Morgunblaðið - 08.12.1985, Side 73
73
mikið var klappað, þá heyrðist oft
yfir lófatakið: „Bravó“ eða „Da
Capo“, og þá var þar engin önnur
en Ásta, sem lífgaði enn betur upp
á stemmninguna.
Þegar við stofnuðum Félag ís-
lenskra listdansara árið 1947, var
Ásta nokkuð farin að draga sig í
hlé, þó að hún ætti reyndar enn
eftir að vinna að Nýársnóttinni.
Þrátt fyrir það, var stofnfundur-
inn haldinn á heimili hennar,
Fjölnisvegi 14, og hún lét það eftir
okkur að verða fyrsti formaður
félagsins, enda þótti okkur hinum,
öllum sem einni, hún vera sjálf-
kjörin til þess. Það er lítill vafi á
því að við völdum rétt, því að hún
var eldri og veraldarvanari og
hafði meiri persónuleika til að
bera en við hinar, enda komu
þessir eiginleikar að góðu haldi við
að ryðja félaginu braut inn í
bandalag ísl. listamanna strax á
fyrsta ári. Það var ekki auðunnið
verk, en var auðvitað ómetanleg
viðurkenning á félaginu og dansin-
um sem sjálfstæðri listgrein. Með
stofnun félagsins var auðvitað að
því stefnt að komið yrði upp flokki
vel menntaðra listdansara, og
þann draum sá Ásta rætast. Ásta
varð svo fyrsti og eini heiðurs-
félagi Félags ísl. listdansara fram
til þessa.
Eg held ég mæli örugglega fyrir
munn allra íslenskra listdansara
ef ég segi að við áttum öll Ástu
skuld að gjalda og viljum öll votta
henni látinni djúpa virðingu okk-
ar. Sérstaka virðingu vottum við,
þær sem höfðu nánasta samvinnu
við Ástu á fyrstu árunum eftir
stríðið og stofnun Félags íslenskra
listdansara, Sigríður Ármann,
Sigrún Ólafsdóttir og Ellý Þor-
láksson.
Kveðja:
Elín S. Aðal-
steinsdóttir
Fædd 10. júní 1938
Látin 28. nóvember 1985
Kvödd hefur verið hinstu kveðju
Elín Sigrún Aðalsteinsdóttir.
Kynni okkar hófust er Elín hóf
störf í kjötdeild Miklagarðs. Elín
var einstök starfsmanneskja hvað
snertir dugnað, vandvirkni og
vinnuþrek. Enn það sem fyrst og
fremst gerði Elínu vinsæla var
framkoma hennar við samstarfs-
fólk sitt. Til Elínar var leitað í
gleði og sorg, og öllum gat hún
einhverju miðlað. Stunduð hagnýt-
um ráðum, stundum móðurlegri
hlýju.
Elín hafði mikla hæfileika til
að miðla af verkkunnáttu sinni.
Sú hugsun hvarflar óneitanlega
að okkur að skarð hennar verði
vandfyllt, bæði sem starfsmanns,
góðs vinar og félaga.
Á þessum hljóðu og döpru dög-
um hefur okkur oft verið hugsað
til ástvina hennar. Við vitum að
orð mega sín lítils fyrir þá sem
mikið hafa misst og sorgin nístir,
en máske hlýjar hugsanir og heitar
bænir megi milda þá raun.
Ástvinum hennar sendum við
samúðarkveðj ur.
Blessuð sé minning Elínar S.
Aðalsteinsdóttur.
Samstarfsfólkið, kjöt-
deild. Miklagarði
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1985
Börnum hennar og venslafólki
öllu sendum við hjónin hugheilar
samúðarkveðjur.
Sif Þórz
Kveója frá Félagi ís-
lenskra listdansara og ís-
lenska dansflokknum.
LISTDANSINN er sú listgrein hér
á landi sem hefur einna fæstum á
landi sem hefur einna fæstum
liðsmönnum á að skipa en hefur
þó náð einna lengst. Við lát Ástu
Norðmann er stórt skarð höggvið
í þann fámenna hóp sem starfað
hefur að uppbyggingu og þróun
þessarar listgreinar hér, því hún
var einn af frumherjunum.
Árið 1947 stofnaði Ásia ásamt
nokkrum öðrum dönsurum Félag
íslenskra listdansara og var kjörin
fyrsti formaður þess. Það var
meðal annars fyrir hennar atorku
að sama ár fékk félagið aðild að
Bandalagi ístenskra listamanna og
þar með var listdansinn viður-
kenndur sem jafningi annarra list-
greina.
Markmið félagsins frá upphafi
var stofnun atvinnudansflokks og
að búa þannig um hag listdansara
að þeir gætu lifað af listgrein
sinni, en Ástu dreymdi um að það
yrði að veruleika skömmu eftir
opnun Þjóðleikhússins árið 1950.
