Morgunblaðið - 08.12.1985, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
71
Minning:
Asta Norðmann
listdansarí
Á morgun mánudaginn 9. des-
ember verður útför Ástu Norð-
mann listdansara gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík. Ásta til-
heyrði þeirri kynslóð í landinu sem
veitti nýjum menningarstraum
farveg í þjóðlífinu. Gleggsta
dæmið um hversu ungt islenskt
samfélag er í mörgu tilliti er, að
á því árabili sem nú er falla í
valinn brautryðjendur margra
fagurra lista hér á landi, listgreina
sem eiga sér aldagamlar hefðir
með skyldum menningarþjóðum.
Ég leyfi mér að draga í efa að
nútímafólk hafi öðlast sýn á
hversu mikið allur fjöldinn á að
þakka þeim fáu sem fóru fyrir á
því sviði sem öðru. Nýútkomin bók
Konur hvað nú? er þó lýsandi
vottur þess að tekið er að halda
nafni frumherjanna á loft. Þar er
Ástu Norðmann getið og starfs
hennar við að grundvalla æðri
danslist á íslandi. Við Ásta Norð-
mann vorum venslaðar á þann hátt
að eiginmaður hennar var einn
minna nánustu vandamanna og
milli mín og hennar var ævinlega
hlýtt vinarþel. Vildi ég við fráfall
hennar minnast þess með nokkr-
um orðum.
Ásta fæddist á Akureyri 26.
ágúst 1904. Hún var af góðu bergi
brotin og að henni stóðu traustar
ættir. Faðir hennar var Jón
Steindór kaupmaður og útgerðar-
maður á Akureyri sonur séra Jóns
Norðmanns sem lengst var prestur
að Barði í Fljótum og Katrínar
Jónsdóttur prests að Undirfelli
Eiríkssonar. Þess má geta að talið
var að Margrét móðir séra Jóns
væri laundóttir séra Jóns skálds
Þorlákssonar á Bægisá. Jórunn
móðir Ástu var dóttir Einars Bald-
vins bónda og hreppstjóra á
Hraunum í Fljótum Guðmunds-
sonar og fyrstu konu hans Kristín-
ar Pálsdóttur prests í Viðvík Jóns-
sonar. Ásta var næstyngst sjö
systkina, yngri er Jórunn búsett í
Reykjavík. Eldri voru Katrín Við-
ar sem býr hér í borg í hárri elli,
Jón sem lést ungur við tónlistar-
nám, Kristín er féll frá á besta
aldri, Einar Baldvin dó ungbarn
og óskar stórkaupmaður í Reykja-
vík látinn fyrir nokkru síðan.
Föðursystur Ástu voru Freyja
sem gift var Rögnvaldi Björnssyni
í Réttarholti og Evgenía sem átti
Dúa Grímsson á Krakavöllum,
þeirra sonur var Jón Dúason
fræðimaður. Börn Einars á Hraun-
um, móðursystkin Ástu, voru Jón
og Sveinn sem ráku verslunarfyr-
irtæki á Raufarhöfn, Guðmundur
faktor á Siglufirði, Bessi búsettur
á Akureyri, Páll borgarstjóri í
Reykjavík og síðar hæstaréttar-
dómari, ólöf sem giftist Guðmundi
Davíðssyni frá Hofi og bónda á
Hraunum, Helga gift Árna Thor-
steinsson tónskáldi; hálfsystkinin
Baldvin lengi fulltrúi hjá Eimskip
í Reykjavík, Magna starfsmaður
þess fyrirtækis í Kaupmannahöfn
og Nikólína gift í Danmörku. Enda
þótt Ásta væri aldrei sjálf marg-
mál um skyldfólk sitt þá er hennar
ættarrannur þessi og vissulega
mat hún mikils að telja til þeirra
sem settu metnað í að byggja upp
íslenskt samfélag og stuðla að
sjálfstæði þess. Alkunnugt er að
af Hraunafólki er Baldvin Einars-
son sem í störfum sínum var
undanfari Fjölnismanna og hefur
verið kallaður fyrsti islenski
stjórnmálamaðurinn á nútíma-
vísu.
Bernskuheimili Ástu stóð á
Akureyri og þar steig hún sin
fyrstu spor í glöðum hópi systkina
sinna. Hagur fjölskyldunnar var
góður, faðirinn dugmikill ogefnað-
ist vel. Sólin virtist skína í heiði
þegar skugga bar yfir. Ásta var
aðeins fjögurra ára þegar faðir
hennar veiktist alvarlega og fór
til Danmerkur til lækninga. Þar
lést hann 1908 og var kona hans
þá úti hjá honum. Ólöf á Hraunum
íét sækja systurbörn til Akureyrar
og hjá henni dvöldust þau uns
móðirin kom heim aftur. Ári síðar
fluttist Jórunn með börn sín til
Reykjavíkur, hefur hún án efa
talið meiri möguleika þar til að
mennta börn og hún talið sig hafa
styrk af nágrenni við þau systkini
sín sem þar bjuggu. Þess má geta
að meðan fjölskyldan bjó á Akur-
eyri missti hún heimili sitt í mikl-
um eldsvoða 1903 þegar sjö hús
brunnu þar samtímis. Sigurbjörn
Sveinsson höfundur Bernskunnar
og fleiri rita fellir þá atburði inn
í frásagnir sínar og getur við-
bragða litlu systranna í húsi Norð-
manns kaupmanns.
