Morgunblaðið - 21.12.1985, Page 67
CRAIG JONES
('raig Jonos: Fatal Attraction
Ballantine Books 1984
Fatal Attraction segir frá fjöl-
skyldu Matts sjónvarpsmanns,
Claudiu konu hans fyrrverandi og
dóttur þeirra, Joanne. Þau hjón
hafa slitið samvistir eftir fráfall
sonar þeirra og þær mæðgur kenna
Matt hálft í hvoru um dauða pilts-
ins, vegna þeirrar harðneskju sem
hann sýndi honum og rak hann út
það sama kvöld og hann ók í burtu
í offorsi og beið bana. Matt hefur
tengst Adele, ungri stúlku og hann
reynir smám saman að bæta
samskiptin við þær mæðgur.
Unnusti Joanne, Budd, er honum
betri liðsmaður en enginn, og
smátt og smátt tekst að gera málin
upp og bræða ísinn. Brúðkaup
þeirra er fyrirhugað og væri ráð
að fjölskyldan kynntist Lucille,
móður hans, kynlega bældri konu
sem örðugt er að botna í; hvernig
skyldi standa á því að hún virðist
hafa beyg af þessum syni sínum,
hinum mesta sómapilti? Við sögu
koma einnig vinahjón Matts og
samstarfsfélagar og þar sem
nauðgari gengur laus I hverfinu
er að sjálfsögðu mikið ofarlega á
baugi hvernig á því stendur að
lögreglu tekst ekki að hafa hendur
í hári ódæðismannsins. Hann velur
fórnardýr sín af kostgæfni, að því
er bezt er séð og hefur grímu fyrir
andliti og enn hefur engum tekizt
að bera kennsl á hann. Óhugnan-
legar grunsemdir vakna hjá Matt,
þótt ótrúlegar og fjarstæðukennd-
ar séu í fyrstu. Getur verið að
tengdasonur hans tilvonandi sé
glæpamaðurinn? Og ef svo er, hvað
er það sem rekur hann til óhæfu-
verkanna? Úr þessu vinnur Craig
Jones spennandi þráð, einkum
framan af og leiðir hægt og rólega
að því líkur, að kannski sé þetta
ekki jafn mikil fjarstæða og Matt
hélt í upphafi. Mér fannst þetta
læsileg spennusaga, þó svo að les-
andi sé upplýstur fullsnemma um
sökudólginn.
MOBGUNPLAÐID,LAUGARÐAGURgUDESEMBERI985
0?
MorKunbl«ðið/Bj*rni
Jólasvein-
ar í Fönn
Þvottahúsið Fönn hefur jafnan
fyrir jól klætt bílstjóra sína, sem
sækja óhreinan þvott og skila
honum aftur hreinum, í jóla-
sveinabúninga. Hér eru Jólasvein-
ar“ fyrirtækisins að störfum.
Áætlunarfhig
til Salz-
burg á ný
FLUGLEIÐIR hefja að nýju áætlun-
arflug til Salzburg í Austurríki laug-
ardaginn 21. desember og eru hátt
á annað hundrad farþegar bókaðir f
þá ferð. Áætlunarferðir milli íslands
og Salzburg verða annan hvorn
laugardag fram í miðjan febrúar en
síðan á hverjum laugardegi, segir f
frétt frá Flugleiðum.
„Með því að taka upp áætlunar-
flug til Salzburg að vetri til líka
geta landsmenn valið þann tíma
sem hverjum hentar best til skíða-
ferða til Austurríkis. Flugleiðir og
ferðaskrifstofur eru með ýmis
sértilfooð f því sambandi sem og á
bílaleigubílum. Þá má ekki gleyma
að Salzburg er fögur og heillandi
borg jafnt að vetri sem sumri og
þar er jafnan mikið um tónlistar-
viðburði."
Flugleiðir hafa sem fyrr auglýst
skíðaferðir frá Bandaríkjunum til
Austurríkis nú í vetur og hafa
undirtektir verið mjög góðar.
Þetta treystir mjög grundvöll
Salzburgarflugsins í vetur þar sem
stór hluti skíðafarþeganna að vest-
an mun fljúga um ísland til Salz-
burg, segir í frétt Flugleiða.
un milli kl. 2 og 5, skemmta Jólasveina
ivers konar leikjum, auk þess sem þeir
Afar skemmtileg leikaöstaða fyrir börnin.
Nœg bílastœöi.
Opnunartími yfir hötíöarnar:
Lokaö aðfangadag og jóladag.
Opiö fró kl. 3 annan í jólum.
Lokaö gamlórsdag og nýórsdag.
f
-í
Skreytingaefni og gjafavara í úrvali
Híasintur og
híasintuskreytingar.
Falleg jólastjarna, leiöisgreínar
kr. 460 og leiðiskrossar kr. 720.
Greni kr. 70
búntiö og margt
margt fleira
Við erum fagfólk
síminn er 82895.
Gullfallegar
skreytingar
frá kr. 250
ð eigum flest það
m þig vantar til að
era heimilið jolalegt
GÓÐ BLÓM - GÓÐ ÞJÓNUSTA
4