Morgunblaðið - 08.12.1985, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1985
57
svara þeir, — þá hafði Oddur hellt
sig fullan í síðasta augnabliki.
„Hafið þið vitjað ykkar læknis?"
„Nei.“
„Þá skuluð þið gera það,“ áleit
rangt að sletta mér inn í starfssvið
nágrannalæknis.
Með þetta fóru mannagreyin,
lögðu lykkju á leið sína til Brjáns-
lækjar, Davíð fór á stað, en konan
var dáin, þegar hann kom þangað,
því þetta er óravegur, og hefur
vafalaust liðið á annan sólarhring
frá því að sendimenn fóru frá mér
og þar til læknir náði á heimili
sjúklingsins.
Geta má nærri, að þetta varð
ekki til þess að bæta þann orðróm,
sem af mér fór áður, jafnvel Davíð
lá allþungt hugur til min út af
þessu, en eg verð að játa, að kergja
var í mér út af aðförum Odds
læknis og vantrausti fólks á mér
að alveg óreyndu.
Um það bil mánuði síðar koma
aftur tveir menn róandi í ákafa
handan frá Þingeyri, erindið er
sem fyrr að biðja mig að koma til
sængurkonu vestur í Arnarfjarð-
ardölum.
„Þið hafið náttúrlega átt að
sækja Odd,“ segi eg.
„Já, en hann getur ekki komið,“
svara þeir; hann hafði sem sé, eins
og í fyrra skiptið, hellt sig fullan
í síðasta augnabliki.
„Hafið þið vitjað ykkar læknis?"
„Já, en hann er veikur og getur
ekki farið".
„Þá er öðru máli að gegna, þá
skal eg koma.“
Er svo lagt á stað um nónbil og
komið á ákvörðunarstaðinn klukk-
an um 10 um kveldið. Færð var
sæmileg, tungl í fyllingu og besta
veður. Bóndi stendur úti á hlaði,
er við komum, sér vitanlega strax,
að ekki er Oddur með, mælir mig
hátt og lágt.
„Það er því miður ekki Oddur,"
segi eg, „en er konan lifandi?"
„Já.“
„Ég veit ekki, hvort þér getið
notað mína hjálp.“
„Jú, verið þér velkominn."
Síðan býður hann mér inn í bæ
og opnar loftshlerann; þá heyri eg
sagt uppi; „Guði sé lof, þarna
kemur hann!“ Eg geng upp stigann,
og þegar eg rek höfuðið upp úr
stigagatinu, segir sama röddin og
stynur þungan: „Og það er þá
Sigurður." Þetta er þá yfirsetukon-
an, er situr á rúmstokknum hjá
sængurkonunni, er tók þannig á
móti mér, og má geta nærri, hversu
vel mér féll, þar sem þetta var nú
í fyrsta sinn, er eg átti að hjálpa
sængurkonu upp á eigin ábyrgð.
Eg verð að játa, að eg var ekkert
tiltakanlega þjáll eða blíður við
ljósmóðurina og heimafólkið; eg
bjó mig sem skjótast undir að
rannsaka konuna og hjálpa henni;
tók eg þar tvö andvana fóstur, sem
voru talsvert farin að rotna.
Mér datt í hug á eftir, að ef
vesalings konan hefði haft dauða
sinn af þessu, þá mundi eg hafa
fengið kveðjurnar, og sennilega
hefði það þá heitið svo, að eg hefði
drepið fóstrin líka. En þetta fór
nú allt betur, konunni batnaði og
hefur til skamms tíma lifað hér í
Reykjavík.
Nokkrum árum síðar fékk hún
brjóstmein og beinátu í sternum
(bringubeinið), fór til Reykjavíkur
að leita sér lækninga við því, en
árangurslítið, og varð eg til þess
að losa hana við þann kvilla — og
úr því mátti heita salla-fín vinátta
milli mín og þessa fólks.
Okkar fundum, þessarar yfir-
setukonu og mínum, bar oft saman
eftir að eg fluttist í Patreksfjarð-
arhérað, og af því að eg er nokkuð
minnugur á mótgerðir, þó eg ekk-
ert geti munað af því, sem eg á
að muna, þá sagði eg, að minnsta
kosti í nokkur fyrstu skiptin, sem
eg hitti hana, og auðvitað með
tilheyrandi andvarpi: „Og það er
þá Sigurður!" „Æ, verið þér nú
ekki að þessu!" sagði kella, og allt
endaði með sæmilegu samkomu-
lagi.
Líður svo þessi vetur, að ekki
ber annað eða fleira til tíðinda,
sem í frásögur sé færandi.
I) Svo í handrili höfundar «« á llppdrætti fs-
••nds (Norðventurlind), 1979, er mál heima-
■nanna (o* jafnfrnmt fornt mál) er Bjarnardalur.
-V PRJÓNASTOFAN
Udunru
Nýjar peysur í hverri viku m.a.
herrapeysur og jakkar. Verzl-
un okkar viö Nesveg er opin
daglega frá 9-6 og laugar-
dagafrá 10-4.
Komiö og sjáiö hið ótrúlega
úrval okkar.
PEYSUR • DÖMUPEYSUR • BARNAPEYSUR • HERRAPEYSUR • PEYSUR
Hver vill ekki eignast einbýlishús
á þægilegan hátt?
Dæmi sem gengur upp!
Siglufjarðarhúsin eru íslensk einingahús, hönnuð af
sérfræðingum sem miða við smekk íslendinga,
ströngustu gæðakröfur og erfið veðurskilyrði.
Þau eru reist á ótrúlega skömmum tíma og afhent
fullfrágengin að utan en fokheld að innan, þ.e. með
útihurðum, gleri og jámi á þaki eða lengra komin.
Einingamar má nota í margt fleira en íbúðarhús. T.d.
sumarbústaði, verslunar- og skrifstofuhúsnæði, dagheim-
ili, skóla, milli steyptra gafla og fleira.
Kannaðu kosti Siglufjarðarhúsanna. Komdu eða sláðu
á þráðinn og berðu hugmyndir þínar saman við teikning-
ar okkar.
Dæmi:
143 m2 Eyrarhús kostar 1.454.250.-
Greitt með
húsnæðismálastjórnarláni
5 manna fjölskyldu —1.175.000.-
Greitt fyrir afhendingu 279.250.-
Húiið er afhent fullfrágengið að utan en fokhelt að innan
Innifalið í verðinu em teikningar, uppsetningar- og
flutningskostnaður. Sama verð alls staðar á landinu.
HÚSEININGAR HF
STOFA
HJON
HERB
MOGUL BlýSKUR
(ö
:o
O)
3
03
KÓPAVOGI
HAMRABORG 12
SÍMI 91-641177
SIGLUFIRÐI
LÆKJARGÖTU 13
SÍMI 96-71340