í Reykjavík bjó Jórunn með
börnum sínum lengst í húsinu
Ásbyrgi við Kirkjustræti. Þar er
nú bifreiðastæði, milli Herkastal-
ans og Skjaldbreið en var áður
reisulegt tvílyft timburhús sem
varð eldi að bráð fyrir allmörgum
árum. Þarna var æskuheimili Ástu
i hjarta bæjarins, hún stundaði
venjulegt barnaskólanám og sem
unglingur verslunarnám. Líkt og
systkin hennar var Ásta listelsk
og listhneigð og sér í lagi heillaði
dansinn hana. Stefanía Guð-
mundsdóttir leikkona hafði kynnt
sér danskennslu erlendis og rak
ásamt Guðrúnu Indriðadóttur
dansskóla í Iðnó. Þar lærði Ásta
barna- og samkvæmisdansa.
Ásamt dætrum Stefaníu og öðrum
jafnöldrum sínum tók hún þátt í
sýningum þar sem dansatriði til-
heyrðu. Man ég mynd á póstkorti
af skrautatriði úr barnaleiksýn-
ingu sem Stefanía stýrði við há-
tíðahöld 19. júní 1916. Þar er Ásta
í hlutverki álfameyjar með stjörnu
í hári og töfrasprota í hendi tilbúin
til að vekja af værum blundi kon-
ungssoninn sem Anna Borg lék.
Ásta þráði að halda áfram á þess-
ari braut og tækifærið kom upp í
hendurnar á henni þegar Kristín
systir hennar þá gift Páli ísólfs-
syni var á förum með honum til
Leipzig 1921. Ásta var aðeins 17
ára og móðir hennar treystist ekki
til að senda hana eina út í hinn
stóra heim en í öruggri umsjá eldri
systur var fararleyfi auðsótt. Leip-
zig er borg mikillar tónmenningar
og lista og þar stundaði Ásta nám
í listdansi í eitt ár. Heimkomin
stofnaði hún haustið 1922 dans-
skóla sem var til húsa í Bárunni
fyrir börn og fullorðna. Hún
kenndi barnadansa sigilda sam-
kvæmisdansa svo sem Lancier
einnig nýjustu dansana eins og
þeir voru í Evrópu á fyrstu árum
eftir fyrra stríðið. Hún stóð fyrir
danssýningum í Iðnó þar sem
nemendur hennar komu fram og
hún æfði úrvalsflokka sem sýndu
margs konar dansa. Danssýningar
frá skóla Ástu Norðmann voru nýr
þáttur í menningarlífi höfuðstað-
arins og færði bæjarbúa nær nú-
tíðinni. Fyrir sumum voru þær
IKURINN
Christine Nöstllnger
—Óborganleg barnasaga
Dag nokkurn kemur pakki með
póstinum til Bertu Bartolotti.
í honum er niðursuðudós og I
henni sjö ára drengur, verk-
smiöjuframleiddur, kurteis og
hlýðinn.Eiginlega alltof hlýðinn.
Leiftrandi fjörug barnasaga,
sögð af næmum skilningi á
draumum og tilfinningum
barna. — Valdís Óskarsdóttir
þýðir söguna.
Verö kr. 588.00
'EKKERT'
STRlÐ
Tilman Röhrig
—í þágu friöarins — Þrjátíu ára stríöið er i algleymingi.
Börn og unglingar skilja ekki lengur merkingu orðsins friður.
Jockel er 15 ára og ástfanginn í fyrsta sinn. En í stríði er
ekki tími fyrir slík ævintýri.— Bókin hlaut Þýsku barna- og
unglingabókaverðlaunin árið 1984. — Þorvaldur Kristinsson
þýðir söguna. __
Verð kr.
680.00
1 •*»*i i
^KERT STRÍÐ
4.1
"LEYSIÐ GtTU NA SJÁLF
Martln Waddell
—Ertu góö leynilögga?
Nýr flokkur leynilögreglusagna fyrir
böm og unglinga. Leynisveitin er
fjórir unglingar: Kalli, Smári, Anna og
Bogi. Lesandinn á sjálfur aö ráöa gát-
una með þeim og fær margar visbend-
ingar. Að sögulokum reiknar spæjar-
inn ungi út stigafjölda sinn fyrir
frammistööuna. Jafnast hann á við
Derrick eöa er hann byrjandi i Ustinni?
Fyrstu sögurnar um leynisveitina heita:
LEYNISVEITIN OG BRAGÐA-
REFURINN BRELLNI
LEYNISVEITIN OG BÓFARNIR Á
BLÍSTURSEY.
Verö kr. 394.00.
“DURAN--------KULDA”“—K4STALA-------------
DURAN STRIÐIÐ DR4UGURINN
Saga þessarar heimsfrægu
hljómsveitar í mynd og
máh. Meira en sjötiu Ut-
myndir. Plötu- og mynd-
bandaskrá hljómsveitar-
innar.
Verð kr. 400.00.
Tfeiknimyndasaga um leyni-
þjónustumanninn 421.
Miskunnarlausir heimsvalda-
sinnar sprengja sprengjur svo
aUs staöar fer að snjóa.
421 fer á stúfana . . .
Verð kr. 375.00.
Spennandi teiknimyndasaga
um Yoko Tfeuno. í gömlum
kastala í Skotlandi er ekki aUt
með feUdu. Yoko leggur saman
tvo og tvo . . .
Verð kr. 300.00.
Áskriftarsíminn er 83033
85 40