Morgunblaðið - 21.12.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUÓARDAGUfcSl. DESEMBERlSto
47
Karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit.
Jólatónleikar í
Bústaðakirkju
SELKÓRINN á Seltjarnarnesi og
Karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit
halda sameiginlega tónleika í Bú-
staðakirkju sunnudaginn 22. des. nk.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Á
dagskránni eru jólasálmar og jóla-
lög. Einsöng syngja: Guðrún Tóm-
ing!
asdóttir, Ólafur Magnússon og
Sigmundur Helgason. Undirleikari
er Guðmundur Ómar Óskarsson.
Stjórnandi kóranna er Helgi R.
Einarsson. (FrétUUIkjmniiig)
Selkórinn á Seltjarnarnesi.
Sælgætisfram-
leiðanda svarað
eftir Magnús R.
Gíslason
KRISTINN Björnsson fram-
kvæmdastjóri Nóa og Síríus skrifaði
grein í Morgunblaðið 19. des. sl. sem
hann nefnir Sælgæti, sykurneysla
og tannhirða.
Er þakkarvert að vakin er athygli
á greinum og ábendingum heilbrigð-
isráðuneytisins, sem birst hafa
undanfarið og hvatt hafa til heppi-
legs fæðuvals og betri neysluvenja.
Ánægjulegt er til þess að vita að
fræðsluefnið hefur vakið einhverja
til umhugsunar.
Þar eð greinarhöfundur telur þær
upplýsingar sem ráðuneytið hefur
gefið upp ekki alls kostar réttar
skal þess getið að þær eru fengnar
£rá Hagstofunni og þykir mér rétt
að leiðrétta þann misskilning sem
grein Kristins byggir á.
1. Greinarhöfundur telur að inn-
lend sælgætisframleiðsla hafi
verið rúmum 300 tonnum minni
árið 1984 heldur en ráðuneytið
taldi. Skýringin er sú að hann
notar samantekt Hagstofunnar
frá 20.11. 1985 með samanburði
á markaðshlutdeild innlends og
erlends sælgætis en tekur ekki
tillit til þess að þar er einungis
talin með framleiðsla 6 innlendra
framleiðenda en þeir eru fleiri,
t.d. skiluðu 14 skýrslu til Hag-
stofunnar 1983.
2. Það sama gildir um það magn
sem flutt er inn. Þar notar Krist-
inn sömu skýrslu en í hana vant-
ar lakkrís sem nam rúmum 108
tonnum.
Önnur atriði í grein Kristins stað-
festa upplýsingar ráðuneytisins,
m.a. að verð sykurs hérlendis er
aðeins H af því sem það er á hinum
Norðurlöndunum enda sykur án
tolla, vörugjalds og söluskatts á
Magnús R. Gíslason.
meðan greiddur er t.d. af tann-
burstum 50% tollur, 20% vörugjald
og 25% söluskattur.
Eins og Kristinn bendir réttilega
á í grein sinni er það fleira en
fæðuvalið sem hefur áhrif á fjölda
tannskemmda. Neysluvenjur og
tannhirða hafa mikið að segja og
því hefur ráðuneytið beitt sér fyrir
að þeir sem ekki geta án sælgætis
verið reyni að takmarka átið við
eitt skipti í viku, t.d. á laugardögum.
Einnig hefur ráðuneytið staðið
fyrir útgáfu á bæklingum m.a. um
rétta tannhirðu og beitt sér fyrir
sérstökum tannverndardegi og
tannhirðudegi, sérstaklega í grunn-
skólum landsins, á þessu ári, svo
að nokkuð sé nefnt.
Höfundur er yfirt&nnlæknir beil-
brigðismálaráðuneytís.
Toppurinn
í dag
TISSOT
lifandi
tá’—
•IS
Jón Bjarnason,
úrsmiöur.
Sími 96-24175.
Akureyri.
• •
FULL BUD AF GJAFAV0RUM
Allt tilað auka ánægjuna af heimilishaldinii
Allt tilað gera borðhaldið hátíðlegt
Pottar — Pönnur — Lampar - Kaffikönnur — Teborö o.fl.
Allt sem léttir hússtörfin
Hnífapör - Matarstell - Eldföst stálföt meö silfurá^rð - Dúkar - Bakkar - Skrautkerti o.fl.
Aiit vörur í hæsta gæðaflokki
frá heimsÞekktum framleiðendum
HEIMILIS- 0G RAFTÆKJADEILD
HEKLAHF
LAUGAVEGI 170 • 172 SIMAR 11687 21240
Hrærivéiar - Kæiiskápar - uppþvottavélar - Djúpstelkingapottar - Brauörlstar -
Rafmagnskjöthnífar - Tauþurrkarar - Pvottavélar - Sorpkvarnir - Straujárn - Hárpurrkur o.fl.