Ásta vann sitt síðasta verkefni
sem danshöfundur við vígslu Þjóð-
leikhússins þar sem hún samdi
dansa á Nýársnóttina, eftir Ind-
riða Einarsson, en J)að var hins
vegar ekki fyrr en Islenski dans-
flokkurinn var stofnaður í maí
1973 sem draumur hennar rættist.
Eftir að Ásta lét af störfum
fylgdist hún náið með því sem var
að gerast í listgreininni og veitti
allan þann stuðning sem henni var
unnt. Undirritaður minnist þess
er Íslenski dansflokkurinn frum-
sýndi sinn fyrsta heilskvöldsball-
ett, Coppeliu, árið 1975, dreymdi
hann nóttina áður að Ásta stæði
í anddyri Þjóðleikhússins með
fangið fullt af blómum og afhenti
dansflokknum.
Ásta Norðmann var fyrsti og til
þessa eini heiðursfélagi Félags
íslenskra listdansara.
Að lokum vil ég fyrir hönd Fé-
lags íslenskra dansara og íslenska
dansflokksins og annarra þeirra
sem unna listdansinum þakka
Astu fyrir ómetanleg störf hennar
í þágu listgreinarinnar. Þau störf
munu verða skráð í sögu félagsins
sem og í sögu dansflokksins og að
sjálfsögðu í sögu listdans á Islandi.
Ættingjum hinnar látnu send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
f.h. Félags íslenskra listdansara
og Islenska dansflokksins,
Örn Guðmundsson.
t
Útför eiginmanns mins, fööur, tengdafööur og afa,
KRISTJÁNS KRÖYER
frá Stóru-Brekku,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. desember kl. 15.00.
Malen Kröyer,
Guðlaug Kröyer, Jón Björnsson,
Elín Kröyer, Þorsteinn Þórarínsson,
Sigrún Kröyer, Jón Haraldsson,
og barnabörn.
Útför
t
frú Ástu Norömann
verður gerö frá Dómkirkjunni mánudaginn 9. desember kl. 10.30.
Kristín Egilsdóttir,
Dorette og Árni Egilsson,
Guörún og Mér Egilsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö útför
ÞORSTEINS BJARNASONAR
fré Neöri-Miövík í Aöalvik.
Bestu kveöjur.
Dætur og aörir vandamenn.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
SIGMARS BRYNJÓLFSSONAR.
Esther Jóhannesdóttir,
Sveinn Jensson og fjölskylda,
Kjartan Jensson og fjölskylda.
t
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall eiginmanns
míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa
BORGARS GUOMUNDSSONAR.
Jensey Kjartansdóttir,
synir, tengdadœtur og fjölskyldur.
t
Þakka auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför fósturföö-
ur míns,
SIGURÐAR ÁSGEIRSSONAR,
Skipholti 18.
Fyrir hönd vandamanna,
Hulda Valdimarsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem meö blómum, skeytum
og nærveru sinni auösýndu mér samúö og hlýju við andlát og
útför eiginmanns míns,
JÓNASAR E. I. HELGASONAR,
fré Trostansfirði.
Guö blessi ykkur öll.
jris Anja Honkanene.
t
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
ÓSKARS R. MAGNÚSSONAR,
Hringbraut 90.
Sígrún Ágústsdóttir,
Skúli Óskarsson, Birna Ólafsdóttir,
Sigmar Óskarsson, Elísabet Snorradóttir.
t
Alúöarþakkir til allra þeirra er sýnt hafa viröingu, samúð og
vinarhug viö andlát og útför,
VÍKINGS JÓHANNSSONAR,
fyrrv. tónlistarskólastjóra og amtsbókavaröar,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir eru til félaga Lúörasveitar Stykkishólms og
kirkjukórs Stykkishólmskirkju.
Sigurborg Skúladóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Kæru vinir og vandamenn, viö þökkum innilega allan hlýhug
og þá samúö sem okkur hefur veriö sýnd viö andlát og útför
sonar okkar, bróður og mágs,
STEINARS SKÚLASONAR.
Erla Vilhjélmsdóttir,
Skúli G. Jóhannesson,
Vilhjálmur Skúlason,
Unnur Steinsson.
T.
t
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóður og ömmu,
GERDUSTEFÁNSSON,
Brekkugötu 12, Akureyri.
Stefén Jónsson, Magnea Kristjénsdóttir,
Sveinn Óli Jónsson, Anna Lilja Kvaran,
Geröa Ásrún Jónsdóttir, Ólafur Jóhannesson
og barnabörn.
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÓLAFUR DAVÍO VILHJÁLMSSON,
Stórholti 24, Reykjavík,
verður jarösunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 9. des. kl. 15.00.
Sígríöur Björg Ólafsdóttir,
Oddgeir Ólafsson, Guóbjörg Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.