Morgunblaðið - 08.12.1985, Page 77
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR8. DESEMBER 1985
77
áþekkar því, sem að ofan getur.
Upphafið var á fjórða áratugnum.
Á Menntaskólanum á Akureyri,
því merka menntasetri, var margt
efnilegra meyja og sveina. I huga
unglings beint úr sveitinni var
þetta mannval. Þetta voru
menntamenn er gnæfðu upp yfír
fjöldann. Þeir, sem í efri bekkjum
sátu, stóðu hæst. Ég minnist
systra tveggja, sem þá sátu í
stærðfræðideild, Kristínar og
Rannveigar Kristjánsdætra, fyrst-
ar kvenna til að leggja út á hála
og bratta braut stærðfræðilegra
viðfangsefna við þessa stærstu
menntastofnun Norðurlands.
Brautin sú varð þeim þó ekki svo
erfið, sem mörgum öðrum. Frá-
bærar námsgáfur og skýrleiki í
hugsun skipuðu þeim í efstu sætin.
Stærðfræði og greinar sem
henni tengjast gjarnan í námi,
efnafræði og eðlisfræði, voru
Kristínu mjög hugleiknar og leiddi
til þess að hún hélt utan til Kaup-
mannahafnar að loknu stúdents-
prófi og nam efnaverkfræði við
tækniháskólann þar og lauk prófi
þaðan árið 1945. Á fyrstu áratug-
um þessarar aldar var nám í verk-
fræði, ekki sízt efnaverkfræði,
næsta fátítt. Starfandi í þeirri
grein, hérlendis, voru þá innan við
tugur manna. Engin kona var í
þeim hópi. Kristín Kristjánsdóttir
var fyrsta íslenzka konan til að
ljúka verkfræðinám. Hún valdi
efnaverkfræðina, en þar er víð-
feðmið kannski hvað mest, eða var
á þessum tíma. Möguleikarnir
ótæmandi, verkefnin tröllaukin.
Við heimkomu frá námi hóf
Kristín fljótlega störf í þágu ís-
lenzkra atvinnuvega. Hún starfaði
um tveggja ára bil hjá Fiskimála-
nefnd með aðstöðu á rannsóknar-
stofu iðnaðardeildar Atvinnu-
deildar háskólans og síðar, árin
1948—1954 á búnaðardeild At-
vinnudeildarinnar. í starfi Krist-
ínar á þessari stofnun kynntist
undirritaður viðhorfum hennar og
starfshæfni vel, bæði sem sam-
starfsmaður og sem nágranni.
Fyrri kynni frá Akureyri höfðu að
sjálfsögðu sitt að segja, en viðmót
Kristínar, hlýja, létt lund og hjálp-
semi, leiddi fljótt til vináttu.
Kristín var ættuð og alin upp í
sveit, á höfuðbólinu Dagverðareyri
við Eyjafjörð. Það var því eðlilegt
að áhugi hennar beindist að rann-
sóknum á sviði jarðræktar. Búnað-
ardeild Atvinnudeildar var þá i
ióaf
meginþorra
þjóöarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er2 24 80
örum vexti og jarðvegsrannsókna-
deild, undir stjórn dr. Björns Jó-
hannessonar, þegar með fjölþætta
starfsemi. Á því sviði vann Kristín.
Tvö siðustu starfsárin stundaði
hún, í tengslum við starf sitt á
búnaðardeild, rannsókn á sérverk-
efni við rannsóknarstofnun um
jarðræktarvísindi í Aberdeen í
Skotlandi. Hún hafði hlotið British
Counsil styrk til þessarar dvalar
og rannsóknarstarfa.
Eftir fráfall systur sinnar,
Rannveigar, hvarf Kristín frá
rannsóknarstörfum og tók að sér
umsjá heimilis og fjölskyldu syst-
urinnar. Hún giftist um það leyti
Peter Hallberg, prófessor í Gauta-
borg, og settist að þar ytra.
Þó starf Kristínar, í beina þágu
íslenzkra atvinnuvega, yrði ekki
nema nær því áratugur var það
giftudrjúgt. Hún hélt og áfram að
iðka sín fræði sem kennari í efna-
fræði í Gautaborg. Kristín hélt
tengslum við föðurlandið og átt-
hagana og þau hjón bæði áttu hér
mörg spor.
Að leiðarlokum vefst manni
gjarnan tunga um tönn. Glæsileg-
ur persónuleiki er horfinn, hug-
þekkur einstaklingur hniginn í
valinn. Kristín var sterkur ein-
staklingur með hugrekki braut-
ryðjandans sem fyrsta íslenzka
konan. Hún vinnur merkilegt starf
á sínu sviði. Hún berzt hetjulegri
baráttu, á annan áratug, við erfið-
an sjúkdóm án þess að bugast. Á
stundum nær því að sigra. Það eru
góðar minningar við hana tengdar.
Virðing og þakkir stéttarbræðra
hennar og -systra eru okkur efst
í huga. Eg færi eiginmanni og
öðrum aðstandendum samúðar-
kveðjur.
Jóhann Jakobsson
Islandsk-Norsk
Ordbok
eftir Ivar Orgiand og
Frederik Raastad.
Handhæg íslensk-norsk orðabók í þægilegu
broti. f bókinni er að finna 15 þúsund íslensk
orð og orðatiltæki og þýðingu þeirra bæði á
nýnorsku og bókmáli.
Auk daglegs máls nær orðaforðinn einnig
yfir algenga málnotkun á sviði menningar og
almennra greina.
Bók sem skort hefur tilfinnanlega hingað til.
BOK
AUÐVTTAÐ
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ. AUSTURSTRÆTI 18, SÍMI 25544.
AIWA
AIWA
Vorum aö fá 30% lægra verö frá framleiöanda á einni sendingu
af þessari stórglæsilegu hljómtækjasamstæðu V-900 B.
Útvarp: LB, MB, FM-stereo meö sjálfleitara og tólf stööva minni, klukku og
tímastilli fyrir upptöku eöa afspilun.
Magnari: 2x90 wött. 5 banda tónjafnari, jafnt á upptöku sem afspilun.
Segulband: 20-18000 riö, metal, lagaleitari, 2 mótorar, sjálfvirkt val á norm-
al, CrO2 og Metal spólur. Auto record mute, samhæfö tenging viö útvarp og
plötuspilara
Plötuspilari: Sjálfvirkur eöa manual, linear tracking.
Þetta er einstakt tækifæri til aö eignast frábæra hljómtækjasamstæöu á
veröi sem á sér enga hliöstæöu miöaö viö gæöi.
Verö kr. 47,280 stgr. án hátalara.
Bjóöum einnig kr. 10.000,- útb. og eftirstöðvar á allt að 8 mán.
D i. . i
íxaaio
i r
Ármúla 38,
Garðakaupum/Garöabæ.