímum saman fjarverandi að sumrum en hann var vegaverk- stjóri hér í sýslu. Eftir að þau hjón fluttu suður vildi hugur löngum dvelja hér fyrir norðan þar sem mikið lífsstarf hafði verið unnið. Þau höfðu ávallt haft mikinn áhuga á skógrækt. Þau áttu jörðina Gunnfríðarstaði þar sem Helga var fædd. Þessa jörð gáfu þau skógræktarfélagi sýslunnar. Hafa þarna verið gróð- ursettar um 70 þús. plöntur með í flestum tilfellum ágætum árangri. Þarna er því að rætast gamall draumur frumherjanna, um að klæða landið skógi að nýju. Ég kynntist Helgu lítið meðan þau hjón áttu heima fyrir norðan. Það var kynslóðabil þá eins og nú. Hún var móðir leikfélaga minna og ég bar óttablandna virðingu fyrir henni. Það sópaði að henni og ekki var reynt að mögla eða hafa á móti því sem hún bauð. Þegar svo við hjónin stofnuðum heimili hér tók hún komu minni af hlýju svo vináttubönd tengdust, sem síðan hafa haldist. Ef til vill fylgir ættrækni og tryggð við heimahagana ættum. A.m.k. heimsóttum við Helgu fyrir nokkrum vikum og hún afhenti hingað á skjala- og ættfræðisafnið myndir af gömlum Húnvetningum er mágkona hennar hafði sent heim til íslands að bróður hennar Jóni Pálma ljósmyndara, látnum, en hann fór til Ameríku nokkru eftir aldamót. Og það eru ekki fyrstu myndirnar sem hún sendir á safnið. Þau Helga komu upp stórum barnahópi. Nú eru afkomendur þeirra yfir eitthundrað. Hún ber mikla umhyggju fyrir fjölskyldu sinni og hún hefir einnig veitt henni margar gleði- og ánægju- stundir. En auðvitað hafa einnif komið erfiðleikar. Þá hefir Helga verið hin styrka stoð, bjargið sem ekki haggaðist. Og ég veit að nú getur hún horft ánægð um öxl. Lífsstarf hennar hefur borið ríku- legan ávöxt. Þótt heimili Helgu væri stórt var þar þó alltaf pláss ef á þurfti að halda, bæði fyrir unga sem gamla. Nokkur gamalmenni áttu skjól hjá henni síðustu æviárin, svo tók hún og nokkra unglinga, sem ekki áttu í annað hús að venda. Það sannaðist þar sem oft áður að það er ekki húsrýmið sem ræður heldur hjartarýmið. Þegar Helga og Steingrímur fluttu suður keyptu þau íbúð á Hófteigi 18. Þar bjó Helga þeim hlýlegt og notalegt heimili. Hún býr þar áfram eftir lát Steingríms og getur að mestu hugsað um sig sjálf. Nú sem fyrr er létt yfir henni og það sér ekki á henni að hún hafi lagt 90 ár að baki. Ef ókunnug- ur vissi ekki um aldur hennar, myndi hann giska á að hún væri um sjötugt. Það er oft gaman að heimsækja gamalt fólk, sem er þrátt fyrir aldurinn í fullu fjöri. En langlífið getur líka verið kvöl, bæði þeim sem gamlir verða og nánustu ætt- ingjum. Við hjónum árnum Helgu heilla á níræðisafmælinu og eigum þá ósk heitasta henni til handa að hún megi áfram uns yfir lýkur njóta góðrar heilsu, andlegrar og líkamlegrar, svo hún geti hugsað um sig sjálf og verið áfram gefandi eins og hún hefir ætíð verið, en ekki þiggjandi. Það á ekki við hennar skapgerð. Lifðu heil. Jón ísberg BURT MEÐ AUKAKÍLÓ - ÆFIÐ 5 MÍN. Á DAG MEÐ FJÖLSKYLDUTRIMMTÆKINU Undirritaöur pantar har mað ----- *th. F|Olakyldutrimmtaak | á kr. 1990 pr. atkr Ha.mili: M nælonhjól fest með stál- fjöðrum. Mikið öryggi Inní sterkum stái fjöðrunum er band. Póatn........ Bær ......... | ; Sendtal i poafkodu Poatkortuk 107 kr I Avisun aanðrst meö | Engtnn sondmgarkostn ... . . | Pöntunarsími91*651414 Misstu aukakiló með þvi I alla dagatráki. 9-22. aö æfa 5 mín. á dag. Burt | smdnt tii: með kílóin og sentimetr- | Pðatvwslunin Prlma ana Bo*S3 Leggðu fljótt af Enginn líkami er góður án vöðva i brjósti maga og bakhluta Kulumagi. fitukeppir, slöpp brjóst, slappur bakhluti o.s.frv. Allt þetta sýmr Brjóstvöðvar slappa vöðva I vefi. \ / Byrjaðu strax ) / að stækka og Magavoðvar slVrkia vöe,v' Slappir vöövar ir STERK HÖNNUN með stálrörum-130 x 37 x 24 cm. með mjúkri bolstraðri setu. Rennur létt á massívum nýlonhjólum. Leggið fljótt af FJÖLBREYTTAR NOTKUNARREGLUR FYLGJA Slapptr vöðvar ana þina með þessari árangursriku og eðlilegu aðferð ssvöövar Æfðir voðvar 222 Hafnarfiröi ►LAGJAFAVER tækjum Þau hefðu átt að hækka um síðustu mánaðamót, en við frestum því fram yfir áramót. Grípið tækifærið. Við höfum ákveðið að hafa S 'S' ■ X N-.' '"

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.