Morgunblaðið - 21.12.1985, Page 83
MÖRGUNBLAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 21. DESEMBER1985
** ^ - 9T
VELVAKANDI
SVARAR f 8ÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁMÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Sverrir vill
þjóð sinni vel
Eini menntamálaráðherrann á
íslandi sem hefur tekið föstum
tökum á íslenskri tungu er Sverr-
ir Hermannsson og er nú mikið
Slæm
málvilla
Velvakandi góður!
Ég sá auglýsingu í Morgun-
blaðinu þann 10. des. sl. og var
þar um slæma málvillu að ræða.
I auglýsingunni stóð: „Við stækk-
um IBM XT um helming (var 10
MB — er nú 20 MB)“. Sérð þú
lesandi góður, ekkert athugavert
við þetta. Ef það væri sannmæli
í orðunum innan svigans ætti að
stækka myndina tvöfalt. Stækk-
un 10 MB um helming verður að
15 MB en ekki 20. Helmingurinn
af 10 eru 5 og þar af leiðandi
hlýtur helmingi meira en 10 að
vera 15.
Einn úr Vesturbænum
um hann rætt einmitt vegna
framtaks hans í þessum efnum.
Undirritaður þekkir Sverri vel
og þar er ráðherra á ferðinni sem
vill þjóð sinni vel. Hann er ekki
eiginhagsmunamaður eins og
margir á alþingi, hann er góður
fulltrúi þjóðar sinnar. Hann er
fastmótaður hörkuduglegur ráð-
herra og sá besti sem við eigum.
Maður á alltaf að þakka fyrir það
senj vel er gert og ég sendi Sverri
þakkir mínar fyrir vel unnin
störf í þágu þjóðarinnar.
Hvað ætla sjálfstæðismenn að
vera í mörg ár með framsóknar-
mönnum til að sjá hvernig ráð-
herrar framsóknar vinna. Þeir
eru þegar búnir að gera SÍS að
einveldi, Sambandið ræður að
mestu leyti öllu atvinnulífi í
landinu bæði til lands og sjávar.
Nú verður sjálfstæðisfólk að
kveðja þessa menn í vetur og
lofa þeim að sofa heima og efna
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráöherra.
til nýrra kosninga á næsta ári.
Ég hef heyrt marga sjálfstæðis-
menn segja að þeir kjósi ekki
flokkinn aftur ef haldið verður
áfram með framsókn út kjör-
tímabilið.
Gleðileg jól og farsælt kom-
andi ár,
Jóhann Þórólfsson
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þættin-
um um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og
11.30, mánudaga til föstu-
daga, ef þeir koma því
ekki við að skrifa. Meðal
efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og oröaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að
vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilis-
föng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að
höfundar óski nafnleynd-
ar.
Þessir hringdu . .
Steðji
Jóhannes Kveinbjarnarson á
Heiðarbæ í Þingvallasveit hafði
samband við Velvakanda. Hann
er uppalinn á Hvítanesi í Kjós
og í æsku hans hét títtnefndur
Staupasteinn Steðji. „Ólafía
Petersen sem fædd er alda-
mótaárið og bjó í Hvammi til
1930 þekkti steininn einnig undir
þessu nafni, svo og Hafliði
Helgason prentari.
Þegar bílvegur var lagður fram
hjá steininum festist nafnið
Staupasteinn við hann. í fréttum
var oft sagt frá slysum sem orðið
höfðu þarna og var hann þá alltaf
nefndur Staupasteinn.
Þess má síðan geta að lokum
að þjóðhátíðarárið 1974 gáfu
Kjósa-, Kjalarnes- og Mosfells-
hreppur út veggplatta með mynd
af steininum."
Endurtakið
„Spjall
á síðkvöldi"
Seinheppinn hlustandi hringdi:
Vegna vinnu minnar var ég svo
óheppinn að missa af þættinum
„Spjall á síðkvöldi" sem var á
dagskrá Ríkisútvarpsins að
kvöldi 17. desember. Ég hef heyrt
marga tala um þennan þátt.
Mörgum hefur þótt hann mjög
góður en aðrir fundið honum
margt til foráttu. Mig langar því
til að heyra hann sjálfur og vona
að hann verði endurfluttur á
betri tíma en klukkan hálf ellefu
að kvöldi. Ég er sannfærður um
að á þeim tíma hafa margir fleiri
en ég misst af honum. Því vil ég
koma þeirri ósk á framfæri að
hann verði endurfluttur fljót-
lega.
83
Bílaþvottur Bílaþvottur
Viö höfum opnaö nýja þvottastöð. Sjálfsþjónusta,
háþrýstiþvottur. Stööin er sú fyrsta sinnar tegund-
ar á íslandi og er sérhönnuö fyrir fljóta afgreiöslu.
Getum tekiö bíla allt aö 2,60 á hæö. Gott og bjart
og mjög ódýrt. Aðeins kr. 140.
Þvottastööin er viö gatnamótin Kleppsvegur/
Holtavegur/Elliðavogur. Laugin «f.
Góðar gjafir
Fjölbreytt úrval af frábærum
hljómplötum.
Guðný og Elísabet Eir — „Manstu stund ...“
Hjalti Gunnlaugsson — Sannleikurinn í mínu lífi
Þorvaldur Halldórsson — Föðurást
Pálmi Gunnarsson — Friðarjól
Viktor Klimenko — Allar
Russ Taff — Medals, Walls of Glass
Tim Miner — Tim Miner
Sheila Walsh — Don’t Hide Your Heart
Debby Boone — Choose Life
Amy Grant — Unguarded
Phil Driscoll — Power of Praise
Margir aðrir góðir titlar, öll möguleg stílbrigði.
Mikið úrval af jólaplötum.
Bækur, gjafavörur,
myndir og kort eftir Joni
4T
Einar J. Gíslason áritar bók sína „Einar í
Betel“ í dag kl. 14—17.
Lítið inn, heitt á könnunni, næg bflastæði.
Greiðslukortaþjónusta.
l/erslunin
Hát0n2 105Reykjavik
simi: 20735/25155
Mittis kuldajakkar í úrvali
HERRADEILD
AUSTURSTRÆTI